Morgunblaðið - 03.03.2007, Blaðsíða 43
ir söng. Þráinn Haraldsson æskulýðsleiðtogi prédikar.
Krakkar úr æskulýðsstarfinu aðstoða. Aðalfundur
safnaðarsins kl. 12.15. Barnaguðsþjónusta kl. 13 (sjá
einnig á www.hjallakirkja.is).
HJÁLPRÆÐISHERINN: | Samkoma sunnudag kl. 20.
Ræðumenn: Carol og Freddie Filmore. Umsjón: Harold
og Miriam. Heimilasamband fyrir konur mánudag kl.
15. Opið hús daglega kl. 16–18 nema mánudaga.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: | Sunnudaginn 4.
mars kl. 11 Sunnudagsskóli, kl. 17. Alm. samkoma.
Níels Jakob Erlingsson talar. Allir eru hjartanlega vel-
komnir
HRAFNISTA: | Hrafnista í Reykjavík: Guðsþjónusta
klukkan 10.30 í samkomusalnum Helgafelli 4. hæð.
Organisti Kári Þormar en kór Hrafnistu og kórfélagar úr
kirkjukór Áskirkju syngja. Prestur sr. Svanhildur Blön-
dal.
Hríseyjarkirkja | Fjölskylduguðsþjónusta verður kl. 14 í
Hríseyjarkirkju sunnudaginn 4. mars, sem er Æsku-
lýðsdagur þjóðkirkjunnar. Mikill og skemmtilegur söng-
ur verður fyrir alla fjölskylduna. Börn og unglingar taka
þátt í guðsþjónustunni. Prestur sr. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir.
Hvalsnes- og Útskálasóknir | Laugardagurinn 3. mars
Kirkjuskólinn kl. 13. Sameiginleg stund Útskála- og
Hvalsnes í safnaðarheimilinu í Garði. Allir velkomnir.
Sunnudaginn 4. mars: æskulýðsdagurinn. Safn-
aðarheimilið í Sandgerði: gospel-guðsþjónusta kl.
20.30. Fram koma Kór Hvalsneskirkju og kór Útskála-
kirkju. Jón Árni Benediktsson leikur á bassa, Þorvaldur
Halldórsson á trommur og Steinar Guðmundsson á pí-
anó. Sungnir verða léttir sálmar og Lofsöngvar. Með-
hjálpari: Helga Magnea Birkisdóttir. Prestur Björn
Sveinn Björnsson. Garðvangur: Helgistund kl. 15.30.
Mánudagurinn 5. mars verður fræðsluferð ferming-
arbarna í Skálholt. Lagt af stað frá grunnskólunum á
milli kl. 8.15 og 8.30. Sóknarprestur.
HVERAGERÐISKIRKJA: | Guðsþjónusta og barna starf
kl. 11. Aðalsafnaðarfundur Hveragerðissóknar að lok-
inni Guðsþjónustu. Mömmumorgnar á þriðjudögum kl.
10. Sóknarprestur.
ÍSLENSKA kirkjan í Lundúnum | Helgistund í tilefni
föstunnar verður í Þýsku kirkjunni á Montpelier Place,
sunnudaginn 4. mars nk. og hefst stundin klukkan 17.
Leikarar lesa úr Passíusálmum Hallgríms Péturssonar
og dr. Páll Matthíasson hugleiðir föstuna. Föstusálmar
verða fluttir með hefðbundnum og óhefðbundnum
hætti.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: | Fjölbreytt og skemmti-
legt barnastarf kl. 11. Fræðsla fyrir fullorðna. Friðrik
Schram kennir. Heilög kvöldmáltíð. Samkoma kl. 20
með mikilli lofgjörð og fyrirbænum. Sýnd vídeómynd frá
Omo Rate. Friðrik Schram predikar. Samkoma á Eyj-
ólfsstöðum á Héraði kl. 20.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: | Reykjavík, Kristskirkja í
Landakoti: Sunnudaga: Messa kl. 10.30. Messa á
ensku kl. 18. Virka daga: Messa kl. 18. Laugardaga:
Barnamessa kl. 14 að trúfræðslu lokinni. Reykjavík,
Maríukirkja við Raufarsel: Sunnudaga: messa kl. 11.
Laugardaga: Messa á ensku kl. 18.30. Virka daga:
Messa kl. 18.30. Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa
kl. 16. Miðvikudaga kl. 20. Hafnarfjörður, Jós-
efskirkja: Sunnudaga: Messa kl. 10.30. Virka daga:
Messa kl. 18.30. Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa
kl. 08.30. Virka daga: Messa kl. 8. Keflavík, Barböru-
kapella: Skólavegi 38: Sunnudaga: Messa kl. 14.
Stykkishólmur, Austurgötu 7: Virka daga: Messa kl.
18.30. Sunnudaga: Messa kl. 10. Ísafjörður: Sunnu-
daga: Messa kl. 11. Flateyri: Laugardaga: Messa kl.
18. Bolungarvík: Sunnudaga kl. 16. Suðureyri: Sunnu-
daga: Messa kl. 19. Akureyri, Péturskirkja: Laug-
ardaga: Messa kl. 18. Sunnudaga: Messa kl. 11.
KÁLFATJARNARSÓKN: | Kirkjuskóli í Stóru-Vogaskóla
kl. 11.
KEFLAVÍKURKIRKJA: | Keflavíkurkirkja 2007 til 2015:
Stefnumótun í Keflavíkursókn. Guðsþjónusta og opið
hús sunnudaginn 4. mars kl. 11 til 14. Kvöldmessa kl.
20. Karlakór Keflavíkur syngur. Umræður um predikun
að lokinni messu. Dagskráin er auglýst á heimasíðu
Keflavíkurkirkju: keflavikurkirkja.is.
KFUM og KFUK: | Messa kl. 11. Kristniboðsvika
„Send mig“ Samkoma í Grensáskirkju kl. 20. „Gefins
hafið þér fengið“ ræðumaður er Gunnar Hamnöy, einn-
ig segir Gunnar „Frá ferðum á akrinum“ . Helga Magn-
úsdóttir syngur einsöng. Allir velkomnir.
KIRKJA JESÚ KRISTS hinna síðari daga heilögu, mor-
mónakirkjan: | Ásabraut 2, Garðabæ. Sunnudaga:
11.15 sakramentisguðsþjónusta. 12.30 sunnudaga-
skóli. 13.20 félagsfundir. Þriðjudaga: 17.30 trúarskóli
yngri. 18 ættfræðisafn. 18.30 unglingastarf. 20 trúar-
skóli eldri. Allir eru alltaf velkomnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Stúlkur úr 5. bekk Kársnesskóla syngja undir stjórn
Þórunnar Björnsdóttur kórstjóra. Krakkar úr æskulýðs-
starfi leiða bænir og taka þátt í guðsþjónustunni.
Barnastarf í kirkjunni kl. 12.30.
Landsspítali – háskólasjúkrahús: Fossvogur | Guðs-
þjónusta kl. 10.30 Rósa Kristjánsdóttir djákni, org-
anisti Helgi Bragason.
LANGHOLTSKIRKJA: | Fjölskylduguðsþjónusta og
barnastarf kl. 11. Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar. Kór
Vogaskóla syngur, Ágústa Jónsdóttir stjórnar og ferm-
ingarbörn taka þátt í stundinni. Barnastarfið hefst í
kirkjunni síðan fara börnin í safnaðarheimilið. Prestur
Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Jón Stefánsson.
LAUGARNESKIRKJA: | Kl. 11 Æskulýðsdagurinn.
Fermingarbörn og krakkar úr Adrenalínhópnum koma
fram. Einsöngur, ljóðalestur og stuttmynd sem TTT-
krakkar kirkjunnar léku í. María Magnúsdóttir er for-
söngvari og Gunnar Gunnarsson leiðir hljómsveit. Sr.
Hildur Eir og Stella Rún sjá um skipulagningu og ut-
anum hald.
LÁGAFELLSKIRKJA: | Æskulýðsdagurinn poppmessa
og leikrit, poppmessa kl. 20. Hljómsveitin Gildran leið-
ir safnaðarsöng. Prestur: Ragnheiður Jónsdóttir. Org-
anisti: Jónas Þórir. Unglingar safnaðarins taka virkan
þátt. Sunnudagaskóli kl. 13. Stoppleikhópurinn sýnir
leikritið Eldfærin eftir H.C. Andersen. Prestarnir.
LINDASÓKN í Kópavogi: | Æskulýðsdagur þjóðkirkj-
unnar. Fjölskylduguðsþjónusta í Salaskóla kl. 11. Kór
Salaskóla syngur, stúlkur úr KFUK starfinu sýna helgi-
leikinn Miskunnsami grillspaðinn, Jón Ómar Gunn-
arsson guðfræðinemi prédikar. Keith Reed organisti
annast undirleik. Prestur: Guðmundur Karl Brynj-
arsson.
Möðruvallakirkja | Fjölskylduguðsþjónusta verður kl.
11 í Möðruvallakirkju sunnudaginn 4. mars, sem er
æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar. Mikill og skemmtilegur
söngur verður fyrir alla fjölskylduna. Börn og unglingar
taka þátt í guðsþjónustunni. Allir hjartanlega velkomn-
ir. Sóknarprestur.
NESKIRKJA: | Fjölskyldumessa kl. 11. Félagar úr kór
Neskirkju leiða safnaðarsöng. Barnakór Neskirkju
syngur. Stjórnandi Steingrímur Þórhallsson organisti.
Sr. Þórhildur Ólafs flytur hugleiðingu og þjónar fyrir alt-
ari ásamt sr. Erni Bárði Jónssyni. Starfsfólk barna-
starfsins aðstoðar. Kaffi og spjall eftir messu.
NJARÐVÍKURKIRKJA (Innri-Njarðvík): | Sunnudaga-
skóli sunnudaginn 4. mars kl. 11. Umsjón hafa Laufey
Gísladóttir, Dagmar Kunáková og Elín Njálsdóttir.
REYNIVALLAKIRKJA í Kjós: | Guðsþjónusta verður í
Reynivallakirkju sunnudaginn 4. mars kl. 14. Gunnar
Kristjánsson sóknarprestur.
SELFOSSKIRKJA: | Selfosskirkja. Barna- og fjölskyldu-
samkoma kl. 11. Æskulýðsdagurinn. Barnakórar kirkj-
unnar syngja undir stjórn Edit Molár. Léttur málsverður
í Safnaðarheimilinu á eftir. Þriðjudagur 6. mars kl. 14:
Kirkjuskóli í félagsmiðstöðinni við Tryggvagötu. Mið-
vikudagur kl. 11: Foreldramorgunn í Safnaðarheim-
ilinu. heimsókn frá snyrtistofunni Myrru. Fimmtudagur
8. mars kl. 19: Fundur í Æskulýðsfélaginu „Kærleiks-
birnirnir“. Sr. Gunnar Björnsson.
SELTJARNARNESKIRKJA: | Guðsþjónusta kl. 11.
Æskulýðsdagurinn haldinn hátíðlegur. Fermingarbörn
lesa ritningarlestra, leika helgileik, fara með bænir og
leiða sálmasöng í léttum dúr. Barnakórinn syngur fal-
leg lög undir stjórn Vieru Manasek. Organisti Pavel
Manasek. Sr. Arna Grétarsdóttir. Verið velkomin.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: | Skálholtsdómkirkja.
Messa sunnudag 4. mars kl. 11. Sóknarprestur.
SKEIÐFLATARKIRKJA í Mýrdal | Í tilefni af æskulýðs-
degi þjóðkirkjunnar verður fjölskylduguðsþjónusta með
léttri tónlist í Skeiðflatarkirkju í Mýrdal, sunnudaginn 4.
mars kl. 14. Kristín Björnsdóttir organisti leikur undir
og stjórnar almennum söng. Nemendur Tónskóla Mýr-
dalshrepps koma fram og leika á hljómborð undir
stjórn skólastjóra skólans, Kristins Níelssonar. Eftir
guðsþjónustuna verður kvenfélag Dyrhólahrepps með
kaffisölu í Ketilsstaðaskóla til styrktar Skeiðflat-
arkirkju. Ég hvet sóknarbörn mín, alla velunnara Skeið-
flatarkirkju ásamt þeim sem leið eiga um Mýrdalinn á
þessum degi, til að fjölmenna í kirkjuna af þessu hátíð-
lega tilefni. Fermingarbörn og foreldrar þeirra sér-
staklega hvött til að mæta. Sóknarprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA: | Guðsþjónusta 4. mars kl.
11.
Vegurinn kirkja fyrir þig | Fjölskyldusamkoma kl.11
fellur niður vegna lækningadaga. Samkoma kl. 19,
Högni Valsson predikar, brauðsbrotning, lofgjörð, fyr-
irbænir og samfélag eftir samkomu í kaffisal. Allir
hjartanlega velkomnir. www.vegurinn.is.
VÍDALÍNSKIRKJA: | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Kór
Hofsstaðaskóla leiðir lofgjörðina. Unglingahljómsveitin
Exodus kemur fram. Vöfflukaffi í safnaðarheimili.
Gospelmessa kl. 20. Gospelkór Jóns Vídalíns leiðir lof-
gjörðina. Rannveig Káradóttir syngur einsöng. Ármann
H. Gunnarsson predikar. Sjá gardasokn.is.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: | Æskulýðsdagurinn
4. mars: Fjölskylduhátíð kl. 11. Sunnudagaskólinn og
fjölskylduguðsþjónustan saman í einni fjölskylduhátíð.
Barnakórinn og Unglingakórinn syngja undir stjórn Ás-
laugar Bergsteinsdóttur. Samvera með ferming-
arbörnum og foreldrum í safnaðarheimilinu að guðs-
þjónustu lokinni.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: | Messa 4. mars kl. 14.
Frímúarar koma í heimsókn og syngur Frímúararkórinn
undir stjórn Jóns Kristins Cortez við undirleik Jónasar
Þóris organista. Að messu lokinni verður kaffisala til
styrktar líknarsjóði Ytri-Njarðvíkurkirkju og fer hún fram
í sal Sindrabræðra að Bakkastíg 16 í Njarðvík.
Sunnudagaskóli sunnudaginn 4. mars kl. 11. Umsjón
María Rut Baldursdóttir, Natalía Chow Hewlett Ástríður
Helga Sigurðardóttir og Hanna Vilhjálmsdóttir.
ÞORLÁKSHAFNARKIRKJA | Sunnudagaskóli 4. mars
kl. 11. Baldur, Sissa og Julian. Messa kl. 14. Kirkjukór
Þorlákskirkju. Organisti Julian Edwards.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2007 43
heimsókn. Barna- og unglingakór
kirkjunnar syngur, stjórnandi er
Svava Kristín Ingólfsdóttir. Undir-
leikari er Guðlaugur Viktorsson. Á
sunnudagskvöldið verður kvöld-
guðsþjónusta í Grafarvogskirkju kl.
20. Guðsþjónustan verður tileinkuð
ungu fólki þar sem verða sungnir
léttir og fjörugir söngvar og mun
hljómsveitin Samson sjá um að leiða
tónlistina. Prestur séra Lena Rós
Matthíasdóttir, Gunnar Einar Stein-
grímsson, æskulýðsfulltrúi Graf-
arvogskirkju, hefur umsjón með
stundinni. Eins munu unglingar úr
æskulýðsfélagi Grafarvogskirkju
aðstoða við helgihaldið. Þetta er
kjörinn vettvangur fyrir foreldra og
unglinga til þess að koma saman og
eiga skemmtilega og notalega stund
saman. Öll hjartanlega velkomin.
Garðvangur.
Helgistund kl:15.30 Mánudag-
urinn 5. mars: Fræðsluferð ferm-
ingarbarna í Skálholt. Lagt af stað
frá grunnskólunum á milli kl. 8.15-
8.30 Sóknarprestur Björn Sveinn
Björnsson
Þorlákskirkja. Steinunn
Jóhannesdóttir fjallar
um Hallgrím ungan
Miðvikudaginn 7. mars kl. 16 kemur
Steinunn Jóhannesdóttir rithöf-
undur í heimsókn í Þorlákskirkju og
segir okkur frá Hallgrími Péturs-
syni ungum. Hallgrímur er eitt
mesta skáld í síðkristni og orti m.a.
Passíusálmana og Allt eins og
blómstrið eina sem upp vex af sléttri
grund. Kona hans var Guðrún Sim-
onardóttir sem brottnumin var og
seld í þrældóm af Alsírmönnum
þegar þeir gerðu strandhögg í Vest-
mannaeyjar 1627. Guðrún komst til
Íslands aftur löngu síðar og giftist
prestinum og sálmaskáldinu. Stein-
unn hefur gert ævi hennar skil bæði
í bókum og með leikritun. Á undan
og eftir mun kór aldraðra syngja
undir stjórn Esterar Ólafsdóttur.
Og enn síðast verður kaffi á boð-
stólum. Þetta er önnur samkoman í
þessari röð sem hönnuð er í sam-
starfi Þorlákskirkju og Félags eldri
borgara og allir eru að sjálfsögðu
velkomnir án tillits til aldurs og
fyrri starfa. Þá hefur Barbara
Guðnadóttir menningarfulltrúi ver-
ið svo vinsamleg að auglýsa þetta
meðal annarra menningarviðburða
í Ölfusi.
Æskulýðsdagurinn
í Hafnarfjarðar-
fjarðarkirkju
Sunnudagurinn 4.mars, Æskulýðs-
dagurinn, fer fram með hefð-
bundnum hætti. Hefst hann með
fjölskylduhátíð kl. 11 þar sem
hljómsveitin Gleðigjafar leikur og
barnakórinn syngur. Um kvöldið er
æskulýðsmessa kl 20 í umsjá Æskó,
Æskulýðsfélags Hafnarfjarð-
arkirkju.Þar syngur Friðrik Ómar
og hljómsveitin Gleðigjafar leikur
enn á ný. Eftir æskulýðsmessuna
bjóða fermingarbörn fjölskyldum
sínum til veglegrar veislu í Hásölum
Strandbergs.
Lágafellskirkja.
Æskulýðsdagur kirkj-
unnar. Kvöldguðsþjón-
usta og leikrit
,,Réttu mér hönd“ er yfirskrift
dagsins. Með þeim orðum erum við
m.a. hvött til að hugleiða hvernig
hver einstaklingur fyrir sig og við
sem samfélag, getum látið gott af
okkur leiða í þágu lífsins, náunga
okkar og umhverfis og mannkyns
alls. Hvar sjáum við neyð náungans
sem við getum rétt hjálparhönd,
stutt eða leitt á þeim vegi sem við
göngum saman og sem Jesús Krist-
ur vísaði okkur. Börnin og unga
fólkið er framtíð kirkju og þjóðar.
Þau munu taka virkan þátt í guðs-
þjónustunni þ. 4. mars sem verður
að kvöldlagi í Lágafellskirkju kl. 20.
Hún verður með léttu yfirbragði og
miklum söng. Popphljómsveitin
,,Gildran“ mun spila og leiða safn-
aðarsöng, ásamt Jónasi Þóri org-
anista og söngkonunni Hrönn
Svansdóttur. Hljómsveitina skipa:
Sigurgeir Sigmundsson, Karl Tóm-
asson, Jón Rafnsson og Birgir Har-
aldsson. Ritningarlestur og bænir
annast unglingarnir Klara Bald-
vinsdóttir, Kristófer Eiríksson,
Diljá Auður Kolbeinsdóttir, Gréta
Snorradóttir og Lísa Óskarsdóttir.
Sjafnar Björgvinsson mun aðstoða
meðhjálpara. Við hvetjum alla ald-
urshópa til að koma í kirkju. Sunnu-
dagaskólinn er á sínum stað kl. 13. Í
tilefni Æskulýðsdagsins fáum við
heimsókn af Stoppleikhópnum, sem
mun flytja okkur ævintýri H.C.And-
ersens ,,Eldfærin“. Allir velkomnir.
Fjölskyldumessa
í Neskirkju
Næstkomandi sunnudag er æsku-
lýðsdagur Þjóðkirkjunnar og þá er
fjölskyldufólki og ungu fólki sér-
staklega boðið til messu í Neskirkju.
Konni fugl, Rebbi refur og Engil-
ráð andarungi verða gestir mess-
unnar. Barnakór Neskirkju flytur
lög og ungmenni úr unglingastarfi
Neskirkju & Dómkirkju munu að-
stoða við messuna. Sýnd verður ör-
mynd eftir Krakkaklúbb Neskirkju.
Sr. Þórhildur Ólafs flytur hugleið-
inu og þjónar fyrir altari ásamt sr.
Erni Bárði Jónssyni.Félagar úr Kór
Neskirkju munu leiða safn-
aðarsöng. Stjórnandi og organisti
er Steingrímur Þórhallsson. Yf-
irskrift æskulýðsdagsins að þessu
sinni er ,,Réttu mér hönd“ og er yf-
irskriftin valin í tengslum við yf-
irstandandi ár kærleiksþjónust-
unnar. Allir eru hjartanlega
velkomnir, ungir sem aldnir.
Kirkjudagur
Safnaðarfélags
Ásprestakalls
Safnaðarfélag Ásprestakalls heldur
sinn árlega kirkjudag á morgun
sunnudag. Eftir messu sem hefst kl.
14 verður safnaðarfélagið með
kaffisölu til styrktar kirkjustarfinu.
Kirkjubíllinn ekur og hefur við-
komu á öllum dvalarheimilum og
stærri byggingum í sókninni.
Ungt fólk þjónar
í Bessastaðasókn
Sunnudaginn 4. mars sem er æsku-
lýðsdagur Þjóðkirkjunnar verður
mikið um dýrðir í Bessastaðasókn.
Kl.11 er sunnudagaskóli í hátíðarsal
Álftanesskóla undir stjórn Krist-
jönu Thorarensen. En kl.14 verður
fjölskylduguðsþjónustu í Bessa-
staðakirkju. Þar munu ferming-
arbörn sýna þrjá leikþætti þar sem
þau túlka þrjár Biblíusögur undir
stjórn Laufeyjar Brár Jónsdóttur
leikara. Níu manna hljómsveit ungs
fólks úr tónlistarskólanum á Álfta-
nesi mun leika forspil og eftirspil.
Tveir kórar munu koma fram en
það er yngri barnakór Álftanes-
skóla undir stjórn Lindu Margrétar
Sigfúsdóttur og gospelkór Jóns Ví-
dalíns undir stjórn Þóru Gísladótt-
ur. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir flyt-
ur hugleiðingu og stýrir
guðsþjónustunni ásamt Bjarti Loga
Guðnasyni organista. Kl.20 verður
gospelmessa á vegum Garða-
prestakalls í Vídalínskirkju. Þar
mun gospelkór Jóns Vídalíns leiða
lofgjörðina og Rannveig Káradóttir
mun syngja einsöng, einnig mun
hljómsveitin Exodus koma fram.
Ármann H. Gunnarsson predikar og
þjónar ásamt prestunum Jónu
Hrönn Bolladóttur og Friðrik
J.Hjartar. Foreldrar og ferming-
arbörn eru hvött til þáttöku. Allir
velkomnir.
Ungt fólk þjónar
í Garðasókn
Sunnudaginn 4. mars sem er æsku-
lýðsdagur Þjóðkirkjunnar verður
mikill gleðidagur í Garðasókn.
Kl.11 verður fjölskylduguðsþjón-
usta í Vídalínskirkju. Þar mun
barnakór Hofstaðaskóla leiða lof-
gjörðina undir stjórn Hildar Jó-
hannesdóttur. Fermingarbörn og
félagar úr æskulýðsfélagi kirkj-
unnar þjóna ásamt sr. Hans Guð-
berg Alfreðssyni, Jóhönnu Guðrúnu
Ólafsdóttur djákna, Hjördísi Rós
Jónsdóttur, Ármanni H. Gunn-
arssyni æskulýðsfullrúa og sr. Jónu
Hrönn Bolladóttur. Hljómsveitin
Exodus kemur fram í fyrsta skipti
en hana skipa unglingar úr 8. og 9.
bekk Garðaskóla og hljómsveit-
arstjóri er Andri Bjarnason. Eftir
guðsþjónustu býður æskulýðs-og
fjölskyldunefnd Vídalínskirkju upp
á vöfflur og jafnframt er fólk hvatt
til að gefa í fjársöfnun æskulýðs-
félagsins til að leysa börn úr þræ-
laánauð á Indlandi. Af því tilefni er
opnuð ljósmyndasýning eftir Ár-
mann H. Gunnarsson æskulýðsfull-
trúa, en myndirnar eru teknir úr
námsferð hans um Indland. Kl.14
verður messa í Garðakirkju. Þar
þjóna Friðrik J.Hjartar og Nanna
Guðrún Zöega djákni. Kór Vídal-
ínskirkju leiðir lofgjörðina undir
stjórn Jóhanns Baldvinssonar org-
anista. Kl. 20 verður svo gospel-
messa í Vídalínskirkju. Gospelkór
Jóns Vídalíns leiðir lofgjörðina
undir stjórn Þóru Gísladóttur.
Fyrrum æskulýðsfulltrúi Garða-
sóknar Rannveig Káradóttir syng-
ur einsöng og hljómsveitin Exodus
undir stjórn Andra Bjarnasonar
kemur fram. Ármann H. Gunn-
arsson æskulýðsfulltrúi predikar
og þjónar ásamt prestunum Jónu
Hrönn Bolladóttur og Friðrik J.
Hjartar. Að lokinni guðsþjónust-
unni er boðið upp á hressingu í
safnaðarheimilinu. Foreldrar og
fermingarbörn eru hvött til þát-
töku. Allir velkomnir. Sjá
www.gardasokn.is.
Sálmar páska og
hvítasunnu
Mánudaginn 5. mars hefst í Leik-
mannaskóla Þjóðkirkjunnar nám-
skeið um sálma sem sungnir eru í
kirkjunni í tengslum við páska og
hvítasunnu.
Kennarar á námskeiðinu eru dr.
Einar Sigurbjörnsson prófessor og
sr. Kristján Valur Ingólfsson lektor
og sóknarprestur á Þingvöllum. Á
námskeiðinu verða skoðaðir sálmar
páska og hvítasunnu, hugað að
innihaldi þeirra og og boðskap
ásamt tónlistinni við þá. Nám-
skeiðið er haldið í Grensáskirkju,
hefst kl. 20 og er kennt í fjögur
skipti, tvo tíma í senn. Hægt er að
skrá sig í síma 535 1500 eða á vef
skólans, http://www.kirkjan.is/
leikmannaskoli/?skraning
Ráðherrar og
þingmenn lesa
í Grafarvogskirkju
Ráðherrar og þingmenn halda
áfram að lesa úr Passíusálmunum
alla virka daga kl. 18. Á mánudag-
inn mun Sigríður Anna Þórð-
ardóttir lesa 9. sálminn. Jón Gunn-
arsson les á þriðjudag, Guðni
Ágústsson á miðvikudag, Ásta R.
Jóhannesdóttir á fimmtudag og
Drífa Hjartadóttir á föstudaginn
kemur. Síðasti lesturinn verður 4.
apríl nk. er Jón Sigurðsson les síð-
asta passíusálminn.