Morgunblaðið - 03.03.2007, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2007 17
FRÉTTIR
Ármúla 42 · Sími 895 8966
mánudaga - föstudaga 10-18
laugardaga og sunnudaga 11-18
• Vasar
• Diskar
• Lampar
• Pottar
• Myndir
o.m.fl .
Opið
Sprengihelgi
Síðustu dagar
laugardag og sun
nudag
30-80% afsláttur
Baráttusamtök eldri borgara (55+) og öryrkja boða til
almenns framboðsfundar
sunnudaginn 4. mars kl. 14:00
á Grand Hóteli við Sigtún í Reykjavík.
Fundarefni:
Sameiginlegt framboð eldri borgara og öryrkja í þingkosningunum
12. maí 2007 í samvinnu við fulltrúa frá Átakshópi öryrkja.
Dagskrá:
1. Formaður Baráttusamtakanna, Arndís H. Björnsdóttir, ávarpar
fundargesti og flytur stutt erindi um stöðu eldri borgara
í „velferðarsamfélaginu“.
2. Erindi um stöðu aldraðra í bótakerfinu: Einar Guðmundsson.
3. Aðild að lífeyrissjóðunum: Kristján S. Guðmundsson.
4. Gerð verður grein fyrir drögum að verkefnaskrá framboðsins.
5. Lögð verður fram tillaga að 3 einstaklingum í undirbúningsnefnd framboðsins.
6. Tillaga um samþykkt sameiginlegs framboðs eldri borgara og öryrkja í samvinnu við
fulltrúa úr átakshópi öryrkja.
Baráttusamtökin leggja áherslu á að sem flestir mæti.
Við eldumst öll og aldrei hefur verið meiri nauðsyn en nú að sjá
til þess að okkur verði tryggt gott og áhyggjulaust ævikvöld.
Standið vörð um ævikvöld ykkar og mætið sem flest
- ungir sem aldnir.
Baráttusamtökin.
Hvers vegna er einmitt nú brýn þörf
á þingframboði eldri
borgara og öryrkja?
AF hernaðarlegri nákvæmni lenti
þyrla á þaki félagsmiðstöðvarinnar
Ungdomshuset við Jagtvej 69 á
Norðurbrú í Kaupmannahöfn kl.
07.00.20 að morgni fimmtudags.
Skömmu áður höfðu lögreglubílar
keyrt upp að húsinu og tugir lög-
reglumanna íklæddir herklæðum
með gasgrímur fyrir vitum hlaupið í
halarófu inn í mest umtalaða hús
Kaupmannahafnar.
Á nokkrum mínútum lauk lög-
regla vel skipulögðu verkefni sínu
innandyra en mótmæli ungmenna
og stuðningsmanna þeirra áttu eftir
að halda áfram á götum úti langt
fram eftir kvöldi víða um borgina.
Laust eftir kvöldmat breyttust mót-
mælin í götuóeirðir milli hörðustu
mótmælendanna og lögreglu á
Norðurbrú, Ráðhústorginu og við
þinghúsið Kristjánsborg.
Spennan og ókyrrðin lágu í loft-
inu allan daginn og íbúar borgar-
innar fylgdust með óeirðunum með
því að leggja við hlustir eftir sír-
enuvæli og hvini í þyrlum sem svifu
yfir Norðurbrú og nærliggjandi
íbúahverfum. Fylgst var með frétt-
um af atburðunum á netinu og aug-
un límdust við sjónvarpsskjáinn
þegar leið á kvöldið.
Af ótta við að börnin yrðu
strandaglópar á dagvistunarstofn-
unum og í skólum hverfisins var
víða horfið frá því að taka á móti
börnum þegar fólk vissi í hvað
stefndi á fimmtudaginn.
Í gær voru sömuleiðis margir
skólar lokaðir þar sem enn átti eftir
að hreinsa til á götum úti og fólk
komst ekki leiðar sinnar.
Hátt hlutfall íbúa Norðurbrúar er
útlendingar og fyrrverandi flótta-
menn sem fengið hafa pólitískt hæli
í Danmörku. Sagt var frá því í út-
varpsfréttum að tugir foreldra
hefðu þegið sálfræðiaðstoð fyrir
börn sín í gær þar sem þau hefðu
endurupplifað óminn af stríðsátök-
unum sem þau eitt sinn flúðu.
Í viðtölum við eigendur nærliggj-
andi búða og fyrirtækja mátti í gær
merkja létti yfir því að nú hillir
undir lok mótmælahrinu ungmenn-
anna vegna sölu borgarinnar á at-
hvarfi þeirra við Jagtvej. Flestir
þeirra hafa orðið fyrir skaða af
átökunum í haust og vetur enda
hafa viðskiptavinir haldið sig fjarri
götusteinakasti mótmælanda og
táragasi lögreglu en mótmælin á
fimmtudaginn voru þau þriðju í röð-
inni á skömmum tíma.
Fljúgandi götusteinar
og táragas
Nokkrir búðareigendur höfðu í
samráði við samtök nágranna húss-
ins reynt að biðla til stjórnmála-
manna um pólitíska lausn á deilunni
sem upphófst þegar borgin seldi
kristilegum samtökum húsið árið
2001. Allt kom fyrir ekki og til-
raunir meirihluta borgarstjórnar
undir forystu borgarstjórans Ritt
Bjerregaard til að seinka sölu húss-
ins máttu sín lítils þegar eigend-
urnir sóttu rétt sinn fyrir dómstól-
um.
Johnny Beyer, eigandi málning-
arvöruverslunar við Norrebrøgade,
einn þeirra sem reyndu að miðla
málum í deilunni, sagði í viðtali við
Berlingske Tidende í gær að mikil
eftirsjá væri að starfseminni sem
nú hefur verið í húsinu í tæp 25 ár.
Mikilvægur menningarkimi
Kaupmannahafnar færi forgörðum
þegar ungmennin færu úr hverfinu
og það væri skömm að því að borg-
aryfirvöld hefðu ekki boðið þeim
annað hús til afnota. Samkvæmt Jo-
hnny má búast við að mótmælin
haldi áfram næstu daga. Ljóst er að
yfirvöld óttast hið sama en lögregl-
an hefur fengið liðsauka frá öllum
lögregluumdæmum landsins til að
standa vaktina um helgina.
Foreldrar hafi stjórn á
börnum sínum
Ekki hafa allir samúð með mál-
stað unga fólksins og finnst það
ekki hafa unnið almenning á sitt
band með ofbeldisfullum mótmæl-
um og aðgerðum gegn lögreglu nú á
síðustu mánuðum. Að eftirláta því
nýtt húsnæði til afnota væri eins og
að verðlauna óþekka krakka fyrir
ólætin. Lene Espersen dómsmála-
ráðherra biðlaði í gær til foreldra
ungmennanna um að róa þau niður
og fá þau til að leggja árar í bát.
Ritt Bjerregaard kom fyrr úr
skíðaferðalagi frá Noregi en áætlað
var til að fylgjast með atburða-
rásinni en að öðru leyti hafa stjórn-
málamenn haldið sig til hlés. Ung-
dómshúsið er selt, ungmennin eru
farin og það var og verður verkefni
lögreglu að halda þeim frá húsinu
og mótmælum í skefjum.
Sírenuvæl og
þyrluhvinur á
Norðurbrú
Allt hefur logað í óeirðum
í Kaupmannahöfn eftir
að lögreglan fjarlægði
hústökumenn frá Norð-
urbrú á fimmtudag. Rósa
Erlingsdóttir skýrir frá
eftirmálum óeirðanna.
Höfundur er fréttaritari
Morgunblaðsins í Kaupmannahöfn.
Reuters
Ólga Kona og barn ganga hjá brunnum bílflökum skammt frá Kristjaníu í
Kaupmannahöfn í gær. Tugir hafa fengið sálfræðiaðstoð vegna ólátanna.