Morgunblaðið - 03.03.2007, Blaðsíða 27
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2007 27
Atvinnulífið á Þórshöfn er fjörugt þessa
dagana en unnið hefur verið á vöktum allan
sólarhringinn hjá Hraðfrystistöð Þórs-
hafnar þegar skipin koma inn með fullfermi
af loðnu.
Skip Ísfélags Vestmannaeyja hafa einnig
landað hér og almenn ánægja er heima fyr-
ir með aðkomu Ísfélagsins í atvinnulífið.
Hraðfrystistöðin hefur tekið á móti tæpum
15 þúsund tonnum af hráefni frá áramót-
um, að sögn Magnúsar Helgasonar fram-
kvæmdastjóra og er það góð búbót í at-
vinnulífið.
Loðnan er einkum fryst á Rússlands-
markað og eru það nú orðin um 2.300 tonn
en heldur minna á Japan, um 200 tonn.
Aflaverðmæti skipanna Júpíters ÞH og
Þorsteins er nokkuð gott í febrúar, samtals
um 230 milljónir sem væntanlega skilar
tekjum í þjóðarbúið.
Hrognafrysting stendur nú yfir og komin
eru nú um 200 tonn sem fryst voru á
Japansmarkað. Japönsku kaupendurnir
eru vandlátir og vilja aðeins úrvalshráefni.
Fulltrúi þeirra hefur verið í Hraðfrysti-
stöðinni og fylgst grannt með fram-
leiðsluferlinu, bragðað á hrognunum og
fylgst með sýnatöku. Hráefnið hefur stað-
ist kröfurnar og enginn orðið fyrir von-
brigðum.
Eftir að loðnan hefur verið skorin til
hrognatöku fer slógið í bræðslu en
bræðsluferlinu fylgir hin svokallaða pen-
ingalykt sem íbúar í sjávarplássi kippa sér
ekki upp við.
Öðru máli virðist gegna um fólk sunnan
af landi, eins og alþjóð fékk að sjá í miður
smekklegri fyrirsögn í Fréttablaðnu fyrir
skömmu þar sem útsendarar mömmu.is
hörfuðu ælandi frá Þórshöfn.
Af fyrirsögninni mátti ráða það að Þórs-
höfn væri með eindæmum ófétislegt byggð-
arlag svo uppköstum yrði ekki varist og
voru íbúar að vonum hissa þegar fyr-
irsögnin blasti við þeim. Ástæða ógleðinnar
reyndist vera bræðsluilmurinn úr verk-
smiðjunni sem viðkvæm skilningarvit
mömmudrengja og -stúlkna þoldu ekki.
Þorpsbúar velta nú fyrir sér hvort fag-
mennska í blaðamennsku sé á undanhaldi
eða hvort gúrkutíðin sé svona alger.
Morgunblaðið/Kristinn
Loðnan Unnið er á vöktum hjá Hraðfrystistöð Þórs-
hafnar um þessar myndir enda skipin að koma inn
fullfermd loðnu.
ÞÓRSHÖFN
Líney Sigurðardóttir fréttaritari
Séra Hjálmar Jónsson horfði áCharlton tapa fyrir West Ham
með fjórum mörkum um helgina.
Hann orti minnugur nýlegrar
prestaferðar á leik með liðinu:
Vantar kraft í West Ham lið
vilja, öskur, læti.
Ekki batnar ástandið
þó enginn prestur mæti.
Þá Bjarni Stefán Konráðsson:
Engu breytir andans lið
um örlög þeirra héðra.
En eflaust verða allir við
er þeir fara í neðra.
Erlendur Hansen á Sauðárkróki
yrkir um landbúnaðarráðherrann:
Ólst hann upp við ær og kýr
aldrei þurfti að kvarta.
Gúmmískór og gaddavír
gleðja mannsins hjarta.
Kliður fer um Klörubar
er klækjarefir tóna.
Guðni þangað fékk sér far
og fór í gúmmískóna.
Rúnar Kristjánsson yrkir um
kosningaslag innan Framsóknar:
Glíma á velli vakti þjóð
virtist hella funa í blóð.
Heyrðist skellur hels við glóð,
Hjálmar féll en Guðni stóð.
Og hann bætir við um
„heiðursmann einn og góðan
Íslending“:
Leita ég í ljúfan skóla,
lít þar myndir fróðlegar.
Bækurnar hans Árna Óla
eru perlur þjóðlegar.
VÍSNAHORNIÐ
Af fótbolta og Framsókn
pebl@mbl.is
Fréttir á SMS
Sloggi
tilboð
Sloggi maxi
þrjár í pakka
á aðeins
1.899 kr.
ÚRVAL DALVIK
ÚRVALÓLAFSFIRÐI
ÚRVAL ÍSAFIRÐI
ÚRVAL SIGLUFIRÐI
ÚRVAL BORGARNESI
ÚRVAL BLÖNDUÓSI
STRAX, FÁSKRÚÐSFIRÐI
KAUPFÉLAG V-HÚNV. HVAMMST.
KAUPFÉLAG SKAGF. SKAGF.BÚÐ
KAUPFÉLAG STEINGRÍMSFJAR.
DRANGSN.
LÆKURINN NESKAUPSTAÐ
EFNALAUG DÓRU, HÖFN
EFNALAUG VOPNAFJARÐAR
LYFJA, PATRÓ
PALOMA GRINDAVÍK
LYFJA ESKIFIRÐI
VERSLUNN RANGÁ, SKIPAS. 56
LYFJA SEIÐISFIRÐI
ÞÍN VERSLUN, SELJABRAUT RVK.
PLÚS MARKAÐURINN, HÁTÚNI 106
GAMLA BÚÐIN, HVOLSVELLI
KASSINN ÓLAFSVÍK
RAFLOST, DJÚPAVOGI
BJARNI EIRÍKS, BOLUNGARVÍK
EINAR ÓLAFSS, AKRANESI
KRÓNAN REYÐARFIRÐI
KRÓNAN BÍLDSHÖFÐA
KRÓNAN MOSÓ
KRÓNAN VESTMANNAEYJUM
HEIMAHORNIÐ, STYKKISHÓLMI
KLAKKUR VÍK
KJARVAL KLAUSTUR
KJARVAL VÍK
KJARVAL HVOLSVELLI
KJARVAL HELLU
Útsölustaðir:
HAGKAUP SMÁRALIND
HAGKAUP SKEIFUNNI
HAGKAUP KRINGLUNNI
HAGKAUP SPÖNGINNI
HAGKAUP GARÐABÆ
HAGKAUP EIÐSTORGI
HAGKAUP AKUREYRI
NETTÓ, AKUREYRI
NETTO, MJÓDD
FJARÐARKAUP HAFNAF.
NÓATUN SELFOSSI
STRAX LAUGAVATNI
ÚRVAL SKAGASTRÖND
ÚRVAL NJARÐVÍK
ÚRVAL HAFNAFIRÐI
ÚRVAL EIGILSSTÖÐUM
ÚRVALHRÍSALUNDI
ÚRVAL HÚSAVÍK