Morgunblaðið - 10.04.2007, Síða 30

Morgunblaðið - 10.04.2007, Síða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Vegna mikils aðstreymis aðsendra greina í aðdraganda alþingiskosninganna verður formi þeirra greina, sem lúta að kosningunum, breytt. Er þetta gert svo efnið verði aðgengi- legra fyrir lesendur og auka möguleika Morgunblaðsins á að koma greinunum á framfæri fyrir kosningar. Alþingiskosningar ÞEGAR ég var við laganám við Háskóla Íslands á árunum 1968–1974 var mannréttindum ekki gert hátt undir höfði, nema ef til vill eignarrétti. Á níunda áratug síðustu aldar fór að örla á breyttum viðhorfum og þeirra fór að gæta í dómum Hæstaréttar. Þegar komið var fram á tíunda áratuginn má segja að bylting hafi orðið í viðhorfum til mannréttinda og annarra lýðréttinda með lögfestingu Mannréttindasáttmála Evrópu, lögum um Umboðsmann Alþingis, stjórnsýslu- og upp- lýsingalögum. Það er ánægjulegt að upplifa í dag sömu þróun umhverfisréttar. Sameinuðu þjóðirnar hafa af ærnu tilefni lát- ið umhverfismál mjög til sín taka. Yfirlýsing heimsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um umhverfi og þróun, Ríó – yfirlýsingin frá árinu 1992, markaði þáttaskil. Kjarnaatriði yfirlýsing- arinnar eru reglan um sjálfbæra þróun, mengunarbótareglan og varúðarreglan. Það er ennfremur lagt til grundvallar að best verði tekist á um umhverfismál með þátttöku allra þegna sem hlut eiga að máli. Samkvæmt yfirlýsingunni skulu ríki auðvelda og örva skilning og þátttöku almennings með því að veita honum greiðan aðgang að upplýsingum og raun- verulegan aðgang að stjórnsýslukerfum og réttarúrræðum. Í lögum nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið kristallast sömu sjónarmið. Með þeim hefur Ís- land ásamt öðrum Evrópuþjóðum einsett sér að varðveita, vernda og bæta um- hverfið og sjá til þess að náttúruauðlindir séu nýttar og varðveittar af varúð og skynsemi, einkum á grundvelli meginreglunnar um sjálfbæra þróun og þeirrar meginreglu að grípa skuli til varúðarráðstafana og fyrirbyggjandi aðgerða. Réttarþróunin hefur síðan verið ör og endurspeglast í fjölda tilskipana frá ESB og öðrum alþjóðareglum. Þar ber hæst svonefndan Árósasamning frá 25. júní 1998 um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri meðferð í umhverfismálum. Í samningnum er því slegið föstu að hann sé ný tegund samnings um umhverfismál. Hann viðurkennir að menn hafi skyldum að gegna gagnvart komandi kynslóðum og staðfestir að sjálfbærri þróun verði ekki náð án aðildar allra hagsmunaaðila og tengir sam- an ábyrgð stjórnvalda og umhverfisvernd. Samningurinn beinir athyglinni að gagnverkandi áhrifum almennings og stjórnvalda í lýðræðislegu samhengi og kveður á um ný ferli varðandi þátttöku almennings. Í formála samningsins eru umhverfisvernd og mannréttindi tengd saman og réttindum í umhverf- ismálum veitt sama staða og öðrum mannréttindum. Guðmundur Bjarnason, þáverandi umhverfisráðherra Framsóknarflokksins, undirritaði Árósasamn- inginn fyrir Íslands hönd en hann hefur ekki hlotið fullgildingu Alþingis. Evr- ópusambandið hefur lögleitt reglur Árósasamningsins með tilskipun 2003/35/ EC. Ríkisstjórn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokksins hefur í verki lagst gegn þeim mannréttindum sem Árósasamningurinn felur í sér. Af hverju? spyr ég þig, Jónína Bjartmarz, umhverfisráðherra. Og af hverju veittir þú „Hrafntinnuriddurunum“ ekki aðild að kærumáli vegna brottnáms hrafntinnu úr Hrafntinnuskeri til viðgerða á Þjóðleikhúsinu? Þér var það í sjálfs vald sett en þú kaust að hafna aðild og lýðræðislegum áhyggjum Hrafntinnuriddara. Af hverju? Umhverfisréttur, mannrétt- indi og Jónína Bjartmarz, umhverfisráðherra Eftir Atla Gíslason: Höfundur skipar 1. sæti á lista VG í Suðurkjördæmi. ÉG SAT mjög áhugaverða ráðstefnu fyrr í þessum mánuði, ráðstefnu um innflytjendur og framhaldsskólann í Kennaraháskóla Íslands. Þar voru mörg afar athyglisverð erindi flutt um málefni erlendra ungmenna á Ís- landi. Nefnd voru dæmi um ýmislegt sem hafði heppnast vel sem og afar sorgleg dæmi, og verð ég að viðurkenna að þá táraðist ég. Misrétti til náms í okkar fína velferðarríki er greinilega staðreynd, staðreynd sem fáir vilja horfast í augu við. Mér finnst svo ótrúlegt að í svona litlu samfélagi sé ekki hægt að gera ALLT vel og bera hag allra fyrir brjósti, að haga málum út frá því að hver einstaklingur í þjóðfélaginu skiptir máli. Allir sem þarna fluttu erindi höfðu af sérstakri og mikilli þekkingu að miðla, erindin voru öll afskaplega fróðleg og vönduð. Það er of langt mál að fara út í það hér, en ég vona að KHÍ haldi utan um þessi gögn og að hægt sé að nálgast þau á Netinu. Eitt sló mig þó sérstaklega og það var orðið „málskipti“ sem var hluti fyrirsagnar erindis Sólveigar Brynju Grétarsdóttur. Hvað er það eig- inlega? Jú, það kom í ljós, að þótt ég þekkti ekki þetta orð, þá styður það einmitt kenningu og niðurstöðu ályktunar Vinstri grænna frá landsfundi okkar 27. febrúar síðastliðinn að brýnt sé að staða móðurmálsins sé sér- staklega skilgreind innan fjölmenningarstefnu skólayfirvalda: „Brýnt er að skólar og skólayfirvöld setji sér fjölmenningarstefnu þar sem hlutverk og staða móðurmáls er sérstaklega skilgreind. Þá er brýnt að skilgreina með hvaða hætti komið verður til móts við móðurmálsmenntun jafnt utan sem innan skóla eftir aðstæðum hverju sinni.“ „Málskipti“ þýðir nefnilega það að nemandi þarf hreinlega að skipta um móðurmál, að aðfluttur krakki geti ekki talað og eflt sitt móðurmál nema kannski inni á heimili sínu og stundum ekki einu sinni þar. Samkvæmt þeim rannsóknum sem Sólveig Brynja Grétarsdóttir vitnar til er stuðningur við móðurmál hvers og eins grundvallaratriði, alger grundvöllur alls náms og vitsmunaþroska! Móðurmálið er undirstaða alls, einnig árangurs í íslenskunámi og ekki bara í íslenskunámi heldur er það undirstaða í öllum námsgreinum. Ég er ekkert að monta mig af okkar flokki og vinnu okkar um málefni innflytjenda, en það er gott til þess að hugsa að Vinstri græn eru að gera og hugsa hlutina rétt! Vinstri græn eru að vinna með innflytjendum og í samræmi við þeirra reynslu og greinilega í anda þess sem koma skal, nái rannsóknir eyrum yf- irvalda. Svo ég vitni aftur í ályktun Vinstri grænna frá síðasta landsfundi stend- ur þar einnig orðrétt: „Efla skal menntun kennara til að þeir hafi staðgóða þekkingu til að sinna fjölmenningarlegri kennslu. Efla skal færni kennara til að kenna íslensku sem annað mál á öllum skólastigum og innan fullorðinsfræðslu. Efla þarf rannsóknir á sviði tvítyngis og hlúa að þeirri þekkingu sem þegar er til staðar.“ Þá þakka ég Alþjóðahúsinu og KHÍ sérstaklega fyrir þessa vel heppnuðu og tímabæru ráðstefnu. Móðurmálið er undir- staða alls náms Eftir Mireyu Samper: Höfundur er í 4. sæti í framboði fyrir Vinstri græn í Suðvesturkjördæmi og er formaður Vinstri grænna í Kópavogi. FRAKKAR og Íslendingar eiga þess nú kost að fela konu æðsta embætti framkvæmdavaldsins á komandi vori. Hjá Frökkum er sósíalistinn Royal í sterkri stöðu og annar tveggja sem líklegastir eru til að heyja einvígi um forsetaembættið. Hjá okkur hefur einn stjórn- málaflokkur falið kvenmanni formennsku, Samfylk- ingin. Fái hún góða kosningu get- ur hún myndað ríkisstjórn og þá verður Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir forsætisráðherra. Í aðdraganda þessara kosninga í báðum löndum magnast viðnám upp eftir því sem líklegra verður að þessar konur setjist í æðsta valdastólinn. Það birtist m.a. í því að hamrað er á ótrúverðugleika þessara kvenna. Í tilfelli Royal voru valin ummæli, snúið út úr þeim og þau útlögð þannig að hún gat litið út fyrir að vera ekki nógu vel heima í öllu því sem forseti á að kunna skil á. Á sama tíma var aldrei minnst á ýmis ummæli keppinautar hennar Sarkozy, m.a. ein svo klaufaleg að þau hrundu af stað margra vikna óeirðum. Þetta ástand virðist ekki stafa nema að litlu leyti af því að mönn- um Sarkozy tekst vel upp við að varpa rýrð á trúverðugleika Ro- yal. Skýringin virðist heldur vera sú að fjölmiðlar eru móttækilegir fyrir áróðri sem byggist á alda- löngum fordómum í garð kvenna. Það er eins og nú, þegar kona get- ur orðið forseti, verði menn skelk- aðir og kjósa að falla í faðm gam- alla hugmynda um að karlmenn séu betur fallnir til stjórnunar. Andstæðingum Samfylking- arinnar hefur ekki tekist síður vel upp. Ingibjörg hefur markvisst verið „töluð niður“. Þetta byrjaði þegar henni var bolað út úr borg- arstjórastól. Samstarfsflokkunum stafaði ógn af trúverðugleika sem hún öðlaðist sem farsæll borg- arstjóri og óttuðust um eigin hag ef hún tæki þátt í framboði Sam- fylkingarinnar. Reynt var að láta þetta líta út sem klaufaskap henn- ar og skipbrot þegar raunin var sú að hún neitaði að beygja sig fyrir yfirgangi hinna flokkanna. Um leið og hún hóf baráttu sína 2003 sem forsætisráðherraefni Samfylkingarinnar byrjuðu árásir á hana. Í ritstjórnarpistli Við- skiptablaðsins á því ári er t.d. tal- að um að hún geri ein mistök á viku. Svo kom „Borgarnesræðan“. Þar setti Ingibjörg Sólrún fram hvassa en rökstudda gagnrýni á stjórnarhætti Davíðs Oddssonar. Það var látið eins og Ingibjörg hefði farið langt yfir eitthvert ímyndað strik þegar aðeins var um sköruglegan málflutning for- ystumanns stjórnarandstöðu að ræða. Það var ekki sama hvort karl eða kona væri beitt í mál- flutningi sínum. Nú magnast andstaðan gegn Ingibjörgu enn í aðdraganda kosninga. Markvisst er reynt að gera hana tortryggilega, t.d. þeg- ar var snúið út úr því sem hún sagði um þingflokk Samfylking- arinnar í ræðu sl. haust. Það var túlkað sem vantraust á núverandi þingmenn þegar formaðurinn var einfaldlega að lýsa þeirri stað- reynd að þingflokkurinn hefði enn ekki fengið ótvírætt umboð þjóð- arinnar til að stýra landinu. Dæmi um að fjölmiðlar eru „næmir“ fyrir neikvæðri umfjöll- un um Ingibjörgu var í fréttum ríkissjónvarpsins fyrir nokkrum vikum. Forsætisráðherra var að svara gagnrýni stjórnarandstöðu og nefndi í svari sínu „óheppileg ummæli“ formanns Samfylking- arinnar. Þessi orð voru uppleggið í frétt sjónvarpsins sem snerist í raun um allt annað. Að sama skapi eru sömu fjölmiðlar lítt næmir fyrir verulega gagn- rýniverðum ummælum forystu- manna af karlkyni, t.d. þegar Geir talar um stúlkur sem „gera sama gagn“ og sætasta stelpan. Það er ekki sama að vera Jóna eða Jón í spegli fjölmiðla þegar keppt er um hin raunverulegu völd. Það er því margt líkt með Frökkum og Íslendingum. Þó er sá munur að samherjar Royal hafa staðið þétt saman um hana. Þegar „niðurtalið“ var farið að hrífa steig öll forystusveit sósíal- ista fram til varnar. Fáir taka til máls til að verja Ingibjörgu: sífellt nöldur hjá andstæðingum hennar en áberandi þögn úr röðum for- ystumanna Samfylkingarinnar. Ég trúi því þó að með meiri ein- urð og samstöðu þeirra muni þessi helsti málsvari félagslegra fram- fara á Íslandi síga upp á við í skoðanakönnunum og vinna góð- an sigur í komandi kosningum. Því þörfin er brýn. Þökk sé samningnum um hið evrópska efnahagssvæði sem forveri Sam- fylkingarinnar kom á stendur efnahagslífið vel. Aftur á móti hefur félagslega og heilbrigð- iskerfið látið á sjá og skattkerfið breyst á kostnað þeirra sem minna hafa. Til að breyta þessu er engum betur treystandi en Ingi- björgu. Sem borgarstjóri tókst hún á hendur að bæta úr van- rækslu Sjálfstæðisflokks sem fór í montverkefni eins og Perlu og Ráðhús í stað þess að byggja upp leikskóla og grunnskóla. Hún leysti þetta verkefni myndarlega auk þess sem hún gerði Reykjavík að fyrirmynd annarra sveitarfé- laga með árangursríkri jafnrétt- isstefnu. Það er einmitt trúverðugleiki Ingibjargar sem skýrir andróð- urinn gegn henni. Nú er mál að stíga út úr skugga karlveldisins og líta á þá stefnu og framtíð- arsýn sem Samfylkingin og for- maður hennar hafa mótað. Hún ber vott um skynsemi og framsýni og umfram allt sterka réttlætisvit- und. Reynslan sýnir að Ingibjörgu er vel treystandi til að hrinda henni í framkvæmd. Kosningar í skugga karlveldis Eftir Torfa Tulinius: Höfundur er prófessor við HÍ og félagi í Samfylkingunni. ÞAÐ gleymist seint uppákoma á Alþingi Íslendinga laugardaginn 17. mars síðastliðinn. Um morguninn birtist í Fréttablaðinu að Óperukór- inn söng á kostnað Framkvæmdasjóðs aldraðra, Lions- klúbburinn í Búð- ardal fékk styrk úr Framkvæmdasjóði aldraðra, Söngskól- inn í Reykjavík fékk styrk úr Fram- kvæmdasjóði aldraðra, Tjónaljón fékk styrk úr Framkvæmdasjóði aldraðra, svo væri víst lengi hægt að telja. Framkvæmdasjóður aldraðra var stofnaður samkvæmt lögum fyrir allnokkrum árum, í dag greiðir hver skattgreiðandi rúmar 6.000 kr. í Framkvæmdasjóð aldraðra á ári. Fyrir utan þessar upplýsingar í Fréttablaðinu hefur komið áður fram að heilbrigðisráðherra hefur greitt úr þessum sjóði í áróð- ursbækling fyrir sig og ráðuneyti sitt. Greitt fyrir rekstur hjúkr- unarheimila, sem alls ekki var mein- ingin með Framkvæmdasjóði aldr- aðra, sem nafnið gefur reyndar til kynna. Aum svör ráðherrans Aumari svör hefur undirritaður varla heyrt en er heilbrigð- isráðherra, þingmaður Framsókn- arflokksins í Suðvesturkjördæmi, gaf á háttvirtu Alþingi Íslendinga laugardaginn 17. mars. Skýringar á þessum styrkjum. Þvílíkt yfirklór, að réttlæta þessar styrkveitingar með reglum er hún setur sjálf. Ráðherrann ætti að skammast sín og biðja eldri borgara afsökunar á þessari misnotkun á framkvæmda- sjóði aldraðra. Enn og aftur sýnir heilbrigð- isráðherra hug sinn til eldri borgara í Suðvesturkjördæmi og reyndar allra eldri borgara þessa lands. Skiptum um ríkisstjórn Nei, góðir eldri borgarar í Suð- vesturkjördæmi og reyndar eldri borgarar um allt land, þessi ráð- herra er algjörlega búinn að missa allt traust í sínum störfum fyrir landsmenn. Við skulum muna vel 12. maí hvernig Siv Friðleifsdóttir heilbrigð- isráðherra hefur misnotað fjármagn úr Framkvæmdasjóði aldraðra sér og sínum glasmyndum til fram- dráttar. Til að tryggja betri sýn á málefni eldri borgara 12. maí næstkomandi setjum við X við S og tryggjum þar með réttlátari meðhöndlum fjár úr Framkvæmdasjóði aldraðra okkur eldri borgurum til raunverulegra hagsbóta. Þetta er skammarlegt, heilbrigðis- ráðherra Eftir Jón Kr. Óskarsson: Höfundur er varaþingmaður Samfylkingar í Suðvesturkjör- dæmi. Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.