Morgunblaðið - 19.05.2007, Síða 1
FORMENN Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar, Geir H. Haarde og Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, gengu von-
góð af fyrsta formlega stjórnarmynd-
unarfundi flokkanna sem fram fór í
Ráðherrabústaðnum í gær. „Við höfum
farið yfir nokkur mál og teljum að það
séu góðar líkur á að við náum niður-
stöðu innan ekki allt of langs tíma,“
sagði Ingibjörg Sólrún að fundi lokn-
um. Geir Haarde kvað góðan anda hafa
einkennt fyrsta fund þeirra Ingibjarg-
ar þar sem lauslega hefði verið farið yf-
ir málefnastöðuna og þá vinnu sem
framundan væri. Þremur klukkutím-
um fyrir fundinn hélt Geir á fund for-
seta Íslands, Ólafs Ragnars Grímsson-
ar, þar sem hann baðst lausnar fyrir
sig og ráðuneyti sitt. Forsetinn féllst á
beiðni Geirs, en óskaði jafnframt eftir
því að núverandi ráðherrar sætu áfram
í starfsstjórn, þar til nýrri ríkisstjórn
yrði komið á laggirnar. Í kjölfarið veitti
forsetinn Geir umboð til að hefja við-
ræður um myndun nýrrar ríkisstjórn-
ar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar.
„Trúlega kennd við foreldrið“
Ekki eru allir á eitt sáttir um stjórn-
armyndunarviðræðurnar sem standa
yfir. Jón Sigurðsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, fer hörðum orðum um
þær í pistli sem birtist á heimasíðu
flokksins í gær. „Ef þessi nýja ríkis-
stjórn kemst á koppinn verður hún trú-
lega kennd við foreldri sitt og nefnd
Baugsstjórnin,“ segir Jón. Geir
Haarde kveður það afskaplega óviðeig-
andi að nota orðið „Baugsstjórn“ yfir
hugsanlegt stjórnarsamstarf flokk-
anna. „Ég ætla þó ekki að munnhöggv-
ast við samstarfsmenn mína í ríkis-
stjórninni sem eru þar enn,“ segir
Geir. Ingibjörg Sólrún tók í sama
streng, sagði ummæli Jóns dæma sig
sjálf.
Góður skriður á stjórn-
armyndunarviðræðum
Morgunblaðið/G. Rúnar
Kaffibandalag Ingibjörg Sólrún og Geir Haarde skeggræddu myndun nýrrar meirihlutastjórnar yfir
rjúkandi kaffibolla í Ráðherrabústaðnum í gær. Góður andi og bjartsýni einkenndi fundinn.
Morgunblaðið/RAX
Á Bessastöðum Ólafur Ragnar Grímsson hefur veitt Geir Haarde um-
boð til myndunar nýrrar ríkisstjórnar með Samfylkingunni.
Í HNOTSKURN
» Fyrsti formlegi stjórn-armyndunarfundurinn
fór fram í gær eftir að forseti
Íslands veitti Geir H. Haarde
umboð til stjórnarmyndunar
Sjálfstæðisflokks og Sam-
fylkingar.
»Formenn flokkanna, þauIngibjörg Sólrún Gísla-
dóttir og Geir Haarde, gengu
glaðbeitt af fundi og kváðu
gang viðræðna góðan.
»Jón Sigurðsson, formað-ur Framsóknarflokksins,
segir sjálfstæðismenn hafa
brugðist trausti framsókn-
armanna.
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
Allt í fári | Miðopna
Miðar | 4 Geir Haarde | 6
STOFNAÐ 1913 135. TBL. 95. ÁRG. LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
GULLBARKAFOSS
TVEIR AF FREMSTU BARÍTÓNSÖNGVURUM HEIMS
GLEÐJA LANDANN Á LISTAHÁTÍÐ >> LESBÓK
VALSKONUM SPÁÐ
SIGRI Í SUMAR
KVENNABOLTI
Í ÍÞRÓTTABLAÐINU
FRÉTTASKÝRING
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson
gunnarpall@mbl.is
NÚ ÞEGAR hafnar eru formlegar
stjórnarmyndunarviðræður á milli Sjálf-
stæðisflokks og Samfylkingar velta marg-
ir fyrir sér hvernig flokkarnir nái að sam-
ræma afstöðu sína í stóriðjumálum, sem
mikið voru rædd í kosningabaráttunni. Þá
gagnrýndi Samfylkingin stjórnarflokkana
fyrir stefnu sína í uppbyggingu stóriðju,
sem þeir vísuðu báðir algjörlega á bug.
Engu að síður má spyrja hvort afstaða
flokkanna hafi ekki fyrst og fremst mót-
ast af stöðu þeirra sem ríkisstjórnar-
flokks og stjórnarandstöðuflokks við hlið
pólanna í stóriðjuumræðunni: Framsókn-
arflokksins og Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs. Að minnsta kosti verður
vart séð að stefna flokkanna í mála-
flokknum sé ósamrýmanleg. Bæði Sam-
fylking og Sjálfstæðisflokkur lögðu upp
með það í kosningabaráttunni að gera
þyrfti heildstæðar áætlanir um það hvaða
auðlindir mætti virkja og hverjar skyldi
vernda. Samfylkingin gekk aftur á móti
lengra í stefnu sinni „Fagra Ísland“ og
lagði þar til að frekari stóriðjufram-
kvæmdum yrði frestað þar til gerð áætl-
unarinnar yrði lokið. Jafnframt vildi
flokkurinn að vald til að veita rannsókn-
ar- og nýtingarleyfi vegna virkjunar-
áforma yrði fært úr höndum iðnaðarráð-
herra til Alþingis á meðan unnið yrði að
gerð áætlunarinnar. Þótt Samfylkingin
hafi sagt að áætlunin þjónaði því mark-
miði að greina hvaða náttúruauðlindir
ætti að virkja vegna umhverfissjónarmiða
þá hefur flokkurinn ekki síður rökstutt
stefnu sína með efnahagslegum rökum.
Kæla þurfi efnahagskerfið í nokkur ár til
að ná stöðugleika. Hversu mörg hefur í
raun aldrei komið fram en samfylking-
arfólk hefur nefnt á bilinu þrjú til fimm
ár í þessu samhengi.
Stuðningur við álver á Húsavík
Ljóst er að þrjár álversframkvæmdir
banka að dyrum hjá íslenskum ráða-
mönnum um þessar mundir: Stækkun
Alcan í Straumsvík, nýtt álver Alcoa við
Húsavík og nýtt álver Norðuráls við
Helguvík. Stækkun í Straumsvík var sú
framkvæmd sem lengst var komin í ferl-
inu en staða hennar er óljós eftir íbúa-
kosningu Hafnfirðinga fyrr í vor. Þing-
menn bæði Samfylkingar og Sjálf-
stæðisflokks í Norðausturkjördæmi gáfu
skýrt til kynna í kosningabaráttunni að
þeir styddu byggingu álvers við Húsavík.
Þar sem ekki er gert ráð fyrir að sú
framkvæmd hefjist fyrr en í fyrsta lagi
árið 2010 er alls ekki víst að stefna Sam-
fylkingarinnar leiði til þess að fresta
þurfi nokkrum framkvæmdum. Þingmenn
flokksins sem styðja áframhaldandi stór-
iðju í landinu hafa því getað með heilum
hug sagst styðja stefnu flokksins um
seinkun um nokkur ár – hvort eð er séu
nokkur ár í næstu stóriðjuframkvæmdir.
Stóriðja
og stjórn-
armyndun
Geta flokkarnir náð
saman um frestun?
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
GARÐAR Thór Cortes mun syngja fyrir leik
Derby County og WBA á Wembley-leikvang-
inum í Lundúnum mánudaginn 28. maí næst-
komandi en um er að ræða hreinan úrslitaleik
um hvort liðið spilar í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu á næstu leiktíð. Leikurinn er sagð-
ur verðmætasti fótboltaleikur heims vegna þess
hve mikið er undir hjá liðunum fjárhagslega og
því er áhugi á honum mjög mikill. Garðar söng
fyrir leik West Ham og Chelsea á Upton Park
18. apríl síðastliðinn en sá leikvangur rúmar
35.000 manns. Wembley-leikvangurinn, sem
vígður var í mars, rúmar hins vegar allt að 90.000 manns í sæti.
Garðar syngur fyrir
stórleik á Wembley
Garðar Thór Cortes