Morgunblaðið - 19.05.2007, Side 8
8 LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra hefur dæmt konu í 30 daga
skilorðsbundið fangelsi fyrir að
ráðast á aðra konu í Sjallanum á
Akureyri í apríl 2006, rífa í hár
hennar og skella höfði hennar 3-5
sinnum ofan á borð og slá hana síð-
an í andlitið. Þarf ákærða að greiða
102 þúsund kr. í sakarkostnað.
Réðst á konu
Á AUSTURLANDI er mikið um að
hreindýr séu við vegi og eru veg-
farendur beðnir um að aka þar með
gát. Annars eru
helstu vegir
landsins greið-
færir, að því er
fram kemur á vef
Vegagerð-
arinnar.
Vegna aur-
bleytu og hættu á
vegaskemmdum
er allur akstur
bannaður á flestöllum hálend-
isvegum sem að jafnaði eru ekki
færir nema að sumarlagi. Þó er
fært inn í Þórsmörk. Einnig eru
Uxahryggir orðnir færir og sömu-
leiðis Hólssandur. Þeim sem vilja
komast með bíla eða vélsleða á snjó
er bent á að hægt er að fara frá
Húsafelli upp á Langjökul og einnig
er hægt að komast upp á Mýrdals-
jökul um Sólheimaheiði.
Hreindýr við
vegi eystra
HAFDÍS Karlsdóttir var kjörin 1.
varaforseti Evrópusambands Sor-
optimista á aðalfundi samtakanna í
Toulouse í Frakklandi 12.-13. maí
til næstu tveggja ára. Þetta er í
fyrsta sinn sem íslensk kona er kos-
in 1. varaforseti, en áður hafa 3 ís-
lenskar konur gegnt stöðu 2. vara-
forseta.
Fundinn sátu fulltrúar 67 landa
sem tilheyra sambandinu en heild-
arfjöldi klúbba er um 1.220.
Alþjóðasamband Soroptimista,
en innan þess starfar Evrópusam-
bandið, er samtök starfsgreindra
þjónustuklúbba um allan heim. Höf-
uðmarkmið Soroptimista er að
vinna að betra mannlífi.
Í forystu meðal
Soroptimista
Forsetar Hafdís Karlsdóttir og
Mariet Verhoef-Cohen frá Hollandi
sem er verðandi forseti Evrópu-
sambands Soroptimista.
TÍU veitinga-
staðir í miðborg-
inni taka þátt í
fiskiveislu Hátíð-
ar hafsins í
tengslum við sjó-
mannadaginn.
Veitingastað-
irnir eru Við
Tjörnina, Horn-
ið, Apótekið,
Domo, Einar
Ben, Salt, Þrír frakkar, Fjalakött-
urinn, Vín og Skel og Tveir fiskar.
Úrvalið er fjölbreytt og gætir
áhrifa víða að en m.a. má finna
sushi og sashimi, saltfiskbrandade
og madeiragljáa, jerusalemæti-
þystlarisotto og ítalska fiskisúpu.
Hátíð hafsins er skipulögð, fram-
kvæmd og fjármögnuð af Faxaflóa-
höfnum og Sjómannadagsráði.
Fiskiveisla í
miðborginni
Skötuselur er
herramannsmatur
ÁHUGI er fyrir auknu sam-
starfi milli Íslendinga og Þjóð-
verja í varnar- og öryggismál-
um en forviðræður fóru fram
milli embættismanna þjóðanna
tveggja hér á landi í gær.
Tveir fulltrúar þýska utanrík-
isráðuneytisins og einn frá
varnarmálaráðuneytinu, auk
þýska sendiherrans á Íslandi,
Johann Wenzl, áttu fund með ís-
lenskum embættismönnum í
Svartsengi og kynntu Þjóðverj-
arnir sér öryggissvæðið á Kefla-
víkurflugvelli við þetta tæki-
færi.
Grétar Már Sigurðsson, ráðu-
neytisstjóri í utanríkisráðuneyt-
inu, sagði Þjóðverjunum hafa
litist vel á aðstæður; töldu þeir
mikla möguleika fyrir hendi á
öryggissvæðinu og það mun
hafa komið þeim nokkuð á
óvart. Grétar Már sagði mögu-
leikann á frekara samstarfi hafa
verið ræddan á þessum fundi,
m.a. í Afganistan þar sem báðar
þjóðir hafa tekið þátt í friðar-
gæslu. Um forviðræður hefði
hins vegar verið að ræða og því
hefðu engar ákvarðanir verið
teknar en ljóst væri að mikill
vinskapur væri á milli þjóðanna
og töldu menn ástæðu til að
halda áfram að tala saman. Er
ráðgert að annar fundur verði á
haustmánuðum.
Ulrich Brandenburg, hátt-
settur embættismaður í þýska
utanríkisráðuneytinu, leiddi við-
ræðurnar fyrir hönd Þjóðverja.
Hann sagði að fundurinn í gær
hefði verið góður. „Við ræddum
öryggismál vítt og breitt, þar á
meðal aðgerðir, spurningar um
Atlantshafsbandalagið og eld-
flaugavarnir,“ sagði hann. „Við
hlýddum af miklum áhuga á
það, sem Íslendingar höfðu að
segja um stöðu öryggismála í
Norður-Atlantshafi.“
Hann bætti við að þróun und-
anfarinna ára og brottför varn-
arliðsins frá Íslandi hefði verið
rædd og farið yfir það hvað nú
tæki við.
Þegar spurt var við hverju
mætti búast samanborið við það
samkomulag, sem gert hefur
verið við Dani og Norðmenn,
sagði Brandenburg að öðru máli
gegndi um Þjóðverja en Norð-
urlandaþjóðirnar. „Við erum
ekki inni á þessu svæði,“ sagði
hann og átti við lofthelgi Ís-
lands.
Viðræður Þjóðverja og Íslendinga um varnarmál
Annar fundur á
haustmánuðum
Ljósmynd/Ellert Grétarsson
Skoða kort Grétar Már Sigurðsson ráðuneytisstjóri (annar frá vinstri) og Erlingur Erlingsson sendi-
ráðsritari sýna Holger Strohmeier ofursta og Ulrich Brandenburg aðstæður á öryggissvæðinu.
RÚMLEGA 800 er-
lendir gestir hafa boð-
að komu sína á alþjóð-
lega ráðstefnu
evrópsku markaðsaka-
demíunnar (EMAC)
sem haldin verður hér
á landi í næstu viku. Þátttakendur eru af 48 þjóð-
ernum, þar af eru yfir fimmtíu frá Ástralíu og
sömuleiðis frá Bandaríkjunum og meira en 100
manns eru frá Þýskalandi og Bretlandi.
Það er Háskólinn í Reykjavík sem heldur ráð-
stefnuna og hefst hún á þriðjudag og stendur út
vikuna. Þetta er í 36. skipti sem þessi ráðstefna er
haldin en á henni safnast jafnan saman flestir virt-
ustu markaðsfræðingar heims í þeim tilgangi að
efla fræðigreinina á heimsvísu.
Halldór Engilbertsson hjá Háskólanum í
Reykjavík sagði að undirbúningur ráðstefnu-
haldsins hefði í raun farið af stað 2004 en þá fór
hópur héðan á EMAC-ráðstefnuna sem það ár var
haldin á Spáni. „Markaðsfræðin er vaxandi fræði-
grein. Hún er tiltölulega ung og mikil gerjun á
sviði markaðsfræða með tilkomu Netsins og auk-
innar samkeppni gerir það að verkum að fyrirtæki
eru alltaf að leita nýrra leiða til að vekja athygli á
vörumerkjum sínum og standa út úr flórunni. Þess
vegna fannst okkur svo áhugavert að bjóða til okk-
ar þessu fólki sem er að kynna sínar nýjustu rann-
sóknir á sviði markaðsfræðinnar,“ sagði Halldór.
Söluáherslan á undanhaldi
Halldór sagði að menn væru alltaf að gera sér
betur og betur grein fyrir mikilvægi markaðs-
fræðinnar. Markaðshneigð fyrirtæki skiluðu meiri
árangri en önnur. Fyrr á tímum hefðu menn lagt
áherslu á sölu: litið hefði verið svo á að það þyrfti
einfaldlega að framleiða nógu mikið af vörunni og
síðan finna öfluga sölumenn til að selja hana.
Menn væru hins vegar sífellt að átta sig betur og
betur á því hversu mikilvægt það væri að rann-
saka vel hvað viðskiptavinurinn vildi.
Halldór tekur Henry Ford sem dæmi, brauð-
ryðjanda í framleiðslu og sölu bíla í upphafi síð-
ustu aldar. Ford hafi bara viljað selja svarta bíla.
Hann hafi einblínt á aukna framleiðni og minni
kostnað, en gleymt að hugsa um óskir viðskipta-
vina. Fyrir vikið hafi samkeppnisaðilar náð for-
skotinu er fram liðu stundir, þeir hafi boðið upp á
aðra liti og þannig þjónað viðskiptavinunum betur.
Ráðstefnu-
gestir frá
48 þjóðum
HR heldur alþjóðlega
ráðstefnu um markaðsmál