Morgunblaðið - 19.05.2007, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2007 19
MENNING
KÓR Bústaðakirkju býður til
sumartónleika í Bústaðakirkju
í dag kl. 17. Boðið verður upp á
fjölbreytta tónlist úr ýmsum
áttum. Meðal annars mun
Tríóla söngtríó taka sig út úr
kórnum og syngja. Tróið skipa
þær Gréta Hergils, Sigurlaug
Knudsen Stefánsdóttir og Si-
bylle Köll. Þá mun kór Siglu-
fjarðarkirkju koma við sögu á tónleikunum.
Stjórnandi og undirleikari er Renata Ivan. Hún
tók við Kór Bústaðakirkju skömmu fyrir páska og
hefur ásamt kórfélögum sett saman dagskrá á
stuttum tíma. Enginn aðgangseyrir er inn á tón-
leikana.
Tónlist
Tveir kórar og
Tríóla syngja
Í DAG kl. 17 verða síðustu
tónleikar starfsársins í
kammertónleikaröð Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands, Krist-
alnum, en þá munu allir
málmblásarar Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands leika saman
ásamt tveimur slagverks-
mönnum í Listasafni Íslands.
Á efnisskránni eru meðal
annars verk Modest Mússorskíjs, Myndir á
sýningu, í útsetningu fyrir málmblásarasveit
eftir Elgar Howarth. Hljómsveitarstjóri í tón-
leikunum er Anthony Plog. Einnig eru á dag-
skrá tónleikanna verk eftir Pablo Casals og
Henri Tomasi.
Tónlist
Blásarar Sinfó spila
Myndir á sýningu
KVIKMYNDIRNAR Bell-
issime og Bellissime 2 eftir
Giovanna Gagliardo verða
sýndar í Norræna húsinu í dag
kl. 17 og 19.30. Á milli sýninga
verða bornar fram léttar veit-
ingar. Myndirnar segja sögu
ítalskra kvenna á tuttugustu
öld og voru fyrst sýndar á
Kvikmyndahátíðinni í Fen-
eyjum, þar sem þær hrepptu Pasinetti-verðlaun-
in. Giovanna Gagliardo er ein af þekktustu
kvenleikstjórum Ítalíu, sem hefur kannað af mik-
illi varfærni sálarlíf kvenna og hlutverk þeirra í
samtímanum. Myndirnar verða sýndar með ensk-
um texta.
Kvikmyndir
Fegurð ítalskra
kvenna í bíó
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
TIL stendur að íslenskir rithöfundar
verði í öndvegi á glæpasagnahátíð í
Berlín í haust. Það eru því ekki ein-
ungis hverir og fossar sem breiða út
hróður Íslands heldur gegnir menn-
ingin veigamiklu hlutverki, að sögn
Auðar Eddu Jökulsdóttur, sendi-
ráðunautar og menningarfulltrúa í
Sendiráði Íslands í Berlín.
Lesið á börum og kaffihúsum
Hún segir að með öflugu kynning-
arstarfi hafi tekist að ryðja íslensk-
um bókmenntum farveg inn í stærra
samhengi, meðal annars með fjölda
upplestra á hverju ári og þátttöku ís-
lenskra fyrirtækja í bókakaupstefn-
unni í Frankfurt. „Við erum á réttri
leið og það sést vel á því að fimm ís-
lenskum höfundum verður boðin
þátttaka á „Krimitage“-glæpasagna-
hátíð í Berlín í lok október og byrjun
nóvember þar sem Ísland verður í
öndvegi og hafa Arnaldur Indriðason
og Yrsa Sigurðardóttir þegar stað-
fest þátttöku.“
Alls verða tuttugu rithöfundar á
hátíðinni og unnið mikið markaðs-
starf, m.a. sex þúsund plakötum
dreift um alla Berlín. „Það sem mér
finnst skemmtilegast er að fengnir
verða þekktir þýskir leikarar, sem
kunnir eru fyrir leik í glæpaseríum,
nokkurs konar Derrickar, til þess að
lesa upp á börum og kaffihúsum.“
Brotist úr fámenninu
Útrás menningarinnar er að
nokkru leyti viðskiptaútrás, því það
hefur myndast mikill iðnaður í kring-
um hana, að sögn Auðar Eddu. „Það
er skemmtilegt að upplifa það þegar
íslensk menning kemst í stærra sam-
hengi, brýst úr fámenninu, og verður
hluti af alþjóðlegum markaði. Við lít-
um á þetta sem skapandi iðngreinar,
sem eru að verða eftirsótt útflutn-
ingsvara. Í því skyni erum við farin
að bjóða árlega frammáfólki úr
þýsku menningarlífi til landsins og
við finnum að það telur sig upplifa
eitthvað mjög sérstakt, þennan kraft
og sköpunargleði, – það hversu Ís-
land er framsækið og leitandi.“
Auður Edda vinnur nú ásamt
þýskum sérfræðingi að athugun fyrir
íslensk ráðuneyti á stöðu og ímynd
íslenskrar menningar í Þýskalandi
og á því hvernig best verðið staðið að
opinberum stuðningi við menningar-
útrás í framtíðinni. Þar segir hún
m.a. koma fram hversu mikilvægt sé
að nýta sér þann glugga sem opnast
hafi fyrir íslenska menningu ytra. Sú
fjárfesting geti skilað sér margfalt til
baka. Augu manna beinist að Íslandi
í augnablikinu, en ekki sé víst að sá
gluggi verði alltaf opinn.
Menningartengsl á milli Íslands og Þýskaland styrkjast
Íslenskir glæpir
til Berlínar
Í HNOTSKURN
»Tíu þýskum menningar-fulltrúum var boðið í kynn-
isferð til Íslands 11. maí til 15.
maí.
»Þar á meðal var list-fræðilegur stjórnandi Art
Forum kaupstefnunnar í Berlín,
þar sem Reykjavík verður „í fók-
us“ í pallborðsumræðum í haust.
» Í bígerð er að halda nútíma-lega sýningu á Kvikmynda-
sögu Íslands í menningarmiðstöð
norrænu sendiráðanna í Berlín.
OPNUÐ verður sýning á myndum úr fjölskyldualbúmum Nóbelskáldsins,
m.a. af ferðalögum, í Köln í október í tengslum við útgáfu ævisögu hans
eftir Halldór Guðmundsson í þýskri þýðingu. Margar myndanna eru óvana-
legar og hafa aldrei verið prentaðar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Sýn Halldórs Laxness á öldina
BRESK þing-
nefnd um
lagabætur
leggur til að
lögum verði
breytt í þá
veru að tón-
listarmenn
sem hófu feril
sinn ungir,
njóti tekna af
höfundarrétti
á efri árum,
en í breskum lögum nær
höfundarréttur af hljóðritunum
eingöngu til fimmtíu ára. Eftir
það fellur hann niður. Listamenn
á borð við Paul McCartney, sem
er 64 ára og Cliff Richard, 66
ára, sem báðir hófu ungir að
gefa tónlist sína út, eiga á hættu
að missa tekjur af elstu útgáfum
sínum innan skamms verði lög-
unum ekki breytt. Lagasmiðir
þingsins vilja að höfundarréttur
af tónlistarútgáfu verði 95 ár,
eins og hann er í Bandaríkjunum.
Höfundarréttur
lengdur
Paul McCartney
„ÞETTA eru prentverk sem
lýsa söfnunarþráhyggju lista-
mannsins. Verðlausu glingri og
skrani er sýnd jafnmikil virð-
ing og dýrgripum sem venju-
lega prýða veggi listasafna,“
segir Bobby Breiðholt um verk
sín sem sýnd verða á sýningu
sem opnuð verður í dag kl. 18 í
Nakta apanum í Bankastræti.
Bobby teiknar fjöldann allan af
hlutum sem hann setur í röð á
myndfletinum, eins og langt
genginn safnari sem dáist að
snældunum, bollunum og vhs-
spólunum sem brátt fylla íbúð-
ina.
Bobby Breiðholt útskrifaðist
úr hönnunardeild Listaháskóla
Íslands árið 2005, en þetta er
hans fyrsta einkasýning sem
myndlistarmaður. Áður hefur
hann haldið tvær ljósmynda-
sýningar og tekið þátt í nokkr-
um samsýningum.
Bobby Breiðholt sýnir Allskyns
„MÉR fannst þetta mjög frumleg
og persónuleg tónsmíð hjá Haf-
liða. Ég held að enginn gæti sam-
ið svona verk nema Hafliði. Óper-
an er beinskeytt og svartur
húmor í tónlistinni eins og í sög-
unum sem hún byggist á. Hljóm-
sveitin er líka sérstök hjá honum,
og nálgast svolítið kammer-
hljómsveit – enda sprettur óper-
an úr kammerverki, Örsögum.
Maður getur ekki annað en borið
það saman, enda þekki ég Örsög-
urnar vel. Einstaklingsframtakið
hjá hljóðfæraleikurum Sinfó var
líka gott; alls konar sóló út um
allt, alveg frábærlega spiluð. Það
voru mjög sterkir sólistar í verk-
inu og svo varð þetta magnaðra
og magnaðra eftir því sem á
leið.“
Hvernig var?
Kolbeinn Bjarnason flautuleikari fór á
óperu Hafliða Hallgrímssonar, Viröld fláa
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flautuleikari Kolbeinn Bjarnason.
Í dag:
San Francisco ballettinn
4. og 5. sýning í Borgarleikhúsinu kl. 14
og 20.
Listahátíð í Laugarborg I
Tónamínútur – verk eftir Atla Heimi
Sveinsson í Laugarborg, Eyjafjarðarsveit,
kl. 15.
Kvika – íslensk samtímahönnun.
Opnun sýningar í Listasafni Reykjavíkur
kl. 16.
Gyðjan í vélinni – viðburður í
varðskipi. 4. sýning í varðskipinu Óðni
kl. 20.
Goran Bregovic – fjör fyrir brúð-
kaup og jarðarfarir. Tónleikar í Laug-
ardalshöll kl. 21. Í samstarfi við tónlist-
arhátíðina Vorblót.
Á morgun:
San Francisco ballettinn
6. og 7. sýning í Borgarleikhúsinu kl. 14
og 20.
Listahátíð í Laugarborg II
Kvartett Kammersveitar Reykjavíkur leik-
ur alla strengjakvartetta Jóns Leifs í
Laugarborg, Eyjafjarðarsveit, kl. 15.
Dmitri Hvorostovsky – rússneski
barítónsöngvarinn. Einsöngstónleikar.
Píanóleikari: Ivari Ilja. Í Háskólabíói kl.
17.
Listahátíð í Reykjavík
TENGLAR
.....................................
www.listahatid.is
listir.blog.is