Morgunblaðið - 19.05.2007, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2007 21
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Eftir Sigurð Jónsson
Eyrarbakki | „Við fórum í þetta
verkefni, Vorskipið kemur, þegar
bæjarstjórn Árborgar sló af menn-
ingardagskrána Vor í Árborg en sú
dagskrá hafði mikið að segja hér við
ströndina og annars staðar og
kynnti vel menningu og listir í sveit-
arfélaginu,“ sagði Friðrik Erlings-
son, rithöfundur á Eyrarbakka,
einn af frumkvöðlum dagskrárinnar
Vorskipið kemur sem stendur yfir
nú um helgina.
Friðrik hefur verið búsettur á
Eyrarbakka síðan 1998 og samfellt
síðan 2003. Hann sagði að mikil
vinna hefði verið lögð í Vor í Árborg
og sú menningardagskrá hefði náð
að festast í sessi á þeim fjórum ár-
um sem hún var haldin. Mikið sjálf-
boðastarf hefði verið unnið og nauð-
synlegt að nýta áfram þau verðmæti
sem sú vinna skapaði.
Þorpin verða sýnilegri
„Við vildum gera eitthvað, ekki
bara láta þetta leggjast af. Hér er
öflug og góð umferð ferðamanna og
mikill listiðnaður í gangi sem mætti
gera sýnilegri en svona hátíð dregur
það fram sem hér er unnið að. Sér-
staða þorpanna við ströndina er 19.
öldin sem var síðasta gullöld þeirra
og segja má að þegar gesti ber að
garði er hér alltaf árið 1900,“ sagði
Friðrik sem er mikill áhugamaður
um arfleifð Eyrarbakka og Stokks-
eyrar og hefur lagt áherslu á það í
ræðu og riti.
„Þetta svæði er næst höfuðborg-
arsvæðinu og hingað geta höfuð-
borgarbúar komið í þægilegan bíl-
túr. Við urðum vel vör við það hérna
þegar Vor í Árborg var í gangi en þá
komu 1.000 manns í Húsið og á veit-
ingastaðina. Það er alveg klárt að
fólki líkar vel að heimsækja Eyrar-
bakka og Stokkseyri, sagði Friðrik.
„Við vildum aðeins ydda á sér-
stöðu strandarinnar og einbeita
okkur að þeim tíma þegar vorskipin
komu og fólk fékk vörur og fréttir
frá umheiminum. Þetta framtak
okkar með vorskipið hefur fengið
góðar viðtökur og dagskráin er
sneisafull af skemmtilegum atriðum
svo sem íslenskri glímu við Húsið,
krambúð, markaði, djassi og fleiru.
Svo verður aldamótamatseðill í
Rauða húsinu og stórar rjómatertur
sem heita Drottningarhattur.“
Eyrarbakki er 101 Ísland
„Það er mjög gott að búa á Eyr-
arbakka og ég segi alltaf þegar ég
er spurður að þessu að Eyrarbakki
sé 101 Ísland. Ég hef alltaf dregist
að því að vera á kyrrlátum stað þar
sem samfélagið er passlega stórt og
þar sem maður finnur sig hluta af
lifandi samfélagi. Þetta er annar
heimur, það er eins og Ísland byrji
þegar maður kemur út fyrir
Reykjavík. Ég verð vel var við
áhuga fólks á því að reyna búsetu
hér á Eyrarbakka enda er hér verið
að auglýsa lóðir, svo sem á Einars-
hafnarsvæðinu,“ sagði Friðrik Erl-
ingsson rithöfundur á Eyrarbakka
sem bíður spenntur eftir að taka á
móti gestum á menningardag-
skrána Vorskipið kemur, núna um
helgina.
Friðrik Erlingsson er áhugamaður um arfleifð Eyrarbakka og Stokkseyrar
Hér er alltaf árið 1900
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Vorskipið kemur Friðrik Erlingsson, rithöfundur á Eyrarbakka, er einn þeirra sem standa fyrir hátíðinni
„Vorskipið kemur“ um helgina. Hann stendur við garðinn umhverfis hið sögufræga Hús á Eyrarbakka.
FJÓRIR lykilaðilar í viðbrögðum við slys-
um, eldsvoðum og fleiri bráðatilvikum á
suðvesturhorninu hafa gert með sér sam-
komulag um gagnkvæma aðstoð og sam-
eiginleg viðbrögð þar sem þjónustusvæði
þeirra liggja saman. Um er að ræða
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Bruna-
varnir Árnessýslu, Slökkvilið Hveragerðis
og Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Sam-
komulagið nær meðal annars til virkjana
Orkuveitu Reykjavíkur á Nesjavöllum og
Hellisheiði, Þingvalla, Hellisheiðar og
Þrengslavegar.
Tilgangur samningsins er að tryggja
sem skjótust, öruggust og öflugust við-
brögð við slysum, bráðatilfellum, elds-
voðum, eiturefnaslysum og öðrum atburð-
um þar sem þörf er á sjúkraflutningum
og/eða slökkviliði, segir í fréttatilkynn-
ingu. Flokkist viðkomandi atburður í efsta
eða næstefsta forgangsstig er gert ráð
fyrir að viðbragðsaðilar séu virkjaðir
beggja vegna frá og allir séu upplýstir um
gang mála.
Þar sem svæði viðbragðsaðilanna liggja
saman eru líkur á að annar en viðkomandi
þjónustuaðili geti brugðist fyrr við. Þann-
ig er til dæmis styttra til Þingvalla frá stöð
Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins á
Tunguhálsi en frá Selfossi og Hveragerði.
Í mörgum tilvikum getur aukinn styrkur
frá aðila utan viðkomandi starfssvæðis
ráðið úrslitum um hvernig til tekst við
björgunarstörf, segir ennfremur.
Samið um gagn-
kvæma aðstoð í
neyðarþjónustu
Samstarf Kristján Einarsson, Snorri
Baldursson, Óskar Reykdalsson, Birgir
Finnsson, Hreinn Frímannsson og Krist-
ján Hoffmann undirrita.
Höfum opnað glæsilega bílasölu að Gylfaflöt 5, Grafarvogi
Bjartur og rúmgóður sýningarsalur
Vantar allar gerðir bíla á skrá
Engin sölulaun í maí
- en seljandi borgar umsýslugjald kr. 5.000 + 2.530 fyrir umskráningu
MAZDA SPEED6 AWD 274 hö kemur á götuna 3/2007,
2300cc TURBO, 6 gíra ek 5 þús. km,
Bose hljómkerfi, 18” álfelgur o.fl. Verð 3.790 þús.
áhv. 3.050 þús. Afb. 46 þús.
CHRYSLER 300C 20” Krómfelgur,
árg 4/2005, sjsk. 3500cc V6 ,Leður o.fl.
Glæsileg bifreið. Verð 4.290 þús.
áhv. 3.060 þús.
FORD EXPLORER LIMITED 4X4
árg 2006, sjsk 4015cc, leður o.fl.,
Tilboðsverð 3.850 þús. Fleiri Explorer í boði
(YJ979) SUZUKI GRAND VITARA
árg 9/2005, sjsk. 1995cc, dráttarkúla, aksturstalva o.fl.
Verð 2.490 þús.
www.arnarbílar.is Sími 567 2700Skeifunni 11 Sími 534 5400 www.klettur.is
Klettur fasteignasala kynnir 6 herbergja íbúð á tveimur hæðum. Alls er birt
stærð eignar 212,8 fm, þar af bílskúr 25,1 fm. Lýsing neðri hæðar: forstofa
með flísum á gólfi og góðum skápum. Gengið inn í þvottahús sem er með
máluðu gólfi og hillum. Gott hol þar sem gengið er inn í stofu, borðstofu,
sjónvarpsherbergi, baðherbergi, svefnherbergi og eldhús, einnig upp á
næstu hæð. Hjónaherbergi með skápum og rauðeik á gólfi. Baðherbergi
með ljósum flísum og hvítri eldri innréttingu, baðkar (þarfnast lagfæringa) og
sturtuklefi, gluggi á baðherbergi (verður lagfærður). Stórt sjónvarpsherbergi
með rauðeik á gólfum. Stofa og borðstofa mjög rúmgóð með rauðeik á gólf-
um, gengið út á svalir úr stofu. Eldhús með eldri innréttingu og kork á gólfi.
Stigi upp á efri hæð er úr furu. Lýsing efri hæðar: komið inn í opið rými með
máluðum gólfum, loftglugga og stórum kvistglugga, góð geymsla undir súð.
3 góð svefnherbergi, öll með skápum, tvö með parketi úr rauðeik á gólfum
og eitt með máluðu gólfi. Salerni með léttri innréttingu og geymslu undir súð.
Sérgeymsla í kjallara 12,7 fm. Einangraður ópússaður bílskúr með máluðu
gólfi, búið að leggja fyrir rafmagni, heitt og kalt vatn (á eftir að tengja).
ÁSETT VERÐ: 38,9 m.
(Nánari upplýsingar hjá sölumönnum Kletts fasteignasölu.)
Kristján Ólafsson hrl. og löggildur fasts.
SKÓGARÁS - 6 HERBERGJA ÍBÚÐ
Ölfus | Sigurður Fannar Guð-
mundsson, Guðmundur Sigurðsson
og Sigurður Ívar Másson fjárfest-
ar hafa keypt tvo samliggjandi
hluta úr landi Kotstrandar og Ak-
urgerðis í Ölfusi, að því er fram
kemur á fréttavefnum sudurland.-
is.
Fram kemur að spildurnar eru
samtals 202 hektarar að stærð og
kostuðu um 3–400 milljónir kr.
Að sögn Sigurðar Fannars er
þegar hafið skipulag á um 150 ein-
býlishúsalóðum á svæðinu. Þær
verða í stærri kantinum, rúmlega
hektari hver lóð.
Seljendur eru Þorsteinn Gunn-
arsson á Kotströnd annarsvegar
og hjónin Guðmundur Ingvarsson
og Anna G. Höskuldsdóttir á Ak-
urgerði hinsvegar, segir á frétta-
vefnum.
Nýtt íbúðahverfi í Ölfusi