Morgunblaðið - 19.05.2007, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2007 31
Sjúkraliðanámið er ekki gamalt
nám. Er ekki einhver, sem les
þessa grein, sem hef-
ur þurft á þjónustu
að halda innan heil-
brigðisstofnana hér á
landi?
Það eru eflaust
margir sem lesa þetta
sem hafa þurft að
leggjast inn á ein-
hverja sjúkrastofnun
eða eiga einhvern sér
nákominn á sjúkra-
eða öldrunarstofnun.
Hvaða starfsfólk er
það sem er í nánustu
tengslum við ykkur
og ykkar fólk inni á
stofnunum? Ágæti
lesandi sem hefur
þurft á þeirri þjón-
ustu að halda, það er
að sjálfsögðu sjúkra-
liðinn.
Vissulega eru fleiri
starfsstéttir sem koma þar að, en
grein þessi er rituð til þess að
vekja fólk til umhugsunar um það
hvað við sjúkraliðar gerum fyrir
ykkur, ágætu skjólstæðingar.
Starf sjúkraliða er að mínu mati
vanmetið eins og önnur störf í heil-
brigðisgeiranum en ég hef starfað
sem sjúkraliði í 30 ár, lengst af
sem almennur sjúkraliði. Eftir að
Sjúkraliðafélag Íslands, ásamt öðr-
um sem tengjast heilbrigðismálum,
hafði frumkvæði að því að stofna
til framhaldsnáms sjúkraliða í
hjúkrun aldraðra var ég í fyrsta
hópnum sem lauk því námi.
Þessi framþróun í menntun
sjúkraliða hefur fært mörgum
breytt starfssvið og ekki síst hefur
hún bætt gæði þeirrar þjónustu
sem veitt er inni á stofunum, s.s.
sjúkrahúsum, öldr-
unarstofnunum, í
heimahjúkrun og á
dagdeildum.
Þessi breyting á
menntun sjúkraliða
hefur gjörbreytt
vinnuumhverfi margra
sjúkraliða og fært
þeim vellíðan í starfi.
Ég vil einnig vekja
athygli á öðru sem
Sjúkraliðafélag Ís-
lands hefur komið að
ásamt öðrum, en það
er að gefa fólki, sem
hefur mikla starfs-
reynslu við umönnun
aldraðra, kost á að
mennta sig samhliða
vinnu í formi fullorð-
insfræðslu til að verða
enn hæfari stafs-
kraftar eftir að það
lýkur sjúkraliðanámi.
Með grein þessari vil ég vekja
athygli á þessari framþróun af
hálfu Sjúkraliðafélagsins og einnig
því hve mikið það bætir þjónustu
við notendur.
Sjúkraliðafélag Íslands fagnaði
40 ára afmæli árið 2006. Núver-
andi formaður félagsins, Kristín Á.
Guðmundsdóttir, á mikinn þátt í
velgengni félagsins og fé-
lagsmanna þess.
Hvað hefur sjúkra-
liði gert fyrir þig?
Edda Sjöfn Smáradóttir
skrifar um starf sjúkraliða
í tilefni formannskjörs
Edda Sjöfn Smáradóttir
»Mikilvægisjúkraliða
og menntunar
þeirra í þjóð-
félaginu.
Höfundur er formaður deildar sjúkra-
liða með sérnám í hjúkrun aldraðra.
LANGÞRÁÐUR áfangi er nú
loksins í höfn. Þann 24. apríl und-
irritaði heilbrigð-
isráðherra Siv Frið-
leifsdóttir
reglugerðarbreytingu
sem hefur það í för
með sér að Trygg-
ingastofnun tekur þátt
í meðferðarkostnaði
einstaklinga með
skaða eða sjúkdóma í
miðtaugakerfi, þegar
veitt er sjúkraþjálfun
á hestbaki. Þetta er
þó háð þeim skil-
yrðum að sjúkraþjálf-
ari hafi viðurkennda
menntun í þessu með-
ferðarformi og í um-
gengni við hross.
Fyrir nærri sex ár-
um var haldin á Sauð-
árkróki fyrsta ráð-
stefnan um
reiðmennsku fatlaðra.
Ráðstefnugestir komu
vítt og breitt af land-
inu með ólíkan bak-
grunn en áttu það all-
ir sameiginlegt að
hafa áhuga á að efla
þessa þjónustu.
Nokkrir sjúkraþjálf-
arar voru þar á með-
al, en ólíkt því sem víða er erlend-
is höfðu fáir sjúkraþjálfarar á
Íslandi sýnt þessu meðferðarformi
áhuga. Erlendis þar sem hefðin er
mun lengri fyrir að nota hestinn
sem meðferðartæki í sjúkraþjálfun
hefur meðferðin verið viðurkennd
á við aðra meðferð sem sjúkra-
þjálfari veitir og tryggingakerfið
þar af leiðandi tekið þátt í með-
ferðarkostnaði. Á ráðstefnunni
voru einnig fjölmargir mættir sem
hafa um áraraðir veitt ein-
staklingum með mismunandi fötl-
un möguleika á að fara á hestbak
og hefur það tvímælalaust veitt
fjölmörgum ómælda gleði. Bak-
grunnur þeirra sem þá þjónustu
veita hefur í flestum tilfellum ver-
ið mikil hestakunnátta og reynsla
af reiðmennsku og kennslu í þeim
efnum.
Markmið með sjúkraþjálfun á
hestbaki er ekki eingöngu að veita
gleði og skapa fjölbreytni heldur
fyrst og fremst að hafa áhrif á lík-
amsstöðu og færni knapans.
Sjúkraþjálfarar hafa sína sérþekk-
ingu á hreyfingum og færni lík-
amans og sjá mikla möguleika í að
nýta sér hestinn og hreyfingar
hans í hæfingu og endurhæfingu
þeirra sem hafa skerta færni.
Hesturinn er frábært tæki til að
örva og virkja vöðva, sem annars
eru lítt notaðir. Á feti yfirfærir
hann hita og hreyfingu í hrygg og
mjaðmagrind knapans sem er nán-
ast hin sama og gerist við göngu.
Einstaklingar sem
ekki ganga sjálfir eða
hafa skerta göngu-
getu upplifa því takt-
fastar „gönguhreyf-
ingar“ um leið og
hesturinn hreyfir sig
sem líkjast eðlilegu
göngumynstri. Rann-
sóknir hafa sýnt að
spenna vöðva minnk-
ar og færist í eðli-
legra ástand eftir að
hafa verið á hestbaki.
Nálægð og snerting
við lifandi felddýr
veitir einnig öflug
skynáhrif á öll skyn-
færi knapans (snert-
ingu, stöðuskyn, lykt,
sjón og heyrn). Auk
þessara áhrifa hefur
mörgum reynst erfitt
að yfirstíga hræðsl-
una við að setjast á
þessar stóru loðnu
skepnur og það er því
ótvíræður sigur þegar
lítill einstaklingur
getur það.
Styrktarfélag lam-
aðra og fatlaðra
(SLF) hefur í meira
en hálfa öld verið frumkvöðull í
meðferðarúrræðum og þjónustu
við hreyfihamlaða. Meðal annars
hefur félagið rekið sumardval-
arheimili fyrir hreyfihömluð börn
og ungmenni í Reykjadal í Mos-
fellsdal. Þar er frábær aðstaða til
að veita hreyfihömluðum þjálfun í
óhefðbundnu umhverfi, hvort sem
eru gönguferðir, sund, fjallgöngur
eða sjúkraþjálfun á hestbaki. Und-
anfarin fimm ár hefur stjórn SLF
veitt tilraunaverkefni um sjúkra-
þjálfun hreyfihamlaðra barna á
hestbaki brautargengi, fyrst í
Reykjadal og síðustu þrjá vetur í
reiðhöll Gusts, þrátt fyrir að form-
lega hafi meðferðin ekki verið við-
urkennd til jafns á við aðra
sjúkraþjálfun. Niðurstöður óform-
legra rannsókna á færni og lið-
leika barna eftir meðferð á hest-
baki hafa verið mjög jákvæðar og
hefur ásókn í þessa tegund með-
ferðar vaxið jafnt og þétt s.l. fimm
ár. Í ár er sjötta árið sem sjúkra-
þjálfun á hestbaki er veitt hjá
Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra
og hefur starfsemin nú vaxið svo
að vænta má að nálægt hundrað
börn fái að spreyta sig í sjúkra-
þjálfun á hestbaki í Reykjadal og
jafnframt í reiðhöll Gusts.
Samhliða þessum tilraunaverk-
efnum hefur starfað þverfaglegur
samstarfshópur sem skipaður var
í lok ráðstefnunnar á Sauðarkróki
og samanstendur af fulltrúa reið-
kennara, Hestamiðstöðvar Íslands,
Íþróttasambands fatlaðra, þroska-
þjálfa og sjúkraþjálfara. Markmið
þessa starfshóps var að efla þjálf-
un og reiðmennsku fyrir fatlaða á
Íslandi. Samstarfshópurinn hefur
einnig tekið þátt í norrænni sam-
vinnu sjúkraþjálfara á Norð-
urlöndum sem sinna þessari teg-
und þjálfunar. Eitt af markmiðum
hópsins var að fá meðferðarformið
viðurkennt líkt og á hinum Norð-
urlöndunum sem með reglugerð-
arbreytingu heilbrigðisráðherra er
orðið að veruleika fyrir ákveðinn
hóp fatlaðra og því fögnum við
sjúkraþjálfarar.
Sjúkraþjálfun á hest-
baki – raunhæfur
möguleiki á Íslandi
Hesturinn er frábært tæki til að
örva og virkja vöðva, segja
Guðbjörg Eggertsdóttir og
Þorbjörg Guðlaugsdóttir
»Með reglugerð-arbreytingu hefur
heilbrigðisráðherra Siv
Friðleifsdóttir við-
urkennt sjúkraþjálfun á
hestbaki sem meðferð-
arform.
Guðbjörg
Eggertsdóttir
Höfundar eru sjúkraþjálfarar
á Æfingastöð Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra.
Þorbjörg
Guðlaugsdóttir
OPIÐ HÚS MILLI KLUKKAN 14:00 OG 16:00
VALSHEIÐI 23 – HVERAGERÐI
Mjög glæsilegt 193 fm einbýlishús
með fallegum byggingarstíl og mik-
illi lofthæð á góðum stað í Hvera-
gerði. Húsið afhendist fullbúið að
utan og fokhelt að innan. Skv.
teikningum eru fjögur svefnher-
bergi, tvískipt baðherbergi, bílskúr,
stofa og borðstofa, geymsla,
þvottahús og eldhús. Nútímalegt hús á frábæru verði með hagstæðu
áhvílandi láni frá íbúðalánasjóði. V. 24,9 millj
Þórir (s. 861 3040) tekur á móti gestum.
Berg fasteignasala, Háaleitisbraut 58
Sími 588 5530 • Netfang: berg@berg.is
Grétar J. Stephensen lögg. fasteignasali