Morgunblaðið - 19.05.2007, Síða 56
LAUGARDAGUR 19. MAÍ 139. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Viðræður ganga vel
Viðræður Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar gengu vel í gær að
sögn flokksformanna. Geir H.
Haarde forsætisráðherra baðst
lausnar fyrir ráðuneyti sitt og fékk
jafnframt umboð forseta Íslands til
stjórnarmyndunar. » Forsíða
Kambur á Flateyri hættir
Eigendur Fiskvinnslunnar Kambs
ehf. á Flateyri hafa ákveðið að selja
eignir fyrirtækisins og hætta rekstri
þess. Við það missa 120 manns vinn-
una. » 2
Margar konur í stjórn
Sjö konur eru ráðherrar í nýrri 15
manna ríkisstjórn Frakklands undir
forsæti Nicolas Sarkozy, nýkjörins
forseta. Hlutfall kvenna í ríkisstjórn
Frakklands hefur aldrei áður verið
jafnhátt. » 18
Met í ferðaþjónustu
Horfur þykja góðar fyrir íslenska
ferðaþjónustu enn eitt árið, en hún
velti 50 milljörðum króna í fyrra og
sló þar með tekjumet. Gert er ráð
fyrir 10% tekjuaukningu ferðaþjón-
ustunnar á þessu ári. » 6
SKOÐANIR»
Staksteinar: Framsóknarflokkur …
Forystugreinar: Grænn flokkur
Öryggis- og varnarmál rædd við
Þjóðverja
UMRÆÐAN»
Nikkuherinn
Sjúkraþjálfun á hestbaki
Örlítil sjúkrasaga
Æðruleysismessa í upphafi sumars
´
Lesbók: Íslensk hönnun
Niður við vatnið
Börn: Verðlaunaleikur
Settu litla lambið í bakaraofninn
LESBÓK | BÖRN »
0 #9% -"*"#
: "! ""! / /
/ / / / / /
/
/
/ / / /
/ /
/ /
,;(5 % / /
/ /
/
/ /
/ <=>>1?@
%AB?>@.:%CD.<
;1.1<1<=>>1?@
<E.%;;?F.1
.=?%;;?F.1
%G.%;;?F.1
%8@%%.H?1.;@
I1C1.%;AIB.
%<?
B8?1
:B.:@%8*%@A1>1
Heitast 12 °C | Kaldast 1 °C
Norðanátt, víða 8-13
m/s. Bjartviðri sunnan
til, annars skýjað. Dá-
lítil slydda eða él fyrir
norðan og austan. » 10
Birta Björnsdóttir
skrifar frá hátíðinni í
Cannes um rauða
dregilinn og stjörn-
urnar sem á honum
ganga. » 49
KVIKMYNDIR»
Gallabuxur
bannaðar
TÓNLIST»
Áhugaverðir tónleikar
Oumou Sangaré. » 50
Páll Ragnar Pálsson
starfar hjá fyrirtæki
sem hyggst þróa og
markaðssetja tölvu-
leik sem markar ný
spor á sínu sviði. » 46
TÖLVULEIKIR»
Hannar
tölvuleik
KVIKMYNDIR»
Bíómyndin Brotalöm fær
fjórar stjörnur. » 47
TÓNLIST»
Trentemøller varð leiður
á rokkinu. » 47
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Topplaus Britney þakkar
2. Jón Sigurðsson: Staðfestir …
3. Eiður Smári í „fréttunum“
4. Steingrímur: Ingibjörg afsalað …
ANNA Kisselgoff er án efa kunn-
asti dansgagnrýnandi heims, og
skrifaði um danslistina í New
York Times í áratugi, þar til hún
lét af því starfi í fyrra. Hún þekkt-
ist boð um að koma hingað til
lands til að sjá sýningu Helga
Tómassonar og San Francisco-
ballettsins, og notar tækifærið til
að skrifa um hana fyrir veftíma-
ritið Voice of Dance. Anna Kissel-
goff spáði Helga Tómassyni strax
miklum frama, þegar hann kom
fyrst fram í New York um 1970,
og þeir sem hafa fylgst með ferli
hans, hafa oftar en ekki gert það
gegnum skrif hennar. Fyrir þau
skrif og tengsl við íslenska dans-
list fékk hún riddarakross fálka-
orðunnar árið 2002. Stjórn Leik-
félags Reykjavíkur bauð Önnu í
hádegisverð í gær, þar sem rætt
var um kynni hennar af Helga,
þróun danslistarinnar og gagn-
rýni.
Anna Kisselgoff sækir Ísland heim til að fylgjast með Helga Tómassyni
Morgunblaðið/G.Rúnar
Reyndist
sannspá
Dansgagnrýnandinn Inga Jóna Þórðardóttir stjórnarformaður LR, Guðjón Pedersen leikhússtjóri og Anna Kissel-
goff dansgagnrýnandi, en hún spáði Helga Tómassyni miklum frama við upphaf ferils hans í New York um 1970.
ÞAU Kjartan Sveinsson og María
Huld Markan Sigfúsdóttir luku
bæði tónsmíðanámi fyrir stuttu, en
þau hafa hingað til verið, og eru
enn, áberandi í hljómsveitum sín-
um, Kjartan sem einn liðsmanna
Sigur Rósar og María í hljómsveit-
inni Amiinu.
Í viðtali í Lesbókinni ræða þau
um tónlistina sem er líf þeirra, en
bæði hafa þau lagt stund á tónlist
frá fimm ára aldri.
Í viðtalinu kemur meðal annars
fram að Kjartan telur sig varla
kunna á hljóðfæri lengur þó að
hann hafi lært á píanó, þverflautu,
óbó, saxófón og selló og hafi at-
vinnu af því að spila tónlist.
Einnig kemur fram að María
hugðist um tíma leggja fiðluna á
hilluna fyrir fullt og fast, en sá svo
að sér. | Lesbók
Lifa bæði í
tónlistinni
Listamenn Kjartan Sveinsson og
María Huld Markan.
KÓPAVOGSBÆR og Samtök for-
eldrafélags og foreldraráðs við
grunnskóla Kópavogs, SAMKÓP,
sendu í gær frá sér tilkynningar til
að vekja athygli á því að auglýstir
tónleikar útvarpsstöðvarinnar Flass
104,5 fyrir unglinga í Smáranum í
kvöld samrýmdust ekki þeim for-
varnargildum sem unnið væri eftir
með börnum og unglingum í Kópa-
vogi og yrðu því ekki í íþróttahús-
inu.
Engin leyfi
Í fyrrnefndum tilkynningum
kemur fram að tónleikarnir hafi
verið auglýstir án þess að fyrir liggi
skriflegur leigusamningur eða til-
tekin leyfi til skemmtanahalds.
SAMKÓP, Kópavogsbær og for-
varnardeild lögreglunnar leggist
gegn tónleikahaldinu og SAMKÓP
vilji auk þess tryggja að foreldrar í
öðrum bæjarfélögum séu vel upp-
lýstir um málið.
Jón Júlíusson, íþróttafulltrúi í
Kópavogi, segir að útvarpsstöðin
hafi sótt um leyfi en ekki fengið,
fyrst og fremst vegna þess að und-
irbúningur og skipulagning þessa
tónleikahalds sé alls ekki viðunandi.
Bærinn hafi í samráði og samvinnu
við foreldra, skólana og forvarn-
ardeild lögreglunnar unnið að því
að koma í veg fyrir hópamyndun í
tengslum við próflok en þess í stað
skipulagt próflokaferðir út á land.
Tónleikarnir verða
Talsmenn FL Media, sem rekur
útvarpsstöðina Flass 104,5, ákváðu í
gærkvöldi að fresta tónleikunum
fyrir yngri aldurshópinn um viku
og færa hina tónleikana í Broad-
way.
Í yfirlýsingu þeirra kemur fram
að þeir hafi ávallt virt útivistartíma
unglinga og lokið skemmtunum áð-
ur en hann hafi verið úti. Samið
hafi verið við Ungmennafélagið
Breiðablik um tónleikana í Smár-
anum en bæjarvöld hafi skorist í
leikinn. Reynt hafi verið að fá fund
með bæjarstjóra án árangurs og
það sé óskiljanlegt hvers vegna
Kópavogsbær hafi tekið fyrir tón-
leikana.
Tekist á um tónleika
Samrýmast ekki forvarnargildum sem unnið er eftir með
unglingum í Kópavogi og verða því ekki í Smáranum
Tónleikar Ungt fólk á tónleikum.
Í HNOTSKURN
» Tónleikunum fyrir 13 til16 ára hefur verið frestað
til 26. maí en tónleikarnir fyr-
ir 16 ára og eldri hafa verið
fluttir í Broadway og verða
frá klukkan 24 til 03.
» Samtök foreldrafélaga íKópavogi, íþrótta- og tóm-
stundaráð Kópavogs og for-
varnardeild lögreglunnar
leggjast gegn tónleikahaldinu.
» FL Media segist leggjaáherslu á að halda vímu-
lausa tónleika fyrir ungt fólk
og sé ávallt með öfluga gæslu
og eftirlit í samvinnu við lög-
regluna og Rauða krossinn.