Morgunblaðið - 24.05.2007, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2007 55
Umsóknarfrestur
til 5. júní.
Lagadeild
Laganám í Háskóla Íslands:
Reynsla, metnaður og gæði
Skrásetningargjald allt skólaárið
aðeins kr. 45.000.-
www.lagadeild.hi.is
www.valholl.is
www.nybyggingar.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.00
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
Sími 588 4477
• Þriðja hæð 346 fm efsta hæð, vandaðar og glæsilegar skrifstofur ásamt
fundaraðstöðu og opnu rými. Hæðin er inndregin með mjög góðum svölum.
• Jarðhæð 250 fm. og 162 fm. skrifstofur, mikið opið rými.
Sameiginlegt eldhús ásamt mötuneyti.
Til leigu - Lágmúli - skrifstofur
Glæsilegt húsnæði, mjög góð
staðsetning.
Óskað er eftir tilboði í leigu.
Upplýsingar veitir
Magnús Gunnarson í símum
588 4477 og 822 8242
og Bardar Tryggvason
í símum
588 4477 og 896 5221
STÓRA tækifæri Victoriu Beckham
til að kynna sig í Bandaríkjunum
kemur í næsta mánuði þegar hún
verður kynnir á MTV-verðlaunahá-
tíðinni.
Kryddpían fyrrverandi er stað-
ráðin í að sigra Bandaríkin þegar
hún og eiginmaður hennar David
Beckham flytja til Los Angeles í
sumar.
Victoria mun slást í fagran hóp
Hollywood-stjarna sem einnig
kynna á verðlaunahátíðinni sem fer
fram í Kaliforníu 4. júní næstkom-
andi. M.a verða þar Cameron Diaz,
Bruce Willis og Lindsay Lohan.
Sögusagnir herma að Victoria geti
ekki beðið eftir að komast til Banda-
ríkjanna enda hefur hún mikla trú á
því að í „landi tækifæranna“ bíði
hennar frekari frægð og frami. Hef-
ur hún m.a. litað brúnt hár sitt ljóst
til að falla betur inn í Bandarískt
þjóðfélag en þar hefur ljósi liturinn
alltaf verið í miklum metum.
Victoria vill
vinsældir
Reuters
LEIKKONAN Eva Longoria kemst
ekki í brúðkaupsferð eftir brúð-
kaup sitt í júlí því hún þarf að flýta
sér í vinnuna.
Longoria giftist Tony Parker í
París 7. júlí en tökur hefjast á Að-
þrengdum eiginkonum tveimur
dögum seinna í Bandaríkjunum svo
hún kemst ekki langt.
Longoria sagði tímaritinu People
að hún ætlaði beint heim eftir brúð-
kaupið því hún þyrfti að mæta í
vinnuna.
Longoria og Parker, sem trúlof-
uðu sig í nóvember, hafa boðið tvö
hundruð gestum í brúðkaupið en
þetta er önnur gifting Longoriu
sem skildi árið 2004 við sjónvarps-
leikarann Tyler Christopher eftir
tveggja ára hjónaband.
Reuters
Fer ekki í
brúðkaupsferð
LEIKKONAN
Angelina Jolie
hefur ákveðið að
taka sér ársfrí til
að eyða meiri
tíma með fjöl-
skyldu sinni,
greinir vefsíða
People frá.
„Ég vinn þetta
sumar, ég er í Prag í nokkra mánuði,
síðan tek ég mér tveggja mánaða frí
og svo vinn ég í tvo mánuði og eftir
það mun ég taka mér ársfrí frá kvik-
myndaleik,“ sagði Jolie í vikunni
þegar hún var að kynna nýjustu
mynd sína A Mighty Heart á kvik-
myndahátíðinni í Cannes. Spurð
hvort frítíminn væri ætlaður fjöl-
skyldunni svaraði hún játandi, ekki
er ljóst hvort Brad Pitt ætlar að taka
sér frí með henni.
Þau eru nú stödd í Cannes ásamt
börnum sínum fjórum en auk þess
að kynna A Mighty Heart þarf Pitt
að vera viðstaddur frumsýningu
myndarinnar Ocean’s Thirteen.
Jolie mun ekki taka sér frí frá
góðgerðarmálunum og ætlar að
halda áfram starfi sínu sem sendi-
herra Sameinuðu þjóðanna. Hún
sagðist ætla að halda áfram baráttu
sinni fyrir réttlæti í heiminum þrátt
fyrir að með því væri öryggi hennar
teflt í hættu. „Ég vil ekki búa inni í
kassa, ég mun fara varlega en samt
vera hugrökk og ég mun læra um
heiminn, enginn getur komið í veg
fyrir það.“
Jolie ætlar
í ársfrí