Morgunblaðið - 02.09.2007, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER 2007 53
UMRÆÐAN
Finnbogi Hilmarsson,
Einar Guðmundsson og
Bogi Pétursson
löggiltir fasteignasalar
Arnarstapi á Snæfellsnesi
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
Sími
530 6500
Heimili fasteignasala kynnir til sölu Lækjarbakka 10, sem er vandað 55 fm
fullbúið sumarhús með tveimur svefnherbergjum og 20 fm svefnlofti. Í
kringum húsið er 65 fm verönd. Húsið stendur á rólegum, fallegum stað
og útsýnið er einstakt. Húsið stendur aðeins út úr sumarhúsaþyrping-
unni. Á Arnarstapa er rekið veitingahús og þjónusta við ferðamenn. Ná-
grenni hússins er m.a. Þjóðgarðurinn við Snæfellsjökul, Hellnar og Hótel
Búðir, svo eitthvað sé nefnt. Þetta svæði er geysivinsæll ferðamanna- og
gististaður sökum náttúrufegurðar og jákvæðra áhrifa umhverfisins. V.
13,9 millj.
www.heimili.is Bogi MolbyPétursson
Allar nánari upplýsingar veitir
Bogi Molby Pétursson
lögg. fasteignasali í síma 699 3444.
PERLA ÚTSÝNISLÓÐA!
Berg fasteignasala, Háaleitisbraut 58
Sími 588 5530 • Netfang: berg@berg.is
Grétar J. Stephensen lögg. fasteignasali
Upplýsingar veitir Grétar J Stephensen
eingöngu á skrifstofu Berg fasteignasölu.
Ein allra flottasta útsýnislóð höfuðborgarsvæðisins sem er staðsett efst í suðurhlíðum
Kópavogs með stórkostlegu útsýni. Á lóðinni sem er 861 fm er heimilt að byggja ca
340 fm einbýlishús á tveimur hæðum. Aðeins fyrir fjársterka aðila. Tilboð óskast.
Suð
uhlíð
ar
Dig
rane
shei
ði
Digranesheiði 12
Suðurhlíðar
ÞAÐ vill einhver byggja á
græna útivistarsvæðinu í hverfinu
mínu! Þetta er sneið af þeim 15%
svæðisins sem eftir eru utan girð-
inga, hafa ekki verið lögð undir
eitthvert hinna 1.800 malbikuðu
bílastæða eða múruð undir stein-
steypu. Þetta er sneið af því litla
rými sem eftir er af
útivistarsvæðinu sem
ég þarf ekki borga
mig inn á eða ganga í
klúbb til að mega
vera þar. Af hverju
má ekkert vera í
friði? Af hverju þarf
að leggja allt undir
sig með arðsem-
isframkvæmdum þró-
unarhyggju nútíma
steinaldarhugsunar?
Ég kalla það steinald-
arhugsun að geta
ekki séð auðan blett
án þess að byrja strax í huganum
að hræra steypu og reisa grjót-
veggi.
Það hefur ekki farið hátt um
væntanleg byggingaráform í aust-
urhluta Laugardals enda stendur
ekki til að reisa þar háhýsi. Um er
að ræða breytingu á deiliskipulagi
fyrir svæði IV sem nú liggur fyrir
hjá skipulags- og byggingasviði
Reykjavíkurborgar til að ráðstafa
grænu útivistarsvæði undir fjöl-
býlishús. Íbúasamtök Laugardals
hafa andmælt þessum áformum
kröftuglega frá fyrsta degi eftir
viðurkenndum leiðum stjórnsýsl-
unnar. Tillagan sem nú liggur fyr-
ir er sú síðari af tveimur. Þeirri
fyrri var hafnað í skipulagsráði í
kjölfar fjölda mótmæla íbúa hverf-
isins og stofnana í grenndinni. Á
sama fundi var lögð fram önnur
tillaga þar sem byggingamagnið
var minnkað um helming og stað-
setningu hliðrað um nokkra tugi
metra. Hátt á annað hundrað and-
mæli bárust gegn síðari tillögunni
og fékkst athugasemdafresti henn-
ar seinkað til 30.
ágúst. Það er því eng-
in ástæða til að ætla
að seinni tillagan sé
íbúum við Laugardal
frekar að skapi.
Borgarfulltrúi
nokkur fullyrti á
bloggsíðu sinni að
seinni tillagan væri
dæmi um virkt sam-
ráð milli borgaryf-
irvalda og borgarbúa
og óskaði Íbúa-
samtökum Laugardals
til hamingju með
þann áfanga. Málið er að það er
ekki neitt til að fagna vegna þess
að samtal og samráð var ekkert.
Seinni tillagan var lögð fram á
sama fundi skipulagsráðs og þeirri
fyrri var hafnað. Hún var sem
sagt til frá upphafi, tilbúin til mat-
reiðslu og borin fram á opinberum
vettvangi með samráðssósu yf-
irklórs. Hitt málið er að hún hafði
aldrei verið kynnt né rædd við
íbúasamtökin. Embættismenn
borgarinnar sögðu ekki frá því að
hún væri nú þegar tilbúin á kynn-
ingarfundi um fyrri tillöguna sem
borgaryfirvöld efndu til í sum-
arbyrjun. Umsækjendur um-
ræddra byggingaframkvæmda létu
heldur ekki uppi um áform sín.
Á þeim fundi kom skýrt fram
einörð afstaða íbúa við Laugardal
að þeir vilja ekki meiri mann-
virkjagerð í Laugardal. Það gildir
einu hver notkunin á að vera.
Stærð og umfang skiptir engu
máli. Íbúar vilja ekki meira. Þeir
vilja útivistarsvæði þar sem mann-
eskjur geta leikið sér með flug-
dreka, æft golfsveifluna og flugu-
kastið eða einfaldlega sest í grasið
og verið til. Manneskjur þurfa
andrými í borgarumhverfi, græna
náttúru til að efla heilbrigði og
vellíðan. Ef byggt er á grænum
svæðum þá einfaldlega hverfa þau
og hinn raunverulegi ábati
grænna skrefa Reykjavíkurborgar
er fyrir bí. Það er eftirtektarvert
að í skipulagi nýrra hverfa sem nú
eru í bígerð er ekki frátekið rými
fyrir borgargarða til almennrar
útivistar. Í ljósi þessa verða svona
lítil græn frímerki sem eftir
standa enn mikilvægari og dýr-
mætari. Áskorunin er þessi:
Byggjum í grennd við græn svæði
en ekki á þeim.
Grænt frímerki á válista
Ólöf I. Davíðsdóttir skrifar um
umhverfismál og varðveislu
grænna svæða
» Íbúar við Laugardalleggjast gegn frek-
ari mannvirkjagerð…
Ólöf I. Davíðsdóttir
Höfundur er íbúi við Laugardal í
Reykjavík.