Morgunblaðið - 02.09.2007, Side 56
56 SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
Sími 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali.
VILTU BÆTAST Í STÓRAN HÓP ÍSLENDINGA
SEM HAFA KEYPT EIGNIR Í BÚLGARÍU?
FINANCE LIMITED
Proxima
• 3 daga skoðunarferð verður
seinnipart september.
• Ferðin er endurgreidd ef eign er
keypt af Proxima.
• PROXIMA er rekið af íslenskum að-
ilum sem eru að byggja vandaðar
eignir á einum eftirsóttasta stað í
Búlgaríu.
• Fallegar íbúðir og raðhús við
Svartahafið.
• 50 mín. á alþjóðaflugvöll
• 20 mín. til borgarinnar Bourgas
sem liggur við Svartahafið, þægileg
og skemmtileg borg.
• 1 klukkutími til Tyrklands.
• Budjaka„svæðið“ sem er byggt á er
alveg við einn af frægari bæjum í
Búlgaríu (Sozopol) yndislegur bær
með fjölbreyttu og skemmtilegu
mannlífi.
• Þetta er eitt af eftirsóttari svæðum
Búlgaríu og má aðeins byggja á
20% af landinu og aðeins upp á
þrjár hæðir. Öruggt og rólegt
svæði sem býður upp á góða fjár-
festingu.
Aðeins 4 hús eftir
VILLA FIORD – Tíu sérlega falleg raðhús á frábærum stað
- 142 fm raðhús á 3 hæðum – 2 íbúðir í hverju húsi!
ÚTSÝNI ÚT Á SVARTA HAFIÐ
1. hæð Stofa, Eldhús, salerni og verönd.
2. hæð Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi inn af
hvoru þeirra. Tvennar svalir.
3. hæð er hönnuð sem íbúð með eldhúsi, stofu,
baðherbergi, svefnherbergi. Tvennar svalir.
VERÐ frá 150 þúsund evrum.
VILLA FIORDNú þegar eru
seldar 14 íbúðir
Sérlega fallegt 8 íbúða hús á besta stað alveg við strönd-
ina, sundlaug og afgirt svæði. Stórglæsilegt hús á þremur
hæðum í hinum skemmtilega bæ Budjaka við Sozopol.
Húsið er hannað í Nessebar stíl sem er þjóðlegur búlg-
arskur byggingastíll og er mjög hátt metinn í Búlgaríu.
Það er mjög stutt niður á hvíta strönd frá húsunum og 3-
5 mín. akstur niður í miðbæ Sozopol. Stutt í alla þjónustu
og á veitingastaði. VERÐ frá 77 þúsund evrum.
ELINOR II Nú þegar eru
seldar 14 íbúðir
Í boði eru eignir í VILLA KAREN sem glæsilegt 24 íbúða
fjölbýli með 2ja herbergja íbúðum sem skiptist í þrjár
byggingar. Tvær sex íbúða og eina átta íbúða byggingu.
Sundlaug og pottur, grillaðstaða. Stutt á strönd.
VERÐ frá 74 þúsund evrum.
VILLA KAREN
www.bulgaria.is
Skoðunarferð
Proxima í samstarfi við
fasteignasöluna Akkurat
Melhagi 17 - Hæð
Opið hús í dag milli kl. 14 og15
Skólavörðustíg 13
S ím i 510 3800
Fax 510 3801
www.husavik.net
Reynir Björnsson
lögg. faste ignasal i
Mikið endurnýjuð, björt og glæsileg 4ra herbergja 119 fm miðhæð á
þessum frábæra stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Eignin skiptist í hol, þrjú
svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, borðstofu og stóra stofu. Íbúðin var
mikið endurnýjuð fyrir ca 3 árum og má þar nefna gólfefni, eldhús og
gler. Rúmgóðar svalir til suðurs frá stofu og aðrar svalir til norðurs frá
hjónaherbergi. Eigninni fylgir bílskúrsréttur. Gott 21,5 millj. kr. lán frá LÍ
áhvílandi. Verð 41,9 millj.
Sigþór og Kristjana taka vel á móti gestum milli kl. 14 og 15 í dag.
Teikningar á staðnum.
Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
Sýnum í dag snyrtilega 4ra herb. íbúð á efri hæð á þessum vinsæla & barn-
væna stað í Grafarvogi, sérinngangur af svölum. Íbúð skiptist í: Forstofu,
gang/hol, þrjú herb., baðherb., eldhús, stofu/borðstofu, útigeymslu, hjóla/
vagnageymslu og stæði í bílageymslu. Óskráð geymsluloft yfir allri íbúð.
Suðursvalir út úr eldhúsi með glæsilegu útsýni. V. 25,9 millj.
Sveinn Eyland gsm: 6-900-820 sölumaður Fasteign.is
verður á staðnum.
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 15.30 – 16:00
HRÍSRIMA 10 – EFRI HÆÐ VINSTRI
LÍKLEGA er þekkingarþrá inn-
byggð í heila mannkyns. Alveg
eins er með græðgina, hún er líka
stór þáttur í heilabúinu. En hvern-
ig verður framtíðin okkar, ef af-
leiðingin verður ekki bara sjálfs-
bjargarviðleitni, heldur líka
ofneysla á flestum sviðum? Hefur
móðir jörð efni á ofneyslunni, og
hvernig þjóðfélagi viljum við skila
til afkomendanna? Ég sé fyrir mér
byrjunina: Nýja banka, sem
geyma egg og sæði einstaklinga. Í
tæka tíð verða allir gerðir ófrjóir,
um leið og frátekin egg og sæði
verða sett í frostið. Síðan verður
að sækja um leyfi til barneignar.
Þá verða afkvæmin skipulögð í
bönkum eftir höfði hvers og eins
(enga klíku takk). Eiginleikar
verða mis-eftirsóttir og misdýrir.
Setja verður, jú, margþætt lög á
þessu sviði, eins og nærri má geta.
Það verður svo bankinn, sem sér
um framleiðsluna. Eftir 9 mánuði
koma foreldrarnir að sækja barn-
ið. Þá er ferðinni heitið inn á ann-
að geymslusvið. Það er ung-
barnageymslan, þar sem afkvæmið
er haft meiri hluta dagsins. Þar
eru vélrænar tölvufóstrur, sem
líta eftir börnunum, sem er komið
fyrir þannig, að engin hætta verði
á staðnum. Þau fá að sjálfsögðu
enga snertingu við mannfólk og
eru á vélrænu pillufæði, vandlega
sótthreinsuðu. Fljótlega fá þau í
hendur stjórntæki við hæfi, og fá
þar skammtinn, sem boðið verður
upp á. Fer eftir tölvustillingu á
hverjum stað. Þau hafa vonandi
fínan heila í byrjun, bara að þau
læri ekki fljótt að komast lengra
en ætlað er. Nei, nei, það kemst
víst enginn lengra en tölvan leyfir,
ef hún er rétt stillt. Hvað tilfinn-
ingasviðið snertir vil ég engu spá,
en e.t.v. skiptir það ekki miklu í
vélrænni framtíð. En það er annað
mál. Síðan er næsta stig – tölvu-
skólar, þar sem nám fer fram og
engra kennara er þörf lengur.
Kannske verða engir skólar nauð-
synlegir, það er jú ódýrara, ekki
satt? Það má nefnilega læra allt í
gegnum tölvuna, meira að segja
að keyra og fljúga. Hva! Svo er
það gamla fólkið og þeir sem veik-
ir eru. Þar verða sérstök geymslu-
svið fyrir alla, sem þess þurfa.
Tjáning við lækna fer fram í gegn-
um tölvu, róbótar í þjónustuna.
Það verða aðeins fáir tölvuverðir,
sem endanlega tilkynna andlát. Þá
er ýtt á takka, rúmbotninn opnast
og við tekur kistan. Þar er svo
gengið frá „restinni“. Fólki verður
eytt og e.t.v. er hægt að fá sjálf-
virka jarðarför líka, sem hægt er
að fylgjast með í gegnum tölvu.
Hugsið ykkur tímasparnaðinn,
ódýrari rekstur, minni skattar og
meiri lífsgleði. Þá geta allir leyft
sér allt mögulegt, því að sjálf-
virknin hefur fært okkur flest það
besta, sem hægt er að hugsa sér.
Skítt með „mannlegar hliðar“ þær
eru lítils virði. Við tökum bara til-
finningarnar burt. Þær eru á viss-
um stað í heilanum, og enginn
vandi að sjá fyrir því. Það er
miklu minna „vesen“. Með hörk-
unni hefst það! Nýtum okkur allt,
sem hægt er. Sá sem á gnægð af
peningum getur veitt sér allt, sem
lífið býður upp á. Sjálfvirkur
heimur, hundódýr í rekstri. Æðis-
legt, eins og sagt er í dag. Frón-
búi, þá verður gaman að vera til.
Eða hvað?
VIGDÍS ÁGÚSTSDÓTTIR,
Brekkustíg 17, Reykjavík .
Tæknivelmegunarþjóðfélag
framtíðarinnar
Frá Vigdísi Ágústsdóttur