Morgunblaðið - 02.09.2007, Page 63

Morgunblaðið - 02.09.2007, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER 2007 63 ✝ Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna fráfalls ÁSGEIRS ÞÓRS JÓNSSONAR, til heimilis í Bólstaðarhlíð 58, Reykjavík. Ása Ásmundardóttir, Ásgrímur Þór Ásgeirsson, Ásgerður Margrét Ásgeirsdóttir, Óskírð Ásgeirsdóttir, Ásdís Bjarkadóttir, Jón Friðgeir Einarsson, Margrét Kristjánsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Einar Þór Jónsson, Stig A. Wadentoft, Kristján Jónsson, Ásmundur Þórarinsson, Auðbjörg H. Hrafnkelsdóttir. Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Geir Harðarson                          ✝ Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, KÁRA STEINSSONAR, Hólavegi 23, á Sauðárkróki, sem lést 24. júlí sl. Guð blessi ykkur öll. Dagmar Kristjánsdóttir, Valgeir Steinn Kárason, Guðbjörg S. Pálmadóttir, Kristján Már Kárason, Steinn Kárason, Kristín Arnardóttir, Soffía Káradóttir, Hafsteinn Guðmundsson, Jóna Guðný Káradóttir, Gunnar Á. Bjarnason, barnabörn og langafabörn. ✝ Hugheilar þakkir færum við öllum þeim fjölmörgu sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærar móður okkar, teng- damóður, ömmu og langömmu, GRÓU HELGU KRISTJÁNSDÓTTUR Hólmi, Austur Landeyjum. Eygló Þóra Guðmundsdóttir, Guðmann Ingjaldsson, Erla Ragnhildur Guðmundsdóttir, Jóna Krístín Guðmundsdóttir, Eggert Pálsson, Garðar Guðmundsson, Guðrún Jónsdóttir, Ásta Guðmundsdóttir, Erlendur Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Einlægar þakkir fyrir alla samúð, stuðning og hlýhug við fráfall, JÓNS ÁSGEIRS SIGURÐSSONAR útvarpsmanns. Margrét Oddsdóttir, Sigurður Árni Jónsson, Oddur Björn Jónsson, Þorgrímur Darri Jónsson, Sigríður Jónsdóttir, Hallsteinn Magnússon, Kári Hallsteinsson, Haukur Hallsteinsson, Margrét Sigurðardóttir, Þórir Haraldsson, Björn Sigurðsson, Hekla Smith, Magdalena Sigurðardóttir, Oddur Pétursson. ✝ Alúðarþakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarþel við andlát og útför elsku mömmu okkar, tengdamömmu og ömmu, RAGNHILDAR JÓNSDÓTTUR. Kærar kveðjur og þakkir sendum við starfsfólki Líknardeildar Landakots. Stefanía Vilborg Sigurjónsdóttir, Axel Eiríksson, Jón Sigurjónsson, Inga Sólnes, Sigrún Sigurjónsdóttir, Robert A. Spanó, Stefán Sigujónsson, Guðrún Dröfn Marinósdóttir og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát okkar ástkæra föður, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR SNÆBJÖRNS ÁRNASONAR. Ágústa Harting, Kristján Guðmundsson, Sigurður Guðmundsson og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem af hlýhug og vináttu minntust eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HALLDÓRU EINARSDÓTTUR. Einnig viljum við þakka þá alúð sem einkenndi umönnun hennar á ævikvöldi. Halldóra gladdi alla sem henni kynntust. Blessuð sé minning hennar. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Haraldur Ásgeirsson. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eigin- konu, móður, tengdamóður og ömmu, AUÐAR ELIMARSDÓTTUR, Birkiteig 26, Keflavík. Sérstakar þakkir eru sendar til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og Dagdvalar á Suðurgötu fyrir góða umönnun. Sigurður Þorkelsson, Bjarki Árnason, Berglind Sigurðardóttir, Hákon Árnason, María Dungal, Freyja Árnadóttir og barnabörn. ✝ Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför SIGRÚNAR INGU SIGURGEIRSDÓTTUR, Grænumörk 3, Selfossi. Sigurgeir Ingvarsson, Sigurgeir Reynisson, Sigrún Magnúsdóttir, Gunnar Valgeir Reynisson, Kristina Tyscenko, Pétur Kúld, Margrét Auður Óskarsdóttir, Guðmundur Birnir Sigurgeirsson, Ágústa Traustadóttir, Pálmar Sölvi Sigurgeirsson, Valgerður K. Sigurðardóttir. um þig var þegar ég var lítil stelpa, með sítt hár, en ég var svo hársár að það var hreinasta pína þegar mér var greitt. Þú þoldir aldrei að ég væri óánægð eða leið svo þú tókst að þér hárgreiðsluna. Ég man ég sat á litlum skemli fyrir framan þig á meðan þú „tókst flókatryppin úr englahárinu“, þú varst svo blíður, og aldrei var um neinn óhemjuskap frá minni hálfu að ræða þegar þú greiddir mér. Það eru margar minningar sem ég á frá matartímunum í Hófgerðinu, allt frá því að þú varst að plata í mig stöppuðu ýsunni, með „krummaleik“, til þess að þú stoppaðir umræður hinna fjölskyldumeðlimanna með orð- unum „hægan, hægan!“ þegar fréttir voru í útvarpinu. Eða við eitthvert til- efnið þegar þú sagðir góða sögu um skrýtið fólk frá gömlum tíma úr Húnavatnssýslunni og stundum fylgdi staka með, sem þú hafðir sam- ið. Að ógleymdum hápólitísku um- ræðunum, sem snerust oft um „hálf- vitana og andskotana“ sem arðrændu almúgann og sýndu smælingjum heimsins enga miskunn, hvað þá að skammta þeim salt í grautinn. Þrátt fyrir pólitískan æsinginn við matar- borðið, þá einkenndi þig ævinlega festa og ró sem varla fyrirfinnst í hraða nútímans. Það fór aldrei á milli mála að hjarta þitt var vinstra megin. Þú hafðir kynnst fátækt, atvinnuleysi og kreppu sem ungur maður. Þú lifðir tíma sem markaði spor í þína per- sónu. Þú ákvaðst að leggja þitt af mörkum til að jafna lífskjör fólks. Al- menn menntun, almannatryggingar, þau hugtök voru draumsýn margra á þínum æskuárum. Einmitt vegna af- skipta þinna og þinnar kynslóðar sem breytti og bylti íslensku samfélagi, áttir þú áhyggjulaust ævikvöld, þakk- látur fyrir að hugsjónastarfið fyrir bættum kjörum skilaði sér. En þrátt fyrir áhyggjulaust ævi- kvöld reyndist tilveran þér erfið í ár. Fyrst var það að þú þurftir að flytja úr Hófgerðinu vegna elli og heilsu- brests, því næst að fylgja til grafar syni þínum, pabba mínum. Fráfall hans tókst þú afar nærri þér. Eitt af því síðasta sem við gerðum saman var að haldast í hendur við jarðarför pabba. Eftir það fór lífsvilji þinn þverrandi. Það síðasta sem við svo gerðum saman var að biðja bæn, blessa og þakka hvort öðru samfylgd- ina og það geri ég aftur nú, hafðu þökk fyrir allt og allt, elsku afi minn. Þín Berglind. 1991 aðeins 64 ára. Hann var klett- urinn í lífi okkar. Ég mun alltaf minnast þess þeg- ar þú komst daginn eftir síðasta af- mælið mitt og við töluðum saman bara tvö um lífið og tilveruna í ró- legheitunum. Ég sá þig síðast heima hjá mömmu í Þorlákshöfn rúmri viku áður en þú kvaddir þennan heim. Við vorum að hjálpast að í eldhús- inu, slógum á létta strengi. Það síð- asta sem ég sagði við þig var „Komdu fljótt í heimsókn, ég er með mynd sem við höfum bæði gaman af að horfa á saman.“ Ég vil þakka öllum sem hafa sýnt okkur fjölskyldunni samúð við and- lát bróður míns, Jóhannesar Arnar. Guð styrki mömmu, börnin hans, Rebekku Maríu og Örn Ísak, og Soffíu. Hvíldu í friði, elsku bróðir minn, ég trúi því að við hittumst síðar. Kveðja, þín systir Jóhanna Björg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.