Morgunblaðið - 03.11.2007, Page 2

Morgunblaðið - 03.11.2007, Page 2
2 LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is „ÞAÐ er mikilvægt að bæta laun þeirra sem eru á lægstu laununum. Þá erum við að ræða um marg- þættar aðgerðir og það þarf ákveðna sátt til að það gangi að hækka þau laun umfram önnur í samfélaginu,“ sagði Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, formaður Landssambands íslenzkra verzlunarmanna, LÍV, um áhersl- urnar í kjarasamningunum í haust. 26. þing sambandsins fór fram í gær og gerði Ingibjörg ofangreindar áherslur að umtalsefni í ræðu sinni. „Það þarf að nýta skattkerfið til að lækka skattbyrði lágtekjufólks og efla velferðarkerfið, m.a. með því að hækka barna-, vaxta- og húsa- leigubætur og síðan erum við með áherslu á að draga úr tekjutengingu í velferðarkerfinu. Það eru geysi- legar tekjutengingar í kerfinu. Við höfum innan Alþýðusambands Ís- lands rætt við Samtök atvinnulífsins í rúmt ár um breytingar, m.a. í því skyni að ná fram heildstæðri lausn fyrir þá sem verða veikir í langan tíma og þá sem búa við örorku. Tekjutengingar eru mjög grimmar í kerfinu eins og það er. Þetta er fá- tækragildra og ógagnsætt kerfi, sem gerir öryrkjum erfitt fyrir með að komast út á vinnumarkaðinn. Hvað varðar launamálin, þá leggj- um við sérstaka áherslu á þá sem hafa setið eftir í launaþróuninni. Meðaltalshækkun var ágæt hjá okk- ur á síðasta samningstímabili en aft- ur á móti eru hjá okkur hópar sem ekkert hafa fengið nema umsamdar hækkanir og kaupmáttur þeirra hef- ur lækkað.“ Stjórnin komi á stöðugleika Ingibjörg sagði jafnframt að þess yrði krafist af ríkisstjórninni að hún axlaði ábyrgð á hagstjórninni og kæmi á stöðugleika. Hún vildi ekki tjá sig um hversu miklar launahækkanir yrði farið fram á eða með hvaða hætti yrði reynt að breyta skattkerfinu þeim í hag sem lægst hafa launin. Sest yrði yfir launamálin með viðsemjendum og leitað lausna og þær kröfur sem sneru að ríkisstjórn væru á sameig- inlegu borði ASÍ. LÍV hefur samið við SA um að reyna í þessum samningum nýja að- ferð, svokallaða hagsmunamiðaða samningaaðferð, sem talin er auka líkur á árangri í samningum. Ráðast gegn tekjutengingu LÍV með nýja að- ferðafræði í samn- ingaviðræðum Morgunblaðið/Sverrir Vel mætt Fjölmenni var á þingi LÍV í gær þar sem rætt var um komandi kjarasamninga. Verður meðal annars farið fram á hækkun lægstu launa. ÍRSK stjórnvöld greindu frá því í gær að þau hefðu lagt fram mála- miðlunartillögu um það hvernig Ís- land, Írland, Bretland og Danmörk gætu skipt með sér yfirráðum yfir Hatton Rockall-svæðinu. Ríkin gera öll tilkall til land- grunns á Hatton Rockall-svæðinu suður af Íslandi og vestan Bret- landseyja. Yfirráðum yfir land- grunni fylgir m.a. réttur til að nýta auðlindir á eða undir hafsbotninum, t.d. olíu. Ríkin fjögur hafa fundað um svæðið í Kaupmannahöfn sl. tvo daga. Írar segja að í tillögu sinni sé útlistað hvernig löndin geti skipt landgrunninu á milli sín. AP-fréttastofan greinir frá því að Dermot Ahern, utanríkisráðherra Írlands, sem tók ekki þátt í viðræð- unum, hafi sagt að sanngirnissjón- armið væru höfð að leiðarljósi í áætluninni sem nota mætti til að ná lokasamkomulagi milli ríkjanna. Hann segir að sendifulltrúar Fær- eyja hafi brugðist við tillögunni með jákvæðum hætti en að afstaða Ís- lands sé enn óbreytt. Ahern neitaði að tjá sig um mót- bárur Íslendinga. Hann lagði hins vegar á það áherslu að grundvöllur ætti að vera fyrir samningum þegar fundað verður í Dublin um miðjan janúar 2008. Viðræðurnar hófust 2001 að frum- kvæði Íslendinga en íslensk stjórn- völd vilja að ríkin komist að sam- komulagi um skiptingu svæðisins. Málamiðlun um Hatton Rockall Írar skýra frá tillögu á fundi fjögurra ríkja JÓHANNA Sig- urðardóttir fé- lagsmálaráð- herra sagði í ávarpi sínu á þingi LÍV í gær að „leita þyrfti allra leiða“ til að nokkrir lífeyr- issjóðir hættu við skerðingu ör- orkulífeyris. „Skerðingar lífeyrissjóðanna munu að óbreyttu hafa tvennt í för með sér, verri kjör þeirra öryrkja sem fyrir þeim verða og tilfærslu útgjalda frá lífeyrissjóðunum yfir á ríkissjóð,“ sagði Jóhanna í gær. „Niðurstaða mín eftir ítarlega skoðun á þessu máli er eindregið sú að ríkisvaldið og lífeyrissjóðirnir verði í sameiningu að leysa þessi mál, annars vegar tímabundið og hins vegar til langframa og koma í veg fyrir þá víxlverkun milli al- mannatrygginga og lífeyrissjóða sem bæði skerða lífeyrisgreiðslur og rýra kjarabætur öryrkja.“ Vill stöðva skerðingu Jóhanna Sigurðardóttir MIKLAR tafir urðu á umferð vegna umferðarslyss sem varð á gatna- mótum Miklubrautar og Grens- ásvegar rétt fyrir klukkan fjögur í gærdag. Áreksturinn varð harður og mildi þykir að ekki hafi orðið al- varleg slys á fjórum einstaklingum sem í bílunum voru. Tildrög slyssins voru þau að fólksbifreið og sendibifreið skullu saman á gatnamótunum með þeim afleiðingum að sendibifreiðin valt á hliðina. Mikill viðbúnaður var hjá lögreglu vegna árekstursins og þrír sjúkrabílar sendir á vettvang ásamt tækjabíl frá slökkviliði höfuðborg- arsvæðisins. Loka þurfti fyrir umferð vestur eftir Miklubraut á meðan slökkvilið hreinsaði upp olíu og bílarnir voru dregnir af vettvangi. Á tíma náði röð bíla nánast frá Grensásvegi að Elliðaám. Umferð komst í samt lag á fimmta tímanum. Tafir vegna áreksturs Hreinsað Tíma tók að ná olíu upp. Morgunblaðið/Golli ÍBÚA í fjölbýlishúsi í Grafarvogi fannst heldur hafa fjölgað í reið- hjólageymslu húsnæðisins að und- anförnu og bað því lögreglu að grennslast fyrir um málið. Þegar lögreglu bar að garði voru þar ung- ir athafnamenn önnum kafnir við að gera við hjól, breyta þeim og bæta, að því segir á lögregluvefn- um. Að sögn lögreglu var geymslan nánast full af reiðhjólum af öllum stærðum og gerðum og gáfu dreng- irnir þá skýringu að þeir hefðu fundið þau víðsvegar um hverfið. Gerði lögreglumaður þeim grein fyrir að óskilamunum ætti að koma til lögreglu sem síðan reynir að hafa upp á eigendum. Drengirnir könnuðust ekki við slíkar reglur, en hyggjast bæta ráð sitt. Sönkuðu að sér reiðhjólum BYGGINGAFULLTRÚINN í Reykjavík var kallaður á vettvang eftir aðgerðir lögreglu við félags- heimili bifhjólaklúbbsins Fáfnis við Hverfisgötu og segist hann ekki hafa haft minnstu hugmynd um hvað var í gangi í húsinu og að þar væri verið að fara á svig við reglur sem gilda um breytingar á húsum. Er þar einkum átt við uppsetningu víggirðingar. Þá hafi hvorki verið komið á framfæri ábendingum né kvörtunum um þessar fram- kvæmdir við embætti byggingafull- trúa, hvað þá að Fáfnir hafi sótt um einhver leyfi. Magnús Sædal byggingafulltrúi segir að þegar notkun húsa sé breytt sé skylt að sækja um bygg- ingaleyfi. „Ef rétt er, að þarna hafi verið félagsheimili einhvers klúbbs, þá þarf að sækja um leyfi, því huga þarf að brunavarnamálum, hrein- lætismálum og þess háttar,“ segir hann. Magnús segir að nú verði málefni Fáfnis tekin til athugunar hjá skipulags- og byggingasviði Reykjavíkurborgar enda sé nú orðið ljóst að framkvæmdirnar voru gerð- ar í leyfisleysi. „Þegar svona mál koma upp gefum við viðkomandi að- ila kost á að sækja um bygg- ingaleyfi fyrir því sem hann hefur gert – sé það þess eðlis að það rúm- ist innan skipulags.“ Magnús segir að sé hús talið hættulegt geti slökkvilið látið loka því. Sé húsnæðið talið heilsuspill- andi tekur umhverfis- og heilbrigð- issvið málið til meðferðar en skipu- lags- og byggingasvið sér um þá þætti sem varða húsnæðisbreyt- ingar. „Ef búið er að breyta húsi og við viljum að sótt sé um leyfi fyrir breytingum fá menn frest til þess. Ef þeir frestir eru ekki virtir getum við lagt á dagsektir.“ Magnús segir embætti sitt gera athugasemdir ef starfsmenn verði varir við að vafasamar fram- kvæmdir eigi sér stað, en oftast sé gripið inn í mál eftir ábendingum nágranna. Ekkert slíkt hafi verið um að ræða í þessu tilviki. Ef ein- hver hefði komið ábendingum til hans hefði málið verið skoðað. „Við hefðum þá beðið viðkomandi aðila um skýringar og leiðbeint honum við að sækja um leyfi til breytinga.“ Magnús segist ekki heldur kannast við að lögreglan hafi bent bygginga- fulltrúa á meintar óleyfilegar fram- kvæmdir. Segir hann óvanalegt að fólk setji upp eftirlitsmyndavélar við hús, eins og Fáfnir mun hafa gert. Það sé þó ekki bannað. En uppsetning girðinga sé háð samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóða og borgarinnar, þegar girt sé meðfram gangstétt. Gæti sektað Fáfni Byggingafulltrúi segist enga hugmynd hafa haft um fram- kvæmdir Fáfnis í miðbænum. Tekur málið til skoðunar. Morgunblaðið/Júlíus Girðingarvinna Byggingafulltrúi mun taka girðingarmál Fáfnismanna til nánari skoðunar, nú þegar hann hefur frétt af málinu. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur litlar áhyggjur af brunavarnamálum hússins. Í HNOTSKURN »Sérsveitarmenn frá lögregl-unni ásamt rannsóknarlög- reglumönnum réðust til inn- göngu í húsnæði Fáfnis við Hverfisgötu í fyrradag og var byggingafulltrúinn látinn vita í kjölfarið. »Þeir sem ákveða að setja uppgirðingar í kringum húsnæði sitt verða að fá sérstakt leyfi hjá byggingafulltrúa fyrir fram- kvæmdinni. SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæð- isins telur að lokinni vettvangs- könnun á húsnæði Fáfnis að með tilliti til brunavarna sé ekki al- mannahætta á ferð. Lögreglan bað Slökkviliðið að skoða húsið og varð niðurstaðan sú að nokkrum ábend- ingum var komið á framfæri. Þó vitað sé að gist hafi verið í félags- heimilinu telur Slökkviliðið samt ekki að það jafnist á við óleyfilegar íbúðir í atvinnuhúsnæði. Ekki al- mannahætta ♦♦♦ HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands eystra hefur fundið sex 17 og 18 ára gamla unglinga seka um inn- brot, þjófnaði og eignaspjöll, sem framin voru frá desember á síð- asta ári til febrúar á þessu ári. Sá sem þyngsta dóminn hlaut, 17 ára piltur, var dæmdur í 3 mánaða fangelsi en aðrir hlutu skilorðs- bundna refsingu, sektardóm eða refsingu var frestað. Fram kemur í dómnum, að piltarnir hafa flestir áður hlotið dóma fyrir þjófnað eða önnur brot. Sex unglingar dæmdir sekir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.