Morgunblaðið - 03.11.2007, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.11.2007, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR UMSÓKNARFRESTUR um lóðir á Reynisvatnsási rann út á miðviku- dag. Í boði voru 69 lóðir fyrir sam- tals 106 íbúðir og gat hver umsækj- andi sótt um að fá úthlutað einni lóð. Samtals bárust 650 umsóknir um þessar lóðir. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Framkvæmdir í Norðlingaholti. 650 umsóknir á Reynisvatnsási FLOKKSSTJÓRN Samfylkingar- innar kemur saman til fundar sunnudaginn 4. nóvember kl. 13 á Grand Hótel í Reykjavík. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Sam- fylkingarinnar, setur fundinn en að því loknu tekur við umræða um stefnuna í orkumálum og eignar- hald náttúruauðlinda. Össur Skarp- héðinsson iðnaðarráðherra flytur þar framsögu til kynningar á vænt- anlegu frumvarpi um orkustefnu en síðan taka við almennar umræð- ur. Sveitarstjórnarmál verða einnig til umræðu á fundinum auk þess sem flokksmönnum gefst kostur á að beina fyrirspurnum til ráðherra flokksins. Samfylkingin ræðir málin FIMMTÍU milljónum króna verður varið í hönnun 25 metra sundlaug- ar með líkamsræktaraðstöðu í Ísa- fjarðarbæ á næsta ári. Ákvörðun þess efnis var tekin á bæjarstjórn- arfundi á fimmtudag. Meirihluti bæjarstjórnar hefur ákveðið að setja fjármuni í þetta verkefni á fjárhagsáætlun ársins 2008. Haft er eftir Birnu Lárusdóttur, forseta bæjarstjórnar, að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvenær fram- kvæmdir hefjist. Birna segir að áætlanir bæjarins miði við að sund- laugin verði staðsett á Torfnesi. Laug á Torfnesi Í DAG, 3. nóvember, kl. 14 verður haldinn fræðslufundur um þung- lyndi í húsnæði Geðhjálpar, Tún- götu 7. Guðbjörg Sveinsdóttir geð- hjúkrunarfræðingur flytur erindi um sjúkdóminn og Þórey Guð- mundsdóttir segir frá reynslu sinni af baráttu við hann. Kaffiveitingar verða í boði. Fræðslufundur EMBÆTTI rík- issaksóknara hefur verið aug- lýst laust til um- sóknar á rafræn- um vef Lög- birtingablaðsins. Embættið veitist frá og með 1. jan- úar 2008 og skulu umsóknir berast til dóms- og kirkjumálráðu- neytisins eigi síðar en 19. nóvember næstkomandi. Bogi Nilsson ríkissaksónari sagði embættinu lausu fyrr á þessu ári. Embættið var auglýst og bárust fjórar umsóknir. Bogi féllst á þá beiðni ráðherra að sitja í embætt- inu til áramóta og nú hefur það ver- ið auglýst laust á nýjan leik. Embætti laust til umsóknar Bogi Nilsson Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is OKTÓBERMÁNUÐUR var sérlega skakviðrasamur, þótt tveir ágætir rólegheitakaflar hafi komið, annar um miðjan mánuð og hinn framan af síðustu viku. Þetta er mat Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings. Segir hann braut lægða hafa legið um landið meira og minna allan mánuðinn, en alls eru lægðirnar, sem farið hafa hjá með tilheyrandi úrkomuskilum, orðnar 17 talsins. Að sögn Trausta Jónssonar, veð- urfræðings á Veðurstofunni, reynd- ist nýliðinn októbermánuður frekar hlýr, en óvenju umhleypinga- og úr- komusamur. Í Reykjavík mældist næstmesta úrkoman síðan 1936. Í nýliðnum mánuði mældist úrkoma 174,8 mm en árið 1936 mældist hún 180,8 mm. Til samanburðar má nefna að meðalúrkoma í október er 86 mm. Sá hlýjasti í sex ár Nýliðinn mánuður virðist vera hlýjasti október á höfuðborgarsvæð- inu síðan 2001. Meðalhitinn var 5,8 stig, sem er 1,4 stigum fyrir ofan meðaltal. Á Akureyri var meðalhit- inn 5,1 stig, eða 2,1 stigi fyrir ofan meðaltal. Á Akureyri mældist úrkoma 100,8 mm, sem er tæpum 43 mm meira en í meðalári, en þó langt frá því að vera met. Október er sá hlýjasti á Norðausturlandi síðan 1985. Samkvæmt upplýsingum frá Trausta féllu úrkomumet á a.m.k. 12 veðurathugunarstöðum þar sem mælingar hafa verið stundaðar í 30 ár eða lengur. Meðal þeirra staða eru Stórhöfði í Vestmannaeyjum, en þar hefur aldrei mælst meiri úr- koma síðan mælingar hófust þar ár- ið 1921, eða 332,5 mm í október. Á Eyrabakka mældist úrkoman 342 mm og hefur hún aldrei mælst meiri, en mælingar þar hófust árið 1880 með hléi á árabilinu 1911-1923. Mest úrkoma á landinu mældist í Kvískerjum á Öræfum eða 824,9 mm. Að sögn Einars eru september- og októbermánuðir samanlagðir álíka rigningasamir og sömu mán- uðir árið 1959 sunnan- og vestan- lands. Bendir hann á að það ár hafi óstöðugleikinn haldið áfram fram í nóvember. Að mati Einars er allur gangur á því hvort nýliðinn mánuð- ur hefur forspárgildi um þann næsta og bendir hann á að stundum verði snöggar og nokkuð ófyrirséðar breytingar í meginhringrás loftsins á norðurhveli sem geti kollvarpað ríkjandi veðurlagi á einum degi. Hvað næstu mánuði varðar bend- ir Einar á að þriggja mánaða spá Evrópsku reiknimiðstöðvarinnar (ECMWF) fyrir tímabilið frá nóv- ember og fram í janúar gefi ákveðnar vísbendingar um áfram- haldandi lægðagang hér við land. „Þessar tíðarfarsspár taka til þiggja mánaða tímabilsins sem einnar heildar, en gefa enga vísbendingu um breytileikann á milli mánaða eða vikna, sem vissulega er mikill og einkennandi fyrir vetrarveðráttuna hér á okkar slóðum,“ segir Einar. Aðspurður segir Trausti ekkert lát á úrkomunni, „því það eru marg- ar lægðir sem standa í biðröð eftir að komast að. Það heldur allavega eitthvað áfram,“ segir Trausti og bendir á að þetta sé að verða óvenju- langur úrkomukafli, því hann hafi staðið nær sleitulaust síðan um 20. ágúst. „Hins vegar er ekkert sem gefur tilefni til að halda að þessi kafli sé á enda.“ Lægðirnar standa í biðröð Morgunblaðið/Eyþór Rigning Að mati veðurfræðinga er útlit fyrir að ekkert lát verði á úrkomunni næstu vikur og mánuði. ÚRKOMUMET féllu á a.m.k. 33 veðurathugunarstöðvum í nýliðnum mánuði, samkvæmt þeim gögnum sem Veð- urstofan hafði undir höndum 1. nóvember sl. Nokkur bið verður á endanlegu uppgjöri varðandi úrkomu á öllum stöðvum og má búast má við einhverjum leiðréttingum eft- ir nánari yfirferð. Samkvæmt upplýsingum Veðurstofu hafa flestar met- stöðvarnar verið starfræktar í innan við 20 ár, en stöðvar sem slógu met og hafa athug- að í meira en 30 ár eru eftir- farandi. Í svigum eru upplýs- ingar um upphaf athugana á hverjum stað:  Stórhöfði í Vestmannaeyjum (frá 1921). Meiri úrkoma mældist í Vest- mannaeyjakaupstað í október 1915, en samanburður milli stöðvanna er erfiður.  Eyrabakki (frá 1880). Úrkoma var ekki mæld á Eyrabakka frá 1911 til 1925, þannig að ekki var mælt í októ- ber 1915, þegar metúrkoma mældist í Vestmannaeyjakaupstað.  Elliðaárstöð (frá 1924).  Kirkjubæjarklaustur (frá 1926)  Hæll í Hreppum (1933)  Vatnsskarðshólar/Loftsalir (frá 1949)  Andakílsárvirkjun (frá 1950)  Forsæti (frá 1960)  Kvísker (frá 1962)  Skaftafell (frá 1964)  Hjarðarfell (frá 1971)  Snæbýli (frá 1976) Úrkomumet í október
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.