Morgunblaðið - 03.11.2007, Page 10
10 LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Drífðu þig í garmana kerling, þú verður víst að koma með.
Það er forvitnilegt að skoða af-komutilkynningu frá FL Gro-
up, sem félagið sendi frá sér í
gær, í tilefni af níu mánaða upp-
gjöri og kynningu á afkomu fé-
lagsins á þriðja ársfjórðungi.
Fyrsta setning tilkynning-arinnar er svohljóðandi: „Af-
koma var
neikvæð um
4 milljarða á
fyrstu níu
mánuðum
ársins og nei-
kvæð um
27,1 milljarð
króna á
þriðja ársfjórðungi, sem end-
urspeglar þá leið félagsins að
færa allar skráðar eignir á mark-
aðsvirði.“
Hvað þýðir þessi setning?
Þýðir hún ekki að félagið tapaði27,1 milljarði króna á þriðja
ársfjórðungi? Hefur ekki alltaf
legið fyrir, að félagið færði
skráðar eignir á markaðsvirði?
Einn af viðskiptafrömuðum fyrriára lét eftir sér hafa þá frægu
setningu „Tapið er samkvæmt
áætlun“?!
Er 27 milljarða tap FL Group
samkvæmt áætlun?
Önnur athyglisverð setning úrtilkynningu FL Group er
þessi: „Samhliða öflugum vexti fé-
lagsins var skipulag þess straum-
línulagað...“ Hvað þýðir þessi
setning?
Í tilkynningunni kemur fram aðrekstrarkostnaður FL Group
fyrstu níu mánuði þessa árs var
3,1 milljarður króna, en 1,7 millj-
arðar króna fyrstu níu mánuði
ársins 2006. Rekstrarkostnaður
hefur aukist um 81,9% á milli
tímabila og er þessi kostnaðar-
auki m.a. skýrður með miklum
vexti félagsins.
STAKSTEINAR
Tapið á áætlun?
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!
"#"
"#"
:
*$;< $$
!
"
#$
%&
'(
!
(
(
*!
$$; *!
%& " ' $#
$&# $(
"
"
)"
=2
=! =2
=! =2
%'
#!* "$+
!
,$-"*!.
#
>! -
62
)
"
%
;
*
+
+(
(
,-
*
.
) +
)
*
!/
%
/ **$$00
#!*$"$1( "
$+
!
3'45 ?4
?*=5@ AB
*C./B=5@ AB
,5D0C ).B 2 3
2
2
2
2
2
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
VEÐUR
SIGMUND
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Sigurður Þór Guðjónsson | 2. nóvember
Samsærismennirnir
eftir Schubert
... Þegar Tónlistar-
félagið í Stýríu ákvað
að gera Schubert að
heiðursfélaga árið 1823
var hann önnum kafinn
við að semja enn einn
söngleikinn, Die Verschworenen
(Samsærismennirnir), D 787, sem
hann hafði byrjað að semja í mars og
lauk við í næsta mánuði. Textinn er
eftir Ignaz Castelli og hafði verið
prentaður í febrúar 1823 í tímaritinu
„Dramatisches Straußchens“ ...
Meira: nimbus.blog.is
SkúliS | 2. nóvember
Stormur í bjórglasi?...
Eru íslensk stjórnvöld í rétti að
meina fólki aðgangi að landinu vegna
meintrar aðildar að samtökum þar
sem nokkrir aðilar hafa fengið dóm?
Sagan segir að Hells Angels (hels
eingles – eins og stóð aftan á galla-
vestinu hans Hrings í gamla daga)
séu glæpasamtök af verstu sort. Er
þar með sagt að allir sem eiga aðild
að þessum samtökum séu glæpa-
menn sem eru hættulegir þjóðinni?
Hver er munurinn á meintum
glæpamönnum sem fara hugsanlega
um ruplandi og myrðandi og aðilum
sem framleiða vopn og önnur...
Meira: ss.blog.is
Marinó G. Njálsson | 2. nóvember
Af hverju fær þetta
ekki umfjöllun?
Ein og hálf milljón
manna hefur þurft að
flýja heimilin sín. Talið
er að 300.000 manns
hírist á húsþökum og
annars staðar sem fólk
hefur getað flúið undan vatnavöxt-
um. Og hvaða umfjöllun fær þetta í
íslenskum fjölmiðlum. 10–15 línur af
texta. Fyrir ári urðu minni flóð í
borg við aðra strönd Mexikóflóa.
Þaðan voru beinar útsendingar í
fréttatímum, endalausar...
Meira: marinogn.blog.is
Stefán Einar Stefánsson | 2. nóvember
Mistúlkun á skrifum
Páls Skúlasonar
Í inngangi að bók sinni
Siðfræði ræðir Páll
Skúlason, fyrrverandi
háskólarektor, m.a. um
þá hugmynd sem
tröllríður hugs-
unarhætti samtímans
að manni beri að virða skoðanir ann-
arra. Líkt og víðar í skrifum sínum
nær Páll að vekja lesendur sína til
umhugsunar er hann andmælir
þessari viðteknu hugmynd og heldur
því raunar fram að það sé „ámæl-
isvert að virða skoðanir annarra, ef
maður veit að þær eru ekki rétt-
ar.“[1] Bendir hann í því sambandi
m.a. á það að skoðanir fólks (þær er
fólk lætur í ljós) eru ekki einkamál,
það sé í raun mjög mikilvægt að
gagnrýna skoðanir annarra til þess
einmitt að sýna viðkomandi virðingu
og tillitssemi.
Ákveðinn hópur manna hérlendis
hefur notast við skrif Páls og einatt
vísað í þau þegar fólk kveinkar sér
undan árásum þessa hóps á skoðanir
þess og lífsviðhorf. Telur þessi hóp-
ur sig hafa fundið traustan grunn að
standa á í viðleitni sinni að útrýma
hindurvitnum og trúarbrögðum.
Telja þeir sem til þessa hóps heyra
að í Páli sé að finna ákveðna stað-
festingu á réttmæti gjörða þeirra,
enda nýtur Páll viðurkenningar fyrir
visku sína og hugmyndir. Hið vand-
ræðalega er að þegar nánar er litið á
kenningu Páls kemur hún að engu
gagni þegar réttlæta á skrif þessa
hóps. Ekki er það vegna þess að
kenningin sé ekki góð í sjálfu sér og
vandlega fram sett, heldur einvörð-
ungu vegna þess að hún fjallar í
engu um, eða vísar til þess fram-
ferðis sem þessi hópur viðhefur í
skrifum sínum á alnetinu. Af hverju
held ég þessu fram?
Í fyrsta lagi brestur þennan hóp í
meginatriðum getuna til þess að
bera virðingu fyrir þeim ein-
staklingum sem hann gagnrýnir en
Páll setur kenningu sína einmitt
fram í þeim tilgangi að gera okkur
kleift að bera virðingu fyrir öðru
fólki þó öðru máli gegni um skoðanir
þess. Dæmi um þennan brest má
finna m.a. þegar prestar landsins
eru rakalaust kallaðir „kónar“[2]
þegar biskup er sakaður um að ljúga
vísvitandi [3], biskup er …
Meira: stefani.blog.is
BLOG.IS
SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ gerir
ekki athugasemdir við samstarfs-
samning Ríkisútvarpsins og Árvak-
urs við Capacent Gallup um gerð og
birtingu skoðanakannana á fylgi
stjórnmálaflokkanna í aðdraganda
alþingiskosninga sl. vor. Að mati
eftirlitsins fellur gerð umræddra
fylgiskannana innan hins rúma al-
mannaþjónustuhlutverks RÚV og
þátttaka Árvakurs raski ekki sam-
keppni með þeim hætti að tilefni sé
til aðgerða.
Samkeppniseftirlitinu barst er-
indi 365 hf. hinn 20. apríl sl. þar sem
kvartað var yfir samningi RÚV og
Árvakurs við Capacent Gallup. Taldi
365 að samningurinn stæðist ekki
ákvæði samkeppnislaga né ákvæði
laga um Ríkisútvarpið ofh. Var gerð
sú krafa að Samkeppniseftirlitið
gripi til aðgerða, enda væri samn-
ingurinn til þess fallinn að skekkja
samkeppni á dagblaðamarkaði, á
þann hátt sem ekki yrði við unað. Að
mati 365 samræmdist það ekki sam-
keppnislögum að RÚV notaði rík-
isstyrk sinn í samstarfi við Árvakur
og niðurgreiddi þar með kaup fyr-
irtækisins á nefndum könnunum.
Að mati RÚV er umræddur
samningur, að teknu tilliti til um-
fangs og verðmætis samningsins
annars vegar og stærðar 365 á dag-
blaðamarkaði hins vegar, ekki til
þess fallinn að hafa skaðleg áhrif á
dagblaðamarkað. Féllst Samkeppn-
iseftirlitið á rök RÚV.
Gerir ekki athuga-
semdir við samstarf
Samkeppniseftirlitið segir samning RÚV og
Árvakurs við Capacent ekki raska samkeppni
ÞRÍR voru fluttir á sjúkrahús eftir
harðan árekstur á Selfossi um klukk-
an ellefu í gærmorgun. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu var enginn
þó talinn alvarlega slasaður.
Slysið varð með þeim hætti að
vörubíl var ekið aftan á kyrrstæðan
fólksbíl á Suðurlandsvegi þegar bíl-
stjóri fólksbílsins beið eftir því að
geta beygt til vinstri yfir á bílaplan.
Við áreksturinn kastaðist fólksbíll-
inn í veg fyrir sendiferðabíl sem kom
úr gagnstæðri átt.
Einn var í hverjum bíl og var öku-
maður fólksbílsins fluttur á slysa-
deild Landspítala. Bílstjórar hinna
bílanna voru fluttir á sjúkrahús á
Selfossi.
Þrír fluttir á sjúkrahús