Morgunblaðið - 03.11.2007, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
THAMILSELVAN var ekki mikill á velli eða ógn-
andi í háttum. Þetta var smávaxinn maður, jafnvel
fíngerður, og hann þótti brosmildur. Hann talaði á
lágstemmdum nótum, missti ekki stjórn á sér og
líktist því sumpartinn ekki leiðtoga stjórnmála-
arms skæruliðasveita, sem hann þó var. Að vísu
gekk Thamilselvan við staf og þannig þurfti ekki
að fara framhjá neinum að hann átti sér fortíð á
vígvelli borgarastríðsins sem geisað hefur á Srí
Lanka í rúma þrjá áratugi.
Út á við var Thamilselvan helsta andlit tamíl-
tígra, skæruliða sem berjast fyrir sjálfstæðu ríki
tamíla á norðaustur og norðurhluta eyjunnar, og
andlát hans í gær er mikið reiðarslag fyrir tígrana,
sem heldur hafa átt undir högg að sækja að und-
anförnu og m.a. misst landsvæði í norðausturhluta
Srí Lanka til stjórnvalda í Colombo. Thamilselvan
féll þegar stjórnarherinn á Srí Lanka gerði loft-
árásir á búðir tamíl-tígranna í Kilinochchi í gær-
morgun en auk hans týndu fimm aðrir lífi.
Hitti Bjarna Vestmann fyrir mánuði
Aðalleiðtogi tígranna, hinn grimmúðlegi Vellu-
pilai Prabhakaran, hefur verið í felum um árabil
og því var það hlutskipti Thamilselvans að fara
fyrir tígrunum á opinberum vettvangi, í reynd var
hann eins konar forsætisráðherra tamílsku þjóð-
arinnar. Hann fór m.a. fyrir sendinefnd tamíla í
Genf í fyrra þegar gerð var tilraun til að ræða frið
en þær viðræður skiluðu engum árangri og átök
hafa raunar farið harðnandi allt undanfarið ár.
Það var einnig hlutverk Thamiselvans að taka á
móti erlendum sendifulltrúum og sem dæmi má
nefna þá sótti Anna Jóhannsdóttir, forstöðumaður
Íslensku friðargæslunnar, hann heim í Kilinochchi
fyrir tæpu ári og þeir Íslendingar, sem starfað
hafa fyrir Norrænu eftirlitssveitirnar (SLMM), en
þær fylgjast með framkvæmd vopnahléssamn-
ingsins frá 2002, á undanförnum árum fengu
margir hverjir einnig tækifæri til að hitta hann.
Nú síðast fór Bjarni Vestmann, sendifulltrúi í
utanríkisráðuneytinu, á fund Thamilselvans, eins
og frægt er orðið, en utanríkisráðherra, Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, sá ástæðu til að biðja starfs-
bróður sinn á Srí Lanka afsökunar á þeim fundi,
sem ekki hafði upprunalega verið á dagskrá í
heimsókn Bjarna til Srí Lanka.
Jón Óskar Sólnes, sem um skeið var starfandi
yfirmaður SLMM, hitti Thamilselvan nokkrum
sinnum og sagði í gær að hann hefði komið sér fyr-
ir sjónir sem mjög einbeittur og beinskeyttur
maður. Hann hefði verið mikill foringi meðal tam-
íla og þó að hann væri annálaður fyrir kurteisi sína
hefði aldrei leynt sér að undir niðri bjó maður sem
tilbúinn var til að gera hvað eina til að ná fram
málstað tamíla. „Það er erfitt að meta hvaða áhrif
dauði hans mun hafa en fyrst um sinn er þetta
gríðarlegt reiðarslag fyrir tamíla og tamíl-tígrana,
enda hefur hann verið þeirra aðalandlit út á við.
Þetta er gríðarlegt áfall fyrir þá og þeir munu
þurfa einhvern tíma, geri ég ráð fyrir, til að finna
einhvern til að taka við hans starfi. Það er ekki
gott að segja hver það gæti orðið, það eru ekki
margir kandídatar sem ég hef hitt sem geta fyllt
skóna hans svo auðveldlega.“
SLMM sendi frá sér yfirlýsingu í gær en þar er
lýst áhyggjum vegna þess hversu átök hafa færst í
aukana að undanförnu. Óttast SLMM að dauði
Thamilselvans muni magna það bál enn frekar.
Áfall fyrir tamíla á Srí Lanka
AP
Thamilselvan, leiðtogi stjórnmálaarms tamíl-tígranna svokölluðu, beið bana í
loftárásum stjórnarhersins Norrænir eftirlitsmenn óttast að átök harðni enn
Í HNOTSKURN
»Þriggja daga þjóðarsorg hefur verið lýstyfir meðal tamíla vegna dauða S.P. Tha-
milselvans.
»Thamilselvan gekk til liðs við tígrana 1984.Hann særðist 1993 í árás á búðir stjórnar-
hersins og lifði af sprengjutilræði 2002 sem ör-
yggissveitir stjórnvalda í Colombo voru sagð-
ar hafa lagt á ráðin um.
Leiðtogi S.P. Thamilselvan var fertugur.
Mexíkóborg. AFP. | Björgunarmenn
reyndu í gær að bjarga hundruðum
þúsunda manna sem voru í hættu
vegna verstu flóða í sögu sam-
bandsríkisins Tabasco í Mexíkó.
Yfirvöld sögðu að um 80% ríkis-
ins væru undir vatni og spáð var
meiri rigningu á næstu dögum.
„Flóðin í New Orleans voru lítil í
samanburði við þetta,“ sagði And-
res Granier, ríkisstjóri Tabasco, og
skírskotaði til flóða sem fylgdu
fellibylnum Katrínu árið 2005.
Yfir 850 bæir voru umflotnir
vatni. Íbúar Tabasco eru rúmar
tvær milljónir og Granier sagði að
rúmur helmingur þeirra hefði orðið
fyrir skaða af völdum flóðanna.
„Um það bil 300.000 manns hafa
orðið innlyksa á heimilum sínum,“
sagði ríkisstjórinn. Hann bætti við
að öll uppskera bænda í sambands-
ríkinu hefði eyðilagst.
Forseti Mexíkó, Felipe Calderon,
flutti sjónvarpsávarp og hvatti
landsmenn til að gefa fórnarlömb-
um flóðanna matvæli.
Hundruð þús-
unda í hættu
vegna flóða
AP
Allt á floti Fólk flýr af flóðasvæði í
Tabasco í Mexíkó.
ANDERS Fogh
Rasmussen, for-
sætisráðherra
Dana, nýtur
meiri vinsælda en
Helle Thorning
Schmidt, leiðtogi
jafnaðarmanna,
en kosningar fara
fram í Danmörku
13. nóvember nk.
Skv. könnun Bör-
sen vilja 53% landsmanna að Rasm-
ussen verði áfram forsætisráðherra
en 36% að Thorning-Schmidt taki
við. Fylgi flokks Rasmussens, Ven-
stre, hefur þó minnkað, er nú 25% en
flokkurinn fékk 29% í kosningunum
sem fram fóru í febrúar 2005.
Rasmussen
áfram?
Anders Fogh
Rasmussen
ALLIR þekkja hrollinn sem færist yfir þegar tannlæknaborinn nálgast
munnholið og vísast þarf minna til hjá mörgum svo þeir svitni í lófunum.
Bandaríska konan Brandy Fanning mun líklega hugsa sig þrisvar um áður
en hún hleypir slíkum búnaði nærri sér aftur, eftir að hafa upplifað verstu
martröð allra þeirra sem hætta sér til tannlæknis. Það vildi þannig til einn
góðan veðurdag að hún lagðist inn til tannviðgerðar hjá tannlækninum
George Trusty, sem verður að teljast söngelskur með afbrigðum. Trusty
raulaði þannig fyrir munni sér línurnar í laginu „Car Wash“ samtímis sem
hann veifaði bornum framan í Fanning, með þeim afleiðingum að hún
missti næstum sjónina á öðru auganu. Fer hún fram á hátt í 40 milljónir í
skaðabætur.
Seinheppinn tannlæknir
ÞÆR geta hlaupið stanslaust á hrað-
anum 20 metrar á mínútu í allt að sex
klukkustundir og borða 60 prósent
meira en venjulegar mýs, án þess að
fitna. Þær lifa lengur, hafa meiri kyn-
hvöt, geta átt afkvæmi mun síðar á
ævinni, eru árásargjarnari og hafa 70
prósent meiri vöðvamassa en venju-
legar mýs. Fyrirbærinu er lýst sem
„ofurmúsum“, en um er að ræða
erfðabreyttar mýs sem kunna m.a. að
geta veitt mikilvægar upplýsingar
um hvernig líkaminn bregst við álagi á bein með aukinni vöðvamyndun.
„Efnaskiptum þeirra svipar til þess þegar Lance Armstrong hjólar um
Pýreneafjöllin; þær sækja orku í fitusýrur og framleiða mjög lítið af mjólkur-
sýru,“ sagði Richard Hanson, prófessor í lífefnafræði við Case Western Re-
serve-háskóla í Cleveland í Ohio, um tilraunadýrin 500, sem hann bar saman
við einn mesta hjólreiðakappa fyrr og síðar. Hraðinn sem mýsnar hlaupa á
jafngildir 1,2 km á klukkustund, sem að sjálfsögðu telst mjög mikið.
Mýs sem hlaupa endalaust
VERKTAKI við stærsta kjarnorku-
ver Bandaríkjanna var gripinn með
rörasprengju við reglubundna leit á
starfsfólki í gær. Palo Verde-kjarn-
orkuverinu í Wintersburg í Ari-
zona, hefur verið lokað á meðan
rannsóknin fer fram og maðurinn
verið hnepptur í gæsluvarðhald.
Með sprengju í
kjarnorkuveri
HLÝNUN jarðar gæti orðið ein-
hver mesta ógn við Bandaríkin í
sögunni, með því m.a. að auka lík-
urnar á miklum straumi innflytj-
enda og stríðum um vatn, að því er
fram kemur í nýrri skýrslu tveggja
hugveitna vestanhafs, CSIS og
CNAS.
Hlýnun mikil ógn
Hl‡jar og fallegar barnasokkabuxur í fjölbreyttum litum
ásamt leggings og sokkum. Fæst í flestum apótekum.