Morgunblaðið - 03.11.2007, Síða 19
kl.
08
:00
ÁFÖSTUDAGINN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2007 19
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
MIKILL kurr er í starfsmönnum
bandarísku utanríkisþjónustunnar
vegna þeirrar ákvörðunar Banda-
ríkjastjórnar að skylda stjórnarer-
indreka til að starfa í Írak. Starfs-
menn utanríkisþjónustunnar eru
mjög tregir til að vinna í Bagdad
vegna hættunnar á sprengjuárás-
um þótt verið sé að reisa þar nýj-
ar, sprengjuheldar sendiráðsbygg-
ingar sem lýst hefur verið sem
risastóru, víggirtu byrgi. Þær
kosta 600 milljónir dollara, sem
svarar 36 milljörðum króna.
Ryan Crocker, sendiherra
Bandaríkjanna í Bagdad, varði í
gær ákvörðun stjórnarinnar og
sagði að starfsmönnum utanrík-
isþjónustunnar bæri skylda til að
setja þjóðarhagsmuni ofar eigin
öryggi. Stjórnarerindrekar sem
létu eigið öryggi sitja fyrir en ekki
öryggi bandarísku þjóðarinnar,
væru „ekki í réttu starfi“.
„Núna þegar við reynum að
manna sendiráðið í Írak er gott að
allir starfsfélagar okkar muni að
við sórum þess eið að þjóna þjóð
okkar um allan heim þegar við
gengum í utanríkisþjónustuna, al-
veg eins og hermenn sverja eið,“
hafði fréttastofan AP eftir Crocker
á blaðamannafundi í Dubai.
Mikill urgur hefur verið í starfs-
mönnum utanríkisþjónustunnar frá
því að tilkynnt var fyrir rúmri viku
að þeir ættu á hættu að verða
leystir frá störfum ef þeir neita að
starfa í Írak.
Nokkur hundruð starfsmanna
utanríkisþjónustunnar ræddu mál-
ið á fundi í Washington í fyrradag
og margir þeirra klöppuðu ákaft
þegar einn þeirra lýsti nauðung-
arvinnu í Írak sem „hugsanlegum
dauðadómi“.
Condoleezza Rice utanrík-
isráðherra hyggst senda öllum
bandarískum sendiráðum bréf þar
sem hún útskýrir ákvörðunina, að
sögn talsmanns utanríkisráðuneyt-
isins. Hann sagði að Rice tæki þar
fram að stjórnarerindrekum bæri
skylda til að halda þann eið að
framfylgja stefnu Bandaríkja-
stjórnar og vera tilbúnir til að
starfa hvar sem væri í heiminum.
Ráðuneytið hefur haft samband
við 200-300 stjórnarerindreka sem
álitnir eru koma helst til greina í
48 stöður sem losna í Írak á næsta
ári. Þeir þurfa að svara boði um
ráðningu innan tíu daga og ef þeir
sem þiggja það verða ekki nógu
margir verður nokkrum þeirra
skipað að starfa í Írak. Aðeins þeir
sem hafa gilda afsökun, t.a.m.
vegna veikinda, verða und-
anþegnir refsingu.
Talsmaður utanríkisráðuneyt-
isins sagði að frá því að skýrt var
frá ákvörðuninni hefðu fimmtán
stjórnarerindrekar boðist til að
starfa í Írak. Er það aðeins um
0,1% af öllum starfsmönnum utan-
ríkisþjónustunnar en þeir eru um
11.500.
Er þetta í fyrsta skipti frá Víet-
namstríðinu sem svo margir
stjórnarerindrekar hafa verið
kvaddir til starfa í bandarísku
sendiráði.
Yfir 600 sprengjuheldar íbúðir
Crocker sendiherra viðurkenndi
að Írak væri „hættulegur staður“
og stjórnarerindrekar sem störf-
uðu þar legðu líf sitt í hættu.
Verið er að reisa nýtt bandarískt
sendiráð í Bagdad og verður það
stærsta og dýrasta sendiráð heims.
Alls verður reistar um 20 bygg-
ingar meðfram Tígris-fljóti á af-
girtu svæði sem er á stærð við
Páfagarð. Þar verða meðal annars
619 sprengjuheldar íbúðir og skrif-
stofurými fyrir hundruð starfs-
manna. Byggingarkostnaðurinn er
áætlaður um 36 milljarðar króna.
Gert er ráð fyrir því að rekstr-
arkostnaður sendiráðsins nemi 1,2
milljörðum dollara á ári, hvorki
meira né minna en 72 milljörðum
króna, að því er fram kemur í
grein í tímaritinu Vanity Fair.
Sendiráðið verður að miklu leyti
sjálfu sér nógt, til að mynda með
eigin rafala, vatnsból, vatnshreins-
unarstöð, skolphreinsistöð,
slökkvistöð, nettengingu við fjar-
skiptatungl, öruggt heimanet, sím-
stöð, farsímakerfi, pósthús, bens-
ínstöð, vörugeymslu, bílaverkstæði
og fleiri verkstæði.
Innan öryggismúra sendiráðsins
verða einnig tennisvellir, sundlaug,
sprengjuheld afþreyingarmiðstöð
með líkamsræktarsal, stór verslun,
félagsmiðstöð, snyrtistofa, kvik-
myndasalur og bar, auk veit-
ingastaða. Þar geta menn valið á
milli skyndibita, heilsufæðis og
krása sem fluttar verða þangað í
brynvörðum bílum frá grannríkinu
Kúveit.
AP
Víggirt sendiráð Hluti af afgirtum sendiráðsbyggingum Bandaríkjanna
við Tígris-fljót í Bagdad. Framkvæmdunum á að ljúka síðar á árinu.
Verða skyldaðir
til að starfa í Írak
Ryan C. Crocker sendiherra.
Fáir vilja fara í dýrasta sendiráð heims
» Gert er ráð fyrir því
að rekstrarkostnaður
sendiráðsins nemi 1,2
milljörðum dollara á ári,
hvorki meira né minna
en 72 milljörðum króna.
AP