Morgunblaðið - 03.11.2007, Side 20
20 LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
ftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
SÁLUMESSUTÓNLEIKAR
verða í Hallgrímskirkju á morgun á
vegum Listvinafélags Hallgríms-
kirkju.
Þar mun Mótettukór Hallgríms-
kirkju flytja tvær sálumessur.
„Þessir tónleikar eru orðnir ár-
vissir hjá Listvinafélaginu. Við byrj-
uðum á þeim fyrir fjórum árum og
þeir hafa fallið í góðan jarðveg, fólk
hefur verið svo þakklátt fyrir að fá
að upplifa svona fallega tónlist
tengda þessum degi,“ segir Inga
Rós Ingólfsdóttir, framkvæmda-
stjóri Listvinafélagsins. Á morgun
er allra heilaga messa, dagur þegar
látinna er minnst og er það siður
víða um heim að flytja sálumessur í
kirkjum á þeim degi. Að því tilefni
verður kirkjan fagurlega skreytt
kertum og einstök stemning ríkir.
Án undirleiks
Mótettukórinn flytur Requiem
Fauré sem er líklega frægasta sálu-
messan á eftir sálumessu Mozarts.
„Requiem Fauré er ein vinsælasta
sálumessa tónbókmenntanna og hef-
ur oft verið flutt af Mótettukórnum.
Verkið verður flutt í orgelútsetningu
í þetta skiptið, með hörpu og tveimur
einsöngvurum, Benedikt Ingólfssyni
bassa og Mörtu Guðrúnu Halldórs-
dóttur sópran. Björn Steinar Sól-
bergsson leikur á klais-orgelið og El-
ísabet Waage á hörpu.“
Hin sálumessan er eftir Ilde-
brando Pizzetti og hefur hún aldrei
verið flutt hér á landi áður. Hún er
samin fyrir stóran kór án undirleiks í
rómantískum, ítölskum stíl.
„Þetta er verk sem Hörð Áskels-
son, stjórnanda Mótettukórsins, hef-
ur lengi langað til að flytja en ekki
fengið tækifæri til fyrr en nú. Þetta
er mjög fjölradda verk og meðal ann-
ars fáum við karlakór úr Schola Can-
torum til að flytja einn kafla verksins
með Mótettukórnum,“ segir Inga
Rós og bætir við að Requiem Pizzetti
myndi afskaplega fallegan hljóm-
heim.
Með þessum tónleikum lýkur 25.
starfsári Listavinafélags Hallgríms-
kirkju og gengur nýtt starfsár í garð
„Stóru ári með Kirkjulistahátíð og
25 ára afmæli er nú að ljúka og við
tekur annað viðburðaríkt ár sem
kynnt verður betur seinna,“ segir
Inga Rós um dagskrá Listvinafélags-
ins á komandi starfsári.
Sálumessutónleikarnir hefjast kl.
17 í Hallgrímskirkju á morgun, það
kostar 2.000 kr. inn en 1.500 kr. fyrir
eldri borgara, öryrkja og námsmenn.
1. desember næstkomandi, um leið
og nýtt kirkjuár hefst.
Nýtt starfsár að hefjast
Margt er framundan hjá List-
vinafélaginu á nýju starfsári, m.a.
opnar Arngunnur Ýr Gylfadóttir
málverkasýningu í anddyri kirkj-
unnar í desember, svo verður mikil
jólatónlistarhátíð í sama mánuði.
Mótettukór Hallgrímskirkju syngur
Tvær sálumessur á
Allraheilagramessu
Sálumessa Mótettukór Hallgrímskirkju flytur tvær sálumessur á tónleikunum á allra heilagra messu á morgun.
J. K. ROWLING, höfundur bókanna
um Harry Potter og fyrirtækið
Warner Brothers, sem framleiða
myndirnar um galdrastrákinn, hafa
stefnd bókaútgefanda í Michigan
fyrir áform hans um að gefa út í
bókarformi efni af aðdáendavef
Harry Potters.
Meðal þess sem sem útgefandinn
hugðist setja í bókina voru listar yf-
ir galdra og töfraverur.
Ristjóri vefsins er miðaldra bóka-
safnsfræðingur á skólabókasafni,
Steve Vander Ark, en vefurinn
heitir Harry Potter Lexicon, slóðin
hp-lexicon.org. Rowling verð-
launaði vefinn árið 2004 sem besta
Harry Potter-vef þess árs.
Skáldkonan segir að útgáfa bók-
arinnar hafi truflað hennar eigin
áform um að gefa út Harry Potter
alfræðibók síðar meir.
Rowling og
Warner stefna
útgefanda
Ætlar sjálf að gefa út
Alfræði Harry Potters
Lögsækir J.K. Rowling.
ROKKSVEITIN klassíska Led Zep-
pelin hefur frestað tónleikum sín-
um sem vera áttu í Lundúnum 26.
nóvember, vegna
þess að gítarleik-
arinn Jimmy
Page fing-
urbraut sig. Þeir
verða þess í stað
10. desember.
Slys gítargoðs-
ins varð um síð-
ustu helgi, en
fregnir herma
ekki hvernig það bar til. Jimmy
Page, sem nú er á 64. aldursári
verður að hvíla fingurinn í þrjár
vikur. Aðdáendur verða því að
halda þolinmæðinni.
Jimmy Page
Zeppelin
frestað
♦♦♦
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
HANS Ulrich Obrist, sýningarstjóri hjá Ser-
pentine Gallery í London, og Ólafur Elíasson
myndlistarmaður munu taka þátt í viðamiklu
sýningarverkefni á Listahátíð í vor, að sögn
Þórunnar Sigurðardóttur, listræns stjórnanda
hátíðarinnar. Þema sýningarinnar verður listir
og vísindi, en að undanförnu hafa þeir Obrist
og Ólafur unnið saman að verkefni í Serpent-
ine-galleríinu undir sömu formerkjum. Vett-
vangur sýningarinnar verður Listasafn
Reykjavíkur, og segir Hafþór Yngvason safn-
stjóri að Hafnarhúsið verði allt lagt undir sýn-
inguna sem verður mjög stór.
„Þetta verður viðamikil sýning og fyllir allt
Hafnarhúsið, en nær ekki út fyrir húsið. At-
hyglinni er beint að myndlistinni á Listahátíð í
vor, en önnur söfn verða með mjög fínar sýn-
ingar líka sem verða unnar á þeirra vegum.
Þess vegna verður þetta ekki alveg eins og það
var á Listahátíð 2005, þegar sýningar tengdust
innbyrðis,“ segir Hafþór.
Sýningin í Serpentine var forleikur
„Við erum búin að vera að vinna að þessu
verkefni með Hans Ulrich og Ólafi. Þetta er
þeirra sameiginlega hugmynd. Þeir hafa báðir
hvor í sínu lagi verið með vísindatilraunir.
Hans Ulrich var með stóra sýningu í Antwer-
pen fyrir nokkrum árum sem hann kallaði La-
boratorium, og Ólafur hefur verið að vinna á
mörkum vísinda og lista.“
Í skálanum sem Ólafur hannaði við Serpent-
ine í London hefur verið heilmikil dagskrá frá
því í sumar með Garðkvöldum – Park Nights,
og sólarhringsmaraþonum þar sem vís-
indamenn og listamenn komu og töluðu um til-
raunir sínar.
„Það verkefni var forleikur að því sem verð-
ur á Listahátíð og listamenn sem tóku þátt í
fyrri hlutanum í London, og nýir, vinna inn-
setningar sem verða í öllum sölum og öllum
göngum, kaffistofunni – það verður allt und-
irlagt. Í þessum hópi eru margir mjög vel
þekktir listamenn sem hafa ekki sýnt hér áð-
ur.“
Hafþór segir að á sýningunni verði maraþon
með svipuðu sniði og var í London, og þar
verði íslenskir og erlendir vísinda- og lista-
menn þátttakendur.
„Það er ýmislegt að gerast í vísindum hér, í
erfðarannsóknum, orkugeiranum og víðar,
margt mjög spennandi.“
Hans Ulrich Obrist og Ólafur Elíasson taka þátt í verkefni á Listahátíð í vor
Vísindin í listinni
Listahátíð Hans Ulrich Obrist og Ólafur Elíasson hafa unnið að rannsóknum á mörkum og tengslum
vísinda og lista. Sýning sem er afrakstur af vinnu þeirra í Serpentine verður í Listasafni Reykjavíkur
í Hafnarhúsi á Listahátíð í vor.
Í HNOTSKURN
» Hans Ulrich Obrist er svissneskur sýning-arstjóri og listgagnrýnandi.
» Hann stofnaði Robert Walser-safnið árið1992, en það hefur þá sérstöðu að hafa að
markmiði að vera lítið og yfirlætislaust far-
andsafn.
» Hans Ulrich starfaði lengi sem sýning-arstjóri samtímalistar við Ville de Paris
safnið.
» Í dag er hann annar tveggja sýning-arstjóra Serpentine-gallerísins.
ÁGÚST Ólafsson, baritón, og
Gerrit Schuil, píanóleikari,
halda ljóðatónleika í dag kl. 17 í
Kirkjuhvoli, safnaðarheimili
Vídalínskirkju í Garðabæ.
Þetta eru fjórðu tónleikarnir í
röðinni „Ljóðasöngur á
hausti“, þar sem fimm ein-
söngvarar koma fram ásamt
Gerrit Schuil. „Einn á ferð“ er
yfirskrift tónleikanna í þetta
sinn. Á efnisskránni eru söng-
ljóð eftir Schubert, Tsjaíkovskí, Brahms, Rachm-
aninov og Vaughan Williams. Í lögunum er dregin
upp mynd af förumanninum sem heldur út í heim í
leit að stað þar sem hann getur öðlast frið.
Tónlist
Ágúst Ólafsson
einn á ferð
Ágúst
Ólafsson
NÚ STENDUR yfir ljós-
myndasýning Bjargar Vigfús-
dóttur og skúlptúrasýning
Stefáns Boga Stefánssonar
gullsmiðs í galleríinu Við Mýr-
argötu Á síðastliðnum árum
hefur Björg fundið fyrir sterk-
um tengslum við Ísland og
áhugi kviknað á að sýna í
myndunum orkuna og litina
sem þetta magnaða land býr
yfir. Stefán Bogi hefur rekið
eigið verkstæði frá 1982 og hefur smíðað altaris-
gripa í tugi kirkna. Í seinni tíð hefur hann hannað
stærri verk sprottin úr nánasta umhverfi sínu.
Sýningin stendur til 6. nóvember.
Myndlist
Ljósmyndir af orku
og litum landsins
Björg
Vigfúsdóttir
EINKAR athyglisverður ein-
leikur í tveimur þáttum verður
fluttur í TÍBRÁ, tónleikaröð
Salarins í Kópavogi, í dag kl.
17. Það er höfundurinn sjálfur,
nýsjálenski píanóleikarinn, rit-
höfundurinn og útvarps-
þáttagerðarkonan Stephanie
Wendt, sem flytur verkið Gest-
ur Klöru. Wendt, bregður sér í
gervi tónskáldsins og píanó-
leikarans Klöru Schumann og
flytur eigin leikgerð byggða á bréfum, dagbókum
og tónlist Klöru, eiginmanns hennar Róberts og
vinar þeirra Brahms. Leikurinn gerist á heimili
Klöru í Þýskalandi að vori til árið 1854.
Tónleikar
Bregður sér í gervi
Klöru Schumann
Klara
Schumann