Morgunblaðið - 03.11.2007, Blaðsíða 30
tíska
30 LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Sigurður Sigurðarsondýralæknir orti um
barnabarnið Elísabetu Líf:
Átta vetra orðin snót
andlitsfríð og handasmá
lífsglöð teygir léttan fót
lyndishrein með augu blá.
Götu þína gæfusól
geislum strái rausnarleg
og himnakóngur heims um ból
hossi þér um æviveg.
Og hann orti 11. ágúst um annað
barnabarn, Halldóru Sölvadóttur:
Eins og stjörnur augun bláu
undrastór og djúp og skær
hugljúft bros og hendur smáu
hverri skepnu verða kær.
Foreldrarnir brosa breitt
berjast hjörtu af ást til þín
til hamingju með árið eitt
yndislega stúlkan mín.
Hann fór vestur í Bolungarvík og
fékk góða gistingu hjá Arndísi
Hjartardóttur:
Gisting er bolvísk best
bráðvel getur andann hresst
hrós fær Arndís Hjartar mest
heimilislega fer um gest.
pebl@mbl.is
Af afa og
barna-
börnum
VÍSNAHORNIÐ
Christian Dior fæddist inn íefnaða fjölskyldu árið1905 í sjávarþorpinuGranville í Normandí-
héraði Frakklands og var yngstur
þriggja systkina. Faðir hans, sem
hafði komist í góðar álnir á fram-
leiðslu áburðar, ól með sér þann
draum að Christian lærði stjórn-
málafræði og gerðist að því loknu
diplómat.
En hugur hins unga manns
hneigðist alfarið að hinum skapandi
listum – arkitektúr til að byrja með –
og pabbi gamli gerði sér fljótt grein
fyrir því að ekki þýddi mikið að ætla
að snúa syninum í þá átt sem honum
helst hugnaðist. Með semingi leyfði
hann Christian að hætta í námi sínu
við hinn virta École Des Sciences
Politiques er hann var 23 ára að
aldri og gaf honum þess í stað væna
fúlgu til að setja á laggirnar eigið
gallerí – gegn loforði á þá leið að
reksturinn bæri ekki Dior-nafnið.
Þar kom hinn nýi galleríseigandi
sér fljótt upp góðum tengslum við
listamenn sem áttu eftir að gera það
gott, Picasso, Braque og Cocteau
þeirra fremstir. Lífið lék við Dior
um sinn, uns ógæfan dundi yfir árið
1931; fjölskyldufyrirtækið fór á
hausinn og galleríið, sem hafði hlotið
nafnið Galerie Jacques Bonjean, bar
sig ekki án baklandsins og lokaði því
í kjölfarið.
Næstu árin bjó Christian Dior við
afar knappan kost og hafði í sig og á
með því að selja hátískuhúsum
skissuteikningar eftir sjálfan sig.
Loks varð einhver í þeim bransa til
þess að átta sig á því að hinn fátæki
teiknari bjó yfir talsverðum hæfi-
leikum, og Dior fékk starf sem að-
stoðarmaður kjólameistarans Ro-
bert Piquet.
Nýi stíllinn tekur völdin
Það var svo fljótlega eftir seinna
stríð sem æskuvinur Dior frá Gran-
ville, að nafni Marcel Boussac, réð
hann til að blása lífi í textíl- og fata-
verslunina Philippe et Gaston, en
hana átti téður Boussac auk marg-
víslegs annars reksturs. Hinn verð-
andi hátískukóngur viðraði þegar í
stað við yfirmann sinn hugmyndir
sínar á þá leið að nú, að stríðinu
mikla loknu, væri almenningur tilbú-
inn fyrir eitthvað nýtt.
Textíll var af skornum skammti
meðan stríðið geisaði, en nú horfði til
betri vegar hvað það varðaði og auk
þess trúði Dior því að þar sem harð-
ræði og ömurleiki stríðsins væri að
baki myndu dömurnar stökkva á
svolítinn lúxus – svolítinn glamúr.
Bissnessmaðurinn Boussac kolféll
fyrir hugmyndum vinar síns og
ákvað þegar í stað að verja til verk-
efnisins – fyrstu línu Christian Dior
– 60 milljónum franka, sem voru fá-
heyrðir fjármunir í þessu samhengi
á þessum tíma. Báðir höfðu þeir
tröllatrú á hugmyndum Dior, og á
daginn kom að sá tiltrúnaður var á
rökum reistur. Þeir félagar voru þó
sammála um að best væri að vanda
vel til verksins og undirbúa það
nægilega. Dior gaf sér því tæplega
eitt og hálft ár í að hanna, sníða og
sauma flíkurnar sem áttu eftir að
fylla hina nýju línu hans.
Þvert á sniðleysuna sem var alls-
ráðandi í kvenfatnaði meðan á
seinna stríði stóð – réttilega, þar eð
fólk hafði um annað að hugsa en há-
tísku – voru flíkurnar í sniði sem
gerði hinum kvenlegu línum hátt
undir höfði og ýkti upp öll einkenni
kvenlíkamans. Þannig voru herðarn-
ar dregnar saman og hafðar nettar
en barmurinn var undirstrikaður, og
mittið inndregið en mjaðmirnar
fengu að njóta sín. Hin munúðarfulla
„stundaglaskona“ var rauði þráð-
urinn í flíkum Dior og það kunnu
konurnar sannarlega að meta enda
varð Christian Dior að alþjóðlegri
stjörnu á einni nóttu að kalla.
Carmel Snow, ritstjóri Harper’s
Bazaar, hitti svo naglann á höfuðið
þegar hún nefndi línuna einfaldlega
„The New Look“ eða nýja stílinn.
Tískufatnaði kvenna var umbylt að
flestu leyti og útlínurnar sem Dior
lagði til áttu eftir að setja mark sitt á
næstu áratugi.
Sviplegt fráfall
Næsti áratugur leið í stöðugum
vinsældum og velsæld fyrir Christi-
an Dior. En þegar hann hafði lagt
lokahönd á línuna fyrir haust 1957
ákvað hann að bregða sér til Ítalíu
og slaka á í heilsubænum Montecat-
ini. Þaðan átti hann ekki aft-
urkvæmt. Frásögnum bar aldrei
saman um hvað hefði orðið helsta
hátískuhönnuði Parísar að aldurtila.
Fyrstu fregnir frá vettvangi kváðu
hann hafa fengið hjartaáfall í kjölfar
þess að fiskbein festist í hálsi hans
meðan hann mataðist; dánarfregnin
í Time sagði hjartaáfallið hafa komið
til er hann sat við spil. En kunningi
Christian sjálfs, Barón Alexis von
Rosenberg, sagði frá því í end-
urminningum sínum að ástarleikur
við tvo talsvert yngri menn hefði rið-
ið honum að fullu. Hvað sem satt er
af framangreindu er sess Christian
Dior gulltryggður í sögu hátísk-
unnar, sem og í framtíð hennar að
líkindum, því ennþá mælist vöru-
merkið Christian Dior hið best
þekkta af öllum sambærilegum í
vörumerkjamælingum og könnunum
þeirra fyrirtækja er slíkt kanna.
Merkisberar Dior
frá 1957 til 2007
Tískuhús Christian Dior var
reyndar ekki á flæðiskeri með yf-
irhönnuð þó meistarinn félli frá því
sá sem tók við taumunum var sjálfur
Yves Saint-Laurent. Honum fórst
enda verkið vel úr hendi, vægast
sagt. Af öðrum andans jöfrum sem
borið hafa titilinn „yfirhönnuður“
hjá Dior eru einna helstir Gian-
franco Ferre, sem gegndi starfinu
frá 1989 til 1996, og svo auðvitað arf-
taki hans, núverandi hönnuðurinn
John Galliano. Galliano hinum
breska er það öðrum fremur að
þakka að tískuhús Christian Dior er
enn í dag eitt hið ferskasta og fram-
sæknasta í tískuheiminum.
Svolítill lúxus – svolítill glamúr
Meistari Gianfranco Ferre yfirhönnuður tískuhúss Christian Dior frá
1989-1996 þótti hafa sannkallaða snilligáfu sem hönnuður.
Grallari John Galliano, hinn breski
hönnunarstjóri Dior.
Reuters
Stundaglaskonan Nýji stíllinn lifir
enn góðu lífi hjá Dior.
Hinn 23. október voru
50 ár liðin frá andláti
hins goðsagnakennda
hátískuhönnuðar,
Christian Dior. Jón
Agnar Ólason fer yfir
sögu tískukóngsins.
AP Reuters
SÍFELLT erfiðara verður að vita
hvaða fatastærð maður notar; er
maður stærð 38 eða 40, eða jafn-
vel 36 eða 42? Fatastærðir eru
nefnilega óútreiknanlegar – það
vilja danskir fataframleiðendur
a.m.k. láta í veðri vaka því sumir
þeirra hafa nú tekið upp banda-
ríska hætti og ákveðið að skrúfa
stærðirnar niður um einn, þ.e.
merkingarnar, þannig að „large“
verði að „medium“ o.s.frv.
Viðskiptavefur danska blaðsins
Jyllands-Posten, epn.dk, segir frá
skrifum neytendablaðsins Tænk
um þessar stærðarhliðranir sem
eru sagðar gerðar í takt við sífellt
þykkari viðskiptavini, allt til þess
að væntanlegum kaupendum líði
betur með sjálfa sig í mátunar-
klefanum. Fólk vilji að sjálfsögðu
frekar vera í stærð „medium“ en
„large“. Í danska stórmarkaðnum
Føtex er „small“-stærð nú 38-40, í
stað 36-38, rétt eins og tíðkast í
bandarískum númerum.
Ekki eru allir á eitt sáttir með
þessar breytingar og segir heil-
brigðisstarfsfólk þær jafnvel stór-
hættulegar, enda sé bara verið að
gabba fólk. Sjúkdómar fylgi of-
þyngd, sumir lífshættulegir, og við
ruglinginn í kringum fatastærðir
þyki fólki það ekki svo alvarlegt
að holdafar hafi breyst þegar á
hólminn er komið í mátunarklef-
anum.
Í fatalínu danska fyrirtækisins
IC Companys, sem er m.a. seld
hér á landi, hefur þessi breyting á
fatamerkingum verið tekin upp, að
sögn vegna þess að mannkynið
stækki jafnt og þétt. Á hinn bóg-
inn segja forsvarsmenn Føtex
skýringuna ekki þá að kúnnarnir
tútni út á þverveginn. „Það er
ekki til danskur staðall á fata-
stærðum sem þýðir að hvert fata-
merki getur þróað sínar stærðir.
Við tökum tillit til markaðshópsins
okkar og þess vegna svarar
„small“-stærð til 38-40,“ segir inn-
kaupastjórinn Lisbeth Kjerulf
Mikkelsen.
Minni fatastærðir handa feitari Dönum
Reuters
Allt í plati? Friðrik, krónprins Dana, og fjölskylda passa nú í minni fata-
stærðir en áður því danskir fataframleiðendur hafa breytt stærðakerfinu.