Morgunblaðið - 03.11.2007, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2007 35
UMHVERFIS- og loftslagsmál
eru ofarlega á baugi um heim allan.
Ísland er þar engin undantekning.
Hérlendis er þessi umræða þó með
allt öðrum og jafnvel öfugum for-
merkjum við það sem víða gerist
annars staðar. Í nágrannalöndunum
snýst umræðan öðru fremur um
leiðir til að auka hlut
endurnýjanlegra orku-
gjafa, enda talið að
hlýnun jarðar stafi að
stærstum hluta af
brennslu jarðefnaelds-
neytis. Hlutur end-
urnýjanlegra orkugjafa
er þannig um 7% innan
Evrópusambandsins, en
hér á landi er hann 72%
og Ísland í einstakri
stöðu á þessu sviði. Hér
á landi eru það þó óvart
framleiðendur og flutn-
ingsaðilar endurnýj-
anlegu orkunnar sem
öðrum fremur sitja undir gagnrýni
þeirra sem tala í nafni umhverf-
isverndar.
Nú er það auðvitað svo að mál-
efnalegt aðhald er orku- og veitufyr-
irtækjum hollt, líkt og öllum öðrum.
Þá verða einstakar virkjunarfram-
kvæmdir ávallt og réttilega tilefni til
skoðanaskipta, meðal annars frá
sjónarhorni náttúruverndar. En því
miður er gagnrýni á störf þessara
fyrirtækja oft fjarri því að vera mál-
efnaleg. Engu að síður virðist hún
oft eiga afar greiða
leið inn í fjölmiðla.
Klifað gegn betri
vitund um raf-
orkuverð
Sumir sem tala í
nafni umhverf-
isverndar klifa til
dæmis sífellt á því í
fjölmiðlum að hér sé
raforka seld stóriðju á
einhvers konar und-
irverði. Engu er
skeytt um svör er lúta
að samanburði við
meðaltalsverð til stóriðju í heim-
inum, eða að augljósum atriðum er
varða stöðugleika í viðskiptum og
magninnkaup, eða um að salan til
stóriðju sé óvart uppspretta nær
alls hagnaðar umræddra fyrirtækja
og mikilvæg forsenda uppbyggingar
sem öðrum nýtist. Gegn betri vitund
er fremur klifað áfram um það sem
af vandlætingu er kallað niðurgreitt
verð, en um leið er gjarnan krafist
sama raforkuverðs til annarra val-
inna atvinnugreina, sem ekki væri
hægt að verða við nema óvart með
stórfelldum niðurgreiðslum enda
um að ræða margfalt minni og
óstöðugri viðskipti. Þá hafa þessi
fyrirtæki og starfsfólk þeirra und-
anfarin misseri mátt sitja undir
skrautlegum viðtölum og frétta-
flutningi um burðarþol stíflumann-
virkja, um meinta vá sökum brenni-
steinsvetnis í andrúmslofti (maður
þorði varla í sturtu og alls ekki að
heimsækja Hveragerði) og þannig
mætti lengi telja.
Gagnrýni fyrir að
fara að lögum
Nú er komin fram ný tegund af
gagnrýni á hendur einu fyrirtæki
vegna virkjanaframkvæmda. Í fjöl-
miðlum, meðal annars á forsíðu
Morgunblaðsins, var það gert tor-
tryggilegt að umrætt fyrirtæki
skyldi sjálft hafa látið vinna um-
hverfismat vegna fyrirhugaðra
framkvæmda. Þetta er afar athygl-
isverð gagnrýni, því óvart er mælt
fyrir um það í lögum um mat á um-
hverfisáhrifum að framkvæmdarað-
ili láti vinna slíkt mat. Matsferlið er
hins vegar langt og að því koma
ýmsir umsagnaraðilar auk að sjálf-
sögðu skipulagsyfirvalda, og ekki
skal farið nánar út í það hér. En
varla getur það talist eðlilegt að fyr-
irtækið sé gert tortryggilegt fyrir
að fara eftir þeim lagabókstaf sem
við á. Það eru takmörk.
Ný tegund gagnrýni:
farið að lögum
Gústaf Adolf Skúlason skrifar
um umhverfis- og loftslagsmál »Hér á landi eru þaðþó óvart framleið-
endur... endurnýjanlegu
orkunnar sem öðrum
fremur sitja undir gagn-
rýni þeirra sem tala í
nafni umhverfisvernd-
ar
Gústaf Adolf
Skúlason
Höfundur er aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Samorku, samtaka
orku- og veitufyrirtækja.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
WWW.EBK.DK
Danskir gæðasumarbústaðir
(heilsársbústaðir)
Hafðu samband við okkur fyrir frekari
upplýsingar: Anders Ingemann Jensen
farsími nr. +45 40 20 32 38
netfang: aj@ebk.dk
Ert þú í byggingarhugleiðingum?
Ármúla 42 · Sími 895 8966
mánudaga - föstudaga 10-18
laugardag 10-18 • sunnudag 13-18Opið
Einnig fullt af
nýjum vörum
Tekynning!
Hvaða te hentar
þér best?
Svarið fæst með
Kínverskri
púlsmælingu.
Kínversk
postulínsveisla
! "#$$
!%&'$()$&$$
!
" #
!$
# #
!"
# $%&' %
&
' !
&"
#
& !
% !
() * + + *
*+
!)!,-$ .
!/
+ -,-0#$$
1 ! ! !2!
3! " ( ,
+-
OPIÐ HÚS – ERLUÁS 2 – HF.
Opið hús laugardag og sunnudag frá kl 15-16,
helgina 3.-4. nóvember.
Glæsileg 104,4 fm, 4ja herbergja endaíbúð. Rúmgóð stofa
með gólfsíðum gluggum og glæsilegu útsýni. Vandaðar
innréttingar.
Eign á frábærum stað sem
vert er að skoða
Sölumaður Stefán Bjarni
s. 694 4388.
Þverholti 14 | 105 Reykjavík | Sími 595 9000 | www.holl.is | holl@holl.is
Björn Daníelsson löggiltur fasteignasali.