Morgunblaðið - 04.11.2007, Side 6
Opnun landamæra á Schengen-svæð-
inu greiddi ekki götu glæpamanna
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
NÚ þegar Eystrasaltsríkin ásamt nokkrum
A-Evrópuríkjum bætast í hóp Schengen-ríkja
í desember næstkomandi vaknar sú spurning
hvort barátta íslenskra yfirvalda gegn skipu-
lögðum glæpasamtökum muni verða erfiðari í
ljósi þess að Schengen-samstarfið gengur út á
að tryggja frjálsa för einstaklinga um innri
landamæri. Eins og fram hefur komið fjölgar
Schengen-ríkjum úr 15 í 24 í árslok en á innri
landamærum Schengen þarf fólk ekki að sýna
vegabréf. Hins vegar er þess krafist að fólk
sýni gild persónuskilríki.
Ísland hefur nú tekið þátt í Scheng-
en-samstarfinu í sex ár og að mati Jóhanns R.
Benediktssonar, lögreglustjóra á Suðurnesj-
um, hefur reynslan til þessa sýnt að áhyggjur
manna af mögulegu frjálsu flæði evrópskra og
vegabréfalausra glæpamanna voru óþarfar.
Varnirnar efldust
„Í aðdraganda aðildar Íslands að Schengen
gætti ákveðins ótta við að opnun á innri
landamærum myndi veikja stöðu okkar í bar-
áttunni við óæskilegt fólk og erlend glæpa-
samtök,“ segir hann. „Reynsla okkar af
Schengen hefur samt sýnt að opnun landa-
mæranna hafði engin áhrif í þessu samhengi,
heldur þvert á móti efldust varnirnar,“ segir
hann.
„Það verður að hafa í huga að með aðild að
Schengen voru lagðar sérstakar kvaðir á
herðar aðildarríkjanna um að miðla ákveðnum
upplýsingum sem varða ríkisborgara Schen-
gen-landanna. Í samstarfinu felst að öll upp-
lýsingamiðlun lögreglu á Schengen-svæðinu
verður greiðari. Þótt íslensk yfirvöld hafi
glímt við vanda sem tengist einstökum ríkjum
þá mun opnun landamæranna ein og sér ekki
spilla fyrir þeirri baráttu á nokkurn hátt. Við
þessar breytingar styrkist hins vegar lög-
reglusamvinna á Schengen-svæðinu og því
leyfi ég mér að fullyrða að íslensku samfélagi
stafi ekki nokkur hætta af því að opna landa-
mæri sín gagnvart fleiri Schengen-ríkjum
eins og fyrirhugað er,“ segir hann.
6 SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
VEITINGASKÁLINN að Brú í
Hrútafirði verður rifinn í tengslum
við breytingar á lagningu hringveg-
ar 1 um Hrútafjarðarbotn og gamli
Staðarskálinn verður einnig utan
hringvegarins nýja. Áform eru hins
vegar uppi um að byggja nýjan
Staðarskála, sem sameinar þann
gamla og Brúarskála, við mót hins
nýja vegarkafla og svokallaðs Djúp-
vegar.
Vegagerðin auglýsti nýverið eftir
tilboðum í nýbyggingu hringvegar-
ins á þessum kafla, en um er að
ræða 6,9 km kafla af hringvegi frá
Brú að Brandagili, um 1,6 km langa
tengingu við Djúpveg og um 1,2 km
af öðrum tengingum.
Er gert ráð fyrir því að verkinu
verði að fullu lokið fyrir 1. nóvem-
ber 2008 en áætlanir N1, sem á
bæði veitingaskálann að Brú og
Staðarskála, gera hins vegar ráð
fyrir að nýr Staðarskáli verði opn-
aður um miðjan september 2008.
Gunnar H. Jóhannsson hjá veg-
hönnunardeild Vegagerðarinnar
segir nokkrar ástæður fyrir því að
ákveðið hafi verið að breyta lagn-
ingu hringvegarins með þeim hætti
sem hér er lýst. Brúin yfir Síká í
Hrútafirði sé til dæmis síðasta ein-
breiða brúin á hringveginum milli
Reykjavíkur og Akureyri en með
nýjum vegi og brú yfir Hrútafjarð-
ará verður leiðin ekki lengur yfir
þessa tilteknu brú.
Áhersla hefur verið lögð á að af-
nema allar einbreiðar brýr við
hringveg 1 og þessar breytingar eru
því liður í umbótum í samgöngu-
málum. Í ljósi þess að það hafi líka
legið fyrir að tvöfalda þyrfti brúna
yfir Selá, vestur á firði, hafi menn
talið vænlegra að breyta einfaldlega
lagningu vegarins. Kostnaðurinn sé
svipaður og ef gömlu leiðinni hefði
verið haldið og ráðist í staðinn í um-
bætur á brúnum á svæðinu.
Segir Gunnar í því sambandi að
byggja hefði þurft nýja brú, eða
endurbyggja þá gömlu við Brú, ef
sá kostur hefði verið tekinn að halda
vegarstæðinu óbreyttu. Brúin við
Brúarskála sé nefnilega með tveim-
ur vinkilbeygjum, sinni hvorum
megin brúar, og slíkt gangi bara
ekki lengur, beygjan sé kröpp og
varasöm.
Lengi vitað að breytingar
væru í vændum
Kristinn Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Staðarskála ehf.,
sem er í eigu N1, segir menn á
staðnum hafa verið að bíða eftir
þessum breytingum á veginum.
Legið hafi fyrir að þær yrðu gerðar
en rekstraraðilar hafi ekki viljað
ráðast í dýrar framkvæmdir sökum
óvissunnar um hvar vegurinn myndi
liggja. Brúarskáli verði rifinn, enda
sé hann inni í vegarhelgunarlínunni
svokallaðri, þ.e. standi að hluta í
vegarstæðinu, en Staðarskáli verði
áfram á sínum stað, enda verði veg-
urinn – sem nú er hringvegur 1 –
áfram þó að hann leiki ekki sama
hlutverk og áður. „Við komum til
með að nota það húsnæði sem þar
er öðruvísi,“ segir Kristinn en segir
ákvörðun ekki liggja fyrir í þeim
efnum.
Hönnunar- og skipulagsvinna
vegna nýs veitingaskála, sem á að
rísa, stendur nú yfir, að sögn Krist-
ins, en nýi skálinn verður stærri og
glæsilegri en þeir sem fyrir eru við
Stað og á Brú. Sem fyrr segir er
áætlað að nýi skálinn verði opnaður
um miðjan september 2008 en þá
ætti að vera búið að setja slitlag á
hinn nýja og breytta hringveg 1.
Nýr Staðarskáli rís við ný gatnamót
# $ %"
& &
$ '
(
Í HNOTSKURN
»Veitingaskálinn við Brúverður rifinn og þó að
Staðarskáli standi áfram þar
sem hann er nú breytist hlut-
verk hans, enda verður veg-
urinn sem liggur þar framhjá
ekki lengur hringvegur 1.
»Nýr skáli, sem sameinarhina tvo, rís við hinn nýja
hringveg 1, á mótum nýrra
gatnamóta við Djúpveg.
»Veitingaskálar hafa veriðreknir við Stað og Brú frá
því um 1960 en þeir eiga sér
þó eldri sögu. Þannig voru
bensíntankar fyrst settir upp
við Stað 1929.
Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum vegna færslu hringvegar 1 um Hrútafjarðarbotn
Veitingaskálinn við Brú verður rifinn og ekki lengur ekið um síðustu einbreiðu brúna á leiðinni norður
NORÐURÁL hefur í einu og öllu
farið að lögum og reglum við fram-
gang mats á umhverfisáhrifum
vegna væntanlegs álvers í Helguvík.
Þetta segir í fréttatilkynningu frá
Norðuráli en Landvernd hefur kært
til umhverfisráðherra ákvörðun
Skipulagsstofnunar þess efnis að
ekki verði fjallað um allar tengdar
framkvæmdir í mati á umhverfis-
áhrifum fyrir álver í Helguvík.
Meðal þessara framkvæmda eru
virkjanir og raflínur sem hannaðar
eru til að þjóna vexti og viðgangi
samfélagsins á Suðurnesjum. Skipu-
lagsstofnun, sem hefur ákvörðunar-
vald í þessu máli, taldi ekki rétt að
fresta afgreiðslu matsins á framan-
greindum forsendum.
„Norðurál hefur í einu og öllu farið
að lögum og reglum við framgang
mats á umhverfisáhrifum vegna
væntanlegs álvers í Helguvík. Ferlið
lýtur lýðræðislegum leikreglum þar
sem einstaklingum og öðrum aðilum
gefst kostur á að segja sitt álit. Matið
hefur verið unnið í góðu samstarfi
við Skipulagsstofnun og eftir leið-
beiningum hennar.
Umrætt verklag við mat á um-
hverfisáhrifum fyrir Helguvík var
samþykkt af Skipulagsstofnun í
mars 2006 og auglýst í drögum að
matsáætlun í apríl sama ár, til skoð-
unar og umsagnar fyrir almenning,
félagasamtök og stofnanir. Hvorki
Landvernd né nokkur annar aðili
gerði á þeim tíma athugasemd við
ákvörðun Skipulagsstofnunar sem
var birt í júní 2006.“
Þrýstingur á að hraða
framkvæmdum
Í fréttatilkynningunni segir að ál-
ver í Helguvík njóti mikils stuðnings
innan samfélagsins á Suðurnesjum.
Frá því að spár birtust um aukið at-
vinnuleysi á svæðinu og niðurskurð-
ur kvóta í sjávarútvegi fór að hafa
áhrif á atvinnulífið þar, hafi Norður-
ál fundið fyrir sívaxandi þrýstingi
meðal íbúa og fyrirtækja á Suður-
nesjum um að hraða framkvæmdum
eins og frekast er unnt.
Viðbrögð Norðuráls við kæru Landverndar
Höfum farið
eftir lögum
og reglum
GÓÐUR rómur var gerður að fyrstu tónleikum Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands í nýrri tónleikaröð sem ber heit-
ið Heyrðu mig nú! og er ætluð ungu fólki öðru fremur,
eða þeim sem óvanir eru sígildri tónlist. Flutt var Vor-
blótið eftir Stravinskíj og gafst gestum kostur á að
hitta hljóðfæraleikarana að máli að tónleikum loknum.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Vorblót fyrir unga og óvana