Morgunblaðið - 04.11.2007, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 04.11.2007, Qupperneq 16
Efri Forysta sjálfstæðismanna í borgarstjórn, Gísli Marteinn Baldursson, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Hanna Birna Kristjánsdóttir. Neðri Svandís Svavarsdóttir skoðar farsímann eftir að nýr meirihluti var kynntur. Með henni eru Dagur B. Eggertsson og Björn Ingi Hrafnsson. Kannski SMS? sögn Hjörleifs að búið sé að „tryggja stuðning við það, fara yfir það með borgarstjóra og hann sé þessu öllu samþykkur.“ Haukur felur Hjörleifi að láta semja þá samninga sem þarf til að klára málið. Hann hringir í Lex, sem hafði unnið mikið fyrir OR, talar við Helga Jóhannesson og Helgi kemur samdægurs. „Við förum yfir hvaða samninga þurfi að gera og ég set hann af stað með það.“ Síðan er unnið í „þessum pappírum“ og koma fjórir lögfræðingar stofunnar að því. Erla S. Árnadóttir hrl. sendir fyrstu tillögur að þjónustusamningi unnar á grundvelli minnisblaðsins til Hjörleifs 26. september. Samkvæmt upplýsingum í minnisblaði frá REI, sem blaðamanni var afhent, var eftir það tekið út úr samningnum, í sam- skiptum Hjörleifs Kvarans frá OR og Jóns Diðriks Jónssonar frá REI, að REI ætti allt „patent og intellectual property“ OR, veltugjald var tekið út þar sem andvirði væri í 10 milljarða greiðslu fyrir „goodwill“, sett var „first right of refusal“ í stað einka- réttar í samræmi við samþykkt stjórnar REI, og kveðið var á um rétt OR til að nýta sér þróun sem verður í verkefnum þar sem starfs- menn OR taka þátt.“ Listar yfir kaupréttarhafa Á stjórnarfundi REI 1. október voru Björn Ingi Hrafnsson og Hauk- ur Leósson, en Bjarni var í síma- sambandi frá Afríku í mjög skamma stund. Samþykkt var að félagi í eigu starfsmanna OR og 17 tilgreindum starfsmönnum OR og REI yrði selt nýtt hlutafé í félaginu. Hjörleifur B. Kvaran kom á fundinn frá OR og var beðinn um lista yfir lykilstjórnendur OR sem ættu að fá að kaupa í REI. En Björn Ingi og Haukur sömdu lista yfir starfsmenn REI, einhverjir höfðu unnið þar í nokkra daga og einn var ekki enn kominn til starfa. Guðmundi Þóroddssyni var boðið að kaupa fyrir 100 milljónir. En flest- um var boðið að kaupa fyrir 7,8 millj- ónir og starfsmannafélagi OR að há- marki fyrir 130 milljónir. Í öllum tilvikum var gengið 1,278. Hlutabréfakaupin komu til um- ræðu á fundi sem stjórnarformaður OR boðaði með minnihlutanum í borgarstjórn að morgni 3. október. Svandís Svavarsdóttir og Dagur B. Eggertsson voru viðstödd, en Dagur var að fara utan sama dag, þannig að hann hafði Sigrúnu Elsu Smáradótt- ur með sér. Og það var Sigrún Elsa sem hjó eftir því í annars efnisrýrri kynningu á samruna REI og GGE að gert var ráð fyrir því undir „þróun eign- arhalds“ að „stjórnendur“ eignuðust 5,7% í félaginu á móti Bjarna og OR. Þegar hún spurði hvað stæði þar á bakvið kom fram að það væri hlutafé til starfsmanna OR og lykilstjórn- enda OR og REI. Í framhaldi af því var spurt hvort til væri listi með nöfnum þessara lykilstarfsmanna og var hann afhentur. Tekið var fundarhlé á meðan farið var yfir listann og gerðu stjórn- armenn svo töluverðar athugasemd- ir. Gagnrýnt var hversu háan kaup- rétt Guðmundur Þóroddsson fengi og var ákveðið að lækka hann úr 100 í 30 milljónir. Þá var gagnrýnt að lyk- ilstjórnendur OR fengju heimild til kaupa í REI og dró Hjörleifur þá þegar af listanum. Því næst voru gerðar athugasemdir við að nýráðnir starfsmenn REI fengju að kaupa á genginu 1,3 og lögðu stjórnarmenn til að þeir fengju að kaupa á genginu 2,77, sem var gefið upp sem almennt gengi í samrunaferlinu. „Fram kom að stjórnarmennirnir gátu fallist á að aðrir starfsmenn OR, þ.e. þeir sem undirbúið hafa útrásina, keyptu á genginu 1,3,“ segir í minn- isblaði frá Hjörleifi til borgarstjóra. Ennfremur segir: „Eftir þessa yf- irferð varð því til nýr listi saminn af fundarmönnum sem formaður og for- stjóri REI upplýstu að þeir myndu leggja til við stjórn REI til sam- þykktar. Stjórnarmennirnir óskuðu eftir að fá listann svo breyttan við fyrsta tækifæri. Í lok fundarins lýstu þessir stjórnarmenn því yfir að þeir væru samþykkir samrunasamn- ingnum og myndu styðja hann.“ Skyndifundur með leynd Skyndifundur með meirihluta borgarstjórnar var boðaður þegar borgarstjórnarfundur stóð yfir þriðjudaginn 2. október og átti að fara fram í stöðvarstjórahúsinu í El- liðaárdal um kvöldið. Mikil leynd var yfir fundarefninu og ekkert látið uppi. Einhverjir borgarfulltrúar töldu að loks væri komið að kynning- arfundi um málefni OR. Þegar spurt var um tilefnið var svarið: „Málefni OR.“ Og þegar spurt var: „Í heild sinni?“ Þá var svarað: „Nei, annað mál, en við getum ekki sagt um hvað það snýst.“ Einhver hélt að fund- urinn snerist um útrásina til Indóne- síu. „Óskað var eftir því að farið yrði eins leynt með þetta og kostur væri, því stærstu aðilar Geysismegin væru á markaði, s.s. FL Group og Atorka,“ segir Hjörleifur. „Ef þeir væru komnir í viðræður eða farnir að gera hluti sem Kauphöllin þyrfti að vita af, þá þyrfti að upplýsa það. Því ef eitthvað færi að spyrjast út, þá gæti það haft áhrif á verðmæti hluta- bréfa. Þetta var sú skýring sem mér var gefin.“ Einnig er fullyrt að flýtirinn hafi verið vegna kynningar FL Group í London. Og það kunni raunar að vera samningatækni af hálfu FL Group að búa til tímaþröng með þeim hætti. Hjörleifur B. Kvaran segir menn hafa lagt mikla áherslu á að klára samningana, m.a. vegna þess að Björn Ingi Hrafnsson hafi verið að fara til Kína þá um kvöldið og hann hafi verið lykilmaður bæði í OR og REI. „Þetta er auðvitað hlægileg ástæða,“ segir Gísli Marteinn. Sama leynd var yfir fundarefninu gagnvart minnihlutanum sem átti að funda daginn eftir. Svandís Svav- arsdóttir var harðorð þegar hún sagði frá því, á aukafundi borg- arstjórnar 10. október, að hún hefði óskað eftir því við stjórnarformann OR að fá upplýsingar um fund- arefnið. Hann svaraði að þær gæti hann ekki veitt; hún myndi skilja það á morgun hvers vegna. Svandís sagði að þetta minnti á uppeldisaðferðir liðins tíma þegar sagt er: „Þú skilur það þegar þú ert orðin nógu stór, nógu stór til að skilja hvað þessi díll er ógeðslegur.“ Djúpstæð gagnrýni Fulltrúar meirihlutans í borg- arstjórn og nágrannasveitarfélag- anna mættu á fundinn kl. 18.30 um kvöldið. Boðið var upp á hvítvín og snittur. Og raunar kom síðar fram að borgarstjóri taldi að aðrir borg- arfulltrúar flokksins myndu taka samrunanum fagnandi. En annað kom á daginn. „Menn byrjuðu í hvítvíni og voru komnir niður í hálft glas þegar kynn- ingin hófst,“ segir Gísli Marteinn. Þá var varpað upp glæru með textanum: „Samruni Reykjavík Energy Invest [og] Geysir Green Energy“ og borg- arfulltrúar litu undrandi hver á ann- an. „Þegar átti svo að höfða til mín með því að með samrunanum væri verið að sporna við gróðurhúsaáhrif- um, þá ýtti ég glasinu frá mér og spurði mig hvaða rugl þetta væri.“ Guðmundur Þóroddsson flutti stutta kynningu á samrunanum á sex glærum, og fannst borgarfulltrúum hún rýr í roðinu, eins og komið hefur fram. Eina myndefnið var kort tekið upp úr Blaðinu. Heimildir innan REI herma að kynningin hafi verið unnin í miklum flýti, enda samningar enn í vinnslu, tilkynning um samrunann og fleira. Því er haldið fram að Guð- mundur hafi jafnvel ekki séð kynn- inguna áður en hann flutti hana. Haukur Leósson talaði á eftir Guðmundi fyrir málinu. Kynningin var stutt, stóð ekki lengur yfir en í 15 til 20 mínútur, og engum pappír var dreift. Svo sagði forstjóri OR að samningaviðræður hefðu staðið yfir í tíu daga og ætlunin væri að ganga frá samningnum á fundi daginn eftir. „Við fengum áfall!“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir. „Ég sem ein- staklingur upplifði þetta þannig að þetta væri stærsta fjármálalega ákvörðun sem ég tæki á þessum vettvangi – og mér leist illa á hana.“ Farinn var hringurinn og var það einróma álit allra borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að þeir gætu ekki sætt sig við þetta. Vilhjálmur og Björn Ingi voru einangraðir í afstöðu sinni. Fram kom djúpstæð gagnrýni á Vilhjálm og Hauk fyrir að miðla ekki upplýsingum, en ekki síst Björn Inga, sem var eini fulltrúi meirihlut- ans í stjórn REI. Sátu á kauprétti Gagnrýnin fólst annarsvegar í því að ónógar upplýsingar lægju fyrir um samrunann til að taka afstöðu til hans og lýst var efasemdum um að OR ætti að standa í áhættusamri út- rásarstarfsemi. „Upplýsingarnar voru engar og ég skildi ekki hvernig þetta samræmd- ist stefnu okkar,“ segir Hann Birna. „Út af hverju vorum við að samein- ast þessum en ekki öðrum? Við spurðum hvað starfsmenn fengju að kaupa og þeir svöruðu að það væri fyrir 100 til 300 þúsund á sama tíma og þeir sátu sjálfir á feitum kaup- réttarsamningum. Við spurðum hvort pólitískir fletir væru á þessu og þeir svöruðu „nei“, án þess að upplýsa okkur um 20 ára einkarétt- arsamninginn. Engu var deilt með okkur.“ En hljóðið er annað í stjórnendum OR og REI og hjá Birni Inga sem segja að þessi ágreiningur um hug- myndafræði hafi komið á óvart mið- að við það sem á undan var gengið, svo sem stofnun REI. Bent er á að Guðlaugur Þór hafi sjálfur skrifað undir viljayfirlýsingu við ríkisstjórn Djíbútí um útrásarverkefni. „Ég hafði aldrei heyrt af þessari and- stöðu,“ segir Hjörleifur B. Kvaran. Þegar ljóst varð hversu skiptar skoðanir væru innan meirihlutans óskaði borgarstjóri eftir því að aðrir vikju af fundi. „Þetta er gaman að hafa í huga þegar sagt er að kynn- ingin hafi ekki verið næg,“ segir Björn Ingi, sem sat sjálfur 20 mín- útur í upphafi, en fór svo af fund- inum í rúmlega klukkutíma. „Þegar ég kom til baka var mikil harka hlaupin í fundinn,“ segir hann. „Umræðan var í raun farin að snúast um miklu meira en samruna, mun frekar upplýsingagjöf borgarstjóra gagnvart sínu fólki, risarækjur og fleira.“ „Út af fyrir sig hefði verið hægt að standa betur að kynningunni. En það kom í ljós að borgarfulltrúar voru á móti verkefninu í heild sinni. Og þeir þurftu fyrst að útkljá það sín á milli – hvort þeir ætluðu sér í verk- efnið eða ekki,“ segir Hjörleifur. Ekkert varð úr því að taka ákvörð- un á fundinum eins og stóð til. Hon- um var slitið 21.30 um kvöldið og ákveðið að hittast aftur í hádeginu daginn eftir í Ráðhúsinu, þar sem stjórnendur OR kæmu með ítarlegri gögn og svör við spurningum sem komið hefðu fram. Sömu glærurnar Daginn eftir komu stjórnendur REI og OR beint af fundi með minni- hlutanum um morguninn. Það er gagnrýnt harðlega, og talað um trún- aðarbrest, að þeir skyldu ekki hafa minnst á kaupréttina eftir það. „Það verður uppi fótur og fit hjá minnihlutanum,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir. „Skömmu síðar mæta sömu menn á fund til okkar, segja ekki frá kaupréttarsamning- unum, en segja málið klappað og klárt hjá minnihlutanum, sem styðji málið algjörlega. Og mér skilst að látið hafi verið í það skína við minni- „Okkur finnst allir fulltrú- ar meirihlutans í stjórn OR hafa brugðist okkur, Haukur Leósson, Vilhjálmur og Björn Ingi,“ segir Gísli Marteinn. +,- +,. .,. /,0 /,1 /,2  !" #  $  %&  $   '  (   ) !* "   +  ,  ,-. '   , /  01     ,  '  (   %& 23 %&  3 45  6 7   + 80      , ""&" 3 &       -&$ ) .    ',  " , /  01 &' ' 0/ -&-   , / 6   ! 3 3 3 *  45 *6 3  45 & .+*/0 1 1/ .+*/0 9:   9:   2  .+*  /34*5 / 16 SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ »
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.