Morgunblaðið - 04.11.2007, Síða 18
18 SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ÞEGAR ríkið seldi 15,2% hlut sinn í
Hitaveitu Suðurnesja var sett það skil-
yrði að Landsvirkjun og Orkuveita
Reykjavíkur mættu ekki taka þátt í
útboðinu. Það var ekki fyrst og fremst
vegna einkavæðingarsjónarmiða, eins
og haldið hefur verið fram, enda var
búið að breyta Hitaveitunni í hluta-
félag og sameigendurnir, sveit-
arfélögin, höfðu forkaupsrétt. Ástæð-
an var hinsvegar sú að stjórnvöld
höfðu ráðfært sig við Samkeppniseft-
irlitið og það lagst gegn því af sam-
keppnisástæðum að stóru orkufyr-
irtækin, Landsvirkjun og OR, tækju
þátt.
Úr varð að Geysir Green Energy
var með hæsta tilboðið í hlutinn og
upphófst brátt mikil samkeppni við
OR um kaup á hlut sveitarfélaganna,
en þau neyttu öll forkaupsréttar.
Samkeppniseftirlitið hefur verið með
málið til skoðunar, hvort Orkuveitan
megi vera stór eigandi í Hitaveitu
Suðurnesja. Og gildir það einnig um-
REI, hvort sem verður af samruna
við GGE eða ekki.
Of langur tími í úrskurði
Mikillar óþolinmæði gætir í garð
Samkeppniseftirlitsins innan stjórn-
kerfisins. Það sé ótrúlegt hversu
langan tíma taki að vinna úrskurði.
Eftir að stjórnvöld hafi ráðfært sig
við eftirlitið og farið að ráðum þessum
að hleypa stóru orkufyrirtækjunum
ekki að vegna samkeppnissjónarmiða,
þá taki mánuði að skoða málið þegar
það gerist, án þess að skila nokkurri
niðurstöðu.
„Þeir eru ennþá með þetta til skoð-
unar. Þetta ferli hlýtur að vekja þá
spurningu á hvaða forsendum þeir
hafi ráðlagt stjórnvöldum í upphafi.“
Upphaflega keypti ríkið út sveit-
arfélögin í Landsvirkjun og var með
sölu á hlutnum í Hitaveitu Suðurnesja
að einfalda stöðuna á orkumarkaðn-
um hvað ríkið varðar. Enda er Hita-
veita Suðurnesja stór orkuframleið-
andi sem á í samkeppni við ríkisfyrir-
tækið Landsvirkjun og einnig orku-
dreifingaraðili sem á í samkeppni við
ríkisfyrirtækið RARIK. Til skamms
tíma átti OR raunar 45% hlut í Lands-
virkjun. „Og svo áttu þau að keppa!“
Eignir HS eru fyrst og fremst tvö
orkuver, Reykjanesvirkjun og Svarts-
engi, sem bæði nýta jarðgufu, ásamt
vatnsréttindum á Reykjanesskaga og
virkjanaleyfi, m.a. við Trölladyngju,
Sandfell og Krýsuvík. Eflaust voru
það líka óefnislegu verðmætin sem
Kapphlaupið
um Hitaveitu
Suðurnesja
Hellisheiði Ný jarðvarmavirkjun Orkuveitu Reykjavíkur á Hellisheiði hef-
ur vakið athygli erlendis og er ein af grunnstoðum útrásarinnar. Vikulega
koma erlendir gestir til að skoða virkjunina og oft skapast af því tækifæri.
tók undir að atburðarásin hefði verið
of hröð, en hann hefði talið sig vel
upplýstan. Rætt var um algjöran
trúnaðarbrest milli borgarfulltrú-
anna og stjórnenda OR og talið
betra að borgarfulltrúi færi inn í
stjórnina í stað Hauks Leóssonar.
Borgarstjóri féllst á það og er gagn-
rýndur innan REI og Framsóknar
fyrir að hringja ekki í Hauk, sem
frétti af þessu hjá fréttamanni.
Niðurstaðan af fundinum var að
selja eins hratt og hægt er hlut OR í
REI. „Þá vissi enginn af einok-
unarsamningnum.“ Hanna Birna
hringir í Björn Inga eftir fundinn og
greinir honum „nákvæmlega“ frá
niðurstöðu fundarins og „það var í
lagi. Það eina sem hann sagði er að
ræða þyrfti tímasetningar varðandi
sölu.“
Eftir að sjálfstæðismenn koma
með yfirlýsinguna fer Björn Ingi í
viðtal og segir þetta sátt sjálfstæð-
ismanna en ekki meirihlutans. „Mér
fannst óþægilegt að komin væri nið-
urstaða í málið um að selja strax
vegna þess að hún var ekki í sam-
ræmi við það sem Vilhjálmur hafði
sagt og ekki í neinu samræmi við
ferlið frá a til ö,“ segir hann. „Ég var
ósáttur við að Hauki Leóssyni væri
sérstaklega fórnað, því hann gerði
ekkert án leyfis frá borgarstjór-
anum í Reykjavík.“
Alfreð aftur á sviðið
Mjög alvarleg staða var komin
upp á þriðjudag í samstarfi meiri-
hlutans og vitað er að forystu Sjálf-
stæðisflokksins barst það til eyrna.
Það fór ekkert á milli mála hjá þeim
sem til þekktu að Björn Ingi var
hundóánægður. Hann náði aldrei í
Vilhjálm, Haukur var tekinn úr
stjórn, Guðmundur Þóroddsson og
Hjörleifur Kvaran lágu undir þungri
gagnrýni og það átti að selja hlut OR
í REI eins fljótt og auðið væri.
Björn Ingi og Vilhjálmur hittast á
fundi á þriðjudeginum þar sem þeir
fara yfir málið. Síðan fara allir í
sparifötin. Veisla vegna friðarsúlu
Yoko Ono er í Viðey um kvöldið. Þar
verður þingmaður Samfylkingar
þess áskynja að mikil óánægja sé hjá
Birni Inga með samstarfið í meiri-
hlutanum, en gagnrýni Vinstri
grænna sitji hinsvegar í honum.
Skilaboðin komast áleiðis og eftir
það verður tónninn í garð Björns
Inga mun mýkri en áður hjá minni-
hlutanum. Einnig spilar inn í að Al-
freð Þorsteinsson hringir í Dag fyrir
borgarstjórnarfundinn, eins og kom-
ið hefur fram. Þeir höfðu áður átt
gott samstarf í R-listanum og Alfreð
tekið slaginn fyrir Dag þegar Stein-
unn Valdís Óskarsdóttir tók við
embætti borgarstjóra.
„Af minni hálfu voru engar þreif-
ingar í gangi við minnihlutann,“ seg-
ir Björn Ingi. „Hinsvegar hef ég oft
séð, ef þú ert að spyrja sérstaklega
um Alfreð Þorsteinsson, að borg-
arfulltrúar minnihlutans hafa ráð-
fært sig við Alfreð. Ég heyrði í hon-
um í tengslum við
borgarstjórnarfundinn og hef oft
ráðfært mig við hann, einkum í
tengslum við málefni OR, enda hefur
hann mikla reynslu.“
Pólitísk framtíð
Meirihlutafundur hefst í Ráðhús-
inu klukkan tólf á miðvikudag. „Þar
er allt önnur staða komin upp,“ segir
Hanna Birna. „Ég hafði talað við
Björn Inga í Viðey og þá gaf hann
ekki annað í skyn en að við myndum
leysa þetta.“
Á fundinum segir Björn Ingi að
málið snúist um sitt „pólitíska líf og
framtíð“. Hann fellst á að selja ein-
hvern hlut strax, en eiga áfram
megnið fram yfir skráningu. Borg-
arfulltrúarnir segjast ekki hafa
traust á lykilstjórnendum OR og
REI, en Björn Ingi vill lýsa fullu
trausti á þeim og það má ekki hrófla
við samningum við Bjarna Ármanns-
son eða Jón Diðrik Jónsson.
Björn Ingi segist hafa átt við að
samruninn varðaði sína pólitísku
framtíð ef hann kyngdi niðurstöðu
sjálfstæðismanna um að selja í OR
og hreinsa út úr yfirstjórninni, en
það hafi ekki varðað samrunann.
„Ég sagði við þau: „Eitt er að vera
loyal en annað fullkominn bjáni. Þið
eruð búin að reka þetta mál allan
tímann og hvert eruð þið komin?“
Eftir tvo til þrjá tíma biður hann
um fundarhlé, fer með Óskari Bergs-
syni á skrifstofuna og kemur aftur
fimmtán mínútum síðar með blað
með sex punktum. Þar voru mörg at-
riði sem hann gat vitað að borgarfull-
trúarnir gætu ekki fellt sig við, s.s.
um að styðja samrunann aftur „í
samræmi við fyrri stefnumótun“ þó
að eigendafundur yrði dæmdur ólög-
mætur. Einnig vildi hann að ekki
yrðu borgarfulltrúar í stjórn REI,
sem var einmitt það sem sexmenn-
ingarnir höfðu gagnrýnt.
Björn Ingi segir að þetta hafi verið
tilraun til að ná niðurstöðu á fund-
inum, en það hafi ekki tekist.
Ekki náðist niðurstaða
Þegar klukkan er orðin 15.30 er
orðið fyrirséð að ekki náist nið-
urstaða á meirihlutafundinum. Hon-
um lýkur þannig að farinn er hring-
ur, miklar tilfinningar eru í spilinu
og viðstaddir lýsa skoðunum sínum á
því hver staðan sé. Allir tala um
nauðsyn þess að vinna saman, ná
niðurstöðu og að vinna að því af heil-
indum.
Í lok fundar las Vilhjálmur ræð-
una sem hann ætlaði að flytja til þess
að ganga úr skugga um að allir væru
sáttir. En það ríkti ekki traust. Ósk-
ar Bergsson hafði t.d. margsinnis
spurt borgarfulltrúa Sjálfstæð-
isflokksins: „Eruð þið að tala við
aðra?“ Og Björn Ingi segir að fyrst
hafi hann og borgarstjóri ætlað að
hittast tveir, eins og oddvitar geri, en
síðan stækkað hópinn og loks hafi
allur hópurinn mætt. „Það benti ekki
til að ríkti traust,“ segir hann. „Ég
hef sagt að út af fyrir sig hefði verið
með herkjum hægt að ná sam-
Þegar klukkan er orðin
15.30 er orðið fyrirséð að
ekki náist niðurstaða á meiri-
hlutafundinum. Honum lýkur
þannig að farinn er hringur,
miklar tilfinningar eru í
spilinu og viðstaddir lýsa
skoðunum sínum á því hver
staðan sé.
Bjartsýni Gleðin var skammvinn hjá stjórnendum REI: Jón Diðrik Jónsson,
Guðmundur Þóroddsson, Björn Ingi Hrafnsson og Haukur Leósson.
»
N1 VERSLANIR
Í AVÖR