Morgunblaðið - 04.11.2007, Page 21
Í HNOTSKURN
» Á Íslandi er bannað aðnýta fósturvísa til
rannsókna.
» Löggjöfin tekur ekki tillittil möguleikanna sem fel-
ast í stofnfrumurannsóknum.
» Núverandi löggjöf vargerð nokkrum árum áður
en fyrst tókst að einangra
stofnfrumur úr fósturvísum
manna.
» Frumvarp árið 2005 tilbreytingar á lögum um
tæknifrjóvgun var ekki
samþykkt.
» Margir binda vonir við aðfrumvarpið verði tekið
upp að nýju á löggjafarþingi
2007-2008 og samþykkt.
anlega hefur það mikinn ávinning í för
með sér ef hægt er að nýta einræktun
í læknisfræðilegum tilgangi við
ígræðslu nýs vefjar þar sem líkami
sjúklings hafnar honum ekki þar sem
vefurinn yrði með hans eigin erfða-
efni. Vísindamenn vinna hörðum
höndum að því að fá frumur til að
sérhæfast í þær frumugerðir sem
hafa skaddast í vefjum og sönnun
þess (proof of principle) er að tekist
hefur með stofnfrumuígræðslu að
linna Parkinson sjúkdómi og sykur-
sýki í dýramódelum.
Siðfræðileg og pólitísk álitamál
Rökfræðilegur ágreiningur er um
siðfræðilegt réttmæti stofnfrumu-
rannsókna þar sem margir benda á að
rangt sé að fórna einu lífi (fósturvísi)
til þess að bjarga öðru. Umræðan um
siðfræðina hefur því teygt sig inn í
pólitíska umræðu þar sem stjórn-
málamenn hafa þurft að taka afstöðu
með eða á móti nýtingu umfram-
fósturvísa til stofnfrumurannsókna.
Tvær áleitnar og siðferðilegar spurn-
ingar krefjast því svara þegar rann-
sóknir á ES frumum eru skoðaðar.
Annarsvegar hvort það sé skylda
okkar að koma í veg fyrir illvíga og
ólæknandi sjúkdóma og hinsvegar
hvenær líf hefjist. Þrátt fyrir að
vísindasamfélagið hafi ekki sett fram
skýrar línur um hvenær líf kviknar
má segja að tilgangurinn helgi meðal-
ið þar sem stofnfrumurannsóknir
geta hugsanlega læknað einstaklinga,
sem glíma við erfiða sjúkdóma.
Hræðslan við að vísindin séu á undan
siðfræðilegri umræðu og þar með sið-
ferðislegri vitund þjóðfélagsins er
skiljanleg þar sem þróun í vísindum
er hröð og erfitt fyrir fólk að hafa
heildstæða yfirsýn. Það er því í raun
hlutverk þjóðþinga að setja lög sem
samræma bæði vísindalegar framfar-
ir og niðurstöður siðferðislegrar um-
ræðu.
Á Íslandi hefur verið nokkuð erfitt
að fá stjórnmálamenn til að taka þátt í
umræðu siðfræðinga og vísinda-
manna um þetta málefni. Það er því
afar brýnt að það náist samstaða sem
fyrst svo að vísindasamfélagið hafi
skýrar leiðbeiningar um hvað sé leyfi-
legt og hvað ekki. Eins og málum er
háttað nú, tekur löggjöfin hér á engan
hátt tillit til möguleikanna sem felast í
stofnfrumurannsóknum. Núverandi
löggjöf var gerð með tilliti til tækni-
frjóvgana árið 1996 eða nokkrum
árum áður en fyrst tókst að einangra
stofnfrumur úr fósturvísum manna
þannig að tími er kominn til að endur-
skoða þau.
Stofnfrumurannsóknir
á Íslandi
Á Íslandi hafa fyrst og fremst verið
stundaðar rannsóknir á vefjastofn-
frumum en nýlega hófust einnig
rannsóknir á ES frumum í mönnum.
Ekki er leyfilegt samkvæmt núgild-
andi lögum að einangra ES frumur úr
íslenskum fósturvísum sem falla til
við glasafrjóvgunarmeðferðir. Hins
vegar veitti vísindasiðanefnd nýlega
leyfi fyrir innflutningi á ES frumu-
línum frá Bandaríkjunum enda er
ekkert í lögum sem bannar með
beinum hætti vinnu við frumulínur
sem þegar eru orðnar til. Heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra skipaði
nefnd í lok árs 2005 til að semja
frumvarp til breytingar á lögum um
tæknifrjóvgun. Í frumvarpinu er gert
ráð fyrir að með upplýstu samþykki
kynfrumugjafa megi nýta umfram
fósturvísa til stofnfrumurannsókna.
Frumvarpið var unnið af fagfólki á
sviði siðfræði, lögfræði, guðfræði og
raunvísinda sem lagt var fyrir í
febrúar 2007. Þrátt fyrir almenna og
jákvæða umfjöllun samþykkti stjórn-
arandstaðan frumvarpið ekki (Frjáls-
lyndi flokkurinn).
Vonir standa til að á löggjafarþingi
2007-2008 verði frumvarpið tekið upp
að nýju og afgreitt þannig að hægt sé
að segja að Ísland hafi tekið afstöðu
til stofnfrumurannsókna hvort sem
það verður samþykkt eða ekki. Ef
afstaða þingmanna reynist á þann
veg að rannsóknirnar verði áfram
óheimilar, mætti draga þá ályktun að
Ísland hefði dregist aftur úr, þrátt
fyrir þann mikla kraft sem býr í
úrvalsliði íslenskra vísindamanna.
Höfundur er líftækninemi á lokaári.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 21
Barnamyndatökur
enn nokkrir tímar lausir fyrir jól
Hverfisgata 50, 101 Reykjavík, sími 552 2690, www.svipmyndir.is
kl.
08
:00
ÁFÖSTUDAGINN