Morgunblaðið - 04.11.2007, Side 27
!
" #
$ % !
"&
'%
()
< 9
, =
> 95
,/
6<
6
9
6<:
"
?2=
#
$#
$$
,< 5
,/
6<
3
"
!
!
Sævar stríðnislega og klípur mann
sinn í síðuna.
Hann kveinkar sér. „Hættu þessu,
Sævar.“
Eru nagladekk nauðsynleg?
„Vendum nú kvæði okkar aðeins í
kross,“ segir Lovísa. „Tölum um
nagladekkin.“
Af svipnum að dæma mætti ætla
að hún væri að tala um hjálpartæki
ástarlífsins – argasta óþarfa.
„Munum að það eru hættuleg efni
í malbikinu sem losna úr læðingi
þegar það tætist upp,“ bætir Lovísa
við.
„Ég verð að vera á nöglum á vet-
urna, annars myndi ég aldrei þora af
stað í hálkunni,“ segir Gyða ákveðin.
„Ég skil þetta sjónarmið mætavel.
Sérstaklega ef fólk er vant að keyra
á nagladekkjum“ segir Geir. „Stað-
reyndin er aftur á móti sú að það er
afar sjaldan hálka á höfuðborg-
arsvæðinu, hvað þá ófærð, og heils-
ársdekk eða fjölkornadekk duga al-
veg prýðilega. Nagladekkin fara
alveg skelfilega með göturnar, leysa
upp malbikið, og valda miklum
skaða í loftslaginu. Við verðum að
fara að hugsa um þetta af fullri al-
vöru.“
„Viltu þá banna nagladekk?“ spyr
Jónatan.
„Já, mér þykir ekkert óeðlilegt að
þau verði bönnuð í Reykjavík og ná-
lægum bæjarfélögum.“
„En hvað ef maður þarf að
skreppa út á land?“ spyr Sævar, full-
ur efasemda.
„Þá skiptirðu bara yfir á nagla.
Mín hugmynd er sú að komið verði
upp stórum dekkjaverkstæðum í út-
jaðri borgarinnar, t.d. í Árbænum og
Mosfellsbæ, og ef fólk þarf að fara út
fyrir bæjarmörkin kemur það bara
við þar og fær nagladekk.“
„Svona Pit stop, eins og í Formúl-
unni,“ segir Loftur. „Myndi Gunn-
laugur Rögnvaldsson kannski reka
sjoppuna?“
Óvæntur liðsstyrkur
„Ertu brjálaður maður, hver held-
urðu að tími að skipta um dekk í
hvert skipti sem hann bregður sér út
fyrir bæjarmörkin?“ spyr Jónatan.
„Það er einmitt málið. Ég sé alveg
fyrir mér að hið opinbera myndi
annast þennan rekstur og þjónustan
yrði ókeypis.“
Menn stara á Geir eins og hann sé
geimvera. Allir nema Lovísa sem
kinkar kankvís kolli. Ánægð með
sinn mann.
„Láttu ekki svona, Geir,“ segir
Loftur.
„Í alvöru talað. Hversu miklum
fjármunum haldið þið að borgin tapi
á nagladekkjunum á veturna? Hald-
ið þið að kostnaður við ókeypis
dekkjaþjónustu af þessu tagi yrði
meiri?“ spyr Lovísa.
„Örugglega ekki,“ segir Ísafold
eftir stutta umhugsun og gengur
skyndilega í lið með Geir og Lovísu
þeim til ómældrar ánægju. Loftur
sér hana sem snöggvast fyrir sér úti
að ganga með þeim – í eins íþrótta-
galla. Honum rennur kalt vatn milli
skinns og hörunds.
Hópurinn var illa undir útspil
Geirs búinn en þegar málið er rætt
betur og sett í samhengi vekur það
menn til umhugsunar. Það skyldi þó
aldrei vera?
Geir og Lovísa eru augljóslega
betur undirbúin en aðrir, enda fund-
arstjórar, en þegar hinir hætta að
svekkja sig á því að íslenskum sið
kemur í ljós að þau eru ef til vill ekki
svo vitlaus. Eða hvað?
London eða Hveragerði?
Tíminn flýgur en ekki er hægt að
slá botninn í fundinn fyrr en búið er
að ræða samgöngur í lofti. Flugvélar
eru nefnilega síst til þess fallnar að
draga úr gróðurhúsalofttegundum.
Og loftferðum hefur fjölgað ískyggi-
lega á umliðnum áratugum.
„Á nú að hafa af manni vinnuna
líka?“ þrumar Sváfnir. „Þið viljið
sennilega banna flug.“
Hann beinir orðum sínum til
Lovísu og Geirs.
„Það viljum við ekki. Við veltum
því hins vegar fyrir okkur hvort við
þurfum að fljúga eins mikið og við
gerum,“ svarar Lovísa.
„Við vitum að það er tíska að
ferðast til útlanda, gera flestar ís-
lenskar fjölskyldur það ekki einu
sinni til tvisvar á ári?“ heldur Geir
áfram. „En er það alveg nauðsyn-
legt? Kæmi til álita að ferðast meira
innanlands í staðinn?“
Fundarmenn stara á hann tómum
augum. „Innanlands?“ spyr Gyða
eftir nokkra þögn. Kemur orðinu
greinilega ekki fyrir sig.
Af fenginni reynslu átta menn sig
á því að Lovísa og Geir eru ekki að
grínast. Þvert á móti.
„Við Ísafold ætlum að fara í helg-
arferð til London eftir nokkrar vik-
ur. Eigum við þá að sleppa henni?“
spyr Loftur.
„Það er auðvitað ykkar val. Við er-
um bara að biðja ykkur um að
staldra við og skoða hvort valkostir
séu fyrir hendi. Kæmi til dæmis til
álita að fara til Hveragerðis í stað-
inn?“ spyr Lovísa í fullri alvöru.
„Hveragerðis!!?“
Nú er Lofti öllum lokið. Þetta fólk
er ekki með öllum mjalla.
„West Ham er ekki í Hveragerði,
er það?“ spyr Ísafold sem hefur
lúmskt gaman af þessari umræðu.
„Það er liðið hans Lofts.“
„Nei,“ flýtir Jónatan sér að segja,
„en íþróttafélagið Hamar er þar. Er
það ekki næsti bær við, gælunafn
West Ham er Hamrarnir. Ekki satt,
Loftur?“
Lofti er ekki skemmt. Hann tekur
sér ímyndaðan hamar í hönd og lem-
ur Jónatan í hausinn.
Flugvélin fer samt
„Segjum sem svo að við hættum
við ferðina til London,“ segir Ísafold
og beinir umræðunni inn á alvarlegri
brautir. „Vélin fer samt sem áður á
áætlun og losar alveg jafnmikið af
gróðurhúsalofttegundum, burtséð
frá því hvort við erum um borð eða
ekki.“
„Ippon,“ hrópar Loftur upp yfir
sig og þakkar almættinu fyrir að
breyta eiginkonu hans eitt augnablik
í Vernharð Þorleifsson.
„Það er alveg rétt,“ segir Geir
brosandi. „Ef allir hugsuðu svona
myndi flugferðum aldrei fækka. En
eins og við þekkjum úr þessu átaki
okkar þá gerir margt smátt eitt stórt.
Ef þúsund Íslendingar myndu á einu
ári ákveða að fara frekar til Hvera-
gerðis en London myndi flugferðum
frá landinu mögulega fækka.“
„Hvað yrði þá um Sváfni?“ spyr
Danni stríðnislega.
„Hann fengi kannski vinnu sem
sundlaugarvörður í Hveragerði,“
svarar Sævar að bragði. Þeir hlæja.
Með þeim orðum flauta Lovísa og
Geir fundinn af. Hópurinn dreifist á
ný í allar áttir og enginn vafi leikur á
því að skoðanir eru skiptar. En fólk
hefur alltént fengið feikinóg að
hugsa um. Er þá ekki markmiðinu
náð? A.m.k. í bili …
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 27
Í næstu viku höldum við áfram
að skoða samgöngumálin en
Loftur og Ísafold taka þá
ákvörðun um að selja báða
bensínbílana sína og kaupa
sér visthæfan bíl í staðinn.
Við kíkjum m.a. á valkostina.
Út í loftið | 5. grein
» Haltu dagbók yfir allar ferðir fjölskyldunnar sem farnar eru á heilliviku.
» Útbúðu kort sem sýnir þær leiðir sem þið farið daglega; merktu inná það verslanir og þjónustustofnanir sem þið notið.
» Bættu strætisvagnaleiðum og hjólreiðastígum inn á kortið.» Fáðu þér leiðabók, þær fást á öllum skiptistöðvum Strætó bs., ogkynntu þér kostina frá þínu hverfi að áfangastað.
» Kenndu barninu þínu að nota strætó. Í því getur falist frelsi, bæðifyrir þig og barnið.
» Berðu hiklaust saman tímann sem það tekur þig að fara meðstrætisvagni og tímann sem það tekur að ferðast með einkabíl.
Hafðu einnig í huga umhverfislegan ávinning og ekki síður þann sparn-
að sem heimilið getur haft af breyttum ferðamáta.
» Hafðu í huga að gangan á biðstöðina getur einmitt verið sú hreyf-ing sem þig hefur alltaf vantað.
» Næst þegar þú grípur bíllyklana til að skjótast í stutta óundirbúna ferð skaltu hugleiða hvort
ekki sé hægt að fara hana frekar gangandi eða
hjólandi, eða sleppa henni alveg.
» Fjárfestu í góðu hjóli.
Úr brunni Heimsálfsins
E
f við skoðum hve mikið eitt ál-
ver losar af gróðurhúsa-
lofttegundum samanborið við
bíla kemur í ljós að það þarf
mjög marga bíla til að menga jafn-
mikið og eitt álver. Á Íslandi nota ál-
ver rafmagn frá endurnýjanlegum
orkugjöfum og því losa þau ekki
gróðurhúsalofttegundir út í andrúms-
loftið vegna bruna kola og olíu eins
og bílarnir. Hinsvegar verða til kol-
díoxíð (CO2) og svokölluð PFC-efni í
efnaferlum við sjálfa framleiðsluna.
Ef við tökum Fjarðaál á Reyðarfirði
sem dæmi, þá er gert ráð fyrir að á
hverju ári losi álverið 530 þúsund
tonn af CO2. Þá mun álverið losa
sem samsvarar 34.000 tonnum
PFC-efna, þegar búið er að umreikna
magn PFC yfir í svokölluð CO2-ígildi.
Ástæða þess að það þarf að um-
reikna magn PFC yfir í CO2-ígildi er sú
að PFC er margfalt virkari gróð-
urhúsalofttegund en koldíoxíð. Þess
vegna þarf að margfalda magn PFC-
efna með ákveðnum stuðli til að fá
tölu sem er samanburðarhæf við los-
un koldíoxíðs. Samtals má því búast
við að Fjarðaál losi 564.000 tonn
CO2-ígilda á ári, þegar búið er að
leggja saman losun CO2 og PFC-efna.
Hversu marga bíla skyldi þurfa til
að losa sama magn koldíoxíðs út í
andrúmsloftið á hverju ári?
Ef miðað er við meðalstóran fólks-
bíl sem eyðir 9,5 l/100 km af bens-
íni og meðalkeyrsla á ári er 15.000
km, þá er losun hans 3.277,5 kg af
CO2 á ári. Því þarf um 172.000 slíka
bíla til að losa sama magn af CO2 á
hverju ári og Fjarðaál mun gera.
Þetta eru álíka margir bílar og allir
fólksbílar á Íslandi.
Heimild: Vísindavefurinn.
Menga bílar meira en álver?
W W W. I C E L A N DA I R . I S
Ferðaávísun gildir
HUGURINN BER ÞIG
AÐEINS HÁLFA LEIÐ
Það er stutt
til Manchester
og jólanna
SPENNANDI TILBOÐSVERÐ
FRÁ 39.900* KR. Á MANN
Í FJÓRAR NÆTUR
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
3
97
33
10
/0
7
* Innifalið: Flug fram og til baka, flugvallarskattar
og gisting í 4 nætur á Thistle Manchester Hotel með morgunverði.
Prófaðu eitthvað nýtt fyrir jólin. Jólaskapið
í Manchester gerir þessa líflegu borg ennþá
skemmtilegri. Það er ensk hátíðarstemning á
pöbbunum, fjör í tónlistinni, góður matur
á fyrsta flokks veitingastöðum og hagstætt
að líta inn í verslunarhúsin og búðirnar.
Jólamarkaðir í Manchester eru á fjórum stöðum
í miðborginni, á Albert Square og St Ann's Square
og í Exchange Street, New Cathedral Street,
Brazennose Street.
Hugsaðu gott til Manchester og jólanna.
Nýttu þér þetta einstaka tilboð sem gildir
á tilteknum brottfarardögum
í nóvember og desember.
TAKMARKAÐ SÆTAFRAMBOÐ