Morgunblaðið - 04.11.2007, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 31
Hann gerði það ekki endasleppt
þetta árið því um sumarið stofnaði
hann hljómsveitina Derek and The
Dominos, sem gaf út plötuna Layla
and Other Assorted Love Songs og
snerist fyrst og fremst um óend-
urgoldna ást Claptons á eiginkonu
bítilsins Georges Harrisons, Patti
Boyd. Hljómsveitin leystist upp eft-
ir hljómleikaferð um Bandaríkin og
misheppnaða tilraun til að gefa út
aðra plötu.
Tilfinningaflækjur
Þótt Clapton hefði haldið því orð-
spori að vera talinn besti gítarleik-
arinn í gjörvöllu Bretaveldi og þótt
víðar væri leitað, fékk Layla og hinir
ýmsu ástarsöngvar ömurlega dóma
og verulega fór að halla undan fæti
hjá okkar manni. Kaótískt og sukk-
samt líferni höfðu tekið sinn toll og
næstu þrjú árin var hann heltekinn
af heróínfíkn sinni og þráhyggju-
kenndri ást á Patti Boyd. Og þá er
eflaust komið að safaríkasta hluta
bókarinnar að margra mati, þeim
kafla í einkalífi hans, sem er á fárra
vitorði.
Hafa ber í huga að á sjöunda ára-
tugnum tók unga kynslóðin að
mæra frjálsar ástir og kynlíf og not-
aði dóp í meira mæli en áður hafði
þekkst, sérstaklega þeir sem voru í
hringiðu tónlistar- og tískubrans-
ans. Allt var þetta nóg til að æra
óstöðugan. Clapton var þar engin
undantekning. Hann lýsir því hvern-
ig hljómsveitarmeðlimir voru um-
kringdir kvenfólki þegar hann fór
fyrst að túra um Bretland. „ . . . sem
þýddi að kynlíf mitt var býsna
óvenjulegt; pikkandi upp hverja þá
stelpu, sem hendi var næst,“ segir
hann og bætir við að oftast hafi
þetta verið saklaust káf, sjaldan far-
ið alla leið.
Á Cream tímabilinu bjó Clapton
við King’s Road í London og þangað
heimsótti George Harrison hann oft
á leiðinni heim til sín. Þeir spiluðu
saman, stundum fengu þeir sér sýru
og smám saman tókst með þeim vin-
átta. Þegar Clapton, sem í fyrsta
skipti á ævinni átti nóga peninga,
keypti glæsilegt hús, Hurtwood í
Surrey, nálægt æskuslóðum sínum
og þeim Harrison og Boyd, urðu
þeir hálfgerðir heimagangar hvor
hjá öðrum.
Clapton segir að þau hjónin hafi
oft reynt að koma honum á séns, en
af sérstökum ástæðum orðið lítið
ágengt, enda var hann orðinn gagn-
tekinn af ást á Boyd. „Þótt ég hafi í
byrjun verið drifinn áfram af losta
og öfund, breyttist það um leið og ég
kynntist henni,“ segir hann og að
honum hafi þótt hún fegurst kvenna.
Hann áttaði sig á að annað hvort
yrði hann að hætta að hitta þau
George eða gefa tilfinningum sínum
lausan tauminn og tjá Boyd ást sína.
Svo varð ekki að sinni, því Alice
Ormsby-Gore, 16 ára hippaleg yf-
irstéttarstúlka, og undrafögur, flutt-
ist inn til hans rétt eins og af sjálfu
sér nokkrum dögum eftir að þau
fóru fyrst út saman. Honum þótti sá
ráðahagur frá byrjun afar þving-
aður og óþægilegur enda var „hjarta
hans og flest annað hjá Pattie“.
Ekki einungis hafði hann áhyggj-
ur af aldursmuni þeirra, en hann var
24 ára, heldur leist honum ekki á
blikuna þegar Alice sagði honum að
hún væri hrein mey. Að vísu skipti
það litlu máli því samband þeirra
var meira eins og systkina, þótt
Clapton segist í bókinni hafa vonað
að það næði að blómstra sem eðli-
legt samband karls og konu. Samt
var hann fjarri því að vera við eina
fjölina felldur.
Girntist konu vinar síns
Pattie Boyd vék ekki úr huga
hans, hann bara réð ekki við sig og
gat þar af leiðandi ekki litið á sam-
bönd sín við konur öðruvísi en tíma-
bundin.
Þótt hann teldi sig ekki eiga mikla
möguleika, var hann algjörlega fast-
ur í því að hann gæti aldrei elskað
aðra konu eins mikið og Pattie. Þeg-
ar slitnaði tímabundið uppúr með
þeim Alice 1970 tók hann upp sam-
band við Paulu, systur Pattie, hún
fluttist inn til hans og hann taldi sér
trú um að fyrirkomulagið færði
hann nær draumadísinni. Sú varð
enda raunin í bókstaflegri merkingu
þegar Boyd og Harrison keyptu sér
annað hús, sem var enn nær Clap-
ton en það fyrra. Gagnkvæmar
heimsóknir urðu tíðari og Clapton
vílaði ekki fyrir sér að fara á bak við
Harrison og spúsu sína og daðra við
Pattie.
Nótt eina hringdi hann svo í hana
og játaði ást sína. Þrátt fyrir fyr-
irstöðu eins og eitt stykki hjónaband
samþykkti Pattie að hitta hann og
ræða málin. Fundi þeirra í það sinn-
ið lauk með kossum og keleríi – og
vonglöðum hjónaspilli.
Næst hittust þau fyrir einskæra
tilviljun og þá gekk keleríð lengra
en svo að aftur yrði snúið. Clapton
glutraði síðan út úr sér við Harrison
að hann væri ástfanginn af konu
hans. Í minningunni voru samræður
þeirra tvímenninga í kjölfarið á
mörkum fáránleikans. Þótt særður
væri, brást Harrison þó ekki verr
við en svo að skipta sér ekki af þótt
Clapton og Pattie hittust annað
slagið. Bænir hans og fortölur
dugðu ekki til að hún yfirgæfi bónda
sinn og ekki haggaðist hún heldur
þótt hann tileinkaði henni Laylu og
hina ástarsöngvana. Með illu eða
góðu ætlaði Clapton að ná Pattie til
sín og greip á endanum til þess ör-
þrifaráðs að hóta henni: Ef hún færi
ekki frá George, ætlaði hann að
sökkva sér í heróínneyslu. Viðbrögð
Pattiar voru dauflegt bros.
Sannleikurinn var sá að Clapton
hafði þá neytt heróíns um allnokk-
urt skeið. Hann var orðinn fíkill án
þess að gera sér grein fyrir því og
hótanirnar viðhafði hann af tómum
barnaskap.
Heróín og hörmungar
Hann hafði neytt heróíns aðra
hvora viku í um það bil ár ásamt
kókaíni og öðrum fíkniefnum og
áfengi og taldi sig hafa fullkomna
stjórn á neyslunni. Síðan fór hann
að taka heróín einu sinni í viku,
»Eftir eins árs sjálfskip-
aða einangrun í heróín-
vímu heima hjá sér, var
það enginn annar en
George Harrison, sem
sumarið 1971 reif hann
upp til að spila með sér í
New York á fjáröflunar-
tónleikum fyrir hungruð
börn í Bangladesh.
Snillingur Clapton, einn helsti
gítarsnillingur síðari tíma.
Jól barnanna
Opið 10:00-20:00 virka daga │ Laugardaga 10:00-18:00 │ Sunnudaga 12:00-18:00 │ www.IKEA.is
495,-
ISIG púði, hjartalaga, ýmsir litir
9
BY GA kubbasett marglitað
KLAPPAR IGELKOTT leikfang í bandi
marglitað 795,-
KLAPPAR GUBBE kubbasett
marglitað 995,-
KLAPPAR ISBJÖRN mjúkdýr
H60 cm hvítt 1.290,-
KLAPPAR FISK leikfang í bandi
appelsínugult 795,-
KLAPPAR PANDA
mjúkdýr H32 cm 695,-
KLAPPAR IGELKOTT mjúkdýr
2 stk. brúnt 695,-
KLAPPAR ELEFANT
mjúkdýr H60 cm 1.790,-
KLAPPAR BOLL mjúkir boltar
ýmsir litir 95,-/stk.
MULA leikfang
marglitað/beyki 995,-