Morgunblaðið - 04.11.2007, Blaðsíða 37
mjög ósáttur við þetta, fólk grét og
var fúlt út í bæði stelpuna og tækni-
manninn og þrátt fyrir tilraunir hóps-
ins til að láta þetta ekki skemma
stemninguna þá skapaðist aldrei sátt
um hvernig þetta fór. „Þessi dýnamík
kemur upp,“ segir Hrafnhildur og á
við að erfiðleikar og átök í sam-
skiptum komi upp, greinilega í hvaða
aðstæðum sem er – líka í tilbúnum
aðstæðum sem þessum. Hins vegar
sé þetta einmitt það sem áhorfendur
raunveruleikaþátta vilji sjá, mann-
legur breyskleiki og dramatík. „En
fyrir mig sem áhorfanda, og ég gat
auðvitað ekki skipt mér af, var mjög
sárt að horfa á eftir stráknum sem
þurfti að fara í land og þetta var auð-
vitað hálfgerð fórn í þágu þáttarins.
Þetta var alveg frábær strákur sem
þurfti að yfirgefa hópinn.“
Mikil ábyrgð
Hrafnhildur, þessi þaulreyndi
kvikmyndagerðarmaður, segist hafa
hlotið eldskírn í skjótri ákvarð-
anatöku á þessum stutta tíma sem
þau eyddu í upptökur og vinnslu. „Við
þurftum að bregðast við lífinu á bátn-
um, klippa og vinna efnið svo til jafn-
óðum. Það var nánast enginn tími til
að dvelja við hlutina og velta þeim
sérstaklega fyrir sér. Þegar ákvörðun
var tekin þurfti að standa við hana.“
Hún tekur dæmi um óþægilegan og
óvæntan atburð sem átti sér stað. Um
borð var tyrkneskur kokkur sem var
mjög fínn í alla staði en af honum
náðust myndir þar sem hann var að
gægjast inn í káetur þátttakenda.
Þetta var atburður sem framleið-
endur raunveruleikaþátta hefðu lík-
legast flestir tekið fagnandi. Hrafn-
hildur segist hins vegar hafa gefið sér
óvenjulangan tíma í að hugsa og ræða
hvort ætti að fara með þetta í þátta-
gerðina því hún taldi þetta geta kom-
ið ástæðulausu óorði á Tyrki. Eftir
vangaveltur ákváðu þau að leyfa
þessu ekki að fara með. Þarna var
einstaklingur í mjög sérstökum að-
stæðum og hann engan veginn verið
fulltrúi heillar þjóðar. Hún bendir á
að erlendis hefði þó líklegast verið
gert mjög mikið úr gægjum kokksins,
að hann hafi verið staðinn að verki við
ósæmilegt athæfi.
… og ég sagði þvert nei
Inni í káetum og úti um allan bát
voru myndavélar og þátttakendum
gert það ljóst strax í upphafi. Hrafn-
hildur segir að það hefði vel verið
hægt að sýna mun meira en gert var
en hún hafi einfaldlega sagt þvert nei.
Hún hafi leitast við að sýna sam-
skiptin og dýnamíkina á milli þátttak-
enda og það sem þeir voru að fást við,
en myndir af einhverjum að klæða sig
úr eða öðru sem kæmi sér illa fyrir þá
voru ekki notaðar. „Okkur kom bara
ekki til hugar að afhjúpa fólk al-
gjörlega.“
Ingvar Ágúst Þórisson var einn
þeirra myndatökumanna sem eyddi
hvað lengstum tíma á báti þátttak-
enda og hafði þar af leiðandi góða yf-
irsýn á það sem gerðist um borð.
Hann tekur undir orð Hrafnhildar og
segir: „Það hefði verið auðvelt að
gera þetta mjög krassandi og búa til
efni sem hefði valdið eftirsjá hjá þátt-
takendum síðar meir, en það var ein-
faldlega ekki markmiðið. Traustið á
milli okkar allra var algjört.“
Raunveruleika hvað?
Nafngiftina – raunveruleika-
sjónvarp – segist Hrafnhildur telja
söluaðferð. Þetta sé raunveruleiki
upp að ákveðnu marki, aðstæðurnar
séu vissulega tilbúnar en þátttak-
endur fái ekki sjálfir handrit eða for-
skrifuð hlutverk. Notast sé við grófan
ramma og ekki hægt að sjá fyrir hvað
gerist, líkt og þau upplifðu úti fyrir
ströndum Tyrklands. Myndavélin sé
þó aldrei hlutlaus og hún bendir á að í
upphafi Ástarfleysins hafi þátttak-
endur verið mjög meðvitaðir um
myndavélarnar og auðvitað hafi ein-
hverjir sett sjálfa sig svolítið á svið.
En eftir því sem líða tók á samveruna
og þátttakendur voru orðnir vanir
vélum og tækniliði úti um allt
gleymdu þeir sér frekar og raunveru-
legar persónur þeirra komu betur í
ljós. „Það er ekki hægt að ná „eðlileg-
um“ myndum af fólki nema með fal-
inni myndavél. Um leið og maður set-
ur myndavél inn í einhverjar
aðstæður, þá er maður búinn að
breyta raunveruleikanum,“ segir
Hrafnhildur og bætir við að þetta
hafi verið eitt það skemmtilegasta og
óvenjulegasta sem hún hafi tekist á
við.
Heimildamynd eftir pöntun
Framleiðsluteymið var hópur af
mjög reyndu fólki sem hafði starfað
saman áður og var við þessar sér-
stöku aðstæður mjög samrýmt.
Stjórnandi þáttarins var Hreiðar
Júlíusson og yfirmyndatökumeistari
var Þorvarður Björgúlfsson. Þetta
þriggja manna teymi vann mjög náið
saman og flestar ákvarðanirnar tóku
þau í sameiningu. „Það undarlega
sem gerðist var að mörk framleið-
anda og stjórnanda þurrkuðust nán-
ast út en venjulega eru þau skýr,
sem og verksvið framleiðanda og
stjórnanda. Við Hreiðar urðum að
tvíhöfða risa í framleiðslu þáttanna,“
segir Hrafnhildur brosandi og held-
ur áfram: „Hugsanlega má skýra
þetta með naumt skömmtuðu fjár-
magni eins og íslenskir framleið-
endur standa oft frammi fyrir. Þá
ganga þeir sem eru yfir framleiðsl-
unni í fleiri en eitt starf og þegar
þess þurfti þá mynduðum bæði ég og
Hreiðar, sem var auðvitað bara stór-
skemmtilegt enda erum við bæði al-
vön myndatökum.“ Hún segist sann-
færð um að ef aðrir einstaklingar
hefðu verið fengnir í verkið hefði út-
koman verið allt önnur. „Framleið-
andinn hefur líklega mest áhrif á það
bragð sem áhorfendur finna af þætt-
inum,“ segir hún og bætir við að
kannski komi það ekki á óvart að í
þetta skiptið hafi útkoman verið
meira í ætt við heimildamynd eftir
pöntun en raunveruleikasjónvarp
eftir uppskrift.
Í HNOTSKURN
»Svíar urðu fyrstir til aðframleiða raunveru-
leikaþætti sem nefndust Ex-
pedition Robinson árið 1996.
Sjónvarpsstöðin CBS fetaði í
fótspor þeirra og hóf fram-
leiðslu á Survivor. Báðir þætt-
irnir snúast um að lifa af í
óbyggðum.
»Um 400 manns sóttu um aðkomast um borð í Ástarf-
leyið og taka þátt í íslenskum
raunveruleikaþætti þar sem
markmiðið var að „búa til
pör“. Fjórtán einstaklingar
voru valdir til þátttöku.
» Í upphafi var stuðst viðhandrit. Því var svo fleygt,
stjórnendur sáu tækifæri til að
leika af fingrum fram og
fylgdu atburðarásinni eftir án
þess að stýra henni mikið.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 37
Við höfum allt sem þarf til gæludýrahalds, hvort sem er fyrir hunda, ketti,
fiska, nagdýr eða fugla. Fljótlega verður síðan opnuð deild fyrir
hestamanninn.
Við leggjum áherslu á gæðafóður frá Eukanuba og Iams ásamt ýmsar
sérvörur fyrir hunda og ketti eins og Puppyangel hundaföt.
Í tilefni af opnun verslunarinnar bjóðum við
50% afslátt af sérfóðri frá EUKANUBA og
20% afslátt af öðru fóðri. Tilboðið gildir út
nóvembermánuð.
Eigendur gæludýra vita nákvæmlega
hvað við erum að tala um.
Ný og glæsileg gæludýraverslun að Fiskislóð 18.
Fiskislóð 18 · 101 Reykjavík · Sími 552 7400
Afgreiðslutími er virka daga frá 10.00 - 18.00 og á laugardögum frá 10.00 - 16.00
H
en
na
r h
át
ig
n
-
w
w
w
.h
at
ig
n.
is
Mjá, voff, tíst,
hnegg, blúbb...
mbl.is
ókeypis
smáauglýsingar