Morgunblaðið - 04.11.2007, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 41
mestu leyti úr vösum bandarískra skattborgara.
Starfsemi Blackwater komst fyrst í hámæli
þegar fjórir málaliðar fyrirtækisins voru drepnir í
Fallujah og lík þeirra voru dregin um götur bæj-
arins. Í kjölfarið réðist Bandaríkjaher á Fallujah
með skelfilegum afleiðingum. Aðstandendur
mannanna fjögurra hafa farið í mál við Blackwa-
ter og segja að þeir hafi verið sendir inn í Fallujah
án viðeigandi stuðnings. Einn aðstandendanna
kvartaði undan því að málaliðarnir væru ekki hluti
af hernum og bæru enga ábyrgð eða þyrftu að
standa reikningsskil gerða sinna.
Blackwater hefur ekki aðeins getið sér orð fyrir
að gæta fólks. Á undanförnum vikum hafa einnig
komið fram ásakanir um að vopn, sem fyrirtækið
kom með til Íraks, hafi endað í höndum kúrdísku
skæruliðahreyfingarinnar PKK. Hreyfingin hefur
bækistöðvar í Írak og hefur framið hryðjuverk í
Tyrklandi. Nú ríkir mikil spenna á landamærum
Tyrklands og Íraks vegna PKK. Bandaríska utan-
ríkisráðuneytið hefur skilgreint PKK sem hryðju-
verkasamtök en það verst allra svara um málið.
Þó er Blackwater á mála hjá ráðuneytinu.
Bandaríkjastjórn treystir ekki bara á málaliða í
Írak. Þeir eru einnig á ferðinni í Afganistan. Sú
ákvörðun að kaupa þjónustu málaliða vekur
margar spurningar. Hermaður er í þjónustu föð-
urlandsins, málaliðinn gengur fyrir peningum. Nú
er svo komið að tiltekin þekking er ekki lengur
fyrir hendi hjá Bandaríkjaher í sumum tilfellum.
Sérsveitir þeirra æfa til dæmis í aðstöðu Blackwa-
ter sem að einhverju leyti er betri en sú sem her-
inn býr yfir.
Andúð og tortryggni Íraka
A
ðfarir og framferði málaliðanna í
Írak er ein ástæðan fyrir því
hversu illa þokkaðir Bandaríkja-
menn eru í landinu. Það er ekki að
furða að staða þeirra skuli vera
gagnrýnd. Það myndi verða uppi
fótur og fit ef öryggisverðir erlendra erindreka
gætu sveiflað skotvopnum og skotið mann og ann-
an í Reykjavík án þess að íslensk stjórnvöld gætu
sótt þá til ábyrgðar. Talsmenn Blackwater hrósa
sér af því að enginn þeirra, sem þeir eigi að
vernda hafi verið myrtur eða særst alvarlega.
Hins vegar hafi 30 liðsmenn fyrirtækisins í Afgan-
istan og Írak verið drepnir. Ekki fylgir sögunni
hversu mörg mannslíf þeir hafi á samviskunni.
Skráin yfir verk þeirra sýnir hins vegar að í þeirra
augum eru mannslíf mismunandi merkileg. Mála-
liðarnir hugsa sig ekki um áður en þeir skjóta og
markmiðið með því að bregðast við nánast án þess
að hugsa er að skjóta hinum almenna borgara
skelk í bringu, sýna hvað bíði þeirra, sem hegða
sér með ógnandi hætti eða gera sig seka um að
vera fyrir. Fólk er varnarlaust fyrir árásum
þeirra og á engan rétt, getur ekki sótt þá til saka
eða knúið fram skaðabætur. Þannig lýsir Salih
Aziz, sem vinnur fyrir írösk mannréttindasamtök
í Bagdad, því hvernig málaliðarnir koma honum
fyrir sjónir: „Alveg frá því að hernám Bandaríkja-
manna í Írak hófst hefur mátt sjá undarlega útlít-
andi hópa af mönnum með sólgleraugu í bryn-
vörðum bílum á götum Bagdad, sem hafa drepið
alla sem hafa nálgast þá. Þeir urðu fyrstir til að
vekja hatur Íraka.“ Stjórn Íraks nýtur ekki mikils
trausts fyrir og þetta mál grefur enn undan henni.
Klerkurinn Moqtada al-Sadr er einn þeirra, sem
hefur skorað á stjórnvöld að vísa Blackwater úr
landi. Ef það gerist ekki mun það staðfesta end-
anlega í huga margra Íraka að stjórn Malikis sé
einungis strengjabrúða Bandaríkjamanna, eins og
Jeremy Scahill, höfundur bókarinnar um
Blackwater, bendir á í grein í tímaritinu The Na-
tion.
Írak á eftir að verða eitt helsta málið í kosn-
ingabaráttunni, sem nú fer fram í Bandaríkjun-
um. Í hópi frambjóðenda bæði demókrata og
repúblikana eru skiptar skoðanir um það hvenær
og hvernig eigi að ljúka hersetunni í Írak. Það er
hins vegar engin spurning hvað Írakar vilja. Í
könnun sem var gerð fimm mánuðum eftir innrás-
ina kom í ljós að tveir þriðju hlutar írösku þjóð-
arinnar vildu að Bandaríkjamenn færu. Sam-
kvæmt könnun, sem var gerð í september, þegar
hálft ár var liðið frá því að Bandaríkjamenn hertu
aðgerðir til að draga úr ofbeldi, vill næstum helm-
ingur Íraka að Bandaríkjaher verði tafarlaust
kvaddur á brott, en 34%, flestir Kúrdar, vildu að
Bandaríkjamenn yrðu um kyrrt þar til öryggi
hefði verið komið á. 44% síta vildu að Bandaríkja-
menn færu strax og 72% súnníta. 57% aðspurðra
sögðu að ofbeldi á hendur bandarískum hermönn-
um væri réttlætanlegt.
George Bush hefur sagt að fari Bandaríkja-
menn nú þegar bjóði það blóðbaði heim. Margir
eru sammála um að þá fyrst muni blóðsúthelling-
arnar hefjast. En það sjónarmið hefur einnig
komið fram að Bandaríkjamenn ali á sundrungu í
Írak með því að hamra stöðugt á því sem að-
greinir þá hópa sem búa í landinu. Aðgreiningin á
milli súnníta og síta eigi sér ekki rætur í sögunni
og ekki beri að áfellast alla súnníta fyrir að Sadd-
am Hussein hafi verið úr þeirra röðum. Með öðr-
um orðum sé það misskilningur að líta svo á að í
tíð Saddams hafi súnnítar drottnað yfir sítum og
Kúrdum. Saddam hafi einfaldlega verið harðstjóri
og stjórnarfar hans hafi bitnað á írösku þjóðinni
allri, Kúrdum, sítum og súnnítum. Bandaríkja-
menn geta heldur ekki litið fram hjá því að borg-
arastyrjöldin í landinu beinist ekki síst að þeim
sjálfum. Þeir skapi áreiti og eftir því sem þeir og
útsendarar þeirra – liðsmenn fyrirtækja á borð
við Blackwater – sýna meiri yfirgang, þeim mun
erfiðara verður fyrir þá að skapa forsendur til
eðlilegs lífs í Írak.
Bandarísk stjórnvöld segja nú að starfsemi
málaliðafyrirtækjanna muni verða háð auknu eft-
irliti og mun koma í hlut varnarmálaráðuneytisins
að sjá um það. Hingað til hafa málaliðarnir verið
gagnrýndir fyrir skeytingarleysi. Bílalestir þeirra
rjúki áfram, nemi aldrei staðar og aki á allt sem
fyrir verði. Bandarískir sérfræðingar vona að það
verði til þess að málaliðarnir neyðist til að sýna
meiri aga. Bandaríkjamenn sjá hins vegar ekki
fram á að komast af án málaliðanna ætli þeir að
veita embættismönnum sínum viðhlítandi vernd.
Bandarískur hernaðarrekstur er á gráu svæði og
framferði liðsmanna Blackwater sýnir að þetta
fyrirkomulag er ávísun á vandræði. Verktakafyr-
irkomulagið kann að henta á ýmsum sviðum, en
það er hæpið á átakasvæðum. Forsprakkar fyr-
irtækja á borð við Blackwater líta hins vegar svo á
að þeirra tími sé rétt að byrja. Þeir hafi mannskap
til flóknari verkefna og gætu til dæmis tekið að
sér friðargæslu á stöðum á borð við Darfur. Ef
enginn býður betur.
» „Alveg frá því að hernám Bandaríkjamanna í Írakhófst hefur mátt sjá undarlega útlítandi hópa af
mönnum með sólgleraugu í brynvörðum bílum á götum
Bagdad sem hafa drepið alla sem hafa nálgast þá. Þeir
urðu fyrstir til að vekja hatur Íraka.“
rbréf
Reuters
Fórnarlamb Kona stendur við hlið ættingja, sem særðist í skotárás öryggisvarða á vegum málaliðafyrirtækisins Blackwater í Bagdad. 17 létust í árásinni, sem allt bendir til að hafi verið tilhæfulaus.