Morgunblaðið - 04.11.2007, Page 46
46 SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
UMRÆÐA um lyfjaverð kemur
reglulega upp á Íslandi og er oft
minnst á óeðlilega hátt verð fyrir
þessa nauðsynjahluti.
Ráðherrar síga í öxlum
og verða þungbúnir ef
þetta mál kemur upp.
Hins vegar er það stað-
reynd, eins og margar
kannanir sýna, að verð
á lyfjum hér er senni-
lega það hæsta sem
þekkist. Raunar furðu-
legt að greiða himinháa
upphæð hér fyrir lyf og
sömu lyfin fást í apótek-
um erlendis fyrir ein-
hverja smáaura.
Á Íslandi standa tvö
fyrirtæki að allri smá-
sölu lyfja og hafa þau dreift apótek-
um sínum um allt land. Að vísu eru til
stakir lyfsalar, sem af þrautseigju
halda sínu og bjóða yfirleitt betra
verð en þekkist hjá lyfsöluhringj-
unum. Ótrúlegt að þjóðin sem losaði
sig úr einokun Danaveldis snemma á
20. öld skuli láta bjóða sér innlenda
einokun í staðinn, hvort sem það eru
lyf eða matvörur. Þekkt dæmi eru
sýklalyf og sveppalyf. TR nið-
urgreiðir ekki þessa flokka. Fokdýr
lyf, sem geta kostað öryrkja eða líf-
eyrisþega allt að sex mánaða tekjur.
Vitiborið fólk sér að þetta er öllum of-
viða, nema vera í hálaunaflokki.
En kannski eru bjartari tímar
framundan.
Fyrir nokkrum dögum var boðað til
fundar af heilbrigðisráðherra sem
virðist hafa ýmsar lausnir í hendi.
Meðal annarra var sú snjalla hugmynd
um samnorrænan lyfja-
markað, hugmynd sem
Baldur Ágústsson viðr-
aði fyrir alllöngu á ann-
ars ágætri vefsíðu sinni
baldur@landsmenn.is.
Ennig kom sú yfirlýsing
ráðherra að „íslenski
lyfjamarkaðurinn virkar
ekki sem skyldi“. Mikið
rétt, markaður sem okr-
ar á fólki virkar ekki
þannig. Á þessum fundi
benti landlæknir á þá að-
ferð sem notuð er af
lyfjafyrirtækjum og
felst í því að halda ódýr-
um lyfjum af markaðinum. Allir nema
peningamenn sjá það að auðvelt væri
að aftengja markaðslögmálin. Löngu
tímabært er að hætta að taka mark á
grátandi lyfsölum og ætti ráðherra að
gera gangskör að því að leysa þetta
mál öllum til góða. Pétur Blöndal
orðar þetta skemmtilega í Blaðinu 11.
október og segir: „Reglur um lyfja-
kostnað eru svo flóknar að maður spyr
sig hvort nokkur hugsun búi þar að
baki.“ Einnig talar Pétur um að skera
beri upp allt heilbrigðiskerfið og byrj-
að verði á lyfjamálum. Góðar hug-
myndir virðast vera víða og með en-
demum ef ekkert verður gert til að
lækka lyfjaverð.
Kannski er hátt verð tilkomið af
hluta af því að lyfjabúðir eru orðnar
svo skrautlegar og margt manna
samankomið til að þjónusta viðskipta-
manninn. Stundum eins og þetta séu
þjónustumiðstöðvar fyrir ófrítt fólk
og illa lyktandi. Í æsku man ég eftir
apótekum sem voru látleysið upp-
málað. Þar voru eingöngu seld lyf af-
greidd af ábúðarmiklum lyfsölum,
helst gegn lyfseðli, allt annað fékkst í
kaupfélaginu eða þartilgerðum
snyrtivörubúðum. Aldrei var talað
um hátt verð á lyfjum þá. Miklum
upphæðum hlýtur að vera tilkostað í
þessa glæsilegu speglasali sem
sveitamenn kalla apótek. Á endanum
kemur svo allur kostnaðurinn úr vasa
þeirra sem þurfa nauðsynleg lyf og
lyf eiga aldrei að vera munaðarvara
sem aðeins hátekjufólk getur leyft
sér. Lyf eiga að vera hluti heilbrigð-
iskerfinsins, sem ásamt lækniskostn-
aði ætti að vera ákveðin upphæð sem
fólk borgar árlega og fær síðan af-
sláttarskírteini frá TR, þannig að
greiðsluþáttur almennings lækkar.
Tími er kominn til að launþegar
hætti að beygja sig undir okurverð á
lyfjum og matvöru.
Lyfsala
Haraldur Páll Sigurðsson
skrifar um hátt lyfjaverð » Lyfjaverð á Íslandier margfalt hærra
en í löndum Evrópu.
Hvers vegna?
Haraldur Pál
Sigurðsson
Höfundur er fv. liðsforingi.
TRÚ samanstendur af þremur
megin þáttum: Átrúnaði, athöfnum
og upplifun. Þó að þessi
þrjú birtingarform
trúarlegs atferlis séu
mjög breytileg eru þau,
eins og sálfræðingurinn
Fred. H. Previc bendir
á í nýlegri yfirlitsgrein
um taugasálfræðilegar
rætur trúar, „mjög
tengd að því leyti að
einstaklingar sem lifa í
mjög trúuðum sam-
félögum eru mun lík-
legri til þess að túlka
óvenjulega reynslu (t.d.
hugaróra) sem trúarlega“. Slík upp-
lifun getur síðan leitt til sterkrar
trúarþarfar eða trúarumskipta, en
eins og Previc-greinir frá verða ein-
ungis 20-60% trúaðra einstaklinga
fyrir „trúarlegri“ upplifun og er
trúnni því að mestu viðhaldið með
átrúnaði og athöfnum. Eitt form upp-
lifana sem einstaklingar túlka gjarn-
an sem trúarlega er sk. utanlíkama
upplifun, sem vísindamönnum hefur
nú tekist að framkalla á tilrauna-
stofu.
Frá þessu var greint fyrr á þessu
ári í tveimur vís-
indagreinum í hinu
virta vísindatímariti
Science. Eins og segir í
frétt tímaritsins um
greinarnar voru til-
raunirnar gerðar á hópi
heilbrigðra sjálfboðliða
og þó að upplifun þeirra
hafi verið breytileg
„greindu einstakling-
arnir í báðum tilraun-
unum frá tilfinningu
um sambandsslit frá
líkama sínum“. Höf-
undar annarrar rannsóknarinnar
túlka niðurstöður sínar þannig að
ímynduð utanlíkama reynsla sýni
fram á að líkamleg sjálfsvitund og
sjálfið geta aðgreinst frá líkamanum
og geta þeir sér til „að dagleg reynsla
einstaklinga af heildstæðu sjálfi, sem
og ímyndanirnar sem hér greint er
frá, byggist á virkni“ ákveðins svæðis
í heilaberkinum (temporo-parietal
junction).
Það er því komin fram sterk vís-
bending um að yfirnáttúrulegar eða
trúarlegar skýringar á „utanlíkama“
upplifun eigi ekki við rök að styðjast.
Fyrri rannsóknir hafa einnig sýnt
fram á jarðbundnar skýringar á ann-
ars konar „trúarlegum“ upplifunum.
Flogaveiki hefur til að mynda verði
tengd ýmsum slíkum upplifunum, en
eins og Previc bendir á í grein sinni
virðast margir af helstu spámönnum
og trúarleiðtogum mannkynssög-
unnar, s.s. Páll postuli, hafa þjáðst af
þessum sjúkdómi. Í þessu samhengi
er rétt að ítreka að hið trúarlega um-
hverfi sem einstaklingurinn býr við
skiptir miklu um það hvernig hann
túlkar óvenjulegar upplifanir. Þegar
þetta er haft í huga má geta sér til
um það að Bandaríkjamenn séu mun
líklegri til þess að túlka „utanlíkama“
eða aðrar „trúarlegar“ upplifanir
sem yfirnáttúrulegar en Svíar, í ljósi
þess að tæplega 90% Bandaríkja-
manna trúa á persónulegan guð en
einungis 15-55% Svía.
Það sem hér hefur verið bent á
ætti að undirstrika mikilvægi þess að
kenna börnum gagnrýna hugsun
strax í upphafi grunnskólans til þess
að gera þeim betur kleift að leggja
náttúrulegt mat á ímyndanir sem
fólk túlkar gjarnan sem yfirnátt-
úrulegar eða trúarlegar. Þessu er því
miður ekki til að dreifa enda læra
börnin okkar á fyrstu árum grunn-
skólans miklu meira um meinta til-
vist guðs kristinna manna og heims-
mynd þeirrar trúar en það sem
raunvísindin hafa fram að færa, sem
stuðlar að því, eins og Sigmund
Freud benti á í Blekkingu trúarinnar
(1927), að „þegar vitsmunir barnsins
vakna eru kennisetningar trúarinnar
orðnar hafnar yfir gagnrýni“.
Blekking trúarinnar
Steindór J. Erlingsson skrifar
um trúarupplifanir »Eitt form upplifanasem einstaklingar
túlka gjarnan sem
trúarlega er sk. utanlík-
ama upplifun, sem vís-
indamönnum hefur nú
tekist að framkalla á til-
raunastofu.
Steindór J. Erlingson
Höfundur er líf- og vísindasagnfræð-
ingur.
Sími 533 4800
Góð 80,7 fm. 4ra herbergja íbúð, ásamt 12,5 fm. bílskúr, alls 93,2 fm. Eign-
in skiptist í hol, gang, stofu, eldhús, baðherbergi og 3 svefnherbergi. Góðar
hornsvalir sem auðvelt er að loka. Góð sérgeymsla á jarðhæð sem er ekki í
fermetra tölu íbúðar. Snyrtileg og stór sameign með þvottahúsi og hjóla-
geymslu á jarðhæð. V. 27,9 millj.
Laugavegur 182 • 4. hæð • 105 Rvík Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
Hjarðarhagi – bílskúr
Glæsilegt 240,3 fm einbýlishús þar af 32 fm bílskúr við Beykihlíð í Fossvog-
inum. Húsið skiptist í efri og neðrihæð. Á neðri hæð er forstofa, gestasnyrt-
ing, eldhús, þvottahús hol, herbergi, stofa og borðstofa. Á efrihæð er sjón-
varpshol, baðherbergi, hjónaherbergi, tvö barnaherbergi. Tilboð óskast.
Beykihlíð – einbýli
Góð 58 fm. 2ja herbergja íbúð á 6. hæð í lyftuhúsi við Boðagranda. Íbúðin er
laus við kaupsamning. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, svefnher-
bergi og baðherbergi. Svalir til suð-austurs með miklu útsýni. Húsvörður er í
húsinu. Laus strax. V. 18,9 millj.
Boðagrandi – útsýni
F A S T E I G N A S A L A
Mjög vel skipulagt 242 fm einbýlishús á einni hæð með innbyggðum 28
fm bílskúr. Húsið sem er í byggingu afhendist fullbúið að utan, klætt með
flísum, áli og við. Að innan skilast húsið nánast tilbúið til innréttinga.
Fjögur svefnherbergi. Gott útsýni. Afhending í desember n.k.
Verð 55,0 m.
MOSFELLSBÆR
GLÆSILEGT NÝTT EINBÝLISHÚS
VIÐ STÓRAKRIKA
Síðumúla 33 - Sími 588 9490 - www.lyngvik.is - lyngvik@lyngvik.is
Sigrún Gissurardóttir lögg. fasteignasali
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Nýkomið glæsilegt tvílyft einbýli með inn-
byggðum bílskúr samtals 244 fm. Húsið
skiptist m.a. þannig: stórt eldhús, rúmgóð-
ar stofur, borðstofa, sjónvarpsskáli, þvotta-
herbergi, þrjú rúmgóð svefnherbergi, bað-
herbergi ofl. Arinn í stofu. Frábær staðsetn-
ing og aðkoma. Stór ræktuð lóð. Upplýs-
ingar gefur Helgi Jón 893-2233 eða á skrif-
stofu Hraunhamars. Verðtilboð. Laust
strax.
FÍFUHVAMMUR - KÓP. - EINBÝLI
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Nýkomið í einkasölu glæsilegt einbýli á einni hæð m. innbyggðum bílskúr,
samtals 212 fm. Húsið skiptist m.a. þannig: 4 svefnherbergi, stofa, borðstofa,
arinn, eldhús, sjónvarpshol, baðherbergi o.fl. Glæsileg hornlóð. Hiti í plani,
góð staðsetning. Eign í sérflokki. Myndir á mbl.is.
Uppl. gefur Helgi Jón s. 893-2233, eða á skrifstofu Hraunhamars.
GLITVANGUR - HF. EINBÝLI