Morgunblaðið - 04.11.2007, Qupperneq 48
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Klettahlíð - Hveragerði
Fallegt og töluvert endurnýjað 232 fm
einbýlishús ásamt 70 fm bílskúr á falleg-
um útsýnistað í útjaðri byggðar. Björt
stofa, borðstofa, eldhús og baðherbergi
með nýlegi innréttingu. Möguleiki á fjór-
um svefnherbergjum. Fallegur skáli með
útgangi á stóra timburverönd. Mikil
ofanbirta og góð lofthæð er í bílskúr
sem er tilvalinn fyrir t.d. vinnustofu
eða heildsölu. 1.068 fm lóð, ræktuð
runnum og trjám. Aðeins 30 mín
akstur frá Reykjavík. Verð 39,5 millj.
Klausturhvammur - Hafnarfirði
Fallegt og vel skipulagt 214 fm raðhús á
tveimur hæðum með 30 fm innb. bílskúr.
Eignin skiptist m.a. í eldhús með góðum
borðkrók, tvö baðherb., flísalagt í hólf og
gólf, arinstofu, setustofa með útgangi á
verönd, borðstofu, 4 góð herb. og rúm-
góða sjónvarpsstofu. Aukin lofthæð í
stofum. Falleg ræktuð lóð með timbur-
veröndum beggja vegna og skjólveggj-
um. Upphituð innkeyrsla og stéttir. Hús
nýlega málað að utan. Verð 52,9 millj.
Hafravellir - Hafnarfirði
224 fm staðsteypt einlyft einbýlishús
þ.m.t. 45 fm bílskúr. Húsið er vel skipu-
lagt og skiptist m.a. í stofu, borðstofu,
opið eldhús, 4 góð herb. og baðherbergi.
Mikil lofthæð í húsinu eð a um 2,8 - 3,8
metrar. Gólfhiti er í húsinu og eru gólf
flotuð, tilb. undir gólfefni. Lóð er grófjöfn-
uð og er náttúrulegt slétt helluhraun á
hluta lóðarinnar. Til afhendingar strax.
Verð 45,0 millj.
Mýrarás - einbýlishús á útsýnisstað
235 fm einbýlishús á einni hæð vel stað-
sett á útsýnisstað innst í lokaðri götu.
Eignin skiptist í forstofu, sjónvarpshol,
gesta wc., stofu með arni og mikilli loft-
hæð, eldhús, þvottaherbergi innaf eld-
hús, 5 herbergi og baðherbergi. 943 fm
ræktuð lóð með timburverönd og skjól-
veggjum. Hitalagnir í stéttum. Tvöfaldur
bílskúr. Stutt í skóla og þjónustu. Verð
68,0 millj.
Sæbólsbraut
- Kópavogi. Endaraðhús
Fallegt 313 fm endaraðhús, tvær hæðir
og kjallari á þessum eftirsótta stað. Rúm-
góð og björt stofa/borðstofa, sólstofa
með útg. á lóð, vandað eldhús, 4 rúmgóð
herb. auk 3ja herbergja í kjallara. Góð
lofthæð á efri hæð og svalir til suðvest-
urs. Sauna í kjallara. Möguleiki er að inn-
rétta 3ja herb.íbúð með sérinng. í kj.
Ræktuð og gróin lóð með timburverönd,
skjólveggjum og heitum potti. 23 fm bíl-
skúr. Verðtilboð.
Vættaborgir - parhús á útsýnisstað
Glæsilegt 162 fm parhús á tveimur hæðum á frábærum útsýnisstað í lokaðri götu.
Rúmgóð og björt stofa/borðsofa með arni, vandað eldhús með fallegri hvítri inn-
réttingu, 3 góð herbergi, sjónvarpshol með útg. á flísalagðar svalir og flísalagt
baðherb. auk gesta w.c. Gott útsýni er af báðum hæðum og aukin lofthæð á efri
hæð. Falleg ræktuð lóð með timburverönd og skjólveggjum. Verð 53,7 millj.
Kjarrvegur - Glæsilegt einbýlishús
í Fossvogsdalnum við opið svæði
Glæsilegt einbýlishús/tengihús í Foss-
vogsdalnum staðsett við opið svæði,
skógi vaxið með útsýni yfir Fossvogs-
dalinn og til sjávar. Húsið er um 380 fm
þ.m.t. 30,7 fm bílskúr, kj. og tvær hæðir,
innréttað á vandaðan og smekklegan
hátt og skiptist m.a. í 4 glæsilegar stofur,
tvær garðstofur, eldhús með ljósum inn-
réttingum, 5 góð herb. auk líkamsræktar-
herb. og fataherb. og tvö baðherb. Allar
innréttingar eru sérsmíðaðar og granít,
parket og flísar á gólfum. Suðursvalir út
af efri hæð. Ræktuð lóð með fallegu
holtagrjóti. Mikil timburverönd með
skjólveggjum. Verðtilboð.
48 SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
VITASTÍGUR 10 - 101 REYKJAVÍK
LAUST VERSLUNARHÚSNÆÐI
ÁSAMT BYGGINGARÉTTI
BORGARTÚN 29
Sími 510 3800
Fax 510 3801
www.husavik.net
REYNIR BJÖRNSSON
ELÍAS HARALDSSON
LÖGG. FASTEIGNASALAR
Vorum að fá í einkasölu
129,4 fm húsnæði í
hjarta Reykjavíkur. Hús-
ið er á tveimur hæðum
og var notað undir mat-
sölustað. Gert er ráð
fyrir að hægt sé að
byggja tvær hæðir ofan
á húsið ásamt því að
byggja viðbyggingu á
baklóð. Skv. nýjum
drögum er gert ráð fyrir
að stækka húsið upp í
ca 270 fm með fjórum
íbúðum og verslunar-
húsnæði á jarðhæð.
Tilboð óskast.
HÚSAVÍK – GOTT ORÐSPOR – TRAUST VIÐSKIPTI
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Hraunhamar fasteignasala hefur fengið í einkasölu glæsilegt, 219 fm parhús með bílskúr, á
tveimur hæðum á frábærum útsýnisstað við Kirkjubrekku 7 á Álftanesi. Eignin skiptist í for-
stofu, hol, eldhús, stofu, borðstofu, gestasnyrtingu, geymslu og bílskúr. Á neðri hæð eru þrjú
góð herbergi, baðherbergi, sjónvarpshol, þvottahús og geymsla. Eignin afhendist í núverandi
ástandi fullbúin að utan með grófjafnaðri lóð. Að innan er að auki búið að slípa steypu í loft-
um og milliveggjum. Útveggja einangrun fylgir. Öll heimtaugagjöld eru greidd. Björt og falleg
eign við götu sem verður mjög flott. Mjög stutt í skóla, 2 leikskóla, sundlaug, golfvöll og
verslun. Upplýsingar og teikningar á skrifstofu Hraunhamars.
KIRKJUBREKKA - ÁLFTNES
LAUGARDAGURINN 20. októ-
ber var alþjóðlegur beinvernd-
ardagur. Framtakið er
þarft því beinþynning
er mjög algeng á Ís-
landi. Í tilefni dagsins
var boðið upp á skyr-
tertu og greinar skrif-
aðar í dagblöð. Aðal-
áhersla greinanna var
forvarnir; ágæti hreyf-
ingar, neysla kalks úr
mjólkurvörum og D-
vítamíns úr fisk-
afurðum. Lítið var
skrifað um beinþéttn-
imælingar en nefnt að
áhugasamir geti feng-
ið beinþéttnimælingu á LSH og að
Beinvernd, félagssamtök áhuga-
fólks um beinþynningu, láni bein-
þéttnimæla.
Allt er þetta satt og rétt en dug-
ar skammt til að draga úr þeim
heilsuvanda sem beinþynning er og
hjálpar ekki þeim þúsundum Ís-
lendinga sem nú þegar eru með
sjúkdóminn.
Samkvæmt skilgreiningu Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunarinnar,
WHO, telst sá vera með beinþynn-
ingu sem hefur brotnað við óveru-
legan áverka, eða mælist með bein-
þéttni lægri en tvö og hálft
staðalfrávik frá meðalbeinþéttni
fólks á „besta aldri“. Beinþéttni
breytist með aldri. Við fæðingu er
lítið kalk í beinum og þau mjúk.
Með vexti eykst kalkinnihald bein-
anna og þau styrkjast. Kalk og D-
vítamín er því nauðsynlegt börnum,
annars fá þau sjúkdóm er nefnist
beinkröm. D-vítamín
er einnig nauðsynlegt
alla ævina, m.a. vegna
beinanna. Um tvítugt
eru beinin fullþroskuð,
en örlítið bætist við
kalkinnihald þeirra og
þar með þéttni og
styrk til þrítugs. Ef
fólk er heilbrigt hald-
ast beinin óbreytt
næstu 10-15 árin en
eftir það minnkar
kalkinnihaldið, innra
stoðkerfi þeirra hrörn-
ar og þau verða brot-
hættari. Þessar breytingar gerast
hratt hjá konum við tíðahvöf en
halda síðan áfram með svipuðum
hraða hjá báðum kynjum. Þessar
breytingar á gerð og efnasamsetn-
ingu beina eru eðlilegar og ekki
sjúkdómur, en ýmislegt getur vald-
ið sjúklegri beinþynningu og því að
beinin hrörna hraðar en eðlilegt er.
Slíkt getur verið arfgengt, verið
tengt sjúkdómum eða vegna lyfja,
reykinga o.fl.
Beinþynning er einkennalaus þar
til beinin brotna en afleiðingar
þessa sjúkdóms eru ótímabær brot
svo sem samfallsbrot í hrygg og
mjaðmabrot. Brotin eru sársauka-
full, geta dregið fólk til dauða og
eru oft sá atburður sem veldur því
að aldraðir missa getuna til að ann-
ast sig sjálfir, glata sjálfstæði sínu
og heilsu og verða upp á aðra
komnir.
Áróður Beinverndar er eflaust
vel meintur og það er gott að
hvetja fólk til hollra lífshátta. Það
hefur hins vegar ekki verið sýnt
fram á að þessi áróður fækki brot-
um. Jafnvel þótt svo væri gætu lið-
ið 4-7 áratugir þar til árangur
næst. Áróðurinn getur misskilist og
gagnast ekki einn og sér þeim sem
þegar eru komnir með beinþynn-
ingu. Í starfi mínu hef ég oft hitt
fólk með beinþynningu sem telur
að allt sé í góðu lagi vegna þess að
það drekkur mjólk og tekur lýsi.
Því fer hins vegar fjarri að svo sé.
Hvað er til ráða.
1. Skiplögð leit. Ef beinþéttni er
mæld hjá fólki í áhættuhópum má
fækka brotum. Þar með verður
heilsa fólks betri og kostnaður
þjóðfélagsins minni. Í áhættu eru
m.a. þeir sem hafa brotnað án
verulegs áverka, konur eldri en 65
ára og þær sem eiga systur eða
móður sem hefur brotnað. Einnig
reykingafólk og fólk með sjúkdóma
eða á lyfjum sem valdið geta bein-
þynningu. Mat á beinþéttni á að
vera hluti af heilsuvernd og heim-
ilslæknar mega margir taka betur
á þessu vandamáli. Sama gildir um
ýmsa aðra sérfræðilækna sem með-
höndla fólk eftir brot eða með lyfj-
um sem geta valdið beinþynningu.
2. Mæla skal beinþéttni með við-
urkenndum aðferðum. Besta að-
ferðin til að mæla beinþéttni í
hrygg og mjöðm er svokölluð DXA-
mæling. Slíka mælingu er einungis
hægt að fá á LSH, en mætti vera
víðar. Þetta er einföld, fljótleg og
hættulaus rannsókn en miklu máli
skiptir að hún sé gerð á réttan hátt
og niðurstöðurnar túlkaðar af
lækni sem hefur fengið til þess
þjálfun. Eðlilegt er líka að sam-
ræmis sé gætt við aðrar lækn-
ingarannsóknir og að þessi rann-
sókn sé annaðhvort gerð sem hluti
af kerfisbundinni skimun eða að
beiðni læknis. Eðlilegt er því að
Tryggingastofnun ríkisins greiði
fyrir hana að hluta eins og aðrar
rannsóknir, en slíkt er ekki gert
nú. Aðrar aðferðir og tæki til bein-
þéttnimælinga, s.s. þau tæki sem
Beinvernd notar og lánar, gefa ekki
áreiðanlega mælingu á beinþéttni
þeirra sem eru í áhættu og mæla
ekki breytingu á beinþéttni af völd-
um meðferðar.
3. Meðhöndla skal beinþynningu
á réttan hátt. Margs konar lyf auka
beinþéttni og styrk beina og draga
þar með úr líkum á brotum. Sum
þeirra minnka einnig verki í bein-
um. Hreyfing, kalk og D-vítamín
eru alltaf hluti af meðferðinni en
eru svo til aldrei nægileg ein og
sér. Meta þarf árangur meðferð-
arinnar með annarri beinþéttn-
imælingu eftir 1-3 ár. Meðferðin
tekur oftast nokkur ár en er
sjaldnast ævilöng.
Margt má laga á Íslandi til að
vel sé staðið að forvörnum og með-
ferð á beinþynningu. Læknar og
stjórnvöld mega bæta vinnubrögð
sín og Beinvernd ætti að gera
meira en að tala um hreyfingu,
kalk og lýsi ef tilgangurinn er að
fækka brotum. Ég trúi að öllum
gangi gott eitt til en skorti leiðsögn
og þekkingu til að taka betur á
þessum heilbrigðisvanda.
Beinvernd, vel meint
en villandi
Jón Atli Árnason fjallar um ráð
gegn beinþynningu » Áróður Beinverndarfyrir aukinni
hreyfingu og góðu
mataræði er ekki nægj-
anlegur til að draga
úr beinþynningu. Bent
er á leiðir til úrbóta.
Jón Atli Árnason
Höfundur er sérfæðingur í lyflækn-
ingum og gigtlækningum.