Morgunblaðið - 04.11.2007, Page 54

Morgunblaðið - 04.11.2007, Page 54
54 SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN www.valholl.is www.nybyggingar.is Opið virka daga frá kl. 9.00-17.00. Þórarinn M. Friðgeirsson, lögg. fast. s: 899 1882 Atvinnuhúsnæði - atvinnuhúsnæði Vegna mikillar sölu undanfarið óskum við eftir öllum gerðum atvinnuhúsnæðis á skrá, hvort heldur er um að ræða sala eða leiga. Eða vantar þig verðmat á eignina. Sími 588 4477 Bárður Tryggvason sölustjóri 896 5221 Heiðar Friðjónsson lögg. fast.sali 693 3356 Valhöll fasteignasala hefur um árabil verið í fararbroddi í sölu og leigu atvinnuhúsnæðis. Áralöng reynsla og fumlaus vinnubrögð. Persónuleg og traust þjónusta. Nú er að fara í hönd líflegasti tími ársins í sölu atvinnuhúsnæðis, því óskum við eftir öllum gerðum atvinnuhúsnæðis á skrá. Hafið samband við sölumenn okkar og kannið hvað við getum gert fyrir þig. Hér er um að ræða svokallaðan BYKO-reit sem er á horni Sólvallagötu og Hringbraut- ar. Heimilt er að byggja um 8.300 fm byggingu sem getur t.d. verið blandað íbúðar- húsnæði auk ýmis konar verslunar- og þjónustustarfsemi. Hér er um mjög áhugavert tækifæri að ræða. Allar nánari upplýsingar gefur Þorleifur St. Guðmundsson lögggiltur fasteignasali í síma 824-9094. Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali. Byggingarlóð á horni Sólvallagötu og Hringbrautar (Byko-reitur) er til sölu Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is Hraunhamar kynnir sérlega fallegt raðhús á þessum vinsæla stað við Hrafnistu í Hafnarfirði. Húsið er 59,7 fm, það er á einni hæð. Skipting eignarinnar: Forstofa, geymsla, stofa, eldhús, baðherbergi og svefnherbergi. Þetta er falleg eign sem vert er að skoða. Verð 23,2 millj. Húsið er fyrir 60 ára og eldri. Laust fljótlega. NAUSTAHLEIN - GBÆ. ELDRI BORGARAR Efstihjalli 1C – 200 Kópavogur Opið hús í dag milli klukkan 14 og 15 Berg fasteignasala, Háaleitisbraut 58 Sími 588 5530 • Netfang: berg@berg.is Grétar J Stephensen Löggiltur fasteigna, fyrirtækja og skipasali Falleg og vel skipulögð 142 fm íbúð á annarri og efstu hæð með fal- legu útsýni til Esjunnar. Íbúðin er með sér inngang og stórum suður svölum. Á aðalhæð (103 fm) eru þrjú góð svefnherbergi, baðherbergi, sjónvarpsstofa, stofa og borðstofa, eldhús og forstofurými. Í kjallara (39 fm) er frábært rými sem skiptist í parketlagt svefnherbergi og stórt parketlagt tómstundarherbergi með þvottahúsi og geymslu innaf. Um er að ræða mjög skemmtilega eign með miklum möguleikum. Afhending fljótlega. V. 30,9 millj. Ingimundur tekur á móti áhugasömum M b l 9 31 78 3 Bergþórugata 61 Mikið endurnýjuð 3ja herb. íbúð Opið hús í dag frá kl. 14-16 Glæsileg 80 fm íbúð á 3. hæð í góðu steinhúsi í miðborginni, eina íbúðin á hæðinni. Íbúðin er afar björt og mikið endurnýjuð. Ný innrétting og tæki eru í eldhúsi, baðherbergi allt endurnýjað og raflagnir og tafla eru nýleg. Nýtt massívt stafaparket á gólfum. Opið eldhús, samliggjandi skiptanlegar stofur og 1 herbergi. Fallegt útsýni úr stofum að Perlunni og að Bláfjöllum. Sameign nýlega endurnýjuð og hús nýviðgert að utan. Verð 24,5 millj. Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16. Verið velkomin. FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali. VINSTRIHREYFINGIN – grænt framboð stóð á dögunum fyrir merkilegu málþingi um lýð- heilsu og samfélag þar sem við lit- um til framtíðar og veltum fyrir okkur leiðum til að efla heil- brigði landsmanna til framtíðar. Á mál- þinginu var einnig rætt um stöðu heil- brigðisþjónustunnar eins og hún er nú og ljóst að þar eru ýmis áhyggjuefni. Hallarekstur Land- spítala – Háskóla- sjúkrahúss nemur um einum og hálfum milljarði í ár og skuldar spítalinn birgjum sínum óheyrilegar fjárhæðir. Ekki liggja fyrir hugmyndir stjórnvalda um hvernig á að rétta þennan halla af. Vafalaust eru ýmsar leiðir til að endurskipuleggja starfsemi sjúkra- hússins til að ná fram sparnaði en stærstur hluti hallans á sér rök- réttar skýringar. Hærri með- alaldur skapar aukna þörf á heil- brigðisþjónustu, tækniframfarir í heilbrigðisþjónustu skapa betri þjónustu en líka aukinn kostnað, ný lyf á markaði veita fjölda sjúk- linga betra líf en skapa líka aukinn kostnað. Hallinn sýnir okkur því fyrst og fremst að við gerum auknar kröfur um betri þjónustu en stjórnvöld hafa ekki gert ráð fyrir því að mæta þessum kröfum. Þannig er mál með vexti að þó að halli Landspítalans sé einn og hálfur milljarður á þessu ári er lagt til í fjárlögum að hann fái helming þeirrar fjár- hæðar í hækkun á rekstri á næsta ári og vandséð hvernig spítalinn eigi þá að geta veitt óskerta þjónustu. Rekstrarhalli LSH snýst ekki aðeins – og kannski síst – um krónur og aura. Umræða um heil- brigðismál er því marki brennd að hún er fyrst og fremst umræða um fólk. Það er reynsla mín þegar heilbrigðismál eru rædd í pólitísku samhengi að fólk segir sögur um sjúkdóma sína og reynslu sína af heilbrigðisþjónustunni. Sumum þykir þetta leiðinlegt og vilja ekki hlusta á slíkar reynslusögur en ég tel einmitt að þetta samsafn af reynslu fólks, karla og kvenna, barna, gamalmenna, fólks með ólíka sjúkdóma, mismunandi bak- grunn og ólíkar væntingar til heil- brigðisþjónustunnar, sé kjarni pólitískrar umræðu um heilbrigð- ismál því fyrst og fremst snýst heilbrigðisþjónustan um að hjálpa fólki, lækna fólk og stuðla að betri heilsu. Það er sá árangur sem við Mörg úrlausnarefni í heilbrigðismálum Katrín Jakobsdóttir fjallar um hallareksturinn í heilbrigð- iskerfinu » Svona spurningargeta ekki aðeins snúist um fjármuni heldur einnig siðferði: Getur efnað þjóðfélag eins og okkar neitað fólki um slík lífsgæði? Katrín Jakobsdóttir AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.