Morgunblaðið - 04.11.2007, Side 70
Hinn bláa ég fokking
meina það dauða-
drykk/ dreypti á honum af
þínum eitruðu vörum… 73
»
reykjavíkreykjavík
SOMETIME er hugarfóstur Daníels Þor-
steinssonar, sem er best þekktur sem
trommari Maus, en sveitin varð til fyrir ríf-
lega tveimur árum fyrir hálfgerða slysni.
„Ég var í partíi þar sem DJ Dice var líka
og vinur hans, víst geðveikur Maus-
aðdáandi, vildi endilega að ég settist á bak
við trommusett sem þarna var og sýndi list-
ir mínar. Ég fór að tromma og Dice fór að
skratsa. Þá fór bara eitthvað að gerast.
Curver kom svo þarna að og datt inn í
stemninguna með okkur.“
Ímynd
Bandið varð svo fullmótað er Danni hitti
söngkonuna Rósu Birgittu Ísfeld, eða Diva
de la Rosa, á fylliríi á Sirkus og taldi hana
á að koma á æfingu. Eftir nokkuð stöðugt
tónleikahald síðustu misseri er loks hægt að
nálgast hljómlist sveitarinnar á plötu, en
hin skrýtilega nefnda Supercalifragil-
isticexpialidocious dregur nafn sitt af lagi í
myndinni Mary Poppins.
„Rósa semur allar sönglínurnar en ég
sem alla tónlistina undir,“ segir Danni. „Ég
spila þetta á hljómborð og er ég orðinn
nokkuð leikinn á nóturnar, þó ég geti seint
farið að spila dinner. Curver og Dice setja
svo sinn snúning á þetta. Ég á í dálitlum
erfiðleikum með að lýsa tónlistinni, utan að
David Lynch er mikið átrúnaðargoð hjá
okkur öllum. Við höfum frá upphafi lagt
áherslu á að hafa ímyndarvinnuna góða og
reynum að búa til dálítið sérstakt andrúms-
loft í kringum þetta. Rósa setur svona
djassdívuáferð á þetta og þess má geta að
ég spilaði hina stórkostlegu plötu Silent
Shout með The Knife algerlega á gat þegar
hún kom út og áhrif þaðan síuðust inn í
lagasmíðarnar.“
Eigið plötufyrirtæki
Danni segir að það hafi verið þrælerfitt
að taka plötuna upp, ferlið hafi verið langt
og strangt, og mestöll ábyrgðin hafi verið á
hans herðum.
„Í Maus deildum við með okkur ábyrgð-
inni en núna var þetta að mestu bara ég
sem keyrði þetta áfram. Það var siglt í
gegnum erfiða strauma stundum en þetta
hafðist. Og ég er skrambi ánægður með
hvernig til tókst. Við gerðum mikið af því í
upphafi að djamma saman á æfingum en
svo var bara á einum tímapunkti orðið
tímabært að berja þetta saman í lög. Platan
kemur út á merkinu mínu, Itsuka, en
Smekkleysa dreifir fyrir okkur. Það er ekk-
ert vit í öðru lengur en gefa þetta bara út
sjálfur.“
Brenndur
Á plötunni er svo leynigestur, Justin Li-
quid Anderson, og leggur hann til rödd í
laginu „Signals in the Sky“. Justin leiddi
eitt sinn bresku sveitina Freaky Realistic
sem sótti landið heim í boði Kidda kanínu
árið 1993. Lék þá á tónleikum í Valsheim-
ilinu ásamt Bubbleflies en lag sveitarinnar,
„Koochie Ryder“ varð harla vinsælt hér á
landi.
„Já, ég fór á þessa tónleika á sínum
tíma,“ segir Danni. „Og hitti bandið bak-
sviðs. Við Justin tókum tal saman og við
höfum verið í góðu sambandi æ síðan. En
karlgreyið, hann er nokkuð brenndur eftir
þetta Freaky Realistic-ævintýri en sveitin
beið allsvakalegt skipbrot og varðilla úti í
samskiptum sínum við plötufyrirtækið sitt.
En … Justin er kúl!“
Hljómleikaferð til útlanda
Tveir meðlimir eru nú hættir í Sometime,
en Curver býr nú í New York og getur því
ekki sinnt sveitinni sem skyldi og DJ Dice
er farinn að einbeita sér að föðurhlutverk-
inu. Í þeirra stað eru komnir þeir Oculus og
DJ Moonshine.
„Þeir Oculus og Moonshine eru þegar
farnir að setja sína áferð á Sometime,“ seg-
ir Danni. „Ég fagna því. Tónlistin er að
þróast og þroskast með tilkomu þeirra og
það eru spennandi tímar framundan. Við
erum þá aðeins farin að spila erlendis og
erum tiltölulega nýkomin frá Póllandi. Svo
reynir maður að sjoppa eitthvað með plöt-
una úti. En það er allt opið hjá okkur … og
þannig á það að vera.“
Sometime
Curver Danni Rósa DJ Dice
Supercalifragilisticexpialidocious
Spilverk Tónleikar Sometime eru mikið sjónar- og eyrnaspil og tónlistin er í raun unnin á
staðnum með hjálp upptökutækja og hljóðsmala sem endurvarpa lifandi flutninginn.
Að mörgu leyti má segja að hljómsveitin Sometime sé ofur-
grúppa enda skipuð tónlistarmönnum sem flestir hafa gert
garðinn frægan með öðrum sveitum eða einir síns lið. Hljóm-
sveitarbrot úr Maus, Quarashi og Curver renna saman í enda-
laust partí sem kallast Sometime og þar er rafpoppið allsráð-
andi. Arnar Eggert Thoroddsen spjallaði við forsprakkann,
Daníel Þorsteinsson um sveitina og nýju plötuna.
www.myspace.com/sometimegroup
arnart@mbl.is