Morgunblaðið - 04.11.2007, Page 71
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 71
AÐDÁENDUR Sigtisins hafa
ástæðu til að kætast því Skjárinn hef-
ur gefið út þrjá nýja geisladiska með
framhaldsþáttunum Sigtið án Frí-
manns Gunnarssonar. Þeir eru átta
talsins og fylla tvo diska en sá þriðji
er með margvíslegu aukaefni. Upp-
haflega voru þættirnir sýndir á
Skjánum á sl. vetri og fljótlega hillir
undir nýtt efni með þremenning-
unum, en það er allt önnur saga.
Líkt og nafnið bendir til hefur
forminu verið lítillega breytt, Frí-
mann (Gunnar Hansson), er ekki
lengur þáttastjórnandi Sigtisins,
hann gefur þá frá sér í hálfgerðu brí-
aríi í hendurnar á Páli Bjarna (Frið-
rik Friðriksson), þegar hann sér ný
sóknarfæri á ritvellinum.
Þó Sigtið eigi ekki langa sögu að
baki, eru umskiptin af því góða, en
Frímann er vitaskuld fremstur í
flokki líkt og fyrri daginn og snúast
þættirnir mestmegnis í kringum
furðufuglinn sem Gunnar er búinn að
móta og stimpla inn í þjóðarsálina.
Kjaftaskurinn slær um sig með slitn-
um frösum, tilvitnunum í Möggu
Thatcher, Churchill og fleiri átrún-
aðargoð fyrirbrigðisins. „Ég er Jack
of all trades, master of none,“ mætti
hann gjarnan bæta við. Hann hefur
skoðanir á öllum hlutum, helst þeim
sem hann hefur ekki hundsvit á, veður
yfir allt og alla, ómótstæðilegur að
eigin áliti, sannkallaður bakverkur í
augum flestra annarra.
Frímann kemur víða við, þættirnir
átta gerast í ólíku umhverfi, taka á mis-
munandi málum þó persóna hans sé
jafnan fyrirferðarmikil í brennidepl-
inum. Í Vitanum missir Frímann af
þáttastjórninni þegar hann sest að á af-
skekktum vita til að skrifa ódauðlegar
bókmenntir, sem hann veiðir reyndar
upp úr vitaverðinum. Í öðrum svindlar
„sjónvarpsstjarnan“ sig inn í æðstu
menntastofnun landsins til að halda
fyrirlestra í fjölmiðlafræði.
Fyrir slysni tekst Frímanni að pota
leikriti langleiðina á leikhúsfjalirnar
áður en það er blásið af. Í Sambandinu
berst okkar maður við að þvo af sér
hommastimpil sem loðir við hann.
Þannig má lengi telja.
Frímanni er sem fyrr ekkert óvið-
komandi, og fara þremenningarnir
vítt um þjóðmálaumræðuna til að ná í
sigtið vel þekktum meinlokum land-
ans, sýndarmennsku, listasnobbi, til-
gerð, fordómum og öðru slíku ágæti
sem er hampað í umræðunni.
Sigtis-mönnum bregst sjaldan
bogalistin, Frímann er skotheldur
orðinn, andstyggilegt skoffín sem fer
innilega í taugarnar á manni og Gunn-
ar túlkar svo einlæglega vil ég segja,
að maður kaupir hann fullskapaðan.
Líkt og fleiri af hans sauðahúsi (Georg
á Næturvaktinni er sá yngsti í hópn-
um), er Frímann samansettur úr
fjölda leiðindaskarfa, sumir þekkjast í
gegnum sjálfumglatt yfirbragðið, nett
ýktir að vísu.
Friðrik og Halldór skjóta upp koll-
inum undir ýmsum kringumstæðum í
ólíklegustu hlutverkum og eru þætt-
irnir fínn vettvangur fyrir litríka hæfi-
leika beggja. Fyndinn og þéttur hópur
aukaleikara kemur við sögu, nokkrir
þeirra, líkt og Helga Braga, koma tals-
vert við sögu, aðrir minna. Margir
okkar bestu gamanleikara og nokkrir
minna þekktir, einn þeirra síð-
arnefndu, Birgir Ísleifur Gunnarsson,
alnafni og barnabarn seðlabankastjór-
ans, stelur gjörsamlega senunni í
háðskasta þættinum, Listalestin, og
ánægjulegt til þess að vita að við eig-
um eftir að sjá meira af þeim for-
vitnilega karakter í framtíðinni.
Þættirnir Sigtið án Frímanns, eru
sem fyrr mjög vel úr garði gerðir, leik-
stjórn og tæknivinna vandvirknisleg
og innihaldið háðskt, fyndið og vits-
munalegt á sinn eigin hátt. Fundvíst á
snögga bletti í samfélaginu, ég upplifði
þá að vísu ekki jafnferska og fyrri röð-
ina, ein ástæðan er vafalaust sú að ég
horfði á alla þættina og disk með bráð-
fyndnu aukaefni, í belg og biðu. Ég bíð
því bjartsýnn eftir meiru, e.t.v. aðeins
öðruvísi framsettu skemmtiefni, frá
þessum sérstæðu gleðigjöfum.
Frímann er samur við sig
MYNDDISKAR
Íslensk gamanþáttaröð
Leikstjórn: Ragnar Hansson. Handrit og
aðalleikendur: Friðrik Friðriksson, Gunn-
ar Hansson og Halldór Gylfason. Auk
þess koma fram Helga Braga Jónsdóttir,
Álfrún Örnólfsdóttir, o.fl. Tökumaður: Árni
Filippusson. Tónlist: Birgir Ísleifur Gunn-
arsson. 3 geisladiskar. Sýningartími 8 x
30 mín. Aukaefni ca: 30 mín. Styrkt af
Kvikmyndastöð Íslands. Sýndir á Skján-
um í nóv., des. 2006 og jan. 2007. Skjár-
inn. 2007.
Sigtið án Frímanns Gunnarssonar
Sæbjörn Valdimarsson
Háðskt „Þættirnir Sigtið án Frímanns, er sem fyrr mjög vel úr garði gerð-
ir, leikstjórn og tæknivinna vandvirknisleg og innihaldið háðskt, fyndið og
vitsmunalegt á sinn eigin hátt,“ segir m.a. í dómi um Sigtið án Frímanns.
LAST Rituals, ensk þýðing á Þriðja
tákninu, skáldsögu Yrsu Sigurð-
ardóttur, fær jákvæðan dóm hjá
gagnrýnanda Wall Street Journal.
Gagnrýnin birtist í fyrradag. Þar
segir að Þriðja táknið haldi athygli
„jafnvel útkeyrðra lesenda“ og að
framvindan sé hröð.
Gagnrýnandinn, Brad Leithauser,
segir Ísland það land sem sé líklega í
mestu uppáhaldi hjá honum. Hann
hafi sérstaklega notið þess við bók-
ina hversu vel „æsingnum“ í Reyk-
víkingum sé komið til skila. Allir
gegni tveimur störfum og þar sé
partíhald fram eftir öllu.
Lof Yrsa Sigurðardóttir fær víða já-
kvæða dóma um Þriðja táknið.
Ánægður
með Yrsu
SVO virðist sem frægðarsól Britney
Spears sé ekki endanlega kulnuð.
Nýjasta breiðskífa hennar, Black-
out, sem þýða mætti bæði sem
Myrkvun og Drykkjudauða, hefur
selst betur en menn þorðu að vona.
Stefnir í að allt að 350.000 eintök
seljist fyrstu söluvikuna í Bandaríkj-
unum. Zomba plötufyrirtækið, sem
heyrir undir Jive Records sem gefur
út plötuna, gerði ráð fyrir því að í
mesta lagi 300.000 plötur myndu
seljast. Seinasta breiðskífa Spears,
In the Zone, seldist í 2.960.000 ein-
tökum, en hún kom út fyrir fjórum
árum. Áfram Britney!
Reuters
Áfram, stelpa! Britney Spears tek-
ur lagið í september síðastliðnum.
Britney
enn vinsæl