Morgunblaðið - 12.11.2007, Síða 15

Morgunblaðið - 12.11.2007, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2007 15 ÚR VESTURHEIMI STEINUNN Bessason, listamaður á Gimli og elsta dóttir Haraldar Bessasonar, teiknaði mynd á kápu bókar hans Dagstund á Fort Garry, sem Ormstunga gefur út. Eftirfar- andi frásögn er úr kaflanum Winst- on Churchill og Ólafur Thors: „Á leið okkar Jóseps til Winnipeg eftir orrustuna á Breiðabliki sagði hann mér frá því að skömmu áður en Ísland var hertekið vorið 1941 hefði Winston Churchill hringt til sín og viljað fela sér yfirstjórn herdeild- arinnar sem senda átti til Íslands. „Ég sagði Mr. Churchill að það væri hið mesta óráð að fela Vestur- Íslendingi slíkt embætti og neitaði að taka það að mér, en Mr. Churchill ætlaði ekki að gefa sig og símtalið varð langt.“ Ég spurði einskis frek- ar, og aldrei reyndi ég að forvitnast neitt hjá honum um stríðsrekstur eða hernað; vissi að bróðir Jóseps, Stephen Thorson, féll í mannskæð- ustu orrustu fyrri heimsstyrjaldar, einn af milljón; ókunnugt er mér um hvort eldri bróðir hans stóð honum þar við hlið. Maður spurði ekki gamla hermenn, sem staðið höfðu í ströngu í stórorrustum, um slíka hluti, og aldrei heyrði ég þá minnast neitt á stórbardaga eða segja frá þeim. Slíkt hefur verið þeim flestum um megn. Ekki veit ég hversu oft Jósep Thorson heimsótti Ísland, en hann kom þar við á ferðum sínum. Ekki spurði ég hann heldur þeirrar klassísku spurningar hvernig hon- um hefði fallið á Íslandi. Samt innti ég hann eitt sinn eftir því hvaða Ís- lendingur væri honum minnisstæð- astur þeirra sem hann hefði kynnst heima á ættjörðinni. Hann var fljót- ur til svars og sagði á ensku: „Mr. Ólafur Thors, of course.“[…]“ Af Winston Churchill og Ólafi Thors Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is ÞAÐ má til sanns vegar færa að enginn Íslendingur þekki „ís- lenska“ mannlífið í Manitoba á seinni hluta 20. aldar betur en Haraldur Bessason prófessor, sem nú býr með fjölskyldu sinni í To- rontó í Kanada. Áður en hann tók við stjórn og uppbyggingu Háskól- ans á Akureyri stýrði hann ís- lenskudeild Manitobaháskóla í Winnipeg 1956 til 1987 og tók virk- an þátt í félagslífi fólks af íslensk- um ættum á sama tíma. Hann rifj- aði upp atvik á þessu tímabili í bókinni Bréf til Brands, sem kom út 1999, og hefur nú bætt um bet- ur með bókinni Dagstund á Fort Garry. Gleymdi að skrifa fundargerð Sonur Kýrholts í Skagafirði hef- ur marga söguna sagt og fæstar fært til bókar. Vestra hefur hann kynnst mörgum snillingnum eins og til dæmis Vilhjálmi Stefánssyni landkönnuði og Guttormi J. Gutt- ormssyni skáldi. Bréf til Brands segja frá mörgu þessu fólki í bland við hugrenningar höfundar. Með Dagstund á Fort Garry er róið á svipuð mið. Haraldur segir í samtali við Morgunblaðið að fyrir ríflega hálfri öld eða 1959 hafi hann sem forseti Íslendingadagsnefndar stjórnað fundi á Fort Garry-hótelinu í Winnipeg. Auk hans sóttu fundinn Árnesingurinn Jósep Þórarinn Thorson frá Ásakoti í Bisk- upstungum, fyrrverandi her- málaráðherra Kanada og forseti fjármálaréttarins í Ottawa í nær þrjá áratugi, sem átti að flytja minni Íslands á Íslendingadeginum á Gimli, prófessor Joe eða Jóhann Gestur Jóhannsson frá Skeggja- stöðum í Torfustaðahreppi, gullme- dalíumaður í stærðfræði, og lækn- irinn Sveinn Björnsson frá Lýtingsstöðum í Vopnafirði. „Ég gleymdi að skrifa fund- argerð,“ rifjar Haraldur upp spurður um tildrög bókarinnar. „Sem formaður Íslendingadags- nefndar bar mér að skrifa grein- argerð um fundinn en það var ekki hægt. Fundurinn var svo langur, menn töluðu svo mikið og sögðu aðallega sögur. Ég fékk ákúrur frá meðnefndarmönnum mínum fyrir að hafa látið undir höfuð leggjast að færa rétta fundargerð. Þeir voru nákvæmir með þetta í Íslend- ingadagsnefnd, en ég gaf bara munnlega skýrslu. Fyrir um einu og hálfu ári eða svo rifjaðist þetta upp fyrir mér og ég ætlaði að skrifa smáútdrátt en svo lengdist þetta og varð að bók.“ Í bókinni kemur Haraldur víða við í 39 svipmyndum eða eins og segir á bókarkápu: „Margt bar á góma og í bókinni er svipmyndum fengin þessi dagstund til umráða. Sú stund teygir sig engu að síður yfir nokkra áratugi; má því ætla að tímarammi styðji þar ekki í einu og öllu rökrænt samhengi. Frá fundinum enduróma frásagnir af samskiptum íslenskra landnáms- manna við indíána og Úkra- ínumenn og hugleiðingar um Kens- ington-steininn og goðsagnir og margt fleira.“ Dagstundin nær eiginlega yfir nokkrar aldir, eins og Haraldur orðar það, og lýkur ekki fyrr en með dauða Jóseps Thorsonar 1978 en hinir tveir fóru á undan honum. Sögur Fundurinn 1959 gekk vel fyrir sig, eins og fundir Íslendingadags- nefndar almennt, þó úr honum hafi teygst, og Haraldur ber fund- armönnum góða söguna. „Þetta voru allt fornvinir,“ segir hann. „Ég var nýkominn frá Íslandi til þess að gera og var því mjög feim- inn. Ég hafði aldrei hitt þennan fræga mann Jósep Thorson og tók því prófessor Joe og doktor Svein með mér á fundinn. Þeir fengu sér ölglas, urðu mjög hressir, ákaflega hressir, og sögðu sögur endalaust alveg til kvölds.“ Fundargerð prófessorsins varð að bók  Haraldur Bessason, forseti Íslendingadagsnefndar 1959, rifjar upp svipmyndir frá Manitoba  Dagstund á Fort Garry-hótelinu í Winnipeg varð að flakki í tíma og rúmi álfa á milli í aldir Öflugur Helgi Ágústsson sendiherra afhenti Haraldi Bessasyni skrautrit- aða drápu eftir Halldór Blöndal, þáverandi forseta Alþingis, á 70 ára af- mæli hans 2001, um tveimur árum eftir að bókin Bréf til Brands kom út. Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson FYRIR skömmu var afhjúpaður minnisvarði á Gimli um Íslendinga sem féllu í stóru bólunni í Nýja-Íslandi. Á meðal um 100 viðstaddra voru Tammy Ax- elsson, bæjarstjóri á Gimli, James Bezan, þingmaður íhaldsmanna á Kan- adaþingi fyrir Gimli og nágrenni, Peter Bjornson, menntamálaráðherra Manitoba, Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, Jón Björns- son, eiginmaður hennar, og Atli Ásmundsson, aðalræðismaður í Winnipeg. Ljósmynd/Grétar Axelsson Minnisvarði afhjúpaður

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.