Morgunblaðið - 13.11.2007, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
„Bragð er að þá vinstri finna.“
VEÐUR
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for-maður Samfylkingarinnar og ut-
anríkisráðherra var í viðtali við Eg-
il Helgason, í Silfri Egils í fyrradag.
Aðspurð um stjórnarsamstarfiðog samsæriskenningar í þá
veru að Samfylkingin muni hlaupa
úr ríkisstjórn á miðju kjörtímabili
og mynda nýja ríkisstjórn undir
hennar forsæti, sagði utanrík-
isráðherra m.a.:
Þetta eru spek-úlasjónir
fyrst og fremst
úr Morg-
unblaðinu. Ill-
girni í Morg-
unblaðinu og
skelmisskapur
þar.“
Egill sagði þá: „Morgunblaðiðvirðist hafa hreina óbeit á Sam-
fylkingunni.“
Og ráðherrann svaraði: „Já, já, já.Það hefur það. En það er líka
búið að ganga svo langt í því og
þetta er orðið svo persónulegt og
hatrammt að þetta hefur ekki leng-
ur pólitíska þýðingu.“
Það er einkennilegt til þess aðvita, að þau Egill og Ingibjörg
Sólrún virðast bæði jafn ólæs á
Morgunblaðið.
Morgunblaðið hefur ekki óbeit ánokkrum stjórnmálaflokki og
það er hvorki persónulegt né hat-
rammt í garð nokkurs manns.
Reyndur stjórnmálamaður á
borð við Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur, á að geta tekið hófstilltri
gagnrýni, að nú ekki sé talað um
smástríðni, án þess að hún láti orð
eins og þau sem vitnað er til hér að
ofan, falla.
Er hún ekki höfundur orðsins„umræðustjórnmál“?!
STAKSTEINAR
Ingibjörg Sólrún
Gúsladóttir
Ólæs á Morgunblaðið
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!""
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
#
"
$$% $%
"
$$% %
&'%
'
$$
(
:
*$;< %%%
! "
*!
$$; *!
)
( *%
%(%+
,
=2
=! =2
=! =2
)
*$%-
"
.%/ $0
>! -
=7
#
$ %
$ & '( =
) ! * +
!
&*
,-
# . / * *0-
1!$$ % %22
$% %3+
%-
"
3'45 ?4
?*=5@ AB
*C./B=5@ AB
,5D0C ).B
' 4
4
' '
' '
'
' 4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Stefán Friðrik Stefánsson | 12. nóv.
Körfuboltastarfs-
maður missir…
Það er alveg rosalegt
að lesa fréttina um
körfuboltaslysið í Ísr-
ael. Það er ekki á
hverjum degi sem slys
af þessu tagi gerist á
íþróttaleik. Það er
rosalegt að missa heila þrjá fingur
með þessum hætti. Það er ekki nema
von að yfirmenn körfuboltamála í
landinu vilji komast að því hvort
þetta var slys eða viljaverk. Það er
vonandi að enginn sé svo illa...
Meira: stebbifr.blog.is
Guðmundur Auðunsson | 12. nóvember
Hver kaus
Spánarkonung?
Nú finnst mér Chavez
hafa verið með óþarfa
upphlaup á fundinum
og e.t.v. fulllangt geng-
ið að kalla Aznar fas-
ista, þó vissulega hafi
sá asni verið Spánverj-
um til skammar með þjónkun sinni
við klerkastjórnina í Washington.
En vissulega á flokkur Aznar rætur
sínar í fasistaflokki Franco þó flokk-
urinn hafi vissulega lagast mikið síð-
an þá. En mér er spurn, hver...
Meira: thjalfi.blog.is
Ágúst Ólafur Ágústsson | 12. nóvember
Lækkum verðlagið
Það ætti ekki að hafa
farið framhjá neinum
að ný ríkisstjórn Sam-
fylkingar og Sjálfstæð-
isflokks hefur sett
neytendamálin á odd-
inn. Í raun er þetta í
fyrsta skipti sem neytendamálin fá
þann sess sem þau eiga skilið í ís-
lenskum stjórnmálum. Stjórnarsátt-
máli ríkisstjórnarinnar er afar neyt-
endavænn. Þá hefur
viðskiptaráðherra kynnt umfangs-
miklar umbætur á sviði...
Meira: agustolafur.blog.is
Páll Helgi Hannesson | 12. nóvember
Nauðsyn að
OR haldi sjó
Nú ríður á að halda sjó í
málefnum OR. Þrýst-
ingurinn á að fallið
verði í sama far og áður
og að sameining REI
og GGE verði látin
standa, eykst greinilega
dag frá degi. Þrýstingurinn kemur
víða að frá aðilum sem allir hafa hags-
muna að gæta, persónulegra, póli-
tískra og peningalegra, eða blöndu af
þessu þrennu. Sumir eru að reyna að
bjarga andlitinu vegna fyrri synda,
aðrir hugsa til framtíðar. Hann kem-
ur frá genginu sem upphaflega vélaði
um málið af hálfu Sjálfstæðisflokks-
ins og Framsóknar og lagði línurnar
um markaðsvæðingu vatns og orku á
Íslandi, með lagasetningum, þving-
aðri einkavæðingu á Hitaveitu Suð-
urnesja og sölu á hlut Landsvirkj-
unar á hlut fyrirtækisins í Enex. Sú
sala leiddi til þess að Geysir Green
Energy varð meirihlutaeigandi í
Enex og samhliða því gerðist Lands-
virkjun hluthafi í GGE. Þrýsting-
urinn kemur frá hægra liðinu í Sam-
fylkingunni sem sér auknar
einkaframkvæmdir á vegum hins op-
inbera sem lausnarorð í anda Tony
Blair, hann kemur frá þeim embætt-
ismönnum innan OR og HS sem lengi
virðast hafa gengið með glýju í aug-
um yfir markaðsvæðingu fyrirtækj-
anna sem þeim var treyst fyrir og
ætluðu sér sumir að græða á henni
duglega en þurfa nú að bjarga andlit-
inu. Hann kemur frá GGE og bönk-
um og fjármálafyrirtækjunum þar að
baki, eins og Glitni og FLGroup,
hann kemur frá hægri sinnuðum
sveitarstjórnarmönnum á Suð-
urnesjum og einstaklingum eins og
Bjarna Ármannssyni. Og Illugi
Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæð-
isflokks og fulltrúi í einkavæðing-
arnefnd bættist í hópinn með grein-
arkorni í Mbl í morgun. Enginn af
þessum aðilum tekur tillit til, hvað þá
stýrist af, því sem kalla má almanna-
hagsmuni. Á móti stendur almenn-
ingur, sem skynjar að það er verið að
hygla að gæðingum á hans kostnað,
að verið er að ræna eignum í hans
eigu, en hefur varla ráðrúm til að ná
yfirsýn yfir atburðarásina.
Á móti stendur Morgunblaðið með
nýuppgötvuð prinsipp sexmenning-
anna í borgarstjórnarflokki...
Meira: pallheha.blog.is
BLOG.IS
LAURAASHLEY
Faxafeni 14 108 Reykjavík sími 5516646