Morgunblaðið - 13.11.2007, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2007 17
MENNING
Skólastjórar! Kennarar!
Nemendur!
Í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli
Jónasar Hallgrímssonar hefur
Bókaútgáfan Hólar gefið út
þessa kennslubók, ætlaða
nemendum í 7., 8. og 9. bekk.
Er hún ekki kjörið viðfangsefni
í tengslum við dag
íslenskrar tungu?
Fyrirspurnir og pantanir:
holar@simnet.is M
bl
9
27
25
7
TÓNLEIKAGESTIR sem ætluðu að
sækja Scala óperuna í Mílanó á föstu-
dagskvöld, þar sem flytja átti Sálu-
messu Verdis í stjórn Daniels Bar-
enboim, komu að lokuðum dyrum.
Búið var að hengja upp tilkynningu
þar sem stóð að tónleikunum væri af-
lýst vegna verkfalls tónlistarmanna
hússins. Tónleikarnir áttu að marka
hápunkt hátíðahalda í tilefni af hálfr-
ar aldar ártíð hljómsveitarstjórans
Arturos Toscaninis.
Stéphane Lissner framkvæmda-
stjóri óperuhússins sagði í viðtali við
dagblaðið Corriere della Sera að að-
gerðir tónlistarmannanna væru óvið-
unandi og hápólitískar. Fulltrúar
stéttarfélags tónlistarfólks á Scala
sögðu hins vegar að aðgerðirnar
hefðu verið nauðsynlegar vegna þess
að viðræður um kaup, kjör og starfs-
aðstöðu hefðu dregist mánuðum sam-
an, og ekkert hefði komið út úr þeim.
Menningarmálaráðherra Míl-
anóborgar, Vittorio Sgarbi, sagði að
stéttarfélag tónlistarfólks yrði kært
og krafið bóta vegna tekjutaps að
andvirði um nítján milljóna króna.
Samkvæmt fréttum Associated
Press var óperuhúsið fornfræga
tilbúið til að hækka kaup tónlistar-
manna í kjölfar góðrar miðasölu á síð-
ustu árum og aukins tónleika-
framboðs, en tónleikar í húsinu voru
164 árið 2001 og eru þegar orðnir 273
á þessu ári. Þá kom upp sá vandi að
löggjöf frá árinu 1995 kom í veg fyrir
að hægt yrði að semja vegna ákvæðis
í henni um að samningur í einu af fjöl-
mörgum óperuhúsum Ítalíu þyrfti að
gilda á landsvísu. Meðal-hljóðfæra-
leikari í hljómsveit hússins hefur and-
virði 290 þúsund króna í mán-
aðarlaun.
Verkfall
á Scala
Lok, lok og læs La Scala.
♦♦♦
ÞÓRA Kristjánsdóttir list-
fræðingur eys úr viskubrunn-
um á Þjóðminjasafni Íslands í
dag kl. 12.05
Mun hún ganga með gestum
um sýninguna Á efsta degi –
býsönsk dómsdagsmynd á Hól-
um í Bogasal safnsins. Á sýn-
ingunni má sjá fagurlega út-
skornar fjalir.
Fjalirnar eru taldar úr mik-
ilfenglegri dómsdagsmynd
sem prýtt hefur dómkirkju Jóns helga Ögmunds-
sonar biskups á Hólum í Hjaltadal. Dómsdags-
myndir eru meðal áhrifamestu listaverka sem
orðið hafa til í skjóli kirkjunnar.
Leiðsögn
Lifandi leiðsögn í
Þjóðminjasafninu
Þjóðminjasafn
Íslands.
ANDVARI, rit Hins íslenska
þjóðvinafélags, er kominn út,
132. árgangur, hinn 49. í nýjum
flokki. Aðalgreinin í ár er æviá-
grip Katrínar Thoroddsen,
læknis og alþingismanns, eftir
Kristínu Ástgeirsdóttur sagn-
fræðing. Hér er gerð grein fyr-
ir störfum Katrínar sem barna-
læknis og baráttu hennar fyrir
réttindum kvenna.Einnig er al-
mennt fjallað um stjón-
málastörf hennar, en hún sat á þingi fyrir Sósíal-
istaflokkinn 1946-49. Í ritinu er að finna 3 greinar
um skáldskap Jónasar Hallgrímssonar í tilefni af-
mælisárs hans. Ritstjóri er Gunnar Stefánsson.
Fræði
Rit Hins íslenska
þjóðvinafélags
Jónas
Hallgrímsson
TÓNLISTARSKÓLINN í
Reykjavík heldur píanótón-
leika í dag 13. nóv. kl. 20 í Von,
sal SÁÁ, Efstaleiti 7. Þar spila
lengra komnir nemendur verk
eftir stórtónskáldin Bach,
Chopin, Mozart, Grieg, De-
bussy, Schubert og Beethoven.
Skólinn setti upp óperu nýver-
ið eftir Schubert, Die Ver-
schworenen, og þar fékk
hljómsveit skólans að spila
undir, en nú er komið að píanóleikurunum að sýna
færni sína.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan
húsrúm leyfir.
Tónlist
Ungir píanóleikarar
sýna færni sína
Kennari og
nemandi.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
VIÐBRÖGÐ við samningi Rík-
isútvarpsins og Björgólfs Guðmunds-
sonar, þar sem Björgólfur leggur til
umtalsvert fé á móti RÚV til fram-
leiðslu íslensks dagskrárefnis, eru
ærið misjöfn.
Hollvinir RÚV sendu frá sér yfir-
lýsingu um helgina þar sem samn-
ingnum er harðlega mótmælt. Þar
segir meðal annars: „Það er stór-
varhugavert að einn af auðugustu at-
hafnamönnum landsins skuli öðlast
ítök í starfsemi Ríkisútvarpsins með
þessum hætti og líkur á að það muni
skerða möguleika starfsfólks RÚV til
að fjalla um málefni fyrirtækja sem
honum tengjast. Yfirlýsingar Björg-
ólfs sjálfs og Þórhalls Gunnarssonar
dagskrárstjóra um að Björgólfur
sjálfur komi ekki nálægt efnisvali eru
barnalegar og bera ekki vott um
mikla þekkingu þessara manna á
starfsháttum fjölmiðla og eðli
þeirra.“
Eignarhald og frelsi
Þá fordæma Hollvinir RÚV orð
Björgólfs um að ríkið sé versti eig-
andi fjölmiðla, og segja: „Í lýðræð-
isríkjum eru ríkisfjölmiðlar einu
miðlarnir sem eru raunverulega
frjálsir. Það hefur margsýnt sig um
allan heim, ekki síst í Bandaríkjunum
undanfarin ár, að eignarhald einka-
aðila á fjölmiðlum og fjárhagslegir
hagsmunir skerða frelsi og mögu-
leika fjölmiðlafólks til heiðarlegrar og
óháðrar umfjöllunar.“
Félag leikskálda og handritshöf-
unda sendi frá sér ályktun, þar sem
samningnum var fagnað: „Stjórn Fé-
lags leikskálda og handritshöfunda
fagnar eindregið nýgerðum samningi
RÚV og Björgúlfs Guðmundsonar
um tvöföldun framlags til kaupa á
leiknu íslensku sjónvarpsefni. Samn-
ingurinn lýsir sjaldséðum og einlæg-
um áhuga einstaklings á gríðarlegu
mikilvægi innlends leikins efnis, en
það er málefni sem FLH hefur vakið
athygli á og barist fyrir í áraraðir.“
Formaður Sambands íslenskra
kvikmyndagerðarmanna, Baltasar
Kormákur Baltasarsson, segir að von
sé á ályktun sambandsins um samn-
inginn, en fyrst eigi stjórn þess eftir
að kanna nánar hvað felist í efn-
isþáttum hans og funda.
Páll Magnússon útvarpsstjóri seg-
ir ályktun leikskálda og handritshöf-
unda í takt við þau viðbrögð sem hafi
verið yfirgnæfandi í hans eyru um
helgina, bæði frá fólki úr „brans-
anum“ og frá almenningi. „Hvað
ályktun Hollvinasamtakanna snertir,
þá gætir þar þess misskilnings að
Björgólfur ætli að styrkja RÚV, eða
dagskrárgerð á vegum þess, eða að í
þessu felist einhvers konar kostun
Björgólfs á dagskrá ríkisútvarpsins.
Það er mikill misskilningur. Skuld-
binding Björgólfs felst í því að hann
kemur til jafns á við ríkisútvarpið í
frumgerðu leiknu efni fyrir sjónvarp
næstu þrjú árin. Með þessu er fyrst
og fremst verið að skapa grundvöll til
að auka framleiðslu á leiknu íslensku
sjónvarpsefni hjá sjálfstæðum fram-
leiðendum. Það er líka grundvallar
meinloka að í samningnum felist
framsal á dagskrárvaldi.“
Má ekki skilja mótmæli Hollvin-
anna sem svo að þeir hafi áhyggjur af
því að Björgólfur leggi til fé í þágu
RÚV þótt þeir renni ekki beint til
stofnunarinnar?
„Ég held að meinlokan liggi í
þessu. Þetta fé er af hans hálfu ekki í
þágu RÚV. Hann skuldbindur sig
einungis til að jafna framlag RÚV til
sjálfstæðra framleiðenda sem vinna
efni fyrir okkur. Í því felst engin gjöf
til gjalda fyrir RÚV gagnvart honum.
Ávinningur RÚV er sá, að það verður
búið til meira af leiknu efni til sýn-
inga.“
Veldur það ekki áhyggjum að fé-
lagsskapur sem kallar sig Hollvini
RÚV skuli líta samninginn þessum
augum?
„Ég held að í þessu felist misskiln-
ingur, og hef fundið að það hefur örl-
að á honum hjá einstaka öðrum.
Áhyggjurnar sem þar hafa kviknað
eru þær að með því að leggja fram
þetta fé til leikins efnis sé Björgólfur
að kaupa sig til áhrifa innan Rík-
isútvarpsins. Þessi ótti er fullkomlega
ástæðulaus, af þeirri ástæðu sem ég
nefndi. Björgólfur er ekki að styrkja
RÚV um eina einustu krónu. Það er
engin ástæða til að ætla að samning-
urinn kveiki einhverja sérstaka tillits-
semi í garð umsvifa Björgólfs að örðu
leyti í samfélaginu.“
„Engin gjöf til gjalda“
Samningur Ríkisútvarpsins og Björgólfs Guðmundssonar vekur misjöfn
viðbrögð Hollvinir RÚV mótmæla harðlega Handritshöfundar fagna
Leikið Allir litir hafsins eru kaldir, eftir Önnu Th. Rögnvaldsdóttur og
Ólaf Rögnvaldsson er dæmi um þætti unna utan sjónvarpsins. Hér eru
Hilmir Snær Guðnason og Helga Jónsdóttir í hlutverkum sínum.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„VIÐ Guðrún hittumst fyrst við at-
höfn, þar sem verið var að veita fram-
úrskarandi ungu fólki styrki. Ég vatt
mér að Guðrúnu – leist svo vel á hana
– og vildi vita hvort hún væri til í að
spila með mér á þeim frábæru tón-
leikum sem verða í kvöld.“ Það er ný-
útskrifaður söngvari frá Tónlistarhá-
skólanum í Vínarborg, Jón Svavar
Jósepsson, sem svo mælir, en píanó-
leikarinn sem honum leist svo vel á,
er Guðrún Dalía Salómonsdóttir.
Tónleikar þeirra, sem jafnframt eru
debút-tónleikar Jóns, verða í Salnum
í kvöld og hefjast kl. 20.
„Þetta er upphafið að farsælum
ferli sem við viljum kynna sem nýtt,
ungt afl í tónlistarheiminum,“ segir
Jón hróðugur.
Fyrri hluti efnisskrárinnar eru arí-
ur sem Jón æfði til lokaprófsins.
„Raddsvið mitt er vítt, og ég á
mjög erfitt með að skilgreina mitt
raddfag. En nú er ég kominn með
lausnina og segi að ég sé lýrískur bas-
sabariton. Þess vegna er ég að syngja
lög og aríur sem henta háum bassa-
röddum og „djúsí“ baritonröddum
með fína hæð.“
Eftir hlé brestur á með hófadyn og
hryllingi þegar mórar og skottur fara
á kreik. „Þetta eru rífandi draugalög,
dimm og drungaleg stemmning, í
bland við ótrúlega hnyttin hestalög.
Ég vinn við að járna hross, og þegar
ég var að vinna í hesthúsinu langaði
mig alltaf að syngja hestalög fyrir
hestamennina. Ég byrjaði að safna
hestalögum, en fór svo að blanda
draugalögum samanvið – því svo eru
líka til draug-hestalög. Ég nefni til
dæmis Kveldriður eftir Sigvalda
Kaldalóns, sem er um draugahesta. Í
þetta þema blanda ég líka vitfirringa-
músík. Æri- Tobbi varð ær af því að
vísa ferðamönnum leið yfir vað.
Ferðamennirnir drukknuðu allir með
tölu, en karlinn klikkaðist, og samdi
alls konar skrýtin ljóð, eins og Þamb-
ara vambara þeysingssprettir, því
eru hér svona margir kettir? Karl O.
Runólfsson samdi geðveika tónlist við
þetta – bókstaflega geðveika.“
Jón leggur áherslu á að fyrir tilstilli
Landsbankans sé hægt að bjóða tón-
listarnemum miðann á tónleikana á
þúsundkall. „Þetta er meiriháttar.
Svo fá aðrir nemar afslátt á miðaverði
Salarins. Okkur langar að fá hreyf-
ingu á tónlistarlífið og sjá meira ungt
fólk á tónleikum.“
Draugalegt debút
Morgunblaðið/G.Rúnar
Framtíðarfólk Guðrún Dalía Salómonsdóttir og Jón Svavar Jósepsson.
MIÐAR á tón-
leika Sinfóníu-
hljómsveitar Ís-
lands og FL
Group 7. desem-
ber, til styrktar
BUGL seldust
upp á rúmri
klukkustund í
gær. Einsöngvar-
ar á tónleikunum
verða Kiri Te Kanawa og Garðar
Thór Cortes. Verið er að kanna
hvort hægt verði að halda aukatón-
leika til að mæta eftirspurn.
Uppselt á Kiri
Kiri Te Kanawa