Morgunblaðið - 13.11.2007, Side 18

Morgunblaðið - 13.11.2007, Side 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Ég minnist sumarsýningarListasafnsins á Akureyrinú í sumar. Þetta var yfir- litssýning á málverkum eftir Georg Guðna Hauksson, einn okk- ar fremstu myndlistarmanna. Á sýningunni skipti Hannes Sigurðs- son, forstöðumaður listasafnsins, verkum Georgs Guðna upp í þrjú svið: fjallið, dalinn og sjóndeild- arhringinn. Sýningin var áhrifa- mikil og stór og vel valin verkin nutu sín furðu vel í litlu safninu. En af hverju að rifja upp þessa sýningu sem fór upp á veggi og var svo lokið nokkrum vikum síð- ar? Jú, eftir stendur mjög athygl- isvert bókverk sem kom út um leið og á skilið að vera veitt at- hygli, af áhugafólki um myndlist samtímans og um verk Georgs Guðna.    The Mountain – Fjallið – nefn-ist bókin (hún kom einungis út á ensku, ekki í íslenskri út- gáfu) og auk þess að vera veglega prýdd um 70 myndum af verkum listamannsins; málverkum, teikn- ingum og ljósmyndum, auk mynda af honum sjálfum við vinnu, eru í bókinni fróðlegar greinar um ferli Georgs Guðna, skrifaðar af tveimur af ritfærustu listfræðingum þjóðarinnar. Aðalsteinn Ingólfsson kallar grein sína Láð, loft og lögur – Georg Guðni og íslenska lands- lagshefðin í myndlist. Fjallar hann þar um breytingarnar sem urðu á verkum listamannsins við upphaf tíunda áratugarins og þróun þeirra í framhaldinu. Hannes Sigurðsson fjallar sjálfur um upphaf ferils Georgs Guðna og mótunarárin; og nálgun hans í þeirri grein er óvenjuleg. Hún var skrifuð fyrir fimmtán árum, árið 1992. Ég minnist fundar okkar Hannesar í New York síðla það sama ár, en þá bjugg- um við báðir í borginni, og list þessum fyrrum skólafélaga hans í MHÍ var honum afar hugleikin. Hannes hélt langan og eft- irminnilegan fyrirlestur um Georg Guðna fyrir okkur, nokkra listnema sem vorum í heimsókn hjá honum. Hannes skrifaði greinina þar vestra og var henni upphaflega ætlað að birtast í sýningarskrá í Svíþjóð. Þetta var fyrir tíma tölvupóstsins og listamaður og listfræðingur skiptust á ótölulegum fjölda sím- bréfa og sendibréfa yfir hafið, með ljósmyndum, skissum og hug- myndum. Vel var viðað í textann. Í greininni er „fæðing“ lands-lagsmálarans rakin og hvernig hann kom á hljóðlátan en áhrifa- ríkan hátt inn í íslenskt myndlist- arlíf, þar sem hann átti hvað stærstan þátt í að „blása nýju lífi í íslensku landslagshefðina“. Hannes rekur þróunina; frá nafn- greindum fjöllum til ónafn- greindra, upphugsaðra landslags- mynda; niður í dali og út á mörkina þar sem beinn sjóndeild- arhringur verður miðja mynd- verksins. Hann setur listina í sam- hengi, bæði bandarískt og norrænt, og allt er það hin fróð- legasta lesning. Eins og endranær liggur Hannes ekki á skoðunum sínum og segir til að mynda um þá splunkunýtt verk listamanns- ins, Ónefnt númer VII frá 1992, að það sé „freistandi, en umdeil- anlegt, að taka það út sem besta verk hans til þessa dags“. Þetta er eitt af fyrstu dalaverkunum. „Verkið steypir mismunandi tíma- bilum á ferli listamannsins saman við andartak upplifunarinnar. Það er eins og heilskannamynd eða bakspegilsyfirlit af leið hans inn í „Fjallið. … Það mætti halda að Wittgenstein hefði verið að rýna í þetta verk þegar hann skrifaði að „gegnsæi mætti líkja við hugs- un“.“ Það er alltaf hressandi þegar þeir sem skrifa um listir eru ólg- andi af ástríðukenndum áhuga á því sem þeir fjalla um. Það er ein- mitt ein af ástæðunum þess að The Mountain er vel lukkað bók- verk. Bakspegilsyfirlit af leið inn í „Fjallið“ AF LISTUM Einar Falur Ingólfsson » Það er alltafhressandi þegar þeir sem skrifa um listir eru ólgandi af ástríðukenndum áhuga á því sem þeir fjalla um. Morgunblaðið/Einar Falur Nýr Sjóndeildarhringur verður til; horft að mörkum lands og himins. Georg Guðni við trönurnar í vinnustofunni. Eftir Ólaf Guðstein Kristjánsson olafurgudsteinn@googlemail.com MIKIÐ hefir átt sér stað undanfarið á ís- lenskum menningarvettvangi í Berlín. Mætti hugsanlega ganga svo langt að tala um íslenska menningarinnrás. Alltént hafa íslenskir listamenn verið afar áberandi í menningarlífi borgarinnar síðustu daga. Innreiðin hófst með þátttöku Íslands sem gestaland á hinum svokölluðu Krimi-Tage- Berlin (Krimma-dagar) í samvinnu við sendiráðið, þann 28. október til 1. nóv- ember. Þar komu fjölmargir glæpasagna- höfundar fram, bæði þýskir og íslenskir, ásamt þekktum þýskum leikurum sem lásu upp úr verkum höfundanna. Til að mynda las hinn þekkti þýski leikari Claude Olver Rudolph upp úr bók Arnalds Indriðasonar, Vetrarborginni eða Frostnacht, eins og hún heitir á þýsku. Þeir íslensku höfundar sem þátt tóku voru, auk Arnalds, Jón Hallur Stefánsson, Viktor Arnar Ingólfsson, Yrsa Sigurðardóttir og Ævar Örn Jósepsson. Annars var í það heila látið vel af þessari hátíð og víst má þykja að íslenskur krim- maáhugi kemur eingöngu til með að vaxa í kjölfarið. Í framhaldi bókmenntanna tók tónlistin við með afar fjölsóttum og vel heppnuðum tónleikum í sendiherrabústaðnum þar sem Íslandsvinum var meðal annars boðið að hlýða á nýtt verk eftir Atla Heimi Sveins- son, Berlin Rapp 2, í flutningi íslensku söngkonunnar Guðrúnar Ingimarsdóttur og þýskra hljóðfæraleika. Föstudaginn 2. nóvember for-frumsýndi svo leikstjórinn Þorleifur Arnarson leikritið Nachtwache, eftir Lars Nóren í Admi- ralspalast. Lék þar systir leikstjórans, Sól- veig Arnardóttir, eitt aðalhlutverkanna. Er verkið liður í hinu svokallaða NordWind- Festival, sem einblínir á list Norður- landanna og stendur yfir til 2. desember. Verður Nachtwache svo frumsýnt þann 27. nóvember næstkomandi í Admiralspalast. Síðastliðinn mánudag opnaði svo Íslands- vinurinn Wolfgang Müller (ef einhver getur með rentu kallast Íslandsvinur er það hann) listasýningu og bókakynningu í gallerí Dör- rie Priess í Kreuzberg þar sem fjölmargir gestir voru samankomnir. En Wolfgang gaf einmitt nýverið út hina stórskemmtilegu bók Neues von er Elfenfront: Die Wahrheit über Island (Tíðindi frá álfavígstöðvum: Sannleikurinn um Ísland) sem sýnir land og þjóð í talsvert öðruvísi ljósi en Þjóðverjar eiga að venjast. Einnig tengdust allir list- munirnir sem þarna voru til sýnis á einn eða annan hátt Íslandi og voru skráðir und- ir Íslandsheiti listamannsins, Úlfur Hróð- ólfsson. Þar hélt einnig Ólafur Davíðsson sendiherra ræðu en uppákoman var unnin í samvinnu við sendiráðið. Í Felleshus, sameiginlegu samkomuhúsi norrænu sendiráðanna í Berlín, fóru svo fram tónleikar á miðvikudeginum í tilefni af 200 ára afmæli Jónasar Hallgrímssonar. Voru flutt lög eftir Atla Heimi Sveinsson sem hann samdi við ljóð skáldsins. Áhorf- endur samanstóðu einkum af áhugasömum Þjóðverjum, þótt inn á milli hafi leynst ætt- jarðarrækinn Íslendingur. Myndaðist einkar góð stemning og fóru tónlistarmennirnir á kostum í flutningi sínum, ásamt Arthúri Björgvini Bollasyni sem kynnti prógrammið af mikilli smekkvísi og á afar góðri og vand- aðri þýsku. Á föstudaginn var svo komið að Sinfón- íuhjómsveit Íslands sem spilaði í Haus des Rundfunks-Großer Sendensaal. Þeir tón- leikar voru liður í hinni evrópsku mús- íkhátíð Europamusicale „Wege des Nord- ens“, sem haldin er í fjórða sinn. Um er að ræða tvískipta dagskrá sem hófst haustið 2006 og lýkur núna í nóvember. Er menn- ing Norður-Evrópu þar í öndvegi með þátt- töku Íslands, Noregs og Svíþjóðar auk Eystrasaltsríkjanna. Hátíðin mun eiga sér stað bæði í Berlín og München og spilaði Sinfónían einmitt þar á laugardagskvöldið seinasta. Festivalið er unnið í náinni sam- vinnu með sendiráðum tilheyrandi ríkja. Eins og sjá má hefir mikið verið um að vera á menningarvettvanginum undanfarið og má raunar segja að ætíð sé eitthvað ís- lenskt um að vera í borginni þannig að ...við erum reyndar ekki búin að taka Manhattan, en erum á góðri leið með Berlín. Íslensk menningarbomba í Berlín Lestur Arnaldur Indriðason var einn af íslensku glæpasagnahöfundunum sem lásu upp í Berlín. TENGLAR ........................................................... http://www.nordwind-festival.de http://www.europamusicale.com

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.