Morgunblaðið - 13.11.2007, Page 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Elsku tengdapabbi.
Margt ég vildi
þakka þér og þess er
gott að minnast að þú
ert einn af þeim sem mér þótti gott
að kynnast.
Við burtför þína er sorgin sár
af söknuði hjörtun blæða.
En horft skal í gegnum tregatár
í tilbeiðslu á Drottin hæða.
og fela honum um ævi ár
undina dýpstu að græða.
Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð,
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Þín tengdadóttir
Hafdís.
Elsku afi.
Það er gott að vita af þér á góðum
stað. Á ferðalagi inní eilífðina. Já,
ferðalög einkenndu þitt líf. Nú með
ömmu ávallt þér við hlið, þannig
vildirðu hafa það. Þú saknaðir henn-
ar mikið eftir að hún kvaddi.
Ófáar voru þær sögurnar sem þú
sagðir okkur af sjónum. Þú sýndir
okkur myndir af þér og strákunum
af skólaskipinu uppdressuðum í sjó-
liðafötum. Stoltið leyndi sér ekki og
það var ekki skrítið, þú varst glæsi-
legur. Mikla reynslu, minningar og
dugnað fékkst þú á þessum tíma
sem við fjölskyldan nutum góðs af.
Einnig er mér minnisstæður sá
tími sem við vorum hjá ykkur ömmu
í sumarbústaðnum, slíkar minning-
ar eru ómetanlegar. Bæjarferðir
Hektor Sigurðsson
✝ Hektor Sigurðs-son fæddist á
Akureyri 13. sept-
ember 1921. Hann
lést á hjúkrunar-
heimilinu Sunnuhlíð
í Kópavogi 22. októ-
ber síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Kópavogskirkju
5. nóvember.
enduðu oftast á kaffi-
húsi að þinni uppást-
ungu og þar átti mað-
ur að velja sér allt það
sem mann langaði í.
Sonur minn Sævar
Már er heppinn að
hafa fengið að njóta
þín þessi tæp 4 ár og
hann talar mikið um
þig. Nú er ég fullviss
að þið amma vakið yf-
ir honum og barninu
ófædda.
Guð geymi þig.
Þín
Þórdís.
Genginn er góður drengur; Hek-
tor Sigurðsson. Glæsilegur á velli,
fallega klæddur; með glettnis-
glampa í augum. Þétt handtak og
hlýtt bros. Með vináttu og væntum-
þykju buðu þau Hjördís heitin mig
velkomna í fjölskylduna, en ég átti
því láni að fagna að eignast eldri son
þeirra hjóna, Sigurð Örn, að eigin-
manni.
Kornungur kvaddi Hektor föður-
húsin og sigldi til Danmerkur til að
gerast sjóliðsnemi á hinu geysistóra
seglskipi Danmark. Þá þegar mat
Hektor hinn ungi það svo, að allt
færi vel ef hann aðeins „færi eftir
reglunum“ eins og hann síðar sjálf-
ur komst að orði. Þessi skynsamlega
ákvörðun varð að einni helstu lífs-
reglu Hektors – löghlýðni og reglu-
festu; virðingu fyrir þeim lögum
sem giltu bæði á sjó og landi. Þessi
lífsregla Hektors og mannkostir
hans leiddu til þess að honum var
trúað fyrir miklu; formennsku til
sjávar og lands.
Hektor stýrði skipum sínum víða
um heimsins höf og í einni sjóferð-
inni til New York hitti hann þá konu
sem átti eftir að verða eiginkona
hans og lífsförunautur, Hjördísi
Wathne. Hughrifum sínum er hún
sá í fyrsta sinn þennan fríða og
föngulega fyrsta stýrimann þar sem
hann stóð í fullum skrúða við hlið
skips síns, lýsti Hjördís síðar þannig
fyrir mér, að hún hafi „drukknað í
augunum á honum“. Sú ást og að-
dáun sem þarna kviknaði í augum
beggja átti eftir að endast þeim ævi-
langt.
Hektor var hinn gætni og skyn-
sami fjölskyldufaðir sem í hvívetna
gætti velferðar fjölskyldunnar; flan-
aði aldrei að neinu og tók ákvarðanir
að vel yfirlögðu ráði. Með aga, festu
og öryggi skipstjórans leiddi hann
börn sín veginn til manns – lagði
þannig grunninn að sömu farsæld
sona sinna og hann ávallt naut sjálf-
ur í lífi og starfi. Það kunna þeir
honum þakkir fyrir og þess njótum
við nú; makar þeirra, börn og barna-
börn.
Þótt í land væri komið var Hektor
fyrst og síðast sjómaður og siglinga-
fræðingur; alltaf að gá til veðurs,
spekúlerandi í skipum, vitum, vind-
um, áttum, stjörnum og staðsetn-
ingum. Hann gaf börnum sínum víða
heimssýn, kenndi þeim ungum að
nota áttavita, að lesa í kort og
stjörnur. Enda er eiginmaður minn
afar „vel áttaður“ og ratvís með af-
brigðum.
Þrátt fyrir að hafa verið strangur
og fastur fyrir, einkum á yngri ár-
um, hafði Hektor ríka kímnigáfu –
oft með glettnisglampa í augum og
hnyttinn í tilsvörum; flautandi til ló-
unnar úti á túni.
Eftir tæplega hálfrar aldar sam-
vistir var fráfall Hjördísar árið 2001
Hektori þungur missir. En gamli
skipstjórinn lét ekki deigan síga,
heldur steig hann ölduna og horfði
fram úr brúnni; þakklátur fyrir
styrkan stuðning sona sinna og fjöl-
skyldu.
Með Hektori er genginn einn
fárra enn eftirlifandi sjómanna sem
sigldu í hinum hættulegu og ill-
ræmdu skipalestum síðari heims-
styrjaldarinnar. Átti sú erfiða
reynsla sinn þátt í að móta styrka
skapgerð hans. En örlögin ætluðu
Hektori það langa og farsæla lífs-
hlaup sem nú er á enda. Við sem
fengum að njóta Hektors og sam-
vistanna við hann kveðjum þennan
aldna sæfara með þakklæti, ást og
virðingu. Hann er nú lagður af stað í
sína hinstu sjóferð.
Björg Rúnarsdóttir.
Meira: mbl.is/minningar
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Lengd | Minningargreinar séu ekki
lengri en 3.000 slög (stafir með bil-
um - mælt í Tools/Word Count).
Ekki er unnt að senda lengri grein.
Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og
votta þeim sem kvaddur er virðingu
sína án þess að það sé gert með
langri grein. Ekki er unnt að tengja
viðhengi við síðuna.
Undirskrift | Minningargreinahöf-
undar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Minningargreinar
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Systir mín,
SIGRÍÐUR MARÍA GUÐJÓNSDÓTTIR,
Fannafold 63,
Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi
mánudaginn 29. október 2007.
Útför hennar verður frá Dómkirkjunni
miðvikudaginn 14. nóvember kl. 15.00.
Ása Guðrún Guðjónsdóttir.
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
INGIBJÖRG ÁRNADÓTTIR,
Kringlunni 59,
Reykjavík,
lést föstudaginn 9. nóvember.
Útförin verður auglýst síðar.
Hrafn Bragason,
Steinunn Hrafnsdóttir, Haraldur Arnar Haraldsson
Börkur Hrafnsson, Elín Norðmann,
Andri Þór, Snædís, Tinna, Jón Hrafns og Óskar Árni.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
GUNNAR PÁLL ÍVARSSON,
Norðurfelli 7,
lést laugardaginn 10. nóvember.
Útförin verður auglýst síðar.
Jónína Ragnarsdóttir,
Andrea Margrét Gunnarsdóttir,
Katrín Sylvía Gunnarsdóttir, Gunnþór Jónsson,
Gunnar Páll Torfason,
Heimir Páll Ragnarsson.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir og stjúpfaðir,
GUÐMUNDUR JÓNSSON
söngvari,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn
14. nóvember kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningasjóð Söngskólans
í Reykjavík.
Elín Sólveig Benediktsdóttir,
Ástríður Guðmundsdóttir,
Þorvarður Jón Guðmundsson,
Halldóra Guðmundsdóttir,
Guðlaugur Kristinn Óttarsson,
Sólveig Jóhannesdóttir
og fjölskyldur.
✝
Móðir okkar,
RAGNHEIÐUR BJÖRGVINSDÓTTIR LEE
frá Fáskrúðsfirði,
lést á sjúkrahúsi í Colchester, Englandi, að morgni
miðvikudagsins 7. nóvember.
Fyrir hönd fjölskyldnanna í Englandi og á Íslandi,
Oddný Sv. Björgvins,
Björgvin Kristbjörn Björgvinsson,
Róland Baldur Lee,
Róbert Óskar Lee,
Raymond Ásgeir Lee.
✝
Kær systir og mágkona,
SIGRÍÐUR FINNSDÓTTIR TATE
frá Hvilft, Önundarfirði,
lést 10. nóvember í Bandaríkjunum.
María Finnsdóttir,
Málfríður Finnsdóttir, Marías Þ. Guðmundsson,
Gunnlaugur Finnsson
og fjölskyldur.
Elsku Dídí frænka.
Þakka þér fyrir all-
ar stundirnar sem við
áttum saman í gegn-
um árin. Þær voru
margar þegar ég var
barn og unglingur. Þú passaðir okk-
ur systkinin stundum og það að ég
muni eftir því segir að það hafi verið
gaman hjá okkur. Ég man líka að þú
gafst mér gjöf þegar ég lá veik með
hettusótt. Man það eins og það hafi
gerst í gær. Þú komst úr vinnunni
með pakkann og svo sastu hjá mér
og bjóst til föt á dúkkuna. Þú gafst
mér líka stundum dúkkulísur og
kenndir mér að gera föt á þær. Þú
teiknaðir fyrir mig og litaðir í lita-
bækurnar mínar og mér fannst það
alltaf svo flott hjá þér. Enda varstu
listræn og handlagin. Þú greiddir
líka ömmu og systrum þínum svo
flott og varst sjálf alltaf mjög smart
kona.
Ég fór stundum með þér í Fljóts-
hlíðina og það voru ógleymanlegar
stundir. Ég hugsa oft til þeirra
stunda og það var alltaf sól og fal-
legt veður þar enda er það falleg-
asta sveit landsins.
Þú og Edda voruð bestu frænkur
sem hægt var að eiga. Ég gat alltaf
leitað til ykkar í spjall um allt og
ekki neitt.
Þið voruð báðar alltaf tilbúnar að
gefa unglingsstúlku ráð, hlusta á
mig og miðla mér af ykkar reynslu.
Þórunn J. Sigfúsdóttir
✝ Þórunn JónaSigfúsdóttir
fæddist í Reykjavík
6. maí 1941. Hún
lést þar 18. október
síðastliðinn
og var jarðsungin
í kyrrþey 30. októ-
ber.
Þú varst alltaf hæg-
lát og hógvær en samt
eftirminnileg. Brosið
þitt var eitt það falleg-
asta sem ég hef séð.
Ég sakna þín mikið en
það er huggun harmi
gegn að þú sért komin
til ömmu, afa og
Eddu. Þau taka vel á
móti þér og okkur í
fjölskyldunni líður vel
að vita af þér hjá
þeim.
Þakka þér fyrir allt,
elsku Dídí mín.
Hanna.
Hinn 30. f.m. bárust mér þau tíð-
indi, að Þórunn J. Sigfúsdóttir væri
látin. Hafði ég ekki tök á að fylgja
henni til grafar, en útför hennar fór
fram í kyrrþey. En ég vildi gjarnan
minnast hennar með nokkrum orð-
um þar sem hún var ritari undirrit-
aðs um árabil hjá rannsóknarlög-
reglu ríkisins.
Mat ég hana og störf hennar mik-
ils enda var hún samviskusöm og
vandvirk í öllum sínum störfum.
Voru henni oft falin vandasöm og
erfið viðfangsefni, oft með litlum
fyrirvara og stundum utan venju-
legs vinnutíma á þessum starfsvett-
vangi. Gegndi hún öllum þessum
störfum með mikilli prýði, og bar ég
því mikið traust til hennar. Heiðra
ég því minningu hennar með þakk-
læti og virðingu. Þórunn – Dídi – var
og vel metin af starfsfélögum sínum
og eignaðist meðal þeirra marga
góða vini, sem ég veit að minnast
hennar nú með hlýhug.
Við Erla sendum aðstandendum
hennar innilegar samúðarkveðjur.
Hallvarður Einvarðsson.