Morgunblaðið - 13.11.2007, Qupperneq 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Magnús HStephensen
fæddist í Reykjavík
30.maí 1928.Hann
lést á Droplaugar-
stöðum 2. nóvember
síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Hannes M.
Stephensen, verka-
maður síðar for-
maður Verka-
mannafélagsins
Dagsbrúnar, frá
Berustöðum, Ása-
hreppi f.17.04 1902
d. 04.02.1970 og Guðrún Höskulds-
dóttir, ljósmóðir, frá Eyjum í Kjós
f. 14.07. 1901 d. 29.05. 1984.Systk-
in Magnúsar eru Ólafur f.1931 og
Halldóra f.1936. Magnús kvæntist
hinn 14.júní 1950 Vilborgu Guð-
jónsdóttur, kjólameistara, frá
Dætur þeirra eru Cecilia Valdís f.
2001 og Malin Björk f. 2007. 3)
Magnús f. 24.12. 1958. Hann
kvæntist Elínu G. Helgadóttur
f.1958. Þau slitu samvistum. Börn
þeirra eru Júlíus Stígur f.1979 og
Saga f.1982. Sambýliskona Júlíus-
ar Stígs er Arnheiður Bjarnadótt-
ir f. 1979. Þeirra börn eru Þórdís f.
1999 og Kári f. 2005. Maki Sigrún
Björnsdóttir f.1959. Sonur þeirra
er Sindri f.1989.
Magnús lærði málaraiðn hjá
Bertel Erlingssyni í Reykjavík.
Lauk prófi frá Iðnskólanum í
Reykjavík og sveinsprófi 1951. Fé-
lagi í MSFR 1951. Hann var virkur
í félagsmálum og gegndi fjölmörg-
um trúnaðarstörfum. Var í trún-
aðarmannaráði 1958-61. Gjaldkeri
1962-64. Formaður 1966-78 og
1981-98. Átti sæti í stjórn og sat
þing SBN frá 1966 og þing ASÍ frá
1966. Í stjórn mælingastofu mál-
ara 1966-68. Í framkvæmdanefnd
sumarbúðanna í Vogi-formaður
1972-77.
Útför Magnúsar fer fram frá
Bústaðakirkju í dag og hefst at-
höfnin kl.13.
Lyngum, Meðallandi
f. 16.9. 1930.
Börn þeirra eru 1)
Guðrún f.15.11.1950.
Hún giftist Valgarði
Sigurðssyni f.1943.
Þau slitu samvistum.
Dóttir þeirra er
Hulda Björk f. 1971.
Maki Sigurbjörn Þór
Bjarnason f.1945.
Synir þeirra eru Haf-
steinn Þór f. 1980 og
Haukur Þór f. 1981,
sambýliskona Hauks
er Kristjana Sif Har-
aldsdóttir f.1986, dóttir þeirra er
Eva Þóra f.2006. 2)Hannes f.25.03.
1953. Hann kvæntist Björgu Krist-
jánsdóttur f.1956. Þau slitu sam-
vistum. Synir þeirra eru Magnús
Þór f. 1980 og Kristján Már f.
1984. Maki Anika Stephensen.
Þegar ég flutti úr Langagerðinu 5
ára gömul, heimilinu sem þið amma
sköpuðuð, sagðir þú mér að þar ætti
ég alltaf heima og að húsið ykkar
yrði alltaf mitt heimili. Þetta þótti
mér ákaflega vænt um. Að koma til
ykkar ömmu var svolítið eins og að
koma í annan heim og þar var alltaf
hægt að slaka á og gleyma amstri
dagsins.
Uppi hjá ömmu saumuðum við og
niðri hjá þér máluðum við, smíðuð-
um og spiluðum rússa. Þið amma
voruð alltaf að hanna og skapa og
umhverfi ykkar bar þess líka merki
þar sem allt var þakið listaverkun-
um ykkar. Meira að segja frauðplast
varð að skemmtilegri fígúru í hönd-
unum á þér.
Á hverju sumri biðum við krakk-
arnir með eftirvæntingu eftir því að
komast upp í Vog sem var svo sann-
arlega draumastaður fyrir börn.
Ferðirnar út í eyjarnar, siglingarn-
ar, Langasandsgolfið og spila-
mennskuna mun ég alltaf geyma í
minni.
Vertu til er vorið kallar á þig,
vertu til að leggja hönd á plóg.
Komdu út því að sólskinið vill sjá þig,
sveifla haka og rækta nýjan skóg,
hei!
Sveifla haka og rækta nýjan skóg.
Þetta var eitt af okkar uppáhalds-
lögum og við sungum það gjarnan
eins hátt og við gátum. Þú hafðir
alltaf gaman af tónlist og ég man
hvað mér fannst þú töff afi þegar þú
keyptir geisladiskinn „Jesus Christ
Superstar“ sem við höfðum bæði svo
gaman af, ég unglingurinn og þú af-
inn.
Þakka þér fyrir allt saman, elsku
afi minn.
Saga.
Ég á margar góðar minningar úr
æsku með afa mínum. Hann var
glettinn og uppátækjasamur og
hafði mörg áhugmál sem hann deildi
með okkur barnabörnunum. Hann
var mikill áhugamaður um bók-
menntir og listir og gerði sjálfur
fjölda listaverka þar sem hann not-
aði meðal annars íslenskt grjót og
aðra hluti úr náttúrunni.
Við fórum oft að veiða, tefldum og
einu sinni á ári fengum við tveir
mikla útrás fyrir flugeldaáhuga okk-
ar. Það sem stendur upp úr eru þó
stundirnar sem við fjölskyldan átt-
um saman á Vogi á Mýrum, þeim
yndislega stað. Þakka þér fyrir allar
góðu stundirnar, afi minn.
Júlíus Stígur Stephensen.
Látinn er eftir mikil átök við
manninn með ljáinn, Magnús H.
Stephensen, málarameistari í
Reykjavík.
Leiðir okkar Magnúsar lágu sam-
an í Iðnskólanum í Reykjavík, hinu
aldna húsi við Lækjargötu. Þarna
tókst með okkur góður vinskapur í
gegnum klassík í tónlist. Stjórnmál-
in í Æskulýðsfylkingunni, og svo hið
faglega svið sem við vorum báðir að
leggja út í. Magnús var skarp-
greindur eins og hann á kyn til,
húmoristi svo af bar, en ansi naprar
meiningar í hans beitta háði á
stundum. Hann horfði á foreldra
sína eiga í harðri baráttu við afleið-
ingar heimskreppunnar miklu,
þessa ömurlega tíma atvinnuleysis
og skorts. En Magnús var líka einn
af sinni kynslóð sem sagði við sjálfa
sig: „Ég ætla að byggja mitt eigið
hús og ekki verða leiguliði.“ Og
hamarshöggin dundu í þorpunum í
kringum landið. Til þess að mæta
lánsfjárskorti fóru menn í vinnu-
skipti í stórum stíl. Unnu sína fullu
vinnu og smíðuðu heilu þorpin og
borgarhlutana í aukavinnu! þessi
tími gífurlegrar uppbyggingar um
land allt. Tími framleiðniaukningar
með eindæmum liggur enn óbættur
hjá garði sagnaritara, sem jafn-
framt yrðu að vera hagfræðingar.
Þetta voru tímar líkamlegrar
þreytu, en um leið tímar gleði yfir
unnum sigrum. Þá við Magnús vor-
um um það bil að ljúka við Iðnskól-
ann bað hann mig að gera sér smá-
greiða og skreppa með sér inn á
Hofteig 19. Þar leit ég tvær ungar
stúlkur, önnur var kærasta Magn-
úsar en hin varð konan mín er tímar
liðu. Þannig varð Magnús örlaga-
valdur í mínu lífi og fyrir það er ég
þakklátur að eilífu.
Megi Kristur, Búdda, Þór og Óð-
inn fylgja þér, Magnús, í lendur
ljóssins.
Vilborgu og fjölskyldu sendum
við Jóhanna innilegar samúðar-
kveðjur.
Sigurður Sigurðsson.
Magnús Hannesson
Stephensen
LANDSLIÐ Íslands í opnum
flokki lenti í 20. sæti af 39 keppn-
issveitum í Evrópukeppni landsliða
sem lauk í síðustu viku á Krít á
Grikklandi. Ólíkt t.d. ólympíu-
mótinu í skák, þar sem vinninga-
fjöldi liðsmanna skiptir fyrst og
fremst máli, var á EM talið til liðs-
stiga. Lið fékk tvö stig fyrir að sigra
í viðureign, eitt stig fyrir jafntefli og
ekkert fyrir tap. Íslenska liðið vann
fjórar viðureignir og gerði eitt jafn-
tefli og tapaði fjórum viðureignum.
Það fékk níu stig af 18 mögulegum
og 19 vinninga af 36 mögulegum. Af
Norðurlandaþjóðum náðu Danir
einir betri árangri en íslenska liðið
en þeir lentu í 12. sæti með 11 stig
og 19 vinninga. Liðsmenn íslenska
liðsins græddu ríflega 30 skákstig
og þar af mun stigatala Héðins
Steingrímssonar aukast um 14 og
Henriks Danielsens um 15. Síðast
náði íslenskt lið ofar á EM þegar
keppnin var haldin í Debreccen í
Ungverjalandi árið 1992.
Af framangreindri upptalningu
má draga þá ályktun að íslenska lið-
ið hafi náð góðum árangri á mótinu
undir liðsstjórn Gunnars Björnsson-
ar og vísbending um að liðið sé á
réttri braut. Taflmennska liðs-
manna var áhugaverð og einkar
ánægjulegt hversu Héðinn og Hen-
rik náðu sér vel á strik. Héðinn
tefldi af öryggi og af mikilli elju.
Hann lét ekki slæmt tap á sig fá í
fyrstu umferð heldur tefldi allar níu
umferðirnar og lagði m.a. þrjá stór-
meistara að velli í löngum baráttu-
skákum. Henrik lagði tvo stórmeist-
ara að velli, m.a. hinn 19 ára Króata
Ante Birkic (2.577). Í þeirri skák
hafði Henrik svart og svaraði kóng-
speðsleik Króatans með 1. … e5.
Ástæðan fyrir þessu sjaldgæfa byrj-
unarvali Henriks var að honum þótti
andstæðingurinn ekki tefla Berlín-
arvörnina í spænska leiknum vel. Á
daginn kom að andstæðingurinn
þorði ekki að tefla hefðbundið og
upp kom staða þar sem Henrik fékk
afar hættuleg sóknarfæri í líkingu
við þau sem koma upp í kóngsind-
verskri vörn. Í 31. leik lét Henrik til
skarar skríða:
31. … h3! 32. gxh3 Rh4
Svartur kemur nú drottningu
sinni fyrir á h5 og þá er úr vöndu að
ráða fyrir hvítan.
33. Rb1 Dh5 34. Rd2 Hh7 35. Kg1
Rg6 36. Hc7 Dxh3 37. Hxh7 Kxh7
38. Hc7+ Kg8 39. Bxg3 fxg3 40. Rf1
Rf4 41. Dc2 g2 42. Rh2 Dg3 og hvít-
ur gafst upp.
Öruggir sigurvegarar Evrópu-
mótsins voru Rússar sem fengu 17
stig af 18 mögulegum. Peter Svidler
(2.732) tefldi á fyrsta borði fyrir
Rússa og fékk hann sex vinninga af
sjö mögulegum og samsvaraði
frammistaða hans tæpum 3.000
skákstigum. Frammistaða Alexand-
ers Morozevich (2.755) sem tefldi á
öðru borði var einnig glimrandi góð.
Næst á eftir rússneska liðinu varð
sveit ólympíumeistara Armena sem
fékk 14 stig en lið Azera nældi í
bronsið með 13 stig.
Nánari upplýsingar um mótið er
að finna á heimasíðu þess,
http://www.euroteams2007.org.
Yfirburðir Björns
á MP-mótinu
Björn Þorfinnsson (2.323) fékk
8½ vinning af níu mögulegum í A-
flokki MP-mótsins sem lauk fyrir
skömmu. Þetta fornfræga Haust-
mót Taflfélags Reykjavíkur var
skipað tíu skákmönnum í A-flokki
en 21 tók þátt í opnum flokki. Hrafn
Loftsson (2.250) varð Skákmeistari
Taflfélags Reykjavíkur 2007 en
hann fékk 5½ vinning eins og Sig-
urbjörn Björnsson (2.290). Bæði
Björn og Sigurbjörn eru félagar í
Taflfélaginu Helli sem og Atli Freyr
Kristjánsson (1.990) sem vann opna
flokkinn með átta v. af níu mögu-
legum.
Nánari upplýsingar um mótið er
að finna á www.skak.blog.is.
Er landsliðið á réttri braut?
daggi@internet.is
SKÁK
Krít, Grikklandi
EVRÓPUKEPPNI LANDSLIÐA 2007
26. október – 7. nóvember 2007
Morgunblaðið/Gunnar Björnsson
Landsliðið Sigur vannst á Finnum í lokaumferðinni.
Helgi Áss Grétarsson
✝ Jóna SoffíaTómasdóttir
fæddist 26. júní 1924
í Færeyjum. Hún
lést á Landspítal-
anum við Hring-
braut hinn 3. nóv-
ember sl.
Foreldrar hennar
eru Júlíana Lovísa
Ísfeld, fædd á Hest-
eyri í Mjóafirði,
Múlasýslu, og
Thomas Martin
Andreasen, fæddur
á Eiði, Austurey í
Færeyjum. Systkini hennar eru
Flóra, Ingjaldur, Astrid, Judid,
Þorbjörn og Tómas
Keistin. Þorbjörn lif-
ir einn systkinanna.
Maki Jónu Soffíu
var Haraldur Helga-
son sem er látinn.
Börn Jónu Soffíu og
Haraldar eru Helga,
Erla, Tómas og
Valdimar.
Barnabörnin eru
átta og barna-
barnabörnin eru
fjögur.
Útförin fer fram
frá Aðventkirkju,
Ingólfsstræti 19, Reykjavík, í dag,
13. nóvember, klukkan 13.
Elsku móðir.
Þú varst minn klettur, minn
verndari, festa, viska, friður, mildi
og gefandi.
Þú kenndir mér réttsýni, trúfestu.
Þú varst hin fórnfúsa móðir, minn
verndari. Ekkert gat bugað þinn
anda og sál, hvorki menn né tímans
tönn.
Þú varst og verður ætíð hetjan
mín sem umvefur mig að eilífu, það
er mín Guðs blessun að hafa gengið
götuna með þér.
Dýpsta sæla og sorgin þunga
svífa hljóðlaust yfir storð.
Þeirra mál ei talar tunga,
tárin eru beggja orð.
(Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum.)
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlaustu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
Fyrst sigur sá er fenginn,
fyrst sorgarþraut er gengin,
hvað getur grætt oss þá?
Oss þykir þungt að skilja,
en það er Guðs að vilja,
og gott er allt, sem Guði er frá.
Nú héðan lík skal hefja,
ei hér má lengur tefja
í dauðans dimmum val.
Úr inni harms og hryggða
til helgra ljóssins byggða
far vel í Guðs þíns gleðisal.
(Valdimar Briem.)
Við sendum öllu starfsfólki og vin-
um á Droplaugastöðum, þar sem hún
dvaldist síðustu sjö árin,
okkar bestu þakkir fyrir allt gott.
Erla J. Haraldsdóttir.
Elsku fallega amma mín. Nú ertu
búin að kveðja þennan heim og ég
veit að annað gott tekur við. Það er
erfitt að þurfa að kveðja þig, ég bjóst
ekki við því að þú þyrftir að fara
núna en maður er aldrei undir það
búinn að kveðja þá sem maður elsk-
ar.
Í hvert skipti sem ég hugsa um þig
brosi ég og hjarta mitt fyllist hlýju,
ég er svo þakklát fyrir þær stundir
sem ég eyddi með þér, þá sérstak-
lega síðasta ár, að sjá þig með Aroni
mínum. Hann kætti þig svo mikið og
þú talaðir alltaf svo fallega um hann,
þér þótti svo vænt um hann og okkur
öll. Það var alltaf svo gott að koma til
þín, það var alltaf svo mikil ró og
friður yfir þér og alltaf svo góð
ömmulykt, maður fylltist allur af
kærleika eftir að hafa verið hjá þér.
Enda sagðir þú að það væri aldrei
gefinn of mikill kærleikur og mun ég
ætíð hafa það í huga, elsku amma
mín.
Aldrei er Guð eins nálægur og
þegar við játum úrræðaleysi okkar
og snúum okkur til Hans.
Sælir eru þeir menn sem finna
styrk hjá þér, er þeir fara í gegnum
táradalinn umbreyta þeir honum í
vatnsríka vin.
Ég elska þig,
Anna Maja Albertsdóttir.
Jóna Soffía
Tómasdóttir