Morgunblaðið - 13.11.2007, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 13.11.2007, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2007 39 Atvinnuauglýsingar ⓦ Blaðberar óskast í Hveragerði Upplýsingar í síma 893 4694 eftir kl. 14.00 Starfsfólk óskast á Kirkjubæjarklaustur Óskum eftir að ráða starfsfólk til að annast aldraða á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Klausturhólum á Kirkjubæjarklaustri. Um er að ræða störf við umönnun og ræstingar. Við útvegum húsnæði gegn vægu gjaldi. Frítt fæði á vinnutíma. Glæsileg hjúkrunarálma var tekin í notkun fyrir tæpum tveimur árum. Kirkjubæjarklaustur er þéttbýliskjarni í Skaftár- hreppi í V-Skaftafellssýslu en í sveitarfélaginu búa um 500 manns. Á Kirkjubæjarklaustri er starfrækt heilsugæslustöð, grunnskóli, tónlistarskóli og leikskóli. Góð aðstaða er til íþróttaiðkunar en á staðnum er íþróttamiðstöð með sundlaug og íþróttahúsi og jafnframt er á svæðinu íþróttavöllur og golfvöllur. Náttúrufegurð í Skaftárhreppi er rómuð og þar á sér stað mikil uppbygging í ferðaþjónustu. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 487 4870 eða 894 985. Netfang: klausturholar@centrum.is Byggingafulltrúi Starf byggingarfulltrúa uppsveita Árnessýslu er laust til umsóknar. Umsækjandi þarf að hefja störf 1. febrúar 2008 - eða eftir samkomulagi. Æskilegt er að umsækjandi hafi fasta búsetu á svæðinu. Um starfið fer skv. 9. gr. byggingar- reglugerðar og umsækjendur þurfa að uppfylla skilyrði 48. og 49. gr. skipulags- og byggingar- laga. Starfið er áhugavert fyrir þá sem hafa gaman af því að kynnast landi og lýð. Starfssvæðið nær yfir 5 sveitarfélög Árnessýslu, Grímsnes- og Grafningshrepp, Bláskógabyggð, Hrunamanna- hrepp, Skeiða- og Gnúpverjahrepp og Flóa- hrepp. Starfsaðstaða á skrifstofu á Laugarvatni er góð. Nánari upplýsingar um starfið veitir Hilmar Einarsson byggingarfulltrúi í síma 486 1145 og Jón Valgeirsson, sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps, í síma 486 4400. Sími er opinn fyrir hádegi virka daga. Umsóknarfrestur er til 23. nóvember 2007 og skal umsóknum ásamt ferilsskrá skilað á skrif- stofu Grímsnes- og Grafningshrepps á Borg, 801 Selfoss. Raðauglýsingar 569 1100 Fyrirtæki Óska eftir Vill kaupa góðan malarvagn, nýlega hjólagröfu og vandaðar vinnubúðir. Upplýsingar hjá Óla, s. 897 9743. Normi vélsmiðja, Hraunholti 1, 190 Vogum. normi@normi.is S.565 8822 Nauðungarsala UPPBOÐ Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti 107, Akureyri, sem hér segir, á eftirfarandi eignum: Hafnarbraut 14, verslun-iðnaður, 01-0101, Dalvíkurbyggð (215-4889), þingl. eig. Pat ehf, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Akureyri, föstudaginn 16. nóvember 2007 kl. 10:00. Hafnarstræti 79, íb. 01-0301, Akureyri (214-6929), þingl. eig. GFG ehf, gerðarbeiðendur Landsbanki Íslands hf og Sýslumaðurinn á Akureyri, föstudaginn 16. nóvember 2007 kl. 10:00. Hafnarstræti 79, íbúðarherbergi 01-0101, Akureyri (214-6927), þingl. eigandi GFG ehf, gerðarbeiðendur Landsbanki Íslands hf, Sjóvá-Al- mennar tryggingar hf og Sýslumaðurinn á Akureyri, föstudaginn 16. nóvember 2007 kl. 10:00. Helgamagrastræti 48, 01-0201, Akureyri (214-7323), þingl. eig. Einar Pálsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Vátryggingafélag Íslands hf, föstudaginn 16. nóvember 2007 kl. 10:00. Hjarðarslóð 1e, Dalvíkurbyggð (215-4915), þingl. eig. Gissur Kristjánsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Landsbanki Íslands hf og Tryggingamiðstöðin hf, föstudaginn 16. nóvember 2007 kl. 10:00. Hólavegur 9, íb. 01-0201, Dalvíkurbyggð (215-4947), þingl. eig. Stefán Agnarsson, gerðarbeiðendur Dalvíkurbyggð, Innheimtustofnun sveit- arfélaga, Íbúðalánasjóður og Vátryggingafélag Íslands hf, föstudaginn 16. nóvember 2007 kl. 10:00. Hrafnagilsstræti 28, íb. 01-0001, Akureyri (222-5056), þingl. eig. Skólastígur ehf, gerðarbeiðandi Tryggingamiðstöðin hf, föstudaginn 16. nóvember 2007 kl. 10:00. Sjávargata 2, Hrísey, Akureyri (215-6341), þingl. eig. Kraka ehf, gerðarbeiðandi Akureyrarkaupstaður, föstudaginn 16. nóvember 2007 kl. 10:00. Skíðabraut 3, 01-0101, Dalvíkurbyggð (215-5169), þingl. eigandi Gísli Steinar Jóhannesson, gerðarbeiðandi S24, föstudaginn 16. nóvember 2007 kl. 10:00. Strandgata 49, geymsla, 02-0103, Akureyri (255-4639), þingl. eig. Björgvin Ólafsson, gerðarbeiðendur Arnarfell ehf og Avant hf, föstudaginn 16. nóvember 2007 kl. 10:00. Vaðlaborgir A, orlofshús nr.7, Svalbarðsstrandarhreppi (228-5210), þingl. eig. Vaðlaborgir ehf, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Akureyri, föstudaginn 16. nóvember 2007 kl. 10:00. Vestursíða 22, íb. 02-0302, eignahl., Akureyri (222-0948), þingl. eig. Páll Brynjar Pálsson, gerðarbeiðandi Ásprent - Stíll ehf, föstudaginn 16. nóvember 2007 kl. 10:00. Vestursíða 34, íb. 02-0101, Akureyri (215-1621), þingl. eig. Páll Þorvaldsson, gerðarbeiðandi Sparisjóður Siglufjarðar, föstudaginn 16. nóvember 2007 kl. 10:00. Ytra-Holt, Hringsholt, hesthús 01-0120, Dalvíkurbyggð (215-4598), þingl. eig. Fákar ehf, gerðarbeiðandi Dalvíkurbyggð, föstudaginn 16. nóvember 2007 kl. 10:00. Sýslumaðurinn á Akureyri, 12. nóvember 2007. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri sem hér segir: Skarðsá, landnúmer 137837, Dalabyggð. Gerðarþoli Edda Unnsteins- dóttir, föstudaginn 16. nóvember 2007, kl. 13:00. Sýslumaðurinn í Búðardal, 9. nóvember 2007, Áslaug Þórarinsdóttir sýslumaður. Félagslíf I.O.O.F. Rb.1  15711138- 9 lII*E.T.1 HAMAR 6007111319 III EDDA 6007111319 II Mig langar til að minnast Petreu Guð- nýjar eða Petru eins og hún var oft- ast kölluð. Kynni okkar hófust vet- urinn 1983 þegar ég fór að venja komur mínar í Lerkilundinn til Ingv- eldar dóttur hennar, sem síðan hefur verið mín besta vinkona. Ingveldur er yngst í sínum systk- inahópi en ég er elst í mínum. Heim- ur hennar opnaði mér því fjölmargar nýjar upplifanir og lífsskoðanir og þar lék Petra stórt hlutverk. Hún Petrea Guðný Konráðsdóttir ✝ Petrea GuðnýKonráðsdóttir ljósmóðir fæddist á Böðvarshólum í Vestur-Húnavatns- sýslu 5. janúar 1931. Hún lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri 29. októ- ber síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Akureyrar- kirkju 9. nóvember. sagði okkur frá því þegar hún var lítil stelpa í Húnavatns- ýslu. Þá þeyttist hún um allt á hestbaki. Hún lýsti því hvað hún hafi verið stolt þegar henni var treyst til þess fjögurra ára gam- alli að fara einni á bak. Hún sagði okkur frá lífinu í sveitinni, frá torfbænum sem hún fæddist í og hvað henni þótti gott að leggjast ein á grasbala og sleikja sólina. Mér þótti stór- merkilegt að hún nútímakonan hefði lifað þannig lífi sem var svo fjarlægt okkur og fyrir mér aðeins til í sögu- bókum. Hún hlustandi á Sykurmol- ana eða Sniglabandið á hæstu still- ingu inni í stofu á meðan hún var úti í garði að slá. Það var eitthvað sem ég var ekki að upplifa á mínu heimili. Ég man að mér fannst það stór- merkilegt að foreldri gæti haft gam- an af sömu tónlist og við ungling- arnir og þar að auki hlustað á hana svona háttstillta. Ég var vönust því að við krakkarnir værum beðin um að lækka í okkar músík. Ef það er eitthvað sem Petrea kenndi mér var það að dæma ekki fólk eftir aldri þess. Fólk getur verið ungt á hvaða aldri sem er og það fannst mér sann- ast á henni. Söknuðurinn er mikill en minning- in lifir áfram með ykkur. Elsku Ingv- eldur, Petrea Kaðlín, Björn og Simmi, Svandís, Tryggvi, Guðlaug, Helgi og fjölskyldur, ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur. Rósa Rut. Við vorum tólf ungar og lífsglaðar stúlkur sem hófum nám í Ljós- mæðraskóla Íslands haustið 1952 og lukum námi ári seinna nema ein sem varð að fresta námi um eitt ár vegna veikinda. Allar höfum við unnið meira eða minna við ljósmóðurstörf á þessum tíma, sem spannar yfir hálfa öld, og erum auðvitað allar hættar þeim störfum nú vegna aldurs. Það hefur líka verið höggvið skarð í hópinn, því fjórar úr þessum hópi eru horfnar héðan og ein af þeim er trygglynda og góða vinkona mín, Petrea Kon- ráðsdóttir, sem varð að lúta í lægra haldi fyrir þeim illvíga sjúkdómi, sem allt of margir falla fyrir þótt stundum takist að yfirvinna hann. Það er alltaf áfall að fá þann dóm að fundist hafi krabbamein í einhverri mynd. Petra var þar ekki undanskil- in, en eftir nokkurn tíma tók hún því með slíku æðruleysi að undravert var. Það þýðir ekki að deila við dóm- arann sagði hún. Ég ætla að taka þessu, en ég hefði svo gjarnan viljað fá nokkur ár í viðbót. Það er bara ekkert við þessu að gera. Við skólasysturnar höfum alltaf haft mikið samband og komið saman við ýmis tækifæri og á ýmsum stöð- um. Við fórum m.a. saman til Lúx- emborgar á 40 ára útskriftarafmæl- inu. Þetta var svo samstilltur hópur og oft glatt á hjalla. Skólasysturnar; Ólöf, Freyja, El- ín, Steinunn, Sigrún, Herdís og Mar- grét, þakka Petru fyrir allar góðu stundirnar og senda öllum aðstand- endum innilegar samúðarkveðjur. Við Petra höfum alla tíð haft mikið samband og enn er ég ekki búin að átta mig á því að ekki er lengur hægt að hittast, eða bara slá á þráðinn og „blaðra“ svolítið, eins og Petra komst stundum að orði. Við unnum saman tíma og tíma á fæðingardeildinni á Akureyri og einnig við heimafæðingu. Móðir mín Ingibjörg, sem líka var ljósmóðir, hafði mikið samband við heimili Petru og var hjá henni þegar yngsta barnið, hún Ingveldur, fæddist heima í Álfabyggðinni. Við aðstoð- uðum hana við fæðinguna mæðgurn- ar og gekk fæðingin ljúflega og eðli- lega. Petra fylgdist vel með málum líð- andi stundar og hafði ávallt fastmót- aðar skoðanir á hverju sem var. Hún hafði alveg kjark til að segja sína meiningu og það var oft gaman að rökræða hlutina við hana. Petra hafði unun af að hlusta á góða tónlist og hafði einnig gaman af að syngja, þótt hún kæmi því ekki í verk, eins og hún sagði, að syngja með í kór. Söngurinn léttir lund og höfum við skólasystur oft tekið lagið saman, sérstaklega við Petra og Elín, „tríóið í skólanum“. Það er svo margt sem hægt væri að minnast og af mörgu er að taka. Það verður ekki rakið frekar hér, en góð samferðakona kvödd með þakklæti fyrir öll árin sem við höfum átt samleið. Helgi, Guðlaug, Svandís, Tryggvi, Ingveldur og fjölskyldur ykkar allar. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra frá okkur Sveini. Guð veri með ykkur. Ása Marinósdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.