Morgunblaðið - 13.11.2007, Síða 41

Morgunblaðið - 13.11.2007, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2007 41 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofa opin kl. 9-16.30, jóga kl. 9, postulínsmálning og útskurður kl. 13-16.30. Árskógar 4 | Bað kl. 9.30, handav. kl. 8-16, smíði/ útskurður kl. 9-16.30, leikfimi kl. 9, boccia kl. 9.45. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, vefnaður, almenn handavinna, mogunkaffi/dagblöð, fótaað- gerð, hádegisverður, línudans, kaffi. Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák kl. 13, fram- sögn kl. 17, félagsvist kl. 20. Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl. 9.05- kl. 9.55, gler- og postulínsmálun kl. 9.30, handavinna kl. 10, jóga kl. 10.50, tréskurður og róleg leikfimi kl. 13, alkort kl. 13.30, stólajóga kl. 17, jóga á dýn- um kl. 17.50. Fræðsluerindi Glóðar kl. 20, Árni Gunnarsson framkvstj. og Gestur Ólafsson arki- tekt kynna heilsuþorp á Spáni. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefnaður kl. 9, jóga kl. 9.15, myndlistahópur kl. 9.30, ganga kl. 10, leik- fimi kl. 11, hádegisverður kl. 11.40, bútasaumur kl. 13, jóga kl. 18.15 og handavinnukvöld kl. 20. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Línudans kl. 12, kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12, súpa kl. 12.30, spilað kl. 13, karlaleikfimi kl. 13, botsía kl. 14, tré- smíði kl. 13.30, vatnsleikfimi kl. 14. Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustofur opnar kl. 9- 16.30, m.a. glerskurðarvinna leiðsögn veitir Vigdís Hansen og perlusaumur, létt ganga um nágrennið kl. 10.30, postulínsnámskeið kl. 13. 17. nóv. kl. 14.30 syngur Gerðubergskórinn, við opnun mynd- listarsýningar Þorgríms Kristmundssonar. S. 575- 7720. Furugerði 1, félagsstarf | Aðst. við böðun kl. 9, bókband. Frjáls spilamennska kl. 13, kaffiveitingar kl. 15. Hraunbær 105 | Handavinna, glerskurður, hjúkr- unarfræðingur kl. 9, boccia kl. 10, leikfimi kl. 11, há- degismatur kl. 12, bónusbíllinn kl. 12.15, kaffi kl 15. Hvassaleiti 56-58 | Bútasaumur kl. 9 hjá Sig- rúnu. Jóga kl. 9, Björg F. Námskeið í myndlist kl. 13.30 hjá Ágústu. Helgistund kl. 14 í umsjón séra Ólafs Jóhannssonar. Böðun fyrir hádegi. Hádeg- isverður kl. 11.30. Hársnyrting. Íþróttafélagið Glóð | Árni Gunnarsson og Gestur Ólafsson kynna undirbúning og framkvæmdir við byggingu heilsuþorps á Spáni. Kynningin verður í Gjábakka kl. 20. Veitingar að hætti Glóðar. Hring- dansar í Kópavogsskóla kl. 14.20-15.20. Uppl. í síma 564-1490 og 554-5330. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun er gaman sam- an á Korpúlfsstöðum kl. 13.30. Norðurbrún 1 | Smíðastofan kl. 9-16, vinnust. í handm. kl. 9-16 m/leiðb. Halldóru kl. 13-16, mynd- list m/ Hafdísi kl. 9-12. þrykk og postulín m/ Haf- dísi. kl. 13-16, leikfimi kl. 13. Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu | Uno spil kl. 19.30, í félagsheimili Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu, Hátúni 12. Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fótaaðgerðir myndmennt kl. 9-16, enska kl. 10.15, hádeg- isverður kl. 11.45, leshópur 13.30, spurt og spjallað /Myndbandasýning kl. 13, bútasaumur og spil kl. 13-16, kaffiveitingar kl. 14.30. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, handa- vinnustofan opin kl. 9.00-16.30, hárgreiðslu og fótaaðgerðarstofa opnar alla daga, morgunstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10, upplestur framhaldssaga kl. 12.30, félagsvist kl. 14. Uppl. í síma 411-9450. Þórðarsveigur 3 | Hjúkrunarfræðingur kl. 9 (fyrsta þriðjudag í mánuði), bænastund og sam- vera kl. 10, bónusbíllinn kl. 12 og bókabíllinn kl. 16.45. Kirkjustarf Áskirkja | Opið hús kl. 10-14. Föndur, spjall og spil. Bænastund í umsjá sóknarprests kl. 12, léttur há- degisverður eftir bænastundina. Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjónusta kl. 17.30. Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11. Kirkjustarf aldraðra kl. 11.45. léttur málsverður. Helgistund og samvera í umsjá Þorvaldar Halldórssonar. Kaffi. KFUM&K fyrir 10-12 ára kl. 17-18.15. Æskulýðsstarf Meme fyrir 9-10 bekk kl. 19.30-21.30. www.digra- neskirkja.is Fella- og Hólakirkja | Kyrrðarstund kl. 11, org- elleikur, íhugun og bæn. Súpa og brauð eftir stundina. Kirkjustarf eldri borgara kl. 13-16. Matur og heilsa, Benedikta G. Waage hússtjórnarkennari. Kaffiveitingar, framhaldssaga. Helgistund í kirkju, umsjón Ragnhildur Ásgeirsd. djákni. Grafarvogskirkja | Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13.30-16. Helgistund, handavinna, spilað og spjall- að, kaffiveitingar. TTT fyrir 10-12 ára kl. 16-17 í Engjaskóla. TTT fyrir 10-12 ára kl. 17-18 í Borga- skóla. Hallgrímskirkja | Starf fyrir eldri borgara alla þriðjudaga og föstudaga kl. 11 - 14. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall. Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Prédikunarklúbbur presta kl. 9.15-11, í umsjá sr. Sigurjóns Árna Eyj- ólfssonar héraðsprests. Hjallakirkja | Bæna- og kyrrðarstund kl. 18. KFUM og KFUK | Alþjóðleg bænavika KFUM og KFUK. Bænastundir eru á hverjum degi þessa viku kl. 12.15-13. Léttur hádegisverður eftir bæna- stundina. Fundur verður í AD KFUK kl. 20. Söfn- uðurinn í Konsó 50 ára. Ingibjörg Ingvarsdóttir og Jónas Þórisson segja frá heimsókn til Konsó á 50 ára afmæli safnaðarins í júlí sl. Kaffi eftir fundinn. Allar konur velkomnar. Langholtskirkja | Opið hús fyrir foreldra ungra barna og verðandi mæður kl. 10-12. Spjall, hress- ing. Umsjón hefur Lóa Maja Stefánsdóttir. Laugarneskirkja | Kvöldsöngur kl. 20. Þorvaldur Halldórsson leiðir sönginn og sóknarprestur flytur Guðsorð og bæn. Kl. 20.30 ganga 12 sporahópar til verka um leið og trúfræðsla sr. Bjarna hefst: „Hvernig les ég Biblíuna?“ Vídalínskirkja Garðasókn | Opið hús hefst með kyrrðastund kl. 12. Súpa og brauð á vægu verði á kl. 12.30. Opið fyrir alla. Spilað kl. 13-16, vist, brids o.fl. Púttgræjur á staðnum. Kaffi kl. 14.45. Akstur fyrir þá sem vilja, uppl. 895-0169. Vídalínskirkja Garðasókn | Kyrrðastund kl. 12. Tónlist og ritningartextar lesnir frá kl. 12.10. Súpa og brauð kl. 12.30, kr. 400. Ytri-Njarðvíkurkirkja | Foreldramorgunn kl. 10.30. Umsjón hefur Þorbjörg Kristín Þorgríms- dóttir. 70ára afmæli. Sjötugurer í dag, 13. nóvember, Jóhannes Eric Konráðsson bifreiðastjóri, Sléttuvegi 21, eiginkona hans er Þóra Stein- unn Kristjánsdóttir. Þau hjón dvelja nú á Kanaríeyjum. MORGUNBLAÐIÐ birtir til kynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sín- um að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynningum. Hægt er að hringja í síma 569- 1100, senda tilkynningu og mynd á netfangið ritstjorn@mbl.is, eða senda tilkynningu og mynd í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is. Einnig er hægt að senda vélritaða tilkynningu og mynd í pósti. Bréfið skal stíla á Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2 110 Reykjavík. dagbók Í dag er þriðjudagur 13. nóvember, 317. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Og orð hans býr ekki í yður, því að þér trúið ekki þeim, sem hann sendi. (Jóh. 5, 38.) Matís heldur haustráðstefnuá fimmtudag, 15. nóv-ember. Yfirskrift ráðstefn-unnar er Matur og framtíð – ný tækifæri í matvælarannsóknum og verður hún haldin á Grand hóteli. Gísli Þorsteinsson er markaðsstjóri hjá Matís: „Á ráðstefnunni kynnum við rannsóknir og starf Matís, og vekjum at- hygli á áhugaverðum og spennandi nýj- ungum í matvælaiðnaði,“ segir Gísli. Matarmenning í þróun Aðaldagskrá ráðstefnunnar er skipt í þrjá hluta: „Fyrsti hlutinn fjallar um matarmenningu. Þar ætla m.a. Þór V. Jónatansson og Sveinn Margeirsson að fjalla um rekjanleika matvæla og aukna vitund neytenda um umhverfislegan kostnað af matvælaflutningum,“ segir Gísli. „Þar mun einnig Emilía Mart- insdóttir flytja erindi um viðhorf Evr- ópubúa til eldisfisks, en neytendur virð- ast líta svo á að ónáttúrulegar aðstæður í eldisstöðvum hafi neikvæð áhrif á fisk- inn. Þá ætlar Ólafur Reykdal að segja frá rannsóknum á efnainnihaldi innlends og innflutts grænmetis.“ Möguleikar í fiskeldi Annar hluti ráðstefnunnar fjallar um möguleika fiskeldis á Íslandi: „Fisk- veiðar hafa á heildina dregist saman, en fiskeldi að sama skapi farið vaxandi. Við kynnum á ráðstefnunni árangursríkar eldistilraunir, og fisktegundinni tilapíu verða gerð sérstök skil.“ Lífvirkni og hollusta Þriðji hluti ráðstefnunnar skoðar líf- og erfðatækni í matvælaframleiðslu: „Má þar t.d. nefna erindi Sigmundar Guðbjarnarsonar um lífvirk efni jurta og hollustugildi þeirra.“ Á ráðstefnunni verða einnig kynning- arbásar, þar sem gestir geta m.a. fengið að gæða sér á blóðbergsdrykk og smakkað tilapíu. Matís hf. tók til starfa í ársbyrjun 2007 og með sameiningu Rann- sóknastofnunar fiskiðnaðarins, Mat- vælarannsókna Keldnaholti og Rann- sóknastofu Umhverfisstofnunar. Finna má nánari upplýsingar um dag- skrá haustráðstefnu Matís, og aðra starfsemi á þeirra vegum, á slóðinni www.matis.is. Matur | Haustráðstefna Matís á Grand hóteli á fimmtudag kl. 12.30 Matur og framtíð  Gísli Þorsteins- son fæddist í Reykjavík 1971. Hann lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum við Sund 1991, BA- gráðu í sagnfræði frá Háskóla Ís- lands 1995, gráðu í hagnýtri fjölmiðlun frá sama skóla 1998 og leggur nú stund á MBA-nám við Háskólann í Reykjavík. Gísli var blaðamaður á Morgunblaðinu um langt skeið, síðar upplýsingafulltrúi Vodafone og er nú markaðsstjóri Mat- ís. Gísli á tvö börn. Útivist og íþróttir Hæðargarður 31 | Ganga virka daga kl. 9 og laugard. kl. 10. Ókeypis tölvuleiðbeiningar til 14. des. á miðvikud. og fimmtud. kl. 13.15-15. Skapandi skrif Þórðar Helgasonar cand. mag og framsagnarnámskeið Soffíu Jak- obsdóttur leikkonu. Námskeið í jólapakka- skreytingum, Hjördís Geirs kl. 13.30 í dag. S. 568-3132. Tónlist Salurinn, Kópavogi | Jón Svavar Jósefsson bassbariton og Guðrún Dalía Salómons- dóttir píanó, flytja aríur og íslenskt drauga- og hestalaga efni ásamt vitfirrtum söng- lögum. Von, tónleikasalur SÁÁ | Tónleikar nem- enda píanódeildar Tónlistarskólans í Reykja- vík. Lengra komnir nemendur píanódeildar, spila á tónleikum kl. 20. Á tónleikunum verða spiluð verk m.a. eftir Bach, Chopin, Mozart, Grieg, Debussy, Schubert og Beethoven. Aðgangur ókeypis. Fyrirlestrar og fundir Seðlabanki Íslands | Málstofa kl. 15, í fund- arsal Seðlabankans. Málshefjandi er Björn Rúnar Guðmundsson forstöðumaður Grein- ingardeildar Landsbanka Íslands og ber er- indi hans heitið: Er myntráð valkostur fyrir Ísland í gjaldeyrismálum? Styrkur | Styrkur samtök krabbameins- sjúklinga og aðstanda þeirra er með fræðslufund um lungnakrabbamein í Skóg- arhlíð 8, kl. 20. Agnes Smáradóttir krabba- meinslæknir á LSH ræðir um lungnakrabba- mein í tilefni af alþjóðlegum árveknismánuði um sjúkdóminn. SOROPTIMISTAKLÚBBUR Bakka og Selja afhenti nýlega Barna- og unglinga- geðdeild Landspítalans kr. 400.000 að gjöf til styrktar verkefninu „Ráð við reiði“. Soroptimistaklúbbur Bakka og Selja er einn af 16 klúbbum í Soroptim- istasambandi Íslands. Landssambandið hefur m.a. á stefnuskrá sinni að stuðla að vellíðan barna og kvenna jafnt innanlands sem utan. Soroptomistar styrkja BUGL FRÉTTIR Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Föðurnafn Sigmundar Davíðs Gunn- laugssonar misritaðist í umfjöllun um þing Framtíðarlandsins á Ísa- firði í Morgunblaðinu í gær. Beðist er velvirðingar á mistökunum. Rangt föðurnafn Rangt var farið með föðurnafn Ás- dísar Bergþórsdóttur í frétt um ís- lenska málstefnu í Morgunblaðinu í gær. Um leið og þetta er leiðrétt er beðist velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTT HIN árlega jólakortasala Lions- klúbbsins Kaldár í Hafnarfirði er hafin. Erla Sigurðardóttir myndlist- arkona hannaði kortið í ár. Allur ágóði af sölunni rennur til líkn- armála en markmið klúbbsins er að leggja ýmsum góðum málefnum lið. Það hefur hann gert með kaupum á tækjum til sjúkrastofnana, fé- lagasamtaka og vistheimila, en einn- ig með margvíslegri annarri aðstoð. Kortin eru seld 5 í pakka með um- slagi, ýmist með texta eða án, og pakkinn kostar kr. 500. Kortin veða m.a. til sölu í jólaþorpinu í Hafn- arfirði helgina 24.–25. nóv. nk. Allar upplýsingar veitir formaður fjáröflunarnefndar Ásta Úlfars- dóttir í síma 868-3290. Jólakortasala Kaldár Jólakort Lionsklúbbsins Kaldár í Hafnarfirði. MIÐVIKUDAGINN 14. nóv- ember stendur Mannréttinda- stofnun Háskóla Íslands fyrir málstofunni „Innflytjendur og kynþáttamismunun“ í stofu 101 í Lögberg frá kl. 12:15. Linos-Alexander Sicilianos, prófessor við háskólann í Aþenu, flytur erindi um þetta efni. Hann mun m.a. fara yfir skuldbindingar Íslands og annarra aðildarríkja að al- þjóðasamningi Sameinuðu þjóðanna um afnám alls kyn- þáttamisréttis til þess að tryggja útlendingum vernd gegn kynþáttamismunun og til að sporna gegn útlend- ingahatri. Fyrirlesarinn hefur setið í nefnd SÞ um afnám alls kynþáttamisréttis frá árinu 2002. Fundarstjóri er Björg Thorarensen, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands. Málstofa um kynþáttamismunun ALMENN kynning á starfi í anda Reggio Emilia leikskólans á Ítalíu verður haldin fimmtudaginn 15. nóvember kl. 16–18 í Skriðu, fyr- irlestrasal Kennaraháskóla Íslands v/ Stakkahlíð. Fyrirlesarar verða þær Guðrún Alda Harðardóttir, dósent við Há- skólann á Akureyri og leikskóla- ráðgjafi hjá Reykjavíkurborg og Kristín Karlsdóttir, lektor við KHÍ. Í fyrirlestrinum verður fjallað um viðhorf til náms og hvernig þau endurspeglast í starfi leikskóla Reggio Emilia. Fyrirlesturinn er einkum ætlaður þeim sem eru að byrja að feta sig áfram í starfi í anda Reggio Emilia. Fyrirlestur um starf í anda Reggio Emilia

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.