Morgunblaðið - 13.11.2007, Blaðsíða 44
■ Fim. 15. nóvember kl. 19.30
Sígaunar og fögur fljóð
Píanókonsert eftir Haydn, fjórða sinfónía Schumanns og
nýtt verk eftir Tryggva M. Baldvinsson.
Stjórnandi: Kurt Kopecky
Einleikari: Edda Erlendsdóttir
■ Lau. 17. nóvember kl. 17
Kristallinn – kammertónleikaröð SÍ í
Þjóðmenningarhúsinu.
Felix Mendelssohn: Oktett fyrir strengi
■ Fim. 22. nóvember kl. 19.30
Pétur Gautur. Tónlist Griegs við stórvirki Ibsens. Petri
Sakari stjórnar, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir syngur og
Gunnar Eyjólfsson segir söguna og flytur valda kafla.
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
Efnistökin eru metn-
aðarfull en þau eru
hins vegar einfeldningsleg og
klunnalega fram sett… 48
»
reykjavíkreykjavík
TÓNLISTARMAÐURINN Don Randi,
sem stýrði upptökum í nokkrum lögum á
nýju plötu Geirs Ólafssonar, og mun spila
á píanó á tónleikunum á morgun, hefur
unnið með mörgum af þekktustu tónlist-
armönnum heims. Á heimasíðu hans er
glæsilegur listi yfir þá listamenn sem
hann hefur spilað með eða útsett fyrir, og
eru þessir helstir: 5th Dimension, Abba,
Andy Gibb, Beach Boys, Dean Martin,
Diana Ross, Dionne Warwick, Dusty
Springfield, Elvis Presley, Four Tops,
Frank Sinatra, Frank Zappa, Glen
Campbell, Ike & Tina Turner, James
Brown, Joan Baez, Marvin Gaye, Nancy
Sinatra, Neil Diamond, Neil Young,
Oliva Newton-John, Paul Anka, Phil
Spector, Quincy Jones, Rightous Bros.,
Sammy Davis Jr., Simon & Garfunkel,
Sonny & Cher, The Animals, The Everly
Bros, The Jackson 5 og Tom Jones.
Það er því ljóst að Geir Ólafsson er
ekki í slæmum félagsskap á meðal þeirra
sem Randi hefur unnið með.
Glæsilegur ferill Randis
Don Randi Hefur m.a. unnið með Elvis og Frank Sinatra.
Raunverulegt
„ídentítet“
bloggarans
Mengellu hefur
verið mörgum
hugleikið þetta
ár sem hún hefur
skrifað á mengella.blogspot.com.
Mengella lét oftar en ekki til sín
taka í þjóðmálaumræðunni og nú
síðast fór hún mikinn í Negra-
stráka-umræðunni og vandaði þá
til dæmis Gauta B. Eggertssyni
ekki kveðjurnar fyrir pistilinn
sem hann skrifaði um málið .
En nú virðist gamanið vera bú-
ið og Mengella upplýsir lesendur
um það hver sé á bak við skrifin.
Eins og marga grunaði er um
nokkra pistlahöfunda að ræða en
samkvæmt síðustu færslu er rit-
stjórn Mengellu þessi: Hildur
Lilliendahl, Jón Örn Loðmfjörð,
Ásgeir H. Ingólfsson, Þórarinn
Björn Sigurjónsson og Þórdís
Björnsdóttir. Sem sagt ljóðskáld,
rithöfundar, blaðamenn og fyrr-
verandi Barnalandsíbúar. Hvern
hefði grunað?
Mengella opinberar sig
Gítar sem
Bubbi Morthens
gaf til góðgerð-
aruppboðs í út-
varpsþættinum
Frá A til J á Rás 2
var kominn upp í
210 þúsund krón-
ur um hádegisbilið í gær. Gestir
þáttarins gefa iðulega til góðgerð-
armálefnis að eigin vali og Bubbi
valdi Unglingadeild SÁÁ í þetta
skiptið. Þegar Bubbi heyrði svo af
því hversu vel gengi í uppboðinu
lét hann gullplötu fylgja með gít-
arnum og því til mikils að eiga
besta boð. Áður hafa Baltasar Kor-
mákur, Sveppi, Rúnar Júl og Jón
Gnarr gefið hluti á uppboð. Frá A
til J er á dagskrá á föstudags-
kvöldum kl. 19.30 - 22 og er í um-
sjón Atla Þórs og Jóhanns G. leik-
ara.
Gítarinn hans Bubba
kominn í 210.000 kr.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞARNA eru náttúrulega val-
inkunnir standardar,“ segir Geir
Ólafsson um sína aðra sólóplötu,
Svona er lífið, sem kom út nú um
helgina. Nafn plötunnar er þýðing á
þekktu lagi Franks Sinatra, „That’s
Life“, sem Geir flytur á plötunni í
íslenskri þýðingu Óttars Felix
Haukssonar. „Það er líka gaman að
segja frá því að þarna er lag með
Ragga Bjarna sem sló í gegn á Ís-
landi árið 1960; „Vertu ekki að
horfa svona alltaf á mig“. Þetta er í
fyrsta skipti sem þetta lag er gefið
út með stórsveit, en Raggi gerði
þetta lag ódauðlegt þannig að mað-
ur er heldur betur að ráðast á garð-
inn þar sem hann er langhæstur,“
segir Geir. „Ég tek það þó fram að
ég leitaði til Ragnars áður en ég
gerði þetta og hann gaf mér góðfús-
legt leyfi, og lagði blessun sína yfir
þetta því honum fannst það frábært
framtak hjá okkur að ráðast í þetta
lag.“
Spilaði með Elvis
Á plötunni eru tvö lög á íslensku,
en hin lögin eru öll flutt á ensku, lög
á borð við „You Are The Sunshine
Of My Life“, „All Of Me“, „My Kind
Of Town“ og „Fly Me To The Mo-
on“. „Þetta eru frægir standardar
sem eru í frábærum útsetningum
Vilhjálms Guðjónssonar, Þóris
Baldurssonar og Ólafs Gauks Þór-
hallssonar. Svo er þarna ein amer-
ísk útsetning og tvær sænskar,“
segir Geir sem nýtur fulltingis stór-
sveitar á plötunni, en hún er skipuð
meðlimum Stórsveitar Reykjavíkur
og Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
„Það er valinn maður í hverju
rúmi,“ segir Geir stoltur.
Þetta er lífið hefur verið lengi í
vinnslu, en vinna við útsetningar
hófst strax árið 2002. Á meðal upp-
tökustjóra á plötunni er Don nokk-
ur Randi sem mun einmitt spila á
píanó á tónleikunum annað kvöld.
„Hann er píanisti Nancy Sinatra,
gerði fjórar plötur með Frank Si-
natra og spilaði á tónleikum með
Elvis Presley. Hann er heims-
frægur píanisti,“ segir Geir um
Randi. „Hann er líka að skoða að-
stæður fyrir hugsanlega tónleika
Nancy Sinatra hér á landi. Það mál
er alveg að renna í höfn, það er ver-
ið að vinna að lausum endum og það
er hugsanlegt að hún verði hérna í
mars.“
Ætlar norður
Sala aðgöngumiða á tónleikana er
hafin, en hún fer fram á Broadway.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21.
annað kvöld og miðaverð er 1.500
krónur. „Svo vona ég að ég geti líka
farið með hljómsveitina til Akureyr-
ar og haldið alvöru tónleika þar,“
segir Geir sem ætlar að verja næstu
vikum í að kynna plötuna. „Ég er
nú þannig gerður að ég tek mér
bara eitt verkefni í einu, og þetta
verkefni er mér ofarlega í huga
núna. Mér ber skylda til þess að
klára það og ætli ég verði eins og
aðrir Íslendingar, að vinna til há-
degis á aðfangadag,“ segir hann.
„En ég vona að þessi plata fái
hljómgrunn á Íslandi og ég er eig-
inlega fullviss um að hún geri það
því mér finnst að menningin á Ís-
landi hafi farið stigvaxandi, og hún
hefur breikkað mikið. Það er mjög
jákvætt fyrir okkur.“
Þetta er lífið hans Geirs
Geir Ólafsson fagnar útkomu nýrrar plötu með tónleikum á Broadway á morgun
Morgunblaðið/G.Rúnar
Svona er lífið Vilhjálmur Guðjónsson, Geir Ólafsson og Óttar Felix Hauksson saman komnir á Broadway.