Morgunblaðið - 13.11.2007, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2007 47
Stærsta kvikmyndahús landsins
Mr. Woodcock kl. 6 - 8 - 10
Elizabeth kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 14 ára
Eastern Promises kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
Syndir Feðranna kl. 6 - 10:20 B.i. 12 ára
Veðramót kl. 5:40 - 8 B.i. 14 ára
Miðasala á
Sími 530 1919
www.haskolabio.is
www.laugarasbio.is
Kauptu bíómiða í Háskólabíó á
Sýnd kl. 6 Með ísl. tali
Með íslensku tali
Tilnefnd sem besta
heimildarmynd ársins eeee- R. H. – FBL 11
tilnefningar til
Edduverðlauna
eeee
- S.V., MORGUNBLAÐIÐ
eeee
- T.S.K., 24 STUNDIR
eeee
- F.G.G., FRÉTTABLAÐIÐ
eeee
- L.I.B., TOPP5.IS
FRÁ LEIKSTJÓRANUM DAVID CRONEBERG
Sýnd kl. 6, 8 og 10
-bara lúxus
Sími 553 2075
Hættulega fyndin
grínmynd!
Taktu út refsinguna með Mr.Woodcock
ENGIN MISKUN
Hættulega fyndin
grínmynd!
Taktu út refsinguna með Mr.Woodcock
Kauptu bíómiða í Háskólabíó á
Sýnd kl. 8 og 10:10 B.i. 16 ára
HÖRKU HASARMYND MEÐ TVEIMUR
HEITUSTU TÖFFURUNUM Í DAG
BÚÐU ÞIG UNDIR STRÍÐ
FRÁ LEIKSTJÓRANUM
DAVID CRONEBERG
eeeee
- S.U.S., RVKFM
eeee
- T.S.K., 24 STUNDIR
eeee
- Á.J., DV
eeee
- F.G.G., FRÉTTABLAÐIÐ
eeee
- L.I.B., TOPP5.IS
Sýnd kl. 5:50, 8 og 10:10 B.i. 16 ára
Ver
ð aðeins
600 kr.
HVER SAGÐI AÐ RISAEÐLUR
VÆRU ÚTDAUÐAR
HROLLVEKJAN 30 Days Of Night
var mest sótta myndin í íslenskum
kvikmyndahúsum um helgina, en um
það bil 2.500 manns létu hræða úr
sér líftóruna með því að skella sér á
myndina, sem þykir í óhugnanlegra
lagi. 30 Days Of Night gerist í
smábæ í Alaska þar sem sólskins-
stundir eru af skornum skammti, og
því tilvalinn staður fyrir blóðsugur.
Það er því ljóst að Eben bæjarfógeti,
sem Josh Hartnett leikur, þarf að
taka á honum stóra sínum til að
koma í veg fyrir að skrímslin útrými
öllum íbúum bæjarins.
Myndin sem hafnar í öðru sæti á
Bíólistanum að þessu sinni er hins
vegar af aðeins öðrum toga. Mr. Wo-
odcock er nefnilega gamanmynd
sem fjallar um mann sem kemst að
því að móðir hans er orðin ástfangin
af miklum harðstjóra og fanti. Með
aðalhlutverkin í Mr. Woodcock fara
Billy Bob Thornton, Seann William
Scott og Susan Sarandon, en rúm-
lega 1.700 manns skelltu sér á mynd-
ina um helgina.
Cruise og Pitt heilla ekki
Íslendingar virðast ekki hafa sér-
lega mikinn áhuga á Tom Cruise ef
marka má aðsóknartölur fyrir hans
nýjustu mynd, Lions For Lambs.
Myndin hafnar aðeins í fimmta sæt-
inu þrátt fyrir að hafa verið frum-
sýnd á föstudaginn, en rúmlega
1.000 manns sáu myndina um
helgina sem verður að teljast frekar
lítið þar sem um nýja mynd er að
ræða.
Þá vekur það einnig athygli að
The Assassination of Jesse James by
the Coward Robert Ford sem skart-
ar sjálfum Brad Pitt í aðalhlutverk-
inu nær aðeins níunda sætinu með
rétt rúmlega 600 áhorfendur.
Vinsælustu myndirnar í íslenskum kvikmyndahúsum
Fjöldi manns lét hræða úr
sér líftóruna um helgina
E
6))
$%))
!"
#$%&'(
) ( )*+
,- (.&'/++
0&1&+&2
& 3 (
4 ( ( 5&&5*&
6&(7 * &
Óhugnaður 30 Days Of Night sló út bæði Tom Cruise og Brad Pitt.
KVIKMYNDIR
Laugarásbíó, Háskólabíó og
Borgarbíó, Akureyri
Mr. Woodcock Leikstjóri: Craig Gillespie. Aðalleikarar:
Billy Bob Thornton, Sean William Scott,
Susan Sarandon. 87 mín. Bandaríkin
2007.
JOHN Farley (Scott), er ungur
metsöluhöfundur sem ólst upp hjá
einstæðri móður í litlum sveitabæ.
Aðaláhrifavaldur hans í uppvext-
inum var leikfimikennarinn, Wood-
cock (Thormton), harðstjóri sem
rak allar liðleskjur áfram með illu
ef ekki góðu. Farley var einn
þeirra, en bókin hans er kennslu-
bók í því hvernig minnipokamenn
eiga að sleppa takinu af fortíðinni
og líta björtum augum á framtíðina.
Höfundurinn er í söluherferð
þegar hann fær boð um að koma
heim í krummaskuðið til að taka
við verðlaunum og kemst þá að því
að Beverly móðir hans (Sarandon),
er að taka saman við kenn-
araskepnuna. Vel mannað með-
algrín sem skopast að „hjálpaðu
þér sjálfur“ bókmenntunum sem
jafnan er að finna á metsölulistum
vestanhafs. Farley kemst nefnilega
að því að flest það sem stendur í
bókinni hans er tóm tjara og sá
sem hann hatar mest er sá sem
hann á allt að þakka. Það er fátt
nýtt á ferðinni, undirmálsmenn að
reyna að ná sér niðri á kvölurum
sínum og finna sannleikann í leið-
inni.
Thornton er orðinn skólaður í að
leika kvikindislega hrotta sem eru
mun síður áhugaverðir en and-
stæður þeirra, sem hann túlkar af
snilld í myndum á borð við Mon-
steŕs Ball, Sling Blade og A Simple
Plan. Slík hlutverk liggja greinilega
ekki á lausu. Scott, sem var illsk-
ástur leikaranna í American Pie
-myndabálknum, stendur sig eins
vel og efni standa til, sama má
segja um Sarandon. Þessir ágætu
leikarar virðast ekki hafa úr miklu
að moða.
Sæbjörn Valdimarsson
Kvikindið hann Woodcock
Mr. Woodcock „Vel mannað meðalgrín sem skopast að „hjálpaðu þér sjálf-
ur“, bókmenntunum sem jafnan er að finna á metsölulistum vestan hafs.“