Morgunblaðið - 13.11.2007, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
WWW.SAMBIO.ISVERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á
/ ÁLFABAKKA
30 DAYS OF NIGHT kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16.ára
30 DAYS OF NIGHT kl. 10:30 LÚXUS VIP
MICHAEL CLAYTON kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.7.ára
THE GOLDEN AGE kl. 5:30 - 8 LÚXUS VIP
THE INVASION kl. 8 B.i.16.ára
ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
THE BRAVE ONE kl. 10:30 B.i.16.ára
THE KINGDOM kl. 10:30 B.i.16.ára
STARDUST kl. 5:30 B.i.10.ára
ASTRÓPÍA kl. 6 LEYFÐ
SAMBÍÓIN ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
ERU EINU BÍÓIN Á ÍSLANDI SEM BJÓÐA UPP Á
DIGITAL OG 3-D REAL TÆKNI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABA
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
A.T.H
STRANGLEGA
BÖNNUÐ INNAN
16 ÁRA
MYNDIN SEM FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA OG
GAGNRÝNENDUR HAFA SAGT AÐ SÉ EIN AF BESTU
HROLLVEKJUM SEM ÞEIR HAFI SÉÐ!
HVAR MYNDIR ÞÚ FELA
ÞIG Í 30 DAGA... !?
SÝND Í KEFLAVÍK BALLS OF FURY
LISTAHÁTÍÐ ungs fólks, Unglist,
lauk um síðustu helgi og er óhætt
að segja að hátíðin í ár hafi verið
mjög fjölbreytt; tónlist, hönnun,
myndlist, gjörningar, leiklist og
fleira góðmeti var borið fram af
ungu fólki af elju og metnaði og
fóru skipulagðir viðburðir fram í
Hinu Húsinu, Austurbæ og Nor-
ræna húsinu.
Hátíðin hófst með myndlistar-
maraþoni en eitt af síðustu atrið-
unum var Bboying keppni í Nor-
ræna húsinu þar sem keppt var um
King of the Iceberg. Þar kepptu
átta sterkustu hópar landsins í
breikdansi og eins og sjá má af
myndunum voru tilþrifin mörg
hver nokkuð mögnuð.
Mögnuð tilþrif
Morgunblaðið/Sverrir
Plötusnúðarnir Það er engin danskeppnin án taktfastrar tónlist-
ar og þessir hárfögru félagar útveguðu hana.
Breikhópur Átta hópar voru mættir til leiks í Norræna húsinu og stemn-
ingin var ekki minni en spennan sem magnaðist eftir því sem á leið.
Á haus Þessi veigraði sér ekki við því að snúa sér á haus. Svona
gera aðeins þeir bestu.
Einbeiting Þessi keppandi var mjög
einbeittur á svip enda ekkert grín að
battla í BBoy-keppni.
Magnað Tilþrifin voru mörg hver nokkuð mögnuð eins og þessi mynd sýnir.
ENGINN þarf að velkjast í vafa um að að-
standendur kvikmyndarinnar Ljón fyrir
lömb (Lions for Lambs) ætluðu sér að gera
merkilega og jafnvel umtalaða mynd.
Söguþráðurinn fjallar um hryðjuverkastríð
Bandaríkjastjórnar, forsendur þess og eft-
irköst, og verkið nýtur góðs af einvalaliði
vinsælla og virtra leikara. En þó veldur
myndin óhjákvæmilegavonbrigðum. Efn-
istökin eru metnaðarfull en þau eru hins
vegar einfeldningsleg og klunnalega fram
sett. Einkum eru það kaflarnir sem skarta
sjálfum Robert Redford sem eru mis-
heppnaðir en hér leikur hann háskólapró-
fessor sem fundar með ungum nemanda
sínum og reynir að innræta honum siðferð-
is- og ábyrgðarkennd. Þetta gerir hann
með því að segja sögur af eldri nemendum
sínum, tveimur ungum mönnum sem buðu
sig fram í herinn og gegna nú herþjónustu
í Afganistan. Á sama tíma vindur fram
blaðaviðtali þar sem Meryl Streep yf-
irheyrir öldungadeildarþingmann sem Tom
Cruise leikur en í samræðum þeirra er far-
ið yfir forsögu hryðjuverkastríðsins, en
þingmaðurinn er stríðsglaður mjög og
reynir að vinna fréttakonuna á sitt band.
Stundum vottar fyrir lífi í atriðunum þar
sem Cruise og Streep takast á en því verð-
ur þó ekki neitað að myndin fer þar troðn-
ar slóðir í rökfærslu sinni og fátt í orða-
skiptum þeirra kemur á óvart eða vekur
áhorfendur til umhugsunar. Það er einmitt
augljóst markmið myndarinnar og skýrir
að hluta þann predikunartón sem hvílir yf-
ir öllu og verður þreytandi áður en yfir
lýkur.
KVIKMYNDIR
Smárabíó og Regnboginn
Ljón fyrir lömb (Lions for Lambs)
Leikstjórn: Robert Redford. Aðalhlutverk: Robert
Redford, Tom Cruise, Meryl Streep, Michael Pena,
Andrew Garfield. Bandaríkin, 88 mín.
Heiða Jóhannsdóttir
Hryðju-
verk og
stjórnmál
Lions for Lambs „Söguþráðurinn fjallar um
hryðjuverkastríð Bandaríkjastjórnar, for-
sendur þess og eftirköst, og verkið nýtur
góðs af einvalaliði vinsælla og virtra leikara.“