Morgunblaðið - 13.11.2007, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2007 49
THE ASSASIN. OF JESSE.. kl. 5:50D - 9D B.i. 16 ára DIGITAL
30 DAYS OF NIGHT kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára
MICHAEL CLAYTON kl. 8 - 10:30 B.i. 7 ára
ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
/ KRINGLUNNI
SAMBÍÓIN - EINA BÍÓKEÐJAN Á ÍSLANDI WWW.SAMBIO.IS
/ AKUREYRI
THE ASSASIN. OF JESSE... kl. 8 B.i. 16 ára
30 DAYS OF NIGHT kl. 8 B.i. 16 ára
ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
STARDUST kl. 5:50 B.i. 10 ára
/ KEFLAVÍK
BALLS OF FURY kl. 8 - 10 B.i. 7 ára
EASTERN PROMISES kl. 8 B.i. 16 ára
THE KINGDOM kl. 10:10 B.i. 16 ára
MICHAEL CLAYTON kl. 8 B.i. 7 ára
THE INVASION kl. 8 B.i. 16 ára
THE BRAVE ONE kl. 10:20 B.i. 16 ára
THE KINGDOM kl. 10:20 B.i. 16 ára
/ SELFOSSI
SÝND Í KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
600 kr.M
iðaverð
SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI
- S.F.S., FILM.IS
AKKA
SÝND Í KRINGLUNNI
OG SELFOSSI
eeee
H.J. MBL.
eeee
KVIKMYNDIR.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA
eee
MORGUNBLAÐIÐ
eeee
H.S. - TOPP5.IS
eeee
„MÖGNUГ
C.P. USA,TODAY
„MYND SEM SITUR Í ÞÉR“
L.R. PEOPLE MAGAZINE
„NÚTÍMA
MEISTARAVERK!“
A.S THE NEW YORK OBSERVER.
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA,
KRINGLUNNI OG
AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI
eeee
„ÞETTA ER HEILLANDI MYND, ÖGN
ÓRÆÐI EN EFTIRMINNILEG.“
HJ. - MBL
eeee
V.J.V. - TOPP5.IS
LEIKKONAN Nicolette Sheridan er ófrísk
að sínu fyrsta barni.
Sheridan leikur Edie Britt í sjónvarps-
þáttunum Aðþrengdar eiginkonur og er
trúlofuð söngvaranum Michael Bolton. Par-
ið mun vera mjög ánægt með væntanlega
fjölgun.
„Hún hreinlega glóir og þungun hennar
hleypir fjöri í tökustaðinn,“ sagði einn sem
vinnur að þáttunum.
Sheridan er 43 ára og hefur verið að
spyrja meðleikkonur sínar í Aðþrengdum
eiginkonum, Marciu Cross og Felicity Hoff-
man, um ráð varðandi meðgönguna og móð-
urhlutverkið.
Nýlega afhjúpaði hún í viðtali löngun
sína til að verða móðir.
„Ég veit ekki hvort ég mun hafa tíma til
að stofna fjölskyldu en að vera móðir er svo
sérstakt. Og auðvitað ef það gerist þá finn
ég tíma,“ sagði hún.
Bolton og Sheridan trúlofuðu sig í mars
árið 2006. Bolton er 53 ára og á fyrir þrjár
dætur með fyrrverandi eiginkonu sinni,
Maureen McGuire.
Reuters
Lofuð Michael Bolton og
Nicollette Sheridan.
Glóir á meðgöngunni
MAÐUR kemur í manns stað. Í eina
tíð var það Chuck Norris, síðar kom
Steven Seagal til skjalanna, í dag er
það Statham sem er ókrýndur kóng-
ur B-leikara B-myndanna. Boru-
brattur, dimmraddaður, órakaður og
almennt „onkja góur í framan“, eins
og frændur okkar og næstu nágrann-
ar orða það svo skemmtilega, enda-
sendist hann úr einni harðhausa-
myndinni í aðra. Þeir sem hafa
gaman af slíku fóðri eru mest megnis
unglingar og fyrir þá er þessi keimlíki
hasar alls ekki leiðinlegur. Það er nóg
að gerast, mikið um eltingaleiki,
slagsmál, skytterí, manndráp og ann-
an ámóta yndisauka. Yfir púð-
urreyknum og blóðslettunum drottn-
ar hinn borubratti Statham og lætur
engan billbug á sér finna.
Í Rogue Assassin fer Statham með
hlutverk Crawfords, alríkislöggu í
San Fransisco, sem missti félaga sinn
fyrir þremur árum þegar ódæðismað-
ur myrti hann og fjölskyldu hans.
Dráparinn, sem er austurlenskur, er
kallaður Rouge (Li), og hefur Stat-
ham aðeins eitt skothylki sem fannst
á vettvangi til að komast á slóð
þrjótsins.
Crawford er þolinmóður og þrár,
að þremur árum liðnum finnst í borg-
inni önnur patróna sömu gerðar.
Hinn leyndardómsfulli Rouge er
kominn á stjá og innan skamms
breytist borgin við flóann í blóðvöll.
Til viðbótar vanabundnum hasar-
myndafrumefnum af þessum toga er
sverðaslagur, kung fu og hliðarsaga
sem minnir á Yojimbo og allar henn-
ar eftirlíkingar, á borð við For a Fist-
ful of Dollars. Ófétið Rouge etur sam-
an kínverskri og japanskri glæpa-
klíku í San Fransisco og nýtur sjálfur
ávaxtanna, en þá kemur meindýra-
eyðirinn Crawford og breytir gangi
mála. Átakaatriðin eru tölvuunnin en
bærilega gerð og í Guzmán og Rub-
inek er nokkur styrkur í mynd sem er
annars ofbeldisfullur hrærigrautur,
hvorki fugl né fiskur.
Ófriður í Friskó
KVIKMYNDIR
Regnboginn, Laugarásbíó
Leikstjóri: Philip G. Atwell. Aðalleikarar:
Jet Li, Jason Statham, John Lone, Luis
Guzmán, Saul Rubinek. 105 mín. Banda-
ríkin 2007.
Rogue Assassin Sæbjörn Valdimarsson
Rogue Assassin „Til viðbótar
vanabundnum hasarmyndafrum-
efnum af þessum toga er sverðas-
lagur, kung fu og hliðarsaga ...“
FYRSTA undanúrslitakvöld Skrekks, hæfi-
leikakeppni grunnskóla Reykjavíkurborgar, fór
fram í gærkvöldi í Borgarleikhúsinu. Þar öttu sjö
skólar kappi um að komast áfram í úrslit með alls-
konar atriðum en að lokum voru það Korpuskóli
og Árbæjarskóli sem fengu sæti í úrslitunum.
Undanúrslitakvöld Skrekks eru fjögur og fara
fram í vikunni en úrslitakvöldið verður þriðju-
dagskvöldið 20. nóvember þegar átta skólar
keppa til úrslita.
Auk Korpuskóla og Árbæjarskóla voru það
Hvassaleitisskóli, Landakotsskóli, Langholtsskóli,
Háteigsskóli og Vogaskóli sem mættu með atriði á
Skrekk í gærkvöldi. Hugmyndarík Krakkarnir sýndu frumleika í atriðunum.
Komst áfram Korpuskóli notaðist við svart og hvítt og neonljós í atriði sínu.
Leikur Skrekkur er hæfileikakeppni sem haldin er af ÍTR.
Morgunblaðið/Golli
Stuð Það var mikið dansað á sviði Borgarleikhússins í gær.
Frumleiki og fimi á Skrekk