Morgunblaðið - 14.11.2007, Síða 25

Morgunblaðið - 14.11.2007, Síða 25
daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2007 25 Eftir Arnþór Helgason Eydís Einarsdóttir er fæddárið 1978. Hún varð stúd-ent frá Fjölbrautaskólan-um við Ármúla 1998. Jafn- framt námi til stúdentsprófs lagði hún stund á nám við Nuddskóla Íslands og lauk því árið 2000. Árið 2006 lauk Ey- dís prófi í lífefnafræði frá Háskóla Ís- lands. Um þessar mundir stundar hún meistaranám í lyfja- og efnafræði náttúruefna við lyfjafræðideild H.Í. Eydís á tvö börn með Reyni Loga Ólafssyni, 6 ára dóttur og son á fyrsta ári. Hún kaus að hitta blaðamann á kaffihúsinu í Þjóðminjasafninu. Þenn- an mánudagsmorgun var veðrið ynd- islegt, léttskýjað og kjörið til mynda- töku. Það var svo hlýtt að við ákváðum að sitja utandyra og gæða okkur á úrvalskaffi. Sveinninn svaf í vagninum á meðan móðirin greindi frá ævi sinni og áhugamálum. Kliður umferðarinnar, flugvéla og annarra gesta barst okkur til eyrna og andvar- inn strauk fólki um vanga. Leit að virkum lyfjaefnum Eydís hóf meistaranám í lyfja- og efnafræði náttúruefna þegar að lok- inni útskrift og náði einni önn áður en hún eignaðist son sinn í nóvember síð- astliðnum. Fæst hún einkum við rannsóknir á fléttum. Á vefnum www.floraislands.is er m.a. þetta að finna um fléttur: Fléttur eru sambýlisverur, þannig að hver flétta er gerð af asksveppi sem þekur yfirborð hennar að utan, og grænþörungi eða bláþörungi, sem gefa sumum þeirra grænan lit, og sjá um ljóstillífun fléttunnar. Þörungarn- ir framleiða þannig lífræn næringar- efni fyrir sveppinn. Sumar fléttur eru sambýli þriggja lífvera, þ.e. asksvepps, bláþörungs og grænþörungs. Bláþörungarnir hafa þá eiginleika fram yfir aðra þátttak- endur í sambýlinu, að geta bundið nít- ur úr andrúmsloftinu. Fléttur vaxa á margs konar undir- lagi, á grónum jarðvegi, á steinum, trjáberki, unnum viði, steinsteypu, hornum, og jafnvel á járni. Sumar tegundir fléttna vaxa eingöngu á klettum í fjöru þar sem saltur sjórinn flæðir reglulega yfir, aðrar halda sig við vatnsrásir á klettum, og enn aðrar vaxa eingöngu á steinum í lækjum eða á kafi í vatni. Á Íslandi eru nú þekktar um 710 tegundir af fléttum. Fléttur eru gróft flokkaðar í þrennt: runnfléttur, blað- fléttur og hrúðurfléttur. „Ég er að taka við verkefni sem Anna Kristín Óladóttir hafði með höndum,“ segir Eydís. „Hún rannsak- aði fléttu sem kallast surtarkræða á íslensku (Alectoria nigricans). Hún er algeng runnflétta um allt land og vex mest í mólendi. Anna Kristín kannaði 10 fléttutegundir og surtarkræðan reyndist ásamt annarri fléttu hafa mesta virkni gegn RS-veirunni sem leggst einkum á ungbörn. Þetta er al- varleg sýking sem ekkert sérhæft lyf hefur verið þróað gegn. Mörg börn sem fá slíka sýkingu verða astmaveik. Mitt verkefni verður að rannsaka þetta viðfangsefni nánar auk annars verkefnis. Leiðbeinandi minn er Sess- elja Ómarsdóttir. Ég lýk væntanlega meistaraprófi í lyfjavísindum eftir eitt og hálft ár. Ég veit ekki enn hvort ég held áfram í frekara námi.“ „Þegar ég var lítil ákvað ég að verða nuddari þegar ég yrði stór,“ heldur Eydís frásögninni áfram. Föð- ursystir mín, Guðrún Þórsdóttir, mik- il kjarnakona, kenndi okkur systk- inunum svæðanudd og ég gerði mér því snemma grein fyrir þeim áhrifum sem nuddið getur haft. Í Nuddskóla Íslands lærði ég ýmsar tegundir nudds. Meistari minn, Örn Jónsson, lagði sérstaka áherslu á orkuflæði lík- amans sem byggist á kínversku nál- astunguaðferðinni. Ég lærði því að nýta mér orkubrautir líkamans, en öðlaðist ekki réttindi sem nála- stungulæknir.“ – Er til eitthvert kennsluefni um nálastungur á íslensku? „Bókin sem við lásum er eftir Mar- inó Ólafsson og er leiðarvísir með tæki sem nefnist ELACU. Þetta er rafeindatæki sem Marinó hannaði fyrir um 30 árum. Tækið skynjar orkubrautir líkamans og gefur frá sér tón þegar það hittir á þær. Veikum rafstraumi er hleypt á punktana sem verkar svipað og nálastungur.“ Bakpokafólkið vakti áhuga Eftir að Eydís lauk námi sem nudd- ari vann hún um skeið á nuddstofunni Umhyggju. Innra með henni blundaði löngun eftir frekara námi. Hún hafði hug á að fara til Brighton í Bretlandi og leggja stund á austrænar eða kín- verskar lækningar við háskóla þar í borg. „En veður skipuðust í lofti. Árið 2002 eignaðist ég dóttur. Um svipað leyti fluttist ég í íbúð á Víðimelnum sem foreldrar mínir áttu. Þegar ég sat þar í fæðingarorlofinu og fylgdist með bakpokafólkinu streyma inn í Þjóð- arbókhlöðuna fann ég að mig langaði til að hefja nám aftur. Ég fór því að sækja tíma í læknisfræði. Eftir ára- mótin 2003 innritaði ég mig í raunvís- indadeild og fór að nema lífefnafræði. Henni lauk ég í fyrravor.“ Eydís telur sig hafa nálgast áhuga- mál sitt, lækningajurtirnar, eins og hún hefði gert, hefði hún lagt stund á kínverska læknisfræði, en undir öðr- um formerkjum. „Ég hef lært talsvert af Guðrúnu föðursystur minni, en hún tínir jurtir og býr til te úr þeim. Ég tíni gjarnan blóðberg og bláberjalyng á meðan það er nýtt og spæni það í mig. Einnig bý ég til te úr blóðbergi, fyrst og fremst af því að mér finnst það gott. Þegar við mæðgurnar förum upp í Heiðmörk spyr Agnes Sjöfn hvort hún megi borða hina og þessa jurtina. Ég hef þó ekki kannað hollustu jurtanna.“ Morgunblaðið/ G. Rúnar Lífefnafræðingurinn Eydís Einarsdóttir hefur lengi haft áhuga á lækn- ingajurtum og hugði um tíma á nám í kínverskum lækningaaðferðum. Virk lyfjaefni í surtarkræðum Komið hefur í ljós að af 10 íslenskum fléttum hef- ur surtarkræða ásamt annarri fléttu að geyma virk efni sem vinna gegn Rs-veirunni. Hún leggst einkum á ungbörn og getur valdið mjög alvar- legum lungnasýkingum. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.