Morgunblaðið - 29.11.2007, Síða 33

Morgunblaðið - 29.11.2007, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2007 33 tengdasonur hans og naut þess æv- inlega að ferðast vítt og breitt um landið með Jóni, sem aldrei taldi eftir sér að hafa tengdaföður sinn með í ferðum. Sameiginlegt áhugamál tengdi þá sterkum böndum. Hjónaband þeirra Arndísar og Jóns hefur alla tíð verið afar farsælt svo aldrei bar þar á skugga. Þau báru ávallt mikla virðingu hvort fyrir öðru, voru samhent og einhuga í einu og öllu. Á allt þetta reyndi í þeim veik- indum sem knúið hafa dyra hjá þeim báðum á undanförnum árum þar sem ást, ósérhlífni og samstaða einkenndi viðbrögð þeirra. Sá erfiði taugasjúk- dómur sem lagðist á Jón á seinni árum bar hann af mikilli hugprýði og kjarki og lét aldrei bugast. Hér er nú fallinn frá góður drengur og mikill öðlingur. Nokkrum árum eftir að faðir okkar Arndísar lést, tóku þau Jón og Arndís móður okkar, Katrínu Gísladóttur, sem þá var farin að heilsu, inn á heimili sitt og önn- uðust hana af mikilli alúð og ósér- hlífni, uns hún fékk vist á hjúkrunar- heimili. Þetta var mikið góðverk sem ég þakka fyrir af heilum hug. Ævi- langa tryggð og vináttu viljum við hjónin einnig þakka fyrir. Megi náð og friður guðs veitast Arndísi systur minni, börnum hennar, tengdadóttur og öllum barnahópnum í sorg þeirra og söknuði. Hvíl í friði, kæri mágur. Magnús Guðjónsson. Nokkrar minningar um mann, sem var mikill fjölskyldumaður, var léttur í lund og sífellt að hugsa um aðra. Þegar eldri dóttir mín fæddist vorið 1970 andaðist langafi hennar um svip- að leyti og haft var á orði, sem sumir kalla klisju, að maður kemur í manns stað. Dóttir mín átti alltaf öruggt skjól hjá ömmu og afa, fyrst í Stóragerðinu en síðan í Brautó. Hún var fyrsta barnabarnið þeirra og þó að barna- börnin yrðu fleiri, var alltaf pláss og tími fyrir hana. Þegar við mæðgurnar bjuggum í litlu íbúðinni okkar í Breiðholtinu þá var það Jón afi sem kom og setti upp útiljósaseríurnar á svalirnar, hann og Dídí voru alltaf að hugsa um Hrönn sína, hringdu daglega, hvort ekki væri allt í lagi og hvort okkur vantaði örugglega ekkert. Einu sinni á afmælinu mínu þegar Hrönn var lítil komu þau sem ryksugu og gáfu mér, sú kvöð fylgdi að ef ég byrjaði að reykja aftur, þá kæmi hann og myndi taka ryksuguna aftur. Ég hafði hætt að reykja nokkrum mán- uðum áður og ryksugan var aldrei sótt, ég stóð við loforðið og geri enn. Öll árin sem ég var einstæð móðir í Breiðholtinu átti ég styrka stoð þar sem Jón og Dídí voru annars vegar, dóttirin alltaf velkomin og hún var alltaf tilbúin að fara til ömmu og afa. Það breyttist aldrei þó ég væri komin með mann og aðra dóttur, alltaf var sama hlýjan og vinsemdin í garð okk- ar allra. Ég gleymi því aldrei þegar við kvöddum Hrönn, Björn og Guðjón litla, fyrsta barnabarnið mitt, á flug- vellinum í Keflavík. Þau voru að flytja til Ameríku, til að fara í nám. Ég keyrði jeppann okkar, með manninn minn fótbrotinn í gifsi og litlu dóttur mína og Jón afi og Dídí komu á Patrol- jeppanum sínum og foreldrar Björns komu á þriðja bílnum í snarbrjálaðri snjóhríð á flughálum Keflavíkurveg- inum. Þegar þetta gerðist var Jón far- in að finna fyrir sjúkdóminum sem ágerðist svo smátt og smátt, en hann og Dídí fóru þrátt fyrir það að heim- sækja litlu fjölskylduna í Ameríku. Ég er afskaplega þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að kynnast þessari fjölskyldu og þakklát fyrir að dóttir mín á svona góða að. Ég minnist manns sem var alltaf að hugsa um aðra, alltaf tilbúin í grín og glens og þó hann væri kominn í hjóla- stól, þá var stutt í stríðni og hnyttin tilsvör. Guð veri með þessari fjölskyldu á þessum erfiðu tímum. Guðrún Lilja Norðdahl. Ég ætlaði rétt að kveðja Jón Guð- jónsson og þakka honum fyrir sam- veruna og allt. Jón var ótrúlegur mað- ur, ljúfur og vandaður. Maður sem gerði allt 110 prósent, vandvirkur, smekklegur. Hann bar mikla virðingu fyrir fólki, var með mikla réttlætis- kennd og mátti ekkert aumt sjá hjá öðrum. Maður sem fór vel með alla hluti og bar mikla virðingu fyrir fjár- munum. Hann var líka einstakur dýravinur. Heimilið, fjölskyldan og af- komendurnir voru honum allt. Það skipti hann mestu máli að allt gengi vel hjá fólkinu sínu, alltaf jafn mikill áhugi á því hvað fólkið væri að fást við, það leyndi sér ekki. Það hefur alltaf verið gott að koma heim til þeirra hjóna og gaman að sjá hvernig þau hafa alltaf ljómað af ánægju og horft stolt yfir hópinn, ömmu- og afabörnin sín, þegar þau hafa komið til þeirra. Ég dáist að þeim systkinum Möggu og Guðjóni, ásamt Siggu, fyrir að hafa alltaf staðið þétt á bak við Jón í veik- indunum. Þau hafa virkilega alltaf reynt að gera allt sem bærilegast fyrir hann og verið eins og klettur á bak við hann, ásamt öðrum fjölskyldumeðlim- um. Þá má aldrei gleyma því yndis- lega starfsfólki sem starfar á hjúkr- unarheimilinu Eir, en það frábæra fólk hefur hugsað vel um Jón og Dídí, með fagmennsku, góðmennsku og nærgætni í fyrirrúmi alla tíð. Allra mesta hetjan er þó Dídí okkar og við erum með hugann hjá henni núna, þegar eiginmaður hennar í tæp 60 ár er kvaddur. Hún hefur alltaf staðið honum þétt við hlið, sú góð- hjartaða og glæsilega kona, og tekið á veikindum hans, eins og öllu öðru, með einstöku æðruleysi. Ég kveð Jón með söknuði, en jafn- framt með virðingu og þakklæti. Minningin lifir um góðan mann. Kveðja, Magnús Örn Guðmarsson. Hverfum um stund aftur til ársins 1960, en þá sem nú, er borgin í örum vexti og nýtt hverfi, Stóragerðið, í uppbyggingu. Þangað flykkist barna- fólk svo að hverfið iðar af lífi, athafna- semi og bjartsýni. Í fyrstu var sjón- deildarhringurinn smár hjá okkur ungviðinu og bundinn við okkar nán- asta umhverfi enda brýnt fyrir okkur að fara ekki úr augsýn mæðra sem flestar voru heimavinnandi og vak- andi fyrir velferð okkar. En eftir því sem tognaði úr okkur, stækkaði sjón- deildarhringurinn og kom að því að hann náði alla leið niður í fyrstu blokk- ina. Þar leyndist líka stúlka með hrokkið hár, stutt í hláturinn og með hjartað úr gulli. Eilífðarvinkona! Um leið eignuðumst við athvarf hjá þeim Jóni og Dídí og var heimili þeirra okkur alltaf opið. Þar hlúði Dídí að okkur í mat og drykk en húsbónd- inn Jón var á fullu að „rafmagna“ borgarbúa með góðum árangri. Hann gaf sér þó tíma til að kynnast okkur hverri og einni og taka þannig þátt í áhugamálum dóttur sinnar og stuðla um leið að velferð hennar. Eftir fyrstu kynni komst ég að því að Jón gat í al- vöru verið svolítið „stuðandi eða raf- magnaður“ eða svolítið stríðinn, karl- inn! En ævinlega var það góðlátlega meint svo að eftir því sem árin liðu kunni ég alltaf betur og betur að meta þessa eiginleika hans. Verð ég líka að viðurkenna að við vinkonurnar vorum nú ekki alltaf saklausar í hans garð og gátum tekið upp á ýmsu. Hann kallaði mig ævinlega Helgu „litlu“ en þegar ég tók upp á því að vaxa seint um síðir og ná Möggu hélt ég að ég hefði glatað því viðurnefni endanlega, en svo reyndist ekki. Allt var líka svo auðvelt á meðan við vorum aðeins í þessari götu bernskunnar en uppeldismálin fóru að flækjast þegar töglin og tík- arspenarnir fóru að víkja fyrir mask- ara og varalit svo ekki sé minnst á vaxandi áhuga á hinu kyninu. Þá fannst Jóni betra að hafa augun hjá sér. Eftirminnileg er líka fyrsta versl- unarmannahelgarútilegan sem farin var með þeim hjónum. Þar var að sjálfsögðu kíkt á strákana en allt und- ir siðsömu eftirliti. Og árin líða, við vöxum úr grasi og ég sest að í afdölum Öxarfjarðar. Í borgarferðum mínum sem voru ærið margar var markmiðið að líta við hjá Möggu og þar hitti ég þau hjón af og til og heimsótti þau einnig á Eir. Við Jón höfum aldrei átt í vandræðum með umræðuefnin. Iðu- lega voru þau landsbyggðarmálin, enda sannkallaður landsbyggðarmað- ur á ferð, Strandamaður í húð og hár og minnugur bæði á fólk og staðhætti. Á áttræðisafmæli Dídíar gerðist ég leynigestur. Þegar ég óskaði Jóni til heilla með sína konu og spurði um leið frétta af lífinu og tilverunni hjá þeim, svaraði hann mér með þessum gull- vægu orðum: „Helga litla. Ég er hug- ur hennar, hún er höndin mín.“ Þann- ig má með þessari einu setningu orða samheldni þeirra hjóna í gegnum súrt og sætt í áratugi af velgengni og ham- ingju, þar sem þau gerðu sér far um að vera bæði akkeri og kjölfesta barna sinna og annarra afkomenda af miklum myndarskap. Elsku Magga mín, Dídí, Guðjón og fjölskyldan öll. Einlægustu samúðarkveðjur til ykkar allra. Megi minning hans lifa. Helga Þorsteinsdóttir. Nú er fallinn frá mætur maður og góður vinur minn, Jón Guðjónsson. Kynni okkar Jóns voru orðin æði löng eða nærfellt 60 ár og bar þar aldrei neinn skugga á. Kynnin hófust með því að við giftumst báðir stúlkum frá Bíldudal sem voru vinkonur. Samskipti okkar Jóns hafa verið mjög mikil í gegnum tíðina því fljót- lega eftir að við kynntumst fórum við að reka saman rafverktakafyrirtæki. Ég hafði lært rafvirkjun og hann raf- vélavirkjun. Þetta fyrirtæki rákum við saman í 18 ár. Nokkrum árum eft- ir stofnun rafverktakafyrirtækisins stofnuðum við einnig, ásamt tveimur öðrum, byggingafélag sem byggði fjölda íbúða. Byggingafélagið varð síðar að eignahaldsfélagi og var því slitið fyrir nokkrum árum. Þegar menn hafa þekkst svona lengi og unnið mikið saman eins og við Jón höfum gert og leiðir skilja kemur margt upp í hugann. Eitt er hversu mikill verkmaður hann var eða mesti verkmaður sem ég hef fyrr eða síðar kynnst. Annað hvað það var alltaf skemmtilegt í nánd við Jón. Jón var óvenju skemmtilegur maður sem sá alltaf hinar broslegu hliðar á öllum málum og var tilbúinn með brandara þegar svo bar undir. Einnig átti Jón það til að vera stríðinn og eru mér minnisstæðar mjög fyndnar kring- umstæður sem komu til vegna uppá- tækjasemi Jóns. Menn eins og Jón eru ómetanlegir fyrir samfélagið því þeir létta svo umhverfið í kringum sig og menn eru mun ánægðari að vinna með slíkum mönnum. Í sínum miklu og langvarandi veikindum hélt Jón mikilli sálarró og gat verið að reyta af sér brandara fram á síðasta dag. Jón var mikill gæfumaður í einka- lífinu, átti góða konu og tvö mann- vænleg börn. Að lokum vil ég þakka Jóni sam- fylgdina og votta Arndísi og öðrum ættingjum mína dýpstu samúð. Svavar Kristjónsson. Með örfáum orðum viljum við minnast elskulegs vinar og nágranna um áratugaskeið. Það er alltaf erfitt að kveðja góðan vin en dýrmætt að eiga aðeins um hann góðar minningar. Jón var einstaklega vandvirkur maður og mikið snyrtimenni. Sást það á öllu sem hann kom nálægt og mátt- um við nágrannar hans mikið af hon- um læra. Þær voru margar ánægjustundirn- ar, sem við áttum með honum og hans ágætu konu, Arndísi (Dídí) í Braut- arlandinu, bæði utandyra við dútl og garðvinnu, en ekki hvað síst á fallega heimilinu þeirra, þar sem gestrisni var í hávegum höfð. Þar var frú Arn- dís í essinu sínu og bar fram ljúfar veitingar hvenær sólarhrings sem var. Jón og Dídí voru sannarleg sam- hent hjón og með afbrigðum vinsæl, enda óvenjugestkvæmt á heimili þeirra. Þar var öllum tekið opnum örmum. Jón var glaðlegur maður og hnytt- inn í orðum. Stríðinn var hann og hafði gaman af, en særði aldrei neinn og oft var hlegið. Það var mikið áfall þegar Jón greindist með rýrnunarsjúkdóm fyrir allnokkrum árum, en hann tók því af miklu æðruleysi og reyndi að lifa líf- inu eins og hann gat, alltaf jákvæður og bjartsýnn. Þar kom þó, að þau hjón urðu að flytja úr Brautarlandinu og á Hjúkrunarheimilið Eir. Þar sýndi Jón mikinn hetjuskap í veikindum sínum. Hann þeysti um ganga á sínum raf- knúna stól, gerði að gamni sínu og þau hjónin sýndu þar sömu gestrisn- ina og væntumþykjuna og í Brautar- landinu áður. Nú þegar Jón hefur kvatt er gott að vita að eftir stendur stór og góð fjöl- skylda, sem umvefur Dídí. Það hefur verið ánægjulegt að sjá hvað þessi ná- grannafjölskylda hefur haft náið og gott samband. Elsku Dídí, við sendum þér, börn- unum þínum og fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúðarkveðjur. Ingibjörg og Helgi V. Jónsson. Sólin strauk snöggvast vesturhlíð Brunngilsdalsins og gyllti vetrarfölt landið, daginn er ég frétti lát Jóns Guðjónssonar frænda míns. Mér fannst ofur fallegt af henni á þessum stutta birtutíma skammdegisins að kveðja hann með þessum hætti. Hér á Þórustöðum sleit hann barnskónum og unni mjög þessum slóðum síðan. Hann var góður og skemmtilegur frændi hann Jón. Við þessi leiðarlok sækja margar minningar á hugann og allar eru þær gleðilegar. Þær flugu fljótt stundirnar þegar hann kom hingað norður að heimsækja okkur ættingja sína á sumrin. Einstaklega gaman var að hlusta á þá frændur, hann og pabba sáluga rifja upp gam- an og grín frá fyrri tíð. Þá var oft hlegið dátt, þeir höfðu svipaðan prakkarahúmor blessaðir. Jón frændi var mikill gæfumaður í sínu einkalífi. Það var ætíð svo að tal- að var í einni og sömu setningu um þau Jón og Dídí. Ung áttust þau og fylgdust að glöð og kát gegnum lífið, áttu þessa gæsku í hjartanu sem svo sannarlega skilar sér til afkomenda þeirra. Jón minn var mikill sjúklingur síð- ustu æviárin og þrekið farið. Það hef- ur eflaust verið honum, jafn starfsöm- um og kvikum manni, erfiður kross að bera. En mín vissa er að hans létta lund ásamt ástúðlegri ummönnun fólksins hans hafi verið honum þar raunabót. Nú hefur hann blessaður lokið baráttunni og vafalaust átt góða heimkomu í eilífðarlandið. Máski að þeir sitji þar frændur pabbi og hann og skemmti englunum með sínum óborganlegu skrítlum. Ég og mitt fólk vill á þessari kveðjustund þakka elskusemi og tryggð árin öll. Guð blessi minningu Jóns Guðjóns- sonar frænda míns og varðveiti fólkið hans á komandi tímum. Óla Friðmey Kjartansdóttir. Nú að Jóni föðurbróður mínum öll- um er horfin sjónum fyrsta kynslóð afkomenda ömmu og afa, það er börn Margrétar og Guðjóns frá Þórustöð- um í Bitrufirði á Ströndum. Mér fannst reyndar mikið skarð vera þeg- ar fyrir skildi fyrir rúmu ári á ætt- armóti niðja ömmu og afa, er þau hjónin, Dídí og Jón, eins og nákomnir kölluðu þau ávallt, treystu sér ekki til að vera með. Var það fyrsta niðjamót- ið, hið fimmta í röðinni, án fyrstu kyn- slóðarinnar. Jón frændi hafði á sínum tíma mikinn áhuga á að koma mót- unum á laggir og hvatti mjög til þeirra. Hafa þau verið haldin að jafn- aði þriðja hvert ár. Jón var langyngst- ur fimm systkina, sem voru ákaflega samheldin, nokkuð sem ég upplifði frá barnæsku. Einn árangur samheldn- innar er sá að við systkinabörnin, önnur kynslóðin, þekkjumst mjög vel. Er ég því sannfærður um að í minn- ingu um systkinin og foreldrana frá Þórustöðum haldi niðjamótin áfram um árabil, enda afar skemmtilegar samkomur. Þökk sé Jóni frænda fyrir hans þátt. Jóni var góðvildin og greiðviknin í blóð borin. Efst er mér í huga, að því er mínum ættlegg viðvíkur, hjálp og umhyggja þeirra Dídíar fyrir móður minni og fjöldskyldunni við ótíma- bært andlát föður míns á erfiðu tíma- bili eftir langvinnan sjúkdóm hans fyrir rösklega fjórum áratugum. Fað- ir minn og Jón, litli bróðir hans, voru afar nánir. Var Jón heimagangur hjá foreldrum mínum á Akranesi á ung- lingsárum hans, fyrir mitt minni, og áttu þeir bræður þá saman sinn fyrsta bíl. Þá er mér vitanlega minnisstætt að Jón frændi gekk með mér í föð- urstað upp að altarinu er ég festi ráð mitt á sínum tíma. Gamansamur var Jón með afbrigð- um og hef ég oft haft unun af að rabba við hann og heyra skemmtilegar frá- sagnir hans af fyndnum atburðum og skrítnu fólki, hvort sem var frá í gamla daga fyrir norðan og vestan eða frá vinnustöðum hans í nýbygg- ingum á Árbæjar- og Breiðholtstím- anum. Margar frásagnir Jóns frænda hef ég í áranna rás nýtt mér til að vera fyndinn meðal vina og kunn- ingja. Ég var um daginn að hugleiða nokkur atvik frá í gamla daga til að rifja upp með honum og hlægja með honum, en áður en að heimsókn varð kom kallið mikla mér alveg að óvör- um. Mér var oft hugsað til þess, og fann ég þá til með frænda, hve ill örlög það hlytu að vera honum að geta sér lítt bjargað og verða að lokum bundinn við hjólastól. Ég vissi nefnilega mæta vel hvílíkt yndi hann hafði af að ferðast, ekki síst um landið og á æsku- slóðir sínar fyrir norðan. En loksins þegar hann var að mestu hættur að vinna sakir aldurs, og átti því að geta farið að njóta meira frelsis, gat hann sig naumast hrært. Á móti kom hins vegar hve andlega hress hann var og gat ávallt gert að gamni sínu sem fyrr, að því er virtist sáttur við fötlun sína, og lánsamur var hann vissulega að hafa Dídí alltaf hjá sér og börnin í þrjá ættliði á næsta leiti. Við Edda og fjölskyldur okkar vott- um Dídí og fjölskyldum hennar okkar dýpstu samúð nú þegar Jón frændi er horfinn sjónum okkar, en huggun er henni í að verða áfram umvafin af- komendum sínum, eins og þau Jón voru ætíð. Minningin um góðan dreng lifir. Rögnvaldur. Elsku Svavar. Ég hef þekkt þig frá því þú fæddist. Ég man það svo vel hversu skemmtilegt og gott barn þú varst og hve gaman var að vera í návist þinni. Þú bjóst yfir einstaklega góðu lundarfari, jákvæðni og fallegu hjartalagi. Við höfðum mik- ið samband fram á fullorðinsár en því miður minnkaði sambandið með ár- unum – það breytti þó engu um það hversu vænt mér þótti alltaf um þig og hversu vel við þekktumst. Þú Svavar Hreinn Pétursson ✝ Svavar HreinnPétursson fædd- ist að Kaldaðarnesi á Ströndum hinn 20. janúar 1952. Hann lést á Landspít- alanum við Hring- braut 29. október síðastliðinn og fór útför hans fram frá Grafarvogskirkju 5. nóvember. kynntist góðri konu og eignaðist með henni mannvænleg og góð börn. Fjölskyldan var þér afar kær og þú varst einstaklega barn- góður. Það var mér mikið áfall að heyra um andlát þitt og ég sakna þín innilega, Svavar minn, og þakka þér fyr- ir allar góðu stundirnar. Elsku Heiða, Jó- hanna Karlotta, Pétur Áskell, Svavar Kári og Eva Valdís, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Einnig sendi ég systkinum Svavars og öðrum ættingjum hans samúðarkveðjur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V.Briem) Þín frænka Hulda.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.