Morgunblaðið - 03.02.2008, Qupperneq 4
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
HINN þekkti lögfræðingur og pró-
fessor í refsirétti við Harvard-
háskóla, Alan Derschowitz, kemur
hingað til lands í byrjun apríl til að
halda námskeið í
Skálholti á veg-
um Skálholts-
skóla fyrir lög-
menn og
dómara. Mun
hann við sama
tækifæri halda
opinn fyrirlestur
á Hilton hótel
Reykjavík á veg-
um Lögmanna-
félags Íslands. Það verður auglýst
nánar síðar. Eru laganemar há-
skólanna á Íslandi sérstaklega
hvattir til að hlýða á fyrirlesturinn.
Samson eignarhaldsfélag er fjár-
hagslegur bakhjarl að heimsókn-
inni.
Allt milli himins og jarðar
Derschowitz er m.a. þekktur
fyrir vandaða kennslu og að koma
með beinum eða óbeinum hætti að
vörnum þekktra manna í Banda-
ríkjunum á borð við O.J. Simpson
og Mike Tyson, í dómsmálum sem
hlutu gríðarlega athygli almenn-
ings. Gaf hann út bókina Reason-
able Doubts um mál Simpsons ný-
verið.
Derschowitz lætur sér hins veg-
ar fátt mannlegt óviðkomandi og
hefur m.a. látið til sín taka í mál-
efnum Ísraels og Palestínu og hef-
ur skrifað fjölmargar kennslubæk-
ur í sínu fagi. Þá skrifaði hann árið
2000 bók um morðmál Gamla
testamentisins svo dæmi sé tekið.
Bókin heitir á frummálinu Genesis
of Justice. 10 Stories of Injustice
That led to the Ten Comm-
andments and Modern Morality
and Law. Sú bók vakti einmitt
áhuga Kristins Ólasonar, rektors
Skálholtsskóla, á manninum og
setti hann sig í samband við hann
og bauð honum í kjölfarið að koma
hingað til lands.
„Ég kynntist bókum hans þegar
ég kenndi við guðfræðideildina í
háskólanum í Freiburg í Þýska-
landi,“ segir Kristinn. „Hann hafði
þá gefið út bók um morðmál í
Gamla testamentinu sem vakti
mikla athygli, ekki síst meðal guð-
fræðinga og lögfræðinga.“ Kristinn
segir bókina hafa verið mjög
áhugaverða og setti hann sig því í
samband við höfundinn, Derscho-
witz, og skrifuðust þeir á. „Í fyrra
spurði ég hann svo hvort hann
vildi koma til Íslands og hann var
ákaflega áhugasamur um það.“
Derschowitz er prófessor í refsi-
rétti við Harvard-háskóla í Banda-
ríkjunum og telur Kristinn engan
vafa leika á því að koma hans
hingað muni vekja mikinn áhuga
lögmanna. „Hann er einn frægasti
verjandi Bandaríkjanna og hefur
komið þar að mjög stórum og um-
töluðum málum.“ Auk Simpsons og
Tysonss var Derschowitz verjandi
Claus von Bülow. Sá var sakaður
um að reyna að myrða eiginkonu
sína með of stórum skammti af
Verjandi O.J. Simpson
með námskeið á Íslandi
Árvakur/Brynjar Gauti
Skálholt Alan Derschowitz verður með námskeið í Skálholti fyr-
ir verjendur og dómara og heldur opinn fyrirlestur í Reykjavík.
Þekktur Alan Derschowitz er frægur verjandi
og lætur til sín taka í umræðu um umdeild mál.
Kristinn Ólason
insúlíni árið 1980. Von Bülow var
sakfelldur í undirrétti en áfrýjaði
dómnum og þá kom Derschowitz
til skjalanna. Var dómi undirréttar
snúið við og von Bülow sýknaður.
Um þetta umtalaða dómsmál var
síðan gerð kvikmynd.
Gagnrýnir trúarofstæki
„Derschowitz er duglegur við að
tala um skoðanir sínar og fjalla um
samfélagsleg mál, til dæmis deilur
Ísraela og Palestínumanna,“ segir
Kristinn. „Hann hefur gagnrýnt
mjög mikið það sem hann kallar
trúarofstæki og hefur m.a. gagn-
rýnt Bush-stjórnina fyrir að hafa
kynt undir ofstækissjónarmiðum.“
Kristinn segir Derschowitz um-
deildan, sérstaklega vegna þeirra
umtöluðu mála sem hann hafi tekið
að sér vestanhafs. „Hann leggur
mjög mikla áherslu á réttindi sak-
borninga og hefur verið harður
málsvari þeirra. Hann hefur
ósjaldan gefið mál, ekki tekið
krónu fyrir, í þeim tilgangi að
tryggja að ekki sé brotið á rétt-
indum sakborninga.“
Kristinn segir mikinn feng í því
að fá Derschowitz hingað til lands.
„Ég myndi segja að þetta væri
sögulegur atburður og mjög
spennandi fyrir íslenska lögfræði
að fá hann hingað.“
„DERSCHOWITZ er talinn með þekktari lögfræðingum
í Bandaríkjunum,“ segir Róbert Ragnar Spanó, starf-
andi deildarforseti lagadeildar Háskóla Íslands, og vís-
ar m.a. til þátttöku hans í vörnum O.J. Simpsons. Hann
hafi því talsvert mikla vigt sem lögmaður þar í landi.
„Hann er auk þess þekktur sem mjög góður og líflegur
kennari og hefur einnig skrifað um málefni sem ekki
endilega tengjast lögfræði,“ segir Róbert. „Hann er til
dæmis þekktur fyrir skrif sín um tengsl lögfræði og
trúarbragða.“
Derschowitz varð prófessor aðeins 28 ára gamall og
varð þar með yngsti prófessor við lagadeild Harvard frá upphafi. „Hann
var aðstoðarmaður við Hæstarétt Bandaríkjanna á yngri árum, sem þyk-
ir mjög eftirsótt þar í landi, aðeins þeir bestu komast í það.“
Róbert segist spenntur að fá Derschowitz hingað til lands. „Það verður
sérstaklega gaman að heyra um reynslu hans af bandarísku réttarkerfi.
Fyrir þá sem hafa áhuga á lögfræði og tengdum málefnum, samfélags-
legum málefnum sem tengjast þróun réttarkerfisins og tengslum verald-
legra málefna og trúarlegra hefur hann örugglega talsvert mikið fram
að færa.“
Þekktur reynslubolti
Róbert Spanó
4 SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Tóbaks-
varnalög
verði virt
HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ
sendi sl. föstudag bréf til eftirlits-
stjórnvalda þar sem því er beint til
þeirra að bregðast við brotum á tób-
aksvarnalögum í samræmi við heim-
ildir sínar að lögum. Ráðuneytið bein-
ir því sérstaklega til vinnueftirlits
ríkisins og heilbrigðisnefnda sveitar-
félaga að þau tilkynni lögreglu öll brot
sem vart verður við.
Algjört reykingabann
Í bréfi til heilbrigðisnefnda sveitar-
félaga, Vinnueftirlitsins, Flugmála-
stjórnar og Siglingamálastofnunar,
lögregluembætta, Umhverfisstofnun-
ar og Lýðheilsustöðvar er greint frá
því hvernig eftirliti með framkvæmd
tóbaksvarnalaga er háttað og hvaða
eftirlits- og þvingunarúrræði séu fyr-
ir hendi sé brotið gegn ákvæðum 3.
kafla tóbaksvarnalaga, um takmark-
anir á tóbaksreykingum. Bent er á að
algjört reykingabann sé í húsakynn-
um sem almenningur hafi aðgang að.
Þetta eigi jafnt við um húsakynni
stofnana, félagasamtaka og fyrir-
tækja, þar á meðal veitinga- og
skemmtistaði.
♦♦♦
SAMKOMULAG náðist um myndun
nýrrar landstjórnar í Færeyjum í
gærmorgun. Þrír flokkar, jafnaðar-
menn, Þjóðveldisflokkurinn og Mið-
flokkurinn, mynda stjórnina.
Viðræðurnar um stjórnarmynd-
unina höfðu dregist á langinn, meðal
annars vegna deilu um hversu marg-
ir ættu að fá sæti í landstjórninni og
um skiptingu embætta.
Flokkarnir komust að lokum að
þeirri niðurstöðu að landstjórnin
yrði skipuð alls átta mönnum. Fjórir
þeirra verða úr Þjóðveldisflokknum,
einn úr Miðflokknum en jafnaðar-
menn fá þrjú embættanna, meðal
annars embætti lögmanns Færeyja
eða forsætisráðherra. Þjóðveldis-
flokkurinn fær einnig embætti for-
seta lögþingsins.
Samið á síðustu stundu
Miðflokkurinn hafði krafist þess
að landstjórnin yrði aðeins skipuð
sex mönnum. Viðræðunum var slitið
um klukkan fjögur aðfaranótt laug-
ardags vegna deilunnar og útlit var
fyrir að viðræðurnar hefðu farið út
um þúfur en samkomulag náðist þó á
síðustu stundu áður en lögþingið var
sett í gærmorgun.
Gert er ráð fyrir því að Jóannes
Eidesgaard, leiðtogi jafnaðarmanna,
verði lögmaður Færeyja. Flokkarnir
þrír fengu 17 sæti af 33 á færeyska
lögþinginu í kosningum 19. janúar.
Þjóðveldisflokkurinn er stærstur,
með átta þingmenn, jafnaðarmenn
sex og Miðflokkurinn þrjá.
Þjóðveldisflokkurinn er undir for-
ystu Høgna Hoydal, vill fullt sjálf-
stæði Færeyja og hefur boðað að-
skilnað frá Dönum í nokkrum,
hröðum skrefum.
Eidesgaard hefur síðustu árin far-
ið fyrir landstjórninni. Jafnaðar-
menn voru í stjórn með Sam-
bandsflokknum og Þjóðarflokknum
fyrir kosningarnar en ekki tókst að
halda því samstarfi áfram þótt land-
stjórnin héldi meirihlutanum á lög-
þinginu.
Þrír flokkar mynda
stjórn í Færeyjum
FYRRVERANDI starfsmaður nor-
rænu vopnahléseftirlitssveitanna
(SLMM) á Srí Lanka hefur fengið
pólitískt hæli hér á landi.
Magnús M. Norðdahl, deildar-
stjóri lögfræðideildar ASÍ, staðfesti
þetta í samtali við Morgunblaðið.
Maðurinn var bílstjóri og túlkur
Magnúsar þegar hann starfaði á Srí
Lanka hjá SLMM árið 2004.
Maðurinn kom til landsins árið
2006 til að vinna á Kárahnjúkum.
Þegar atvinnuleyfi hans rann út fór
hann til Noregs og sótti þar um hæli
en honum var vísað til Íslands sam-
kvæmt ákvæði flóttamannasamn-
ings Sameinuðu þjóðanna um að
menn eigi að sækja um hæli í því
landi sem þeir koma fyrst til. Hæl-
isumsókn hans hér á landi var sam-
þykkt 15. janúar, að sögn Magnúsar.
Er þetta í annað skipti sem manni
er veitt pólitískt hæli á Íslandi frá
því að flóttamannasamningurinn tók
gildi árið 1951. Maður frá Afríku
fékk pólitískt hæli hér á landi 1999.
Fékk hæli
á Íslandi
♦♦♦
„ÞAÐ er kominn tími á virka sam-
keppni á farsímamarkaði,“ segir Liv
Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri
samskiptafyrir-
tækisins Nova,
sem hefur ákveð-
ið að bjóða not-
endum 3G-far-
síma fría notkun
að andvirði 1.000
kr. á mánuði í eitt
ár ef þeir koma í
viðskipti til Nova.
Öllum sem kaupa
sér nýjan 3G-farsíma hjá Nova býðst
að nota símann endurgjaldslaust fyr-
ir 2.000 kr. á mánuði þegar gengið er
til liðs við Nova.
Nova hyggst bjóða nýjum við-
skiptavinum, sem eiga 3G-síma, fría
notkun upp að 1.000 kr. á mánuði í
eitt ár flytji þeir númerið sitt yfir til
Nova. Fyrir þá sem ekki eiga 3G-
síma en vilja koma í viðskipti til Nova
fylgir nú frí notkun upp að 2.000 kr. á
mánuði í eitt ár. Að sögn Nova greið-
ir notandi 3G-farsíma 12.000-24.000
kr. minna fyrir farsímanotkun á ári
með því að flytja viðskiptin.
„Tími á
virka sam-
keppni“
3G-farsími